Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2023

Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum

Dssa krimmi og Stoltinorsarinn

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og hershöfðingi einkahers Íhaldsins gerðist þjóflega gjafmild um daginn.

Ráðherra í ríkisstjórn, sem ekki getur einu sinni hækkað laun þeirra verst stöddu á Íslandi, tók um daginn 380 milljónir íslenskra króna út af skattfjárinnistæðu þjóðar sinnar, sem berst í bökkum, og stakk í vasa gjörspillts úkraínsk utanríkisráðherra, sem örugglega mun líta á sérhvern dal frá Slawa Íslandía sem sinn eigin vasapening eða lífeyri þegar hann stingur af í flýti til BNA á næstunni.

Þótt CIA og byssu-Gunter fyrrv. sendiherra Trumps í sendiráði BNA hafi reynt að stöðva umræðu um heimildamynd Oliver Stones frá 2014 um vandræðabarnið Úkraínu, þá fá allir Íslendingar sem greiða vasapeninga til  gráðugra svikahrappa í stjórn Úkraínu, heimildamynd Olivers Stones að gjöf í staðinn. Það má líta á þetta bíóboð sem skaðabætur með innbyggðum fræðslupakka. Minna má það nú helst ekki vera. Íslendingar gátu séð kvikmyndina um tíma á YouTube, þar sem hún hefur verið bönnuð af CIA.

Bíómiðinn er hér Sjáið sögu Úkraínu í mynd Olivers Stones.

Biden, sem nefndur er til sögunnar í heimildarmyndinni, hefur ekki tekist að banna alla umræðu eða gagnrýni líkt og litla vini Dísu Reykfjörð í Kænugarði hefur tekist. Myndin er reyndar komin upp aftur á YouTube með grískum texta. En betra er að sjá hana hér.  Ekki þarf popp eða kók til að njóta myndar Stones, þó fleiri hafi verið drepnir af Úkraínumönnum en samanlagt í öðrum myndum Stones.

Njótið myndarinnar, og þú líka Dísa Reykfjörð, jafnvel þótt sannleikurinn geti verið sumum sár á hinu gjafmilda Íslandi, þar sem fólk skilur ekki að "gyðingur",  eins og Zelenskiyj er sagður vera (en er ekki), getur aldrei stutt öfl sem myrtu gyðinga Úkraínu - en það gerir Zelenskiyj. Litli leikarinn er bara í kvikmynd lífs síns og meðan hann fær nóg kók og dollara og jafnvel vasapeninga pakkaða inn í prjónles frá Íslandi, dansar hann fyrir Biden, Trump og hvaða heilabilaða einstaklings sem er sem situr í Hvíta Húsinu í hvert og eitt skiptið. Getum við ekki vinsamlegast fengið Obama aftur!!!

Myndin hér fyrir neðan er af Dísu Reykfjord, er hún bauð ljóshærðum sveitablondínum og æskuvinkonum út á bæ í höfuðborginni í miðju Cóvinu ... án þess að nota verjur - Sjá hér.

Lög og reglur nefnilega ekki fyrir herskáar Dísur sem dást af austrænum fingrabrúðum í grænum flísherbúningi. Dísa er kannski sjálf strengjabrúða án þess að vita það.

vinkonudjamm
Sem betur fór áttu íslendingar enga skriðdreka á lausu, en stríðsviljug er Dísa Reykfjörð með eindæmum. Hún gleður hinn gamla generál Sjálfstæðishersins, Björn Bjarnason, sem lætur þetta eftir sér á bloggi sínu:

Scholz og áhrifamenn innan hans eigin Jafnaðarmannaflokks og annarra þýskra flokka vilja í raun frekar friðmælast við Rússa en sýna þeim í tvo heimana.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið hrifnari af þýskum nasistum en sossunum sem þar eru nú við völd. Þá er sko gott að hafa Dísu herskáu til að ráðast á Pútín og kommana...með 380 milljónir af skattfé Íslendinga.

Þannig er heimurinn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekkert breyst síðan hann innbyrti alla gömlu nasistana, líkt og Kanarnir gerðu líka, og það til at drepa vondu kommúnistana hvar sem þá er að finna.


mbl.is 380 milljón króna stuðningur til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband