7.1.2009 | 19:28
Hamas skýtur flugskeytum frá skóla SÞ á Gaza - eins og oft áður
Geta vinir Hamas á Íslandi, utanríkisráðherrann, Félag SÞ eða Palestínuvinafélagið á Íslandi ekki stöðvað miskanotkun skóla Sameinuðu Þjóðanna á Gaza til eldflaugaárása? Getið þið ekki hringt í vini ykkar og beðið þá um að hætta að brjóta alþjóðarlög og taka fólk í gíslingu og nota alþjóðastofnanir til skítverkanna.
Hamas hefur svarið og sárt við lagt, og vinir þeirra votta fyrir þá, að skólar og sjúkrahús séu ekki misnotuð á Gaza.
AP greindi hins vegar frá því í dag, að vitni hafi hringt í þá frá Gaza og skýrt frá því að verið væri að skjóta frá lóð skólans. Ísraelsmenn hafa líka nýlega birt upptökur af eldflaugaskotum frá þessum sama skóla í fyrra, drengjaskóla UNRWA á Gaza.
Fjölmiðlar hafa þó ekki verið iðnir að segja frá þessu í dag. En sjá hér. Hvenær verðu greint frá þessu í íslenskum fjölmiðlum?
Danski utanríkisráðherrann sem í gær vildi skamma Ísrael fyrir að hafa eyðilagt læknabíla sem Danir gáfu Hamas (þó ekki með ásetningii), verður á morgun að skýra af hverju Hamas skýtur flugskeytum frá skólum á Gaza að yfirlögðu ráði, þótt þeir leiki saklausu lömbin í fréttatímum okkar, og segist ekki gera neitt ljótt.
Starfsmenn SÞ ljúga fyrir Hamas og norskur læknir, sem fagnaði árás Al Quaida á World Trade Center árið 2001, er ekki sannleiksvitni, sem fólk getur treyst. Af hverju veltið þið ykkur upp úr lygum.
Þið sem teljið Hamas-liða í húsum hæfa, skoðið upptökuna frá fyrrnefndum skóla á Gaza í fyrra, og reynið að gera ykkur grein fyrir því að Hamas neitar að stöðva árásir sínar nú. Hamas hefur hafnað vopnahlé í dag. Hamas vill ekki vopnahlé! Markmið Hamas hafa verið ykkur kunn lengi, en þið viljið hvorki heyra né sjá. Ykkur líður greinilega svo vel í Ísraelshatrinu. Markmið ykkar eru ef til vill þau sömu og Hamass.
Viljið þið, sem styðjið Hamas, heldur ekki vopnahlé? Mér sýnist á öllu að þið viljið fórna fleiri börnum vegna stuðnings ykkar við hryðjuverkasamtök.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:31 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 10
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 90
- Frá upphafi: 1352311
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 57
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Ertu algjörlega ga ga? Ekki trúirðu á jólasveininn?
Einar (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 20:53
Allt þetta mál er þyngra en tárum taki.
Sigurður Þórðarson, 7.1.2009 kl. 21:19
Einar, nú trúi ég á jólasveininn. Hann heitir Einar og hægt er að ná sambandi við hann á einar@krummi.net til að panta ga-gazalega flottar jólagjafir.
Menn sem eru með nafnlausan dónaskap á bloggi mínu eru því miður ekki útilokaðir af moggablogginu, en ekki er víst bannað að birta upplýsingar um þá, þegar þeir afhjúpa sig á annað borð.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.1.2009 kl. 05:58
Sigurður, ekki get ég sagt annað. En einhliða skoðun margra á Íslandi, og hatur, er grátlegt.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.1.2009 kl. 06:02
Af hverju reyna deilendur ekki að fá alþjóðasamfélagið til að hjálpa til að leysa þessa deilu? Ég hef takmarkað vit á þessu en mér sýnist menn alltaf vera að tala um sömu hlutina: Öryggismál Ísrael, flóttamannavanda, nýjar landnemabyggðir, Gasa og jafnvel aðgang að Jerúsalem. Kannski er ekki hægt að leysa þessi mál nema í einum pakka? Lönd eins og Líbanon, Egyptaland , Jórdanía og fleiri ríki með flóttamenn, verða að koma að þessu. Svo yrði alþjóðasamfélagið að tryggja íbúum á svæðinu frið. Málið er að þetta leysist ekki af sjálfum sér.
Sigurður Þórðarson, 8.1.2009 kl. 06:22
Ég veit ekki af hverju ég er að leggja orð í belg, það hafa svo margir unnið að þessu lengi án árangurs að manni fallast hendur. Ég tek undir með þér að einhliða skoðanir og hatur er grátlegt, hvort sem er á Íslandi eða annarsstaðar. Er er það ekki lýsandi fyrir hvað þessi mál eru í miklum hnút að það er nánast sama hvað maður segir eða segir ekki að maður móðgar alltaf einhvern, jafnvel þó maður hafi samúð með báðum deilendum og ekki síst almennum borgurum?
Sigurður Þórðarson, 8.1.2009 kl. 08:43
Það kemur mér ekki á óvart að skólinn hafi verið notaður sem skotpallur af Hamas enda eru þeir samviskulausir morðvargar, ekki síst gegn eigin fólki, nota það sem lifandi skildi sem er marg sannað mál. Hvað varðar lausn þessarar deilu þá er það sem þú Sigurður þ talar um algjör forsenda fyrir friði á svæðinu. Eitt hef ég aldrei skilið er staða flóttamanna frá Palestínu í þessum löndum að þeir skuli enn vera ríkisfangslausir eftir 60ár. Hvers vegna fá þeir ekki ríkisfang og þar með vegabréf fá þeim löndum sem þeir hafa hafist við í marga kynslóðir?
Guðmundur Geir Sigurðsson, 8.1.2009 kl. 09:50
Afhverju finnst fólki ótrúlegt að Hamas noti svona aðferðir? Þetta er alveg eftir þeim. Vel á minnst, um daginn vogaði mbl sér að kalla Hamas hryðjuverkasamtök(sem þau augljóslega eru) við dræmar undirtektir íslenskra bloggara. Það var svo tekið til baka.
hilmar (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:35
Ég alla vega er gáttaður á því hve fréttir hérlendis eru einsleitar varðandi þessi mál - Og fólk er nærri því grýtt ef það fylgir ekki palestínusinnum blint.
Guðjón Atlason (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 15:51
Menn spyrja sig, hvers vegna Hamas notar skóla og sjúkrahús til að skjóta úr Kassam eldflaugum á Ísrael. Svarið er einfalt, þeir eru að krækja sér í auglýsingu um leið og þeir valda tjóni með eldflaugunum.
Þeir vita að Abdallah (þræll Allah) á Vesturlöndum tekur það sem merki um kröfugöngu, ef börn, sjúklingar og gamalmenni eru drepin. Jafnframt byrja peningarnir að streyma til Mújahidanna, um leið og auglýsingarnar birtast hjá Vestrænum sjónvarpsstöðvum.
Engu máli skiptir fyrir þessa Arabisku morðhunda hversu margir liggja í valnum. Fyrst þeim tekst ekki lengur að senda sjálfsmorðingja inn í Ísrael, er þetta sú leið sem þeir velja til að vinna Ísraelum tjón. Hamas fagnar hverju dauðu barni, því að fjárhirslurnar fyllast í sama mæli.
Loftur Altice Þorsteinsson, 8.1.2009 kl. 20:52
Akranesflóttakona lætur til sín taka við að framfylgja hinum íslamska frið.
http://www.youtube.com/watch?v=hWb5FXR_1mU
Þökkum Ingibjörgu Sólrúnu og vonarstólnum hennar í Öryggisráðinu fyrir þetta innlegg í íslenska menningu. Sem er mikill hvalreki fyrir fjölmenningu vinstri aflanna. Það er gott að sjá að manneskjan er að frískast og komin á strik í baráttunni fyrir hinu íslamska réttlæti og frelsi, eftir vesöldina í eyðimörkinni í Írak í skjóli trúbræðra hennar. Merkilegt að múslímar í Mið Austurlöndum og Persaflóaríkin skuli ekki hafa getað hýst hana við sæmilegan kost, þar sem Mið-Austurlönd eru 99% á valdi múslíma en aðeins 1% á valdi Ísraelsmanna.
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 20:57
Vilhjálmur, hvernig í ósköpunum geturðu haldið því fram að starfsmenn SÞ ljúgi fyrir Hamas? Allar fréttir frá Ísrael eru t.d. ritskoðaðar af hernum þar. Eru þaðábyrgar upplýsingar?
Hver veit nema það hafi verið Ísraelsmenn sem hafi hringt í AP, allavegna er sagt að vitnin hafi ekki viljað gefa upp nafn.
Ekki segja mér að hægt sé að réttlæta það að einn eða jafnvel tveir morðóðir fjölamorðingjar séu með 40 gísla á sínu valdi í byggingu og lögreglan einfaldlega sprengi bara bygginguna með öllum innandyra til þess að tryggja að morðingjarnir tveir sleppi allveg örugglega ekki.
Magnús Örn Hákonarson, 9.1.2009 kl. 01:32
Magnús Örn. hafðu samband við AP. Þeir vita hverjir hringdu, en halda nafninu leyndu vegna óska þeirra. Hamas ræður ríkjum á Gaza og ef Hamas fréttir af "svikurum" þá drepa þeir svo sannarlega þá sem hringdu.
Bæði aðrir Palestínumenn og arabar í nágrannalöndunum hafa á síðustu dögum einnig gagnrýnt Hamas fyrir að misnota eignir og stofnanir óbreyttra borgara. Um daginn fundu Ísraelmenn kort Hamasliða sem sýnir þetta svart á hvítu http://www.jpost.com/servlet/Satellite?cid=1231424893023&pagename=JPost%2FJPArticle%2FShowFull
Frétt sem íslenskir fjölmiðlar eru svo sannarlega ekki að segja frá!
Þú segir örugglega að kortið og allt sem gyðingar gera og segja séu lygar og falsanir, en það segir víst mest um þig sjálfan.
Þú gerir þér upp þá skoðun, að tveir menn séu með gísla í skólanum. Hvaðan í ósköpunum hefur þú fengið þær upplýsingar?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.1.2009 kl. 07:34
Vilhjálmur - fyrirgefðu heimsku mína - hvað er nýtt í þessu?
Hamas - Saddan Hussein - Íran - og hvað - þetta er siður Múslima að nota "mannlega skildi" - upplognar fréttir - allt frá því heimspressan ákvað að skipta um lið og "halda með" Palestínumönnum hefur "frétta"flutningurinn verið með þessum hætti. Hvað er svo nýtt í því sem þú segir og upplýsir ( þakkir til þín fyrir það ) frá heimspressunni. Alveg rétt þar er breytingin - heimspressan segir frá fölsunum Palestínumanna. Það held ég að sé nýtt.
Ólafur I Hrólfsson
Ólafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 06:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.