Leita í fréttum mbl.is

Fáum við SOB stjórn ?

goatsagain

Sjálfstæðisflokkurinn tapaði í dag, vegna þess að almenningur ímyndar sér að Samfylkingin hafi staðið sig í og fyrir hrunið. VG fær atkvæði örvinglaðara, sem vilja rækta lífrænt grænmeti í stjórnmálasambandi við Norður-Kóreu. VG fær hins vegar ekki eins mikið fylgi og verstu menn leyfðu sér að vona. Borgararnir fá einhverja þingmenn í fæðingargjöf. Þau eru í ham borgararnir, varla talandi. Framsókn nýtur þess að einhverjir sjálfstæðismenn voru líka óánægðir og hve margir framsóknarmenn eru fluttir á Suðvesturhornið. Sundurleitur hópur, þessu óánægju. En óánægjan hverfur ekki við þær niðurstöður, sem líta út fyrir að vera endirinn á þessu kjöri rétt fyrir miðnætti þ. 25.apríl 2009.

Eru við að stefna í SOB-ríkisstjórn, sem finnur ekki ánægju sína aftur fyrr en Ísland fær að vera með í töfraheiminum ESB? Er ekki nóg atvinnuleysi?

En óánægja með hvað? Jú, fólkið á Íslandi er óánægt með allt annað en sjálft sig. Samfylkingin er fólkið sem ekki gerir sér grein fyrir því að fólkið, jú og líka heimsaðstæður, eiga líka á sök á hruninu, en ekki bara 18 ára stjórn Sjálfstæðismanna. Jafnaðarmenn tóku líka þátt í ballinu og græðginni í öfgafrjálshyggjunni.

Nú verða hendur að standa fram úr ermum. Túlkar fá örugglega nóg að gera, því véfrétt Samfylkingarinnar verður nú að skýra fyrir okkur hvernig hún leysir málin.

Kjörtímabil sigursæls óánægjufólks verður nú vart meira en tæpt ár. Ef við fáum ekki SOB-stjórn, mun sósíalistastjórnin sýna okkur nú hvað sósíalismi er.  Geit á hvert heimili, eins og í N-Kóreu og hjal um Palestínu, þegar lýðurinn sér að ekkert gengur né rekur, engar skýringar koma á hruninu og Eva Joly leysir ekki neitt.

Stjórnarandstaðan er sterk, en óánægja er líka sterk, en óánægja er og verður aldrei góður sigurvegari. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þessar kosningar voru allar keyrðar á baksýnisspeglinum. Allir að kenna öðrum um. Eins og þú segir: "fólkið á Íslandi er óánægt með allt annað en sjálft sig." En nú er búið að kjósa og þá er þetta ekki lengur mál fyrri stjórna, ný stjórn ber nú ábyrgð á því að koma hlutunum í lag. Til þess hefur hún takmarkaðan tíma. 

Ragnhildur Kolka, 26.4.2009 kl. 11:43

2 Smámynd: Stefán Viktor Guðmundsson

Sósíalisti = Kommúnisti = Íslenskur Sjálfstæðismaður..

Er einhver munur a íslenskum flokksbundnum sjálfstæðismanni og Komommúnískum flokksbundnum Norður kóreumanni ?

Svar  NEI....

Er Einhver sameiginleg flokks stefnumál með íslenskum Flokksbundnum sjálfstæðismanni og kommúnískum flokksbundnum norður kóreumanni ?

Svar   JÁ....

Einfaldlega vegna þess að svokallaður Íslenskur sjálfstæðismaður er ekki lengur til i hugtakinu sem þeir leyfa sér að nota í dag  til að skilgreina sig.  

( Afi minn var Sjálfstæðismaður )

Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi í Dag er og verður ekkert annað en fyrrigreiðsluflokkur til þeirra sem skráðir eru Í hann og styðja hann, um það þarf ekki að fara fleiri orðum.

Og þeir sem eru ekki flokks hollir þessum svokkölluðu hrægömmum Íslensks Samfélags,  sem svo Berlega hefur sannað sig með stefnu þeirra og framsóknarflokksins sem þeir hafa kallað  Nýfrjálshyggju og Forræðishyggju hefur beðið hræðilegt Gjaldþrot fyrir íslensku þjóðina og hefur nú bundið Komandi kynslóðir við Skammta og Forræðishyggju bundið líf næstu 20 - 30 árin allavegana, vegna meingallaðrar og úreltrar Stjornaskrár,  sem kveður eingöngu á um rettindi opinberra starfsmanna, Og ekki stafur um Skyldur og Ábyrgð þeirra. Sem Einmitt Nýr formaður þeirra bjarni ben hefur staðið gegn að færa nær nútimanum.

Þú hefur flúið Ísland og stjornunar hætti þeirra geri ég ráð fyrir vegna óánægju sem endurspeglast i því að þú ert búsettur i Danmörku !!!

samt sem áður vogar þú þér í skjóli hæfs Penna að gagnrýna Samfylkinguna og Vinstri græna með lógík sem við er ungir menn i Vestmannaeyjum kölluðum Hundalógík.

Þú verður að koma með málefnin og gagnrýna þau þú getur ekki notað salat sem inngang í þessa alvarlegu og frekar Þægilegu niðurstöðu liðinna alþingiskosninga, nema að þurfa að sæta gagnrýni þeirra sem nenna að lesa bloggin þín og furðulegt en satt ég hef lesið nokkur blogg frá þér og mér finnst stundum þú vera rökfastur.

En þar sem þú hefur sennilega á arum áður verið hliðhollur sjálfstæðisflokknum og náhirð hans þá er kannski ekki við öðru að búast af tapliðinu.

Áfram Samfylkingin og inn í ESB eins og Danir sem VIlhjálmur greiðir skatta til.

Kveðja Stefan V.

Stefán Viktor Guðmundsson, 26.4.2009 kl. 13:25

3 Smámynd: Offari

Afhverju ekki bara SOS stjórn? Samfylking O flokkur og Sjálfstæðisflokkur. Það er miklu auðveldara að glata sjálfstæðinu með þeirri stjórn.

Offari, 26.4.2009 kl. 17:04

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og nú er svínapestin komin á kreik.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.4.2009 kl. 19:24

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vel athugað hjá þér Sigurður Þór. Og hún ætlar að stjórna Íslandi.

Ragnhildur Kolka, 26.4.2009 kl. 21:46

6 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Vilhjálmjur Sjálfstæðisflokkurinn tapaði vegna eigin mistaka. Það þurfti enginn að hjálpa þeim. Vissulega eru margir D menn sem eru að refsa sínum mönnum. Það verður mikið verk hjá BB að ná þeim til baka.

En Guð hjálpi íslenskri þjóð ef VG og S ætla að stjórna hérna. Þá verður skemmtilegt upplitið á VG liðinu þegar það sér að það var að kjósa viðræður um ESB þrátt fyrir að þeim hafi verið sagt annað.

Nú fer í tíð tími upplýsingarinnar, þ.e. meiri fortíðarskítur grafinn upp. Ég vona að fjölmiðlar standi vaktina gagnvart öllum, líka Samfylkingarspillingu.

Guðmundur St Ragnarsson, 27.4.2009 kl. 02:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband