Leita í fréttum mbl.is

Hamas skýtur flugskeytum frá skóla SÞ á Gaza - eins og oft áður

 

Geta vinir Hamas á Íslandi, utanríkisráðherrann, Félag SÞ eða Palestínuvinafélagið á Íslandi ekki stöðvað miskanotkun skóla Sameinuðu Þjóðanna á Gaza til eldflaugaárása? Getið þið ekki hringt í vini ykkar og beðið þá um að hætta að brjóta alþjóðarlög og taka fólk í gíslingu og nota alþjóðastofnanir til skítverkanna.

Hamas hefur svarið og sárt við lagt, og vinir þeirra votta fyrir þá, að skólar og sjúkrahús séu ekki misnotuð á Gaza. 

AP greindi hins vegar frá því í dag, að vitni hafi hringt í þá frá Gaza og skýrt frá því að verið væri að skjóta frá lóð skólans. Ísraelsmenn hafa líka nýlega birt upptökur af eldflaugaskotum frá þessum sama skóla í fyrra, drengjaskóla UNRWA á Gaza.

Fjölmiðlar hafa þó ekki verið iðnir að segja frá þessu í dag. En sjá hér. Hvenær verðu greint frá þessu í íslenskum fjölmiðlum?

Danski utanríkisráðherrann sem í gær vildi skamma Ísrael fyrir að hafa eyðilagt læknabíla sem Danir gáfu Hamas (þó ekki með ásetningii), verður á morgun að skýra af hverju Hamas skýtur flugskeytum frá skólum á Gaza að yfirlögðu ráði, þótt þeir leiki saklausu lömbin í fréttatímum okkar, og segist ekki gera neitt ljótt.

Starfsmenn SÞ ljúga fyrir Hamas og norskur læknir, sem fagnaði árás Al Quaida á World Trade Center árið 2001, er ekki sannleiksvitni, sem fólk getur treyst. Af hverju veltið þið ykkur upp úr lygum.

Þið sem teljið Hamas-liða í húsum hæfa, skoðið upptökuna frá fyrrnefndum skóla á Gaza í fyrra, og reynið að gera ykkur grein fyrir því að Hamas neitar að stöðva árásir sínar nú. Hamas hefur hafnað vopnahlé í dag. Hamas vill ekki vopnahlé! Markmið Hamas hafa verið ykkur kunn lengi, en þið viljið hvorki heyra né sjá. Ykkur líður greinilega svo vel í Ísraelshatrinu. Markmið ykkar eru ef til vill þau sömu og Hamass.

Viljið þið, sem styðjið Hamas, heldur ekki vopnahlé? Mér sýnist á öllu að þið viljið fórna fleiri börnum vegna stuðnings ykkar við hryðjuverkasamtök.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu algjörlega ga ga?  Ekki trúirðu á jólasveininn?

Einar (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 20:53

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Allt þetta mál er þyngra en tárum taki.

Sigurður Þórðarson, 7.1.2009 kl. 21:19

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Einar, nú trúi ég á jólasveininn. Hann heitir Einar og hægt er að ná sambandi við hann á einar@krummi.net til að panta ga-gazalega flottar jólagjafir.

Menn sem eru með nafnlausan dónaskap á bloggi mínu eru því miður ekki útilokaðir af moggablogginu, en ekki er víst bannað að birta upplýsingar um þá, þegar þeir afhjúpa sig á annað borð.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.1.2009 kl. 05:58

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður, ekki get ég sagt annað. En einhliða skoðun margra á Íslandi, og hatur, er grátlegt.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.1.2009 kl. 06:02

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Af hverju reyna deilendur ekki að fá alþjóðasamfélagið til að hjálpa til að leysa þessa deilu?  Ég hef takmarkað vit á þessu en mér sýnist menn alltaf vera að tala um sömu hlutina: Öryggismál Ísrael, flóttamannavanda, nýjar landnemabyggðir, Gasa og jafnvel aðgang að Jerúsalem.  Kannski er ekki hægt að leysa þessi mál nema í einum pakka? Lönd eins og Líbanon, Egyptaland , Jórdanía og fleiri ríki með flóttamenn, verða að koma að þessu. Svo yrði alþjóðasamfélagið að tryggja íbúum á svæðinu frið.  Málið er að þetta leysist ekki af sjálfum sér.

Sigurður Þórðarson, 8.1.2009 kl. 06:22

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég veit ekki af hverju ég er að leggja orð í belg, það hafa svo margir unnið að þessu lengi án árangurs að manni fallast  hendur. Ég tek undir með þér að einhliða skoðanir og hatur er grátlegt, hvort sem er á Íslandi eða annarsstaðar.  Er er það ekki lýsandi fyrir hvað þessi mál eru í miklum hnút að það er nánast sama hvað maður segir eða segir ekki að maður móðgar alltaf einhvern, jafnvel þó maður hafi samúð með báðum deilendum og ekki síst almennum borgurum?

Sigurður Þórðarson, 8.1.2009 kl. 08:43

7 Smámynd: Guðmundur Geir Sigurðsson

Það kemur mér ekki á óvart að skólinn hafi verið notaður sem skotpallur af Hamas enda eru þeir samviskulausir morðvargar, ekki síst gegn eigin fólki, nota það sem lifandi skildi sem er marg sannað mál. Hvað varðar lausn þessarar deilu þá er það sem þú Sigurður þ talar um algjör forsenda fyrir friði á svæðinu. Eitt hef ég aldrei skilið er staða flóttamanna frá Palestínu í þessum löndum að þeir skuli enn vera ríkisfangslausir eftir 60ár. Hvers vegna fá þeir ekki ríkisfang og þar með vegabréf fá þeim löndum sem þeir hafa hafist við í marga kynslóðir? 

Guðmundur Geir Sigurðsson, 8.1.2009 kl. 09:50

8 identicon

Afhverju finnst fólki ótrúlegt að Hamas noti svona aðferðir? Þetta er alveg eftir þeim.  Vel á minnst,   um daginn vogaði mbl sér að kalla   Hamas hryðjuverkasamtök(sem þau augljóslega eru) við dræmar undirtektir íslenskra bloggara. Það var svo tekið til baka.  

hilmar (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:35

9 identicon

Ég alla vega er gáttaður á því hve fréttir hérlendis eru einsleitar varðandi þessi mál - Og fólk er nærri því grýtt ef það fylgir ekki palestínusinnum blint.

Guðjón Atlason (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:51

10 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Menn spyrja sig, hvers vegna Hamas notar skóla og sjúkrahús til að skjóta úr Kassam eldflaugum á Ísrael. Svarið er einfalt, þeir eru að krækja sér í auglýsingu um leið og þeir valda tjóni með eldflaugunum.

Þeir vita að Abdallah (þræll Allah) á Vesturlöndum tekur það sem merki um kröfugöngu, ef börn, sjúklingar og gamalmenni eru drepin. Jafnframt byrja peningarnir að streyma til Mújahidanna, um leið og auglýsingarnar birtast hjá Vestrænum sjónvarpsstöðvum.

Engu máli skiptir fyrir þessa Arabisku morðhunda hversu margir liggja í valnum. Fyrst þeim tekst ekki lengur að senda sjálfsmorðingja inn í Ísrael, er þetta sú leið sem þeir velja til að vinna Ísraelum tjón. Hamas fagnar hverju dauðu barni, því að fjárhirslurnar fyllast í sama mæli.

Loftur Altice Þorsteinsson, 8.1.2009 kl. 20:52

11 identicon

Akranesflóttakona lætur til sín taka við  að framfylgja hinum íslamska frið.

http://www.youtube.com/watch?v=hWb5FXR_1mU

 

Þökkum  Ingibjörgu Sólrúnu og vonarstólnum hennar í Öryggisráðinu fyrir þetta innlegg í íslenska menningu.  Sem er mikill hvalreki fyrir fjölmenningu   vinstri aflanna.  Það er gott að sjá að manneskjan er að frískast og komin á  strik í baráttunni fyrir hinu  íslamska  réttlæti og frelsi, eftir  vesöldina í eyðimörkinni í Írak  í skjóli trúbræðra hennar.  Merkilegt að múslímar í Mið Austurlöndum og Persaflóaríkin skuli ekki hafa getað hýst hana við sæmilegan kost, þar  sem Mið-Austurlönd eru 99% á valdi múslíma en aðeins 1% á valdi Ísraelsmanna.

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 20:57

12 Smámynd: Magnús Örn Hákonarson

Vilhjálmur, hvernig í ósköpunum geturðu haldið því fram að starfsmenn SÞ ljúgi fyrir Hamas?  Allar fréttir frá Ísrael eru t.d. ritskoðaðar af hernum þar.  Eru þaðábyrgar upplýsingar?

Hver veit nema það hafi verið Ísraelsmenn sem hafi hringt í AP, allavegna er sagt að vitnin hafi ekki viljað gefa upp nafn. 

Ekki segja mér að hægt sé að réttlæta það að einn eða jafnvel tveir  morðóðir fjölamorðingjar séu með 40 gísla á sínu valdi í byggingu og lögreglan einfaldlega sprengi bara bygginguna með öllum innandyra til þess að tryggja að morðingjarnir tveir sleppi allveg örugglega ekki.

Magnús Örn Hákonarson, 9.1.2009 kl. 01:32

13 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Magnús Örn. hafðu samband við AP. Þeir vita hverjir hringdu, en halda nafninu leyndu vegna óska þeirra. Hamas ræður ríkjum á Gaza og ef Hamas fréttir af "svikurum" þá drepa þeir svo sannarlega þá sem hringdu.

Bæði aðrir Palestínumenn og arabar í nágrannalöndunum hafa á síðustu dögum einnig gagnrýnt Hamas fyrir að misnota eignir og stofnanir óbreyttra borgara. Um daginn fundu Ísraelmenn kort Hamasliða sem sýnir þetta svart á hvítu http://www.jpost.com/servlet/Satellite?cid=1231424893023&pagename=JPost%2FJPArticle%2FShowFull

Frétt sem íslenskir fjölmiðlar eru svo sannarlega ekki að segja frá!

Þú segir örugglega að kortið og allt sem gyðingar gera og segja séu lygar og falsanir, en það segir víst mest um þig sjálfan.

Þú gerir þér upp þá skoðun, að tveir menn séu með gísla í skólanum. Hvaðan í ósköpunum hefur þú fengið þær upplýsingar?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.1.2009 kl. 07:34

14 identicon

Vilhjálmur - fyrirgefðu heimsku mína - hvað er nýtt í þessu?

Hamas - Saddan Hussein - Íran - og hvað - þetta er siður Múslima að nota "mannlega skildi" - upplognar fréttir - allt frá því heimspressan ákvað að skipta um lið og "halda með" Palestínumönnum hefur "frétta"flutningurinn verið með þessum hætti. Hvað er svo nýtt í því sem þú segir og upplýsir ( þakkir til þín fyrir það ) frá heimspressunni. Alveg rétt þar er breytingin - heimspressan segir frá fölsunum Palestínumanna. Það held ég að sé nýtt.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 06:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband