30.12.2009 | 23:27
Þið kusuð þetta yfir ykkur!
Borgi þeir sem borga vilja. En er Björn Valur borgunarmaður? Guðbjartur Hannesson, á hann fyrir þessu? Jóhanna Sigurðardóttir, ertu borgunarmaður? Eru Steingrímur J., Össur, Jón Bjarnason borgunarmenn, og sér Helgi Hjörvar nokkuð fram á hvernig hann ætlar að greiða þá skuld sem hann ætlar að setja á herðar komandi kynslóða Íslendinga? Er Ólína Þorvarðardóttir nógu greind til að skilja hvað hún styður? Er Sigmundur Ernir nógu edrú? Skál Ögmundur fyrir neii þínu! Öfgamenn í Írak þakkar þér þó lítið!
Talið hefur verið að meirihluti fólks í landinu á landnámsöld hafi verið þrælar. Þetta orkar tvímælis. En nú er með vissu hægt að segja að Íslendingar séu orðnir að þrælum og þrælslund þeirra sem áður sleiktu skíthæla Sovétsins blómstrar núna, þegar þeir fá retró-DDR á Íslandi. Þrælslundin leynir sér ekki hjá sumu fólki. Svavar Gestsson, nú færðu draumalandið og þú vannst vinnu þína, enn eitt skítverkið, án þess að óhreinka hanskana.
Það einfalda fólk sem kaus þrælasala, stjórnarskrárnauðgara og erindreka erlendra kúgara yfir sig, má vel við una. Til hamingju með skuldina, löðurmennin ykkar. Framtíðin blasir við ykkur undir "velferðar-vinstri"-útafkeyrsluísprinsessunnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Það verður logið að ykkur alveg fram að aftökunni.
Landráð var framið í kvöld
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.12.2009 kl. 00:06 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 82
- Frá upphafi: 1352297
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 54
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Sæll. Vilhjálmur.
Hún er ekki falleg myndin af framtíð minni það er gott að búa í Danaveldi í dag þar eru ekki framinn landráð.
Gleðilegt ár þakka skrif þín á liðnu ári.
Þinn félagi, Sigurjón Vigfússon
Rauða Ljónið, 31.12.2009 kl. 00:01
Sömuleiðis Sigurjón! Ég óska þér og þínum farsældar árið 2010. Kannski gerast kraftaverk en litlar líkur tel ég á því að forsetaómyndin okkar vinni vinnu sína eða þjóð sinni gagn.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 31.12.2009 kl. 00:12
Ég borga ekki krónu af þessu.
VG og Samfylking ásamt kjósendum Þráins Össurarfjölskylduvins hafa valið að borga þetta.
Þeir sem neituðu borga ekki neitt.
Eignir og allt að síðustu skyrtu Icesave jámannanna fara fyrst til greiðslu, öll þeirra laun eignir og tekjur, elli, ráðherra eftir og listamannalaun þar með talin. Gott fyrir bretana að þráinn afsalaði ekki listamannalaununum. Þau ganga fyrst upp í Icesave skuldirnar.
Kolbeinn Pálsson, 31.12.2009 kl. 00:26
Er þetta spurning um hver er borgunarmaður núna? Hefðir þú ekki átt að spyrja vini þína þegar þeir fóru rænandi og ruplandi um Evrópsk lönd hver ætti að borga skítinn?
joiggg (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 01:57
Þetta er greinilega rugl sem skrifað er hér næst á undan (joiggg).
Vilhjálmur, það HAFA verið FRAMIN landráð, í fleirtölu!
Ég legg til, að menn beiti hér gömlu, góðu ráði: að gera þá útlæga, sem greiddu atkvæði með þessu, og eignir þeirra upptækar.
Jón Valur Jensson, 31.12.2009 kl. 02:37
Nú er skálað í kampavíni á Wall Street og City of London og líklegast einnig í alþjóðarstofnunarlíkinu AGS. Hér er komið fordæmið, sem llengi var beðið eftir. Það fordæmi sem firrir bankastofnanir ábyrgð á gerðum sínum og ríkistjórnir af eftirlitsglöpum. Hér eftir verður það orthodox að senda reikninginn á alþýðuna ef Ponsískímin springa í trýnið á þeim.
Heimurinn á því ansi stóra hönk upp á bakið á okkur, ef við stoppum þetta ekki. Hryggleysinginn á Bessastöum ætti að hugsa sig vel um nú. Ég er á leiðinni, með krepptan hnefa.
Ærulausir skulu þeir verða á meðan þeir draga andann, þeir sem þetta samþykktu. Þeim skal reist níðtöng, svo enginn gleymi.
Þessu er ekki lokið.
Jón Steinar Ragnarsson, 31.12.2009 kl. 06:01
Ætli maður fari ekki að huga að því að greiða atkvæði með fótunum.
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 31.12.2009 kl. 07:55
Ég mæli með því að greiða atkvæði með hnefunum fyrst. En það er bara ég.
Axel Þór Kolbeinsson, 31.12.2009 kl. 09:02
Þakka þér fyrir þessa færslu, Vilhjálmur. Þrælslund einkenndi já-menn lokaatkvæðagreiðsluna á Alþingi. Sama þrælslundin og við höfum orðið vör við í ESB umræðunni.
Nú bíð ég eftir að minnismerki með nöfnum þeirra sem í gærkvöld lögðust á hnén verði reist sem fyrst. Ég lofaði framlagi til þess verks og ég er nú tilbúin að tvöfalda, jafnvel þrefalda það ef þörf krefur.
Vinstri stjórnin sér nú til þess að gleðisnauðum dögum fjölgar nú ótt á Íslandi.
Ragnhildur Kolka, 31.12.2009 kl. 09:21
Það ætti að meitla nöfn landráðamannanna í grjótið sem alþingishúsið er byggt úr, svo komandi kynslóðir geti hrækt á veggina minnugar þess að fátækt þeirra er þessum nöfnum um að kenna og þeir tóku allir með tölu fulla "Ábyrgð" (hversu þung sem hún verður í vasa) á aðgerðinni
Kjartan Sigurgeirsson, 31.12.2009 kl. 10:36
Í gær var samþykkt frumvarp til laga um skilyrðislausa uppgjöf fyrir Bretum. Aumara getur það ekki orðið.
Þeir sem ekki treysta sér til að sinna þeirri grunnskyldu þingmanns, að standa vörð um rétt og velferð þjóðar sinnar, eiga ekki að vera í stjórnmálum. Nú hafa 33 þingmenn fyrirgert rétti sínum til að starfa í umboði þjóðarinnar.
Haraldur Hansson, 31.12.2009 kl. 11:04
Íslenski þrælinn stígur ekki í vitið, og það sama má nú segja um flesta kjósendur VG. Sá FL-okkur hefur aldrei gáfulegar lausnir fram að færa, í raun bara drasl. Samspillingin er svo bara stórhættulegur EB flokkur. Formaður VG talaði allt öðru vísi fyrir hrun, en snérist svo eins og VINDHANNI 360 gráður, í flest öllum málum, það er afrek út af fyrir sig. Þjóðin & alþingi hefur sýnt fram á vilja í sumar að við viljum greiða tengt Icesave þó okkur beri í raun ekki lagaleg skylda til þess, þá viljum við axla "pólitíska & siðferðislega ábyrgð á okkar glæpamönnum" - en SteinFREÐUR & Svavar sömdu svo illa af sér að hér verður "frostavetur næstu 20 árin með tilheyrandi fátæk" - svo kalla þessir aular sig "Norræna velferðastjórn" - klækastjórn hjá vinstri mönnum, það liggur við að maður æli, aulaskapur þessa liðs er ótrúlegur. Þráinn Bertelsson talaði um fyrir rúmu ári síðan að það væri aumingjarskapur hjá ríkisstjórninni að vera á hjánum fyrir nýlenduveldum UK & Hollendinga. Svo segir hann nú (á hnjánum) að lengra verði ekki komist. Þetta lið er óborganlegt og leiksýningar þær sem þeir setja upp á alþingi eru yfirleit til háborinnar skammar.
Óli grís kan "klækastjórnmál & lýðskrum" enda vinstri maður í húð & hár. Óli var UMBOÐSMAÐUR útrásarskúrkanna og það fer vel á því að maður með "skítlegt eðli" samþykki þessi (ó)lög, gegn 70% vilja þjóðarinnar, það er ekki gjá, bilið er of stórt til að vera gjá, í raun bara "himinn & haf milli þings & þjóðar" enda skilur ekki þjóðin þá ÖMURLEGU verkstjórn Jóhönnu & SteinFREÐS í þessu skelfilega máli. Geta íslenskra stjórnmálamanna er til skammar, ef þetta lið væri að vinna fyrir einkafyrirtæki þá væri búið að reka það á staðnum. Óli grís á að SAMEINA þjóðina, en leppalúði er snillingur í að SUNDRA þjóðinni. Ég segi nú bara um okkar skítapakk - sorry - okkar stjórnmálamenn "helvítis fukking fukk".
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
Jakob Þór Haraldsson, 31.12.2009 kl. 12:51
Hvað viljið þið gera við þessa einstaklinga sem frömdu ''landráðin''? Grýta þá? Hengja þá? Hvernig nennið þið að standa í þessu hatri. Það voru framin ''landráð'' 1949 og 1961 og hver man það nú?
Sigurður Þór Guðjónsson, 31.12.2009 kl. 14:31
Eruð þið ekki að gleyma því hverjir komu okkur í þessa stöðu, hver stofnaði til skuldanna ? Ekki var það þetta fólk sem þið kallið landráðamenn... þetta fólk er að gera sitt besta til að koma okkur upp út úr erfiðleikunum...
Brattur, 31.12.2009 kl. 15:48
Ég sé að Ragnhildur vill reisa ICESAVE minnisvarða. Ég er alveg sammála því.
Ég mundi leggja til að efstu nöfnin yrðu eitthvað á þessa leið:
Davíð, Björgólfur, Björgólfur Thór, Halldór, Sigurjón, Kjartan o.fl.
Það vantar sjálfsagt eitthvað af nöfnum þarna en þeim má bæta við.
Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 16:05
Skemmtilegur húmor, Svavar! Mín hugmynd um réttlæti gerir ráð fyrir að þeir sem sekir eru um icesaveglæpi verði reistur minnisvarði á sakaskrá íslenska ríkisins. En minningin um þá þingmanna sem greiddu atkvæði með ólögunum í gærkvöldi, sem leggja byrðar á ófædd börn, þarf að lifa með þjóðinni. Þeirra má minnast með því að greypa nöfn þeirra í stein.
Ragnhildur Kolka, 31.12.2009 kl. 20:32
*Andvarp* fluggáfað lið sem safnast saman hér sé ég. Að vera í fýlu við hreingerningarfólkið sem hirðir upp viðbjóðinn eftir sukkið er eðlilegt ef maður vill halda sukkinu áfram. En komon fólk, hver ber raunverulega ábyrgð á stöðunni? Voru það ekki sjálfstæðismenn sem að samþykktu Icesave til að byrja með?? Ha?
lundi (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 06:56
Það hefur löngum verið sagt um Íslending að honum fynnist best að láta alltaf sama manninn ræna sig.
Það er til einfalt ráð fyrir þá sem vilja ekki borga þennan brúsa, "fara úr landi"
Ég tala af reynslu, fór árið 2000, þá staurblankur, eignalaus og gjaldþrota á íslandi, sýsli gerði mig gjaldþrota einu sinn á ári og fór í fýlu þegar ég bauð honum að skrifa uppá mörg ár í einu, enda hafði ég ekki hugsað mér að greiða þann skaða sem stóru verktakarnir veltu yfir á mig árið 92, þar voru SF verktakar og Byggðaverk fremmstir í flokki og greiddu með 6 mánaða víxlum sem þeir ætluðu sér aldrei að greiða. Menn geta svo getið sér til um hver átti að borga þann brúsa. Íslandsbanki vildi reyndar að við skiptum um kennitölu og héldum áfram, sem við höfnuðum alfarið
Það kom svo í ljós að þegar maður flytur úr landi, að maður er bara gjaldþrota á íslandi og svarti listinn nær ekki útfyrir landsteinana.
Ef menn vilja ekki taka þátt í þessum skrípaleik, þá er bara að flytja sig á betri stað. Ég persónulega mæli með Danmörku.
Lifið heil
Njáll Harðarson, 1.1.2010 kl. 11:45
Athyglisvert hjá Jóni Steinari; "... fordæmi sem firrir bankastofnanir ábyrgð á gerðum sínum og ríkistjórnir af eftirlitsglöpum."
Var Vinstri-Samspillingin að opna þarna leið fyrir alþjóðlega auðvaldið til að kúga fleirri þjóðir - af því að fordæmið er komið?
Jóhannes (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 13:11
Þetta vinstra lið þrífst á einhverri rómantískri sýn á eymd og volæði ...áfram fylking stétt með stétt , inter-nationalin bla bla bla.
Loori (IP-tala skráð) 5.1.2010 kl. 10:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.