4.6.2009 | 11:15
Í nöp við kaþólska
Ég verð að létta þessu af hjarta mínu. Mér var eitt sinn í nöp við kaþólikka. Álíka mikið og Sigurði G. Tómassyni á Útvarpi Sögu er við gyðinga. Ekki alla, bara suma. Ekki til dæmis við Jón Val og ekki við páfann í Róm. Hins vegar dæmdi ég þá einu sinni, alla sem einn, og mig langar að segja ykkur af hverju. Mea culpa.
Ég fór á unga aldri í sumarbúðir kaþólskra í Ölfusi. Ég fór í þessar búðir, þar sem faðir minn þekkti prestinn þar. Ekki er ég kaþólskur frekar en andskotinn, og enginn hefur verið það í fjölskyldu minni íslenskri síðan forfeður mínir, munkar og biskupar Rómarkirkjunnar voru það á miðöldum. Nefni ég engin nöfn. Þá var mikið syndgað. Ég get þannig stoltur sagt, að ég sé afrakstur hórlífis í íslenskum torfklaustrum, þegar konur gátu sig ekki varið, enda verjur synd og holdið var veikt.
Í sumarbúðunum í Ölfusi, sem voru í Riftúni, voru bæði nunnur og prestur einn hollenskur, séra Georg, sem var hinn vænsti maður. Hann er nýlega látinn. Hann spilaði mikið fótbolta við okkar strákana, enda hafði hann verið liðtækur knattspyrnumaður áður en hann svaraði kallinu og fékk brauð á Íslandi. Enski boltinn var greinilega mikilvægari fyrir hann en messan á sunnudögum, sem allir urðu að vera viðstaddir til að sjá kaþólikkana borða líkama Krists, Amen.
Kvöl okkar, barnanna í Riftúni sem ekki vorum kaþólikkar, og sérstaklega þeirra sem voru algjörir heiðingjar og efasemdamenn eins og ég, var þýsk kona. Hún var vond við börn og var gædd þeim leiða eiginleika að ofsækja ákveðin börn.
Konu þessari var einstaklega illa við mig og mér við hana. Margir aðrir fengu að kenna á teutónískri grimmd hennar. Hún stærði sig af því við börnin, að bróðir hennar hefði tekið í höndina á Hitler. Sjálf leit hún út eins og Marteinn Lúther, bara ljótari.
I Riftúni léku menn skrítna leiki ef veður leyfði ekki útiveru. Þá var leikið teningaspil um súkkulaði það sem þýska konan hafði gert upptækt í pökkum barnanna. Leikurinn gekk út á það ef maður kastaði og fékk tvo teninga með sex í sama kasti, fékk maður bakka með súkkulaðiplötu, hníf og gaffal. Maður mátti brjóta stykki af með hnífnum og gafflinum og borða eitt stykki í einu og kyngja því þangað til næsti maður fékk 2x6. En ef maður tók annað stykki áður en maður var búinn að kyngja því fyrsta, tók meira en eitt stykki eða framdi þann hræðilega glæp að halda áfram átinu í nokkrar sekúndur eftir að sú þýska sagði Schtopp", þá gátu börnin búist við kinnhesti eða því að vera slegin í hnakkann. Eitt sinn rak hún fingurinn upp í strák og krækti súkkulaði út úr munni hans. Hann kastaði upp. Ég fékk ekki þetta Straf hjá Frau Verbissene, en nóg annað mátti ég reyna. Eitt sinn tognaði ég alvarlega í hástökki. Ég gat rétt dröslað mér í matsalinn en kom of seint. Þýska konan gerði bara grín af mér og sagði að ég væri bara aþ zykjast". Fyrir bragði fékk ég ekki hádegismat.
Sama dag um kvöldið uppgötvaði systir Klementína, sem var íslensk kona, ástand ökklans á mér. Það var í einasta sinn sem ég hef séð nunnu reiðast og hún hellti sér yfir þýsku ráðskonuna, úlfynjuna Ilse, - nei það var reyndar ekki hið rétta nafn hennar. En mig grunaði síðar að hún hefði verið böðull í fangabúðum nasista, eða pabbi hennar.
Myndin að ofan er úr þýsku blaði sem dreift var til foreldra þeirra sem sjást á myndinni. Textinn undir henni hljóðaði: Frohes Leben herrscht in katolischen Kinderferienheim Riftun auf Island. Ég er þarna að dansa (í köflóttri skyrtu) eftir bítlaplötu, en var í raun að skipuleggja flótta úr kaþólsku fangabúðunum í huga mér. Einn drengur flýði reyndar fótgangandi frá búðunum og komst með bíl til Reykjavíkur. Mér var af einhverjum ókunnum kennt um það! Rannsóknarrétturinn, STRAF, og dómur féll: Ég fékk engan mat og ekki að fara oftar til Þóroddsstaða, bæjar í grenndinni, til að gefa hænsnunum þar matarúrganga okkar í Riftúni.
Hver vill ekki flýja stað, þar sem plata með þýskum mörsum var spiluð þegar einhver átti afmæli?
Eitt sinn vildi svo illa til að sippuband sem ég sveiflaði að hætti kúreka slóst í í kinnina á stelpu af fínum ættum. Alveg sama hvað ég reyndi að skýra hvað gerst hefði , þá var dómurinn að ég hefði framið mikinn glæp. Sú zýska setti ofsóknir í gang gegn mér. Ég hafði slasað kaþólikka, nú átti ég greinilega að iðrast og biðja 40 maríubænir og skríða á hnjánum alla leiðina suður í Róm. Ég fékk ekki frið fyrir konunni.
Vegna þýsku konunnar hataði ég lengi kaþólikka. Ég geri það stundum enn, en það kemur ekki niður á neinum. Þýska konan var ekki á vegum Guðs, hún var bara vond kerling, sem ekki hefði átt að fá að koma nálægt börnum, sem hún áleit vera vond frá nátúrunnar hendi. Ég er alveg viss um að Kristur hefði ekki átt 7 dagana sæla í Riftúni hefði Jósef faðir hans sent hann þangað í stað þess að láta hann pússa mublur með vikri frá Sínaí.
Til að kóróna allt kom systir zýsku konunnar í heimsókn frá Þýskalandi með börnin sín tvö, sem voru eins og Hans og Gréta - skrímsli. Hann, gekk í Lederhosen, sama hvernig viðraði og hún var með fléttur og í þjóðbúningakjól eins og Heidi í Heiðarkofanum. Drengurinn í leðurbuxunum reyndist vera hinn versti böðull og sadisti og stjórnaði öllu með leikjum sem höfðu kvalarlosta að ívafi. Ég vona að hann sé ekki prestur í dag. Gabi, þjóðbúningastúlkan var liðtæk í Gestapo. Hún klagaði yfir öllu. Var eyru og augu frænku sinnar í Straffinu.
Misskiljið mig ekki, ég hef ekkert á móti Þjóðverjum heldur. Sumir Þjóðverjar eru bestu vinir mínir.....bara ef þeir berja mig ekki í Lederhosen í Ölfusinu, eins og ribbaldar börðu Ögmund biskup Pálsson á Hjalla Ölfusi forðum.
Síðar segi ég frá góðu kaþólsku fólki sem ég hef kynnst. Jón Valur er nú örugglega farinn að hugsa mér purgatoríið á 666 gráðum fyrir þessar minningar. Þess vegna set ég punkt hér.
Flokkur: Menning og listir | Breytt 10.6.2009 kl. 14:04 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 2
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 62
- Frá upphafi: 1352568
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Það er nú hægt að leiða góðum rökum að því að Andskotinn sé í raun Kaþólskur, Villi.
Takk annars fyrir skemmtilega og einlæga frásögn. Svona blogg fíla ég vel. Svo eru þesskonar skrif svo hreinsandi fyrir sálartötrið. Svo gott að koma svona gamalli myglu út úr systeminu, svo hér njóta allir góðs.
Ekki hata ég neinn en fyrr frýs í hinu alkaþólska helvíti, áður en ég sé eitthvað aðlaðandi eða manneskjulegt við þann geistlega þykistuleik, sem Kaþólskan er, að örðum þykistuleikjum ómærðum.
Jón Steinar Ragnarsson, 5.6.2009 kl. 01:39
Annars langar mig að læða með litlum bakþanka í von um að JVJ lesi.
Ef Andskotinn ríkir yfir helvíti, af hverju ætti hann þá að búa syndurum tóma kvöl? Ég hélt að við værum honum að skapi.
Nú ef helvíti er deild í himnaríki. Hvað varð þá um algæsku guðs? Mér sýnist sá guð líkjast Hitler meira en nokkuð annað. Eða var það öfugt? "Ef þú dáir mig ekki og dýrkar og leggur lífið í sölurnar fyrir mig, þá munt þú hljóta eilífa kvöl, svo hræðilega að engin orð fá lýst."
Ein folk, ein reich, ein fuhrer.
Jón Steinar Ragnarsson, 5.6.2009 kl. 01:51
Þetta líkist helst "hressingarhælinu" í Dachau í Þýzkalandi. Sieg Heil! Guð blessi þig og varðveiti!
Aðalbjörn Leifsson, 5.6.2009 kl. 05:45
Sjáumst allir í helvíti strákar!
Sigurður Þór Guðjónsson, 9.6.2009 kl. 12:32
Þetta er áhrifamikil lesning. Hvaða ár er þetta ?
Ég hef átt því láni að fagna að hafa aldrei kynnst svona gegnvondum manneskjum. Mín gæfa hefur verið að flestir hafa sýnt mér einhverjar jákvæðar hliðar og því hef ég komist af með kaþólska og aðra trúmenn án þess að deila með þeim skoðunum.
Umburðarlyndi er hinsvegar oft nauðsynlegt til þess að skilja betur hvað fólki gengur til, hvað er á bak við grímuna. Mér finnst þú hafa tendens til að halda að Þjóðverjar séu öðruvísi fólk en við, sem kemur kannski af því að þessir atburðir sem þú lýsir gerast nær nasismanum í tíma en nú er.. Þeir eru öðruvísi upp aldir , það er rétt. Fólk þröngbýli verður öðruvísi en sléttuindjáninn. En hjörtum mannanna svipar saman í Súdan og í Grímsnesinu.
Kannske hefur Ilse bara verið illa haldin af karlmannsleysi sem hefur brotist svona út ?. Þær voru það margar sem hingað komu.
Halldór Jónsson, 10.6.2009 kl. 11:31
Þakka ykkur öllum fyrir heimsókn og athugasemdir.
Jón Steinar. Ég hef aldrei velt helvíti fyrir mér svo náið, en mér finnst alltaf gaman af hugmyndum um hvernig þar sé innandyra. Það lýsir best því hvernig ástandið er rétt undir hársrótinni á höfðinu á sumu fólki. Ég trúi ekki á helvíti eins og þú veist.
Aðalbjörn, ekki var það nú svo slæmt. Ein kona gerði gæfumuninn fyrir sum börnin, en það er alltaf einkennilegt þegar fullorðið fólk leggur börn í einelti.
Sigurður, það lítur út fyrir að þú sért búinn að kaupa þér miða í neðra. Ég sá þér hins vegar bregða fyrir hér efra, n.t.t. á Ingólfstorgi nýlega, þegar ég var í heimsókn á landinu helga. Þá var nú frekar gleðilegur helgisvipur yfir þér, enda sól og blíða. Við verðum að fá okkur kaffi næst þegar ég er staddur á landinu og áður en þú ferð til helvítis eins og sushibiti umvafinn þangi á færibandi í Lækjargötunni. Ef helvíti er betra en Ísland í dag, kvíði ég engu.
Sæll Halldór, þetta voru sumrin 1969-70 og 70 var algjör "bömmer". Sú þýska bar litla virðingu fyrir Íslendingum og sagði börnunum það óspart. Ég var aðeins barn og gat lítið gert mér grein fyrir því hvað hrjáði M, (Ilse var ekki nafn hennar), en fróðir menn hafa sagt mér að hún hafi krækt sér í mann á Íslandi.
Ekki meira um hana og helvítið. Að lokum vitna ég hér í bréf frá sumrinu 1970 til foreldra minna, þar sem ég þorði ekki að skrifa allan sannleikann:
"Ég ætla að spyrja ykkur að einu eru þið búin að spyrja séra Georg að ég meigi vera í 3 vikur staðinn fyrir 6 vikur" .
Móðir mín svaraði 13. júní: " .. við erum búin að tala við Séra Georg, en hann vill endilega hafa þig lengur og við erum búin að borga allan tímann. Þetta verður svo fljótt að líða og svo höldum við upp á afmælið þitt heima í júlí. Það er svo leiðinlegt hér í götunni núna og allir strákar hér kring eru í sveit. Þú mátt ekki láta þér leiðast, þú sérð eftir því seinna. Við sendum þér pakka í næstu viku og heimsækjum þig ef verkfallið er búið, þegar við megum .... reyndu að láta þér nú þykja gaman. Þú verður mikið hraustari ef þú ert í sveitalofti þennan stutta tíma heldur en að flækjast um á götunum hér einsamall. Það er nógur tími til þess frá 16. júlí."
1969 var ljós punktur í Riftúni þá skrifaði ég: "Við erum hér heppin að það er strákur hér og afi hanns heitir Björn Ólafsson og hann á Kóka Kóla verksmiðjuna og þers vegna fáum við kók og Kóla að drekka í afmælum."
Ég var dálítið skrítinn 8 ára drengur. 15. júlí 1969 skrifaði ég mömmu: "Þú veist áræðanlega um heimsóknartíman á sunnudaginn en ef þú ætlar að koma ætla ég að biðja þig um að taka 150 krónurnar og fara niðrí bæ nokkrum dögum áður en að þú kemur í heimsókn og kaupa 2 hefti af Mannkynssögu eftir Ólaf Þ. Kristjánsson og senda mér 3 ljóðabækur sem eru á borðinu hjá mér og eftir Matías Jocumsson, Gísla Brynjúlfsson og Guðmund Friðjónsson. og þú átt að koma með það allt í heimsóknartímanum."
Mánuður í Riftúni 1970, þar sem ég vildi ekki vera í kaþólskunni, mótaði líf mitt neikvætt. Hremmingar mínar voru þó ekkert miðað við það sem drengirnir í Breiðuvík og Kumbaravogi þurftu að þola. Það er best að taka það fram svona í vælinu út af þýskri norn í ævintýri sem gerðist fyrir langa löngu í Ölfusinu.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.6.2009 kl. 15:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.