5.9.2008 | 10:33
Nýjasti skrælinginn á Grænlandi
Ahmed Akkari var vart stiginn út úr þotunni á Grænlandi, að hann var orðinn frægasti maður þar í landi. Hann er einfaldlega búinn að skjóta öllum fyllibyttunum á grænlenska þinginu ref fyrir moskusuxarass.
Akkari er kominn til Grænlands til að kenna við barnaskólann í Narsaq/Narsap á Grænlandi. Það er lítið byggðarlag á SV-Grænlandi, á þeim slóðum sem íslenskir landnemar bjuggu fyrrum og þeir kölluðu Eystribyggð. Ekki má rugla því saman við Austurlönd.
Ahmed Akkari er frægur af endemum og það þarf ekki að undra að ekki séu allir Grænlendingar jafn hrifnir af komu hans og bæjaryfirvöld i Narsap sem réðu hann til kennslu. Sjálfur segist hann bara vera kominn til að kenna dönsku og ensku, en það er fortíð mannsins sem fær marga til að sjá rautt á Grænlandi.
Akkari kom barnungur með fjölskyldu sinni til Danmerkur frá Líbanon árið 1985. Fjölskyldan var send heim aftur þegar þar var orðið rólegt eftir borgarastyrjöldina. En það var gott að vera í Danmörku og þau komu aftur og fengu að lokum að setjast að. Akkari var yfirlýstur Dani á þeim árum sem hann sótti um ríkisfang í Danmörku. Hann sagðist ekki kunna arabísku og gæti því ekki snúið til Líbanon. Þegar hann fékk ríkisfang var það fyrsta sem hann gerði að hoppa út úr gervi sínu, og gerðist öfgamúslími sem var reiprennandi í Kóraninum. Hann neitaði að taka í hönd skólastjórans sem afhenti honum prófskírteinið í menntó - vegna þess að hún var kona.
Frægastur hefur Akkari orði fyrir aðild sína að Múhameðs-teikningamálinu. Líklega ber enginn maður eins mikla ábyrgð á því, hvernig fór í því máli. Drengur þessi reyndist ósannsögull í meira lagi og tókst að ljúga heim múslíma fullan og koma af stað vandamáli fyrir "land sitt", sem seint verður lagfært. Líklega var það hann sem fór með mynd frá svínahrínskeppni í Frakklandi til Múslímalanda og sagði myndina vera af dönskum spaugara sem var að gera grín af múslímapresti.
Ekki er það Múhameð frændi eða teikningar af honum eða trúarofstæki Akkaris, sem stundum hefur ranglega verið nefndur imam (múslímaprestur), sem virðist valda Grænlendingum mestum vanda. Í vefblaðinu Sermitsiak segja nokkuð margir lesendur skoðun sína á Akkari. Mér sýnist nú á skrifunum, að þeir sem helst eru mótfallnir komu Akkaris til Grænlands séu STÓR-Danir, sem sitja og láta sér leiðast á Grænlandi og geta nú hatast út í eitthvað annað en Grænlendingana. Margir telja líka til ofbeldismál sem Akkari var dæmdur fyrir þegar hann var í kennaranámi. Hann reif eyra 11 ára nemanda til blóðs og sparkaði í hann liggjandi. Hvað hafði hinn 11 ára drengur gert til að verðskulda þessa sturlun Akkaris? Í leik hafði drengurinn óvart rifið slæðu af höfði systur Akkaris, sem líka var nemi í skólanum. Slíkt er ófyrirgefanlegt og í ýmsum löndum Íslams er dauðarefsing við slíku.
Á síðustu árum hafa einhverjir múslímar ofsótt Grænlendinga (utangarðsfólk) sem býr í hverfinu Gellerup í vesturhluta Árósa. Ef menn leita af fréttum af þessu, sér maður að einhvers staðar í heiminum hefur frétt þessi skolast til og menn tala um að grænlenskir múslímar séu að flæma landa sína af öðrum trúarbrögðum úr hverfinu Gellerup.
Nú er að sjá hvernig grænlenski veturinn leggst í Akkari, hvort hann berji nokkurt aðra en sjálfan sig til hita, reki alla nágranna sína í burtu með leiðindum eða reisi ígloo-moskur í nágrenni Brattahlíðar. Í versta falli nota Grænlendingar piltinn sem akkeri.
Ég tel víst, að ég sé búinn að finna ferðaskrifstofuna sem gaf Akkari hugmyndina til að fara til Grænlands. Hún heitir Akbar Reisen (sjá myndina efst). Fróðir menn segja hins vegar, að Akkari sé kominn til Grænlands til þess eins að freista þess að fá líbanska konu sína og barn til Grænlands og þannig inn í Danmörku. En ströng lög í Danmörku gera það að verkum að Akkari getur ekki fengið konu sína til Danmörku. Ef það er ástæðan, styð ég Akkari. Þessi lög eru ómannúðleg.
Og vissuð þið að fyrstu Grænlendingarnir voru Rússar! Klikkið tvisvar á hið óborganlega grín um Boas & Co. sem má skoða á Sermitsiak.gl
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Trúmál og siðferði, Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:45 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Viðreisnarklappstýran
- Tapað-fundið á DV
- Ekki fleiri sokka frá Íslandi, TAKK.
- Trumpur Eyjajarl
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 8
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 56
- Frá upphafi: 1354533
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Janúar 2025
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
þú hefur sérstakan húmor, ekki víst að allir fatti að þú gerir þig viljandi að fífli.
tók mig smá tíma, en sé núna að þetta er húmor.
þú gætir sjálfsagt útskýrt þetta sem þú skrifar fyrir aðstoðarskólastjóranum í Narsaq, hann talar fína íslensku. held þó hann nái ekki þessu stílbragði.
með kveðju frá suður Grænlandi
Baldvin Kristjánsson, 5.9.2008 kl. 14:33
Þakka þér fyrir hrósið Baldvin. Mikið er ég upp mér af því ef aðstoðarskólastjórinn í Narsaq læsi bloggið mitt.
Það verður bara að viðurkennast, að ekki vissi ég til þess að ég hafði notað mörg stílbrögð í þessu bloggi. Var barasta að velta því fyrir mér af hverju Akkari hefði farið til Grænlands. Oft eru það desperadóar sem halda þangað eða ævintýramenn - og tek það strax fram að ég segi þar með ekkert um þig. Þú gætir allt eins verið þarna syðra vegna húðsjúkdóms.
Segi ég eitthvað ósatt um Akkari? Bið bara að heilsa honum ef þú sérð hann og vona að það sé til nóg af halalkéti. Hann deyr varla úr vosbúð. Fiskur er varla illa séður af Allah.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.9.2008 kl. 18:06
Við Íslendingar höfum nú sent marga góða gesti þarna vestur, til dæmis einn sem kenndi hinum innfæddu að pissa á kirkjutröppur eftir umfangsmikið fyllerí. Þessa sögu heyrði ég nýlega á Grand rokk þar sem ég sat keikur innan um sjúskuðu kellingarnar sem vildu fá sér drátt fyrir svefninn.
Sigurður Sigurðsson, 6.9.2008 kl. 17:32
Hade inte danskarna slängt ut fanskapet för länge sedan? Þessi híbýlaflutningur hans til Grænlands og viðbrögðin þar voru stórfréttir í sænska útvarpinu í morgun. Ekki mikil hrifning á Grænlandi að fá þennan meinta ”uppviglare” og fanatíska íslamista þangað. Þó tók , samkvæmt fréttaritara, steininn úr þegar næsta holskefla reid yfir; sem sé að maðurinn er dæmdur fyrir að hafa misþyrmt skóladreng eins og þú skýrir frá í þínum skemmtilega pistli. Hér í Svíþjóð hafa fjölmiðlar skýrt frá nýjum hótunum frá Al Qaida gegn Dönum. Það átti að afmá þá úr heimi hér. Vantar ekki alltaf dönskukennara á Íslandi ef Grænlendingar gugna á öllu saman? En ég sá að sumir Grænlendingar bjóða Akkari velkominn. Gott svo.
S.H. (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.