2.6.2007 | 05:14
Börn eru heilög
Ævar Rafn Kjartansson, grafískur hönnuður, sendi mér línu, tengi í ritgerð sína um "barnamorð" Ísraelsmanna. Þessa sendingu fékk ég vegna þess að ég skrifaði um löngun Vinstri Grænna eftir því að koma Íslendingum í stjórnmálasamband við Hamas og aðra óbótamenn.
Þessi mynd er af Tali Hatuel og dætrum hennar fjórum, sem voru skotnar sundur og saman af Hamas 2. maí árið 2004. Bíll sem þær ferðuðust í hafði verið skotin frá öllum hliðum, væntanlega af ungum og glæsilegum frelsishetjum Hamas, sem Ævar og hans skoðanabræður vilja hafa samræði við. Hila (11), Hadar (9), Roni (7) og Merav (2) fundust í bílnum þar sem þær hjúfruðu sig saman. Blessuð sé minning þeirra.
Ævar og þeir Íslendingar, sem syrgja palestínsk börn, sem oft eru notuð í við eldlínuna til að koma fyrir sprengjum og bera sprengjubelti, er vitanlega fyrirmunað að syrgja þá gyðinga sem hafa misst líf sín fyrir hendi palestínskra hryðjuverkamanna. En ef til vill hefur Ævar áhuga á að lesa um það fólk við tækifæri, þegar hann er búinn að syrgja heilaþvegin börnin sem sett eru á sprengjubelti.
9. ágúst 2001 var nær heilli fjölskyldu útrýmt þar sem hún vara að borða pizzu í hjarta Jerúsalem. Morti Schijveschuurder kona hans Tzira, og þrjú börn Ra'aya, Yitzhak, og Hemda voru myrt af sprengju sem var fyllt af nöglum, skrúfum og brotajárni. 15 manns voru myrtir í árásinni. Afi Motti Schijveschuurders var samstarfsmaður bróður ömmu minnar í Hollandi. Ég syrgi börn Motti og Tziru Schijveschuurders. Tæpu ári áður en þessi fjölskylda var eyðilögð, sat ég með konu minni og dóttur og borðaði á sama pizzustaðnum þar sem Palestínumaður tók 15 manns með sér í dauðann til að frelsa landið sitt. Mig dreymir oft óhugnarlegan draum um þennan stað.
Ævar Rafn Kjartansson, mér þykir líka leitt að börn Palestínumanna þurfi að stunda hernað í stað þess að vera í skóla. Mér þykir leitt að palestínsk börn séu misnotuð til þess að halda áfram skærum, sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir ef fullveðja Palestínumenn hefðu haldið rétt á spilunum og viljað frið. Horfið á þetta myndskeið, þar sem heilaþvegin börn hryðjuverkakonu eru misnotuð í "Stundinni okkar" í landi Hamas. Takið eftir því að móðir barnanna drap gyðinga, ekki Ísraelsmenn! Skoðaðu þetta Ævar, þú hinn mikli vinur barnanna í Palestínu.
1132 manns hafa misst lífið vegna óeirða og hryðjuverka Palestínumanna síðan um aldamótin 2000.
Hér getið og hér getið þið lesið meira um þetta fólk sem var tekið úr umferð vegna frelsisbaráttu Palestínumanna.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Trúmál og siðferði, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 05:16 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 1352575
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Við skulum ekki gleyma því að það eru Ísraelar, sem eru hernámsliðið í þessum heimshluta. Það eru því þeir, sem eru árásaraðilinn. Það eru þeir, sem eru "Þjóðverjar Miðausturlanda" svo samlíking sé tekinn úr síðari heimstyrjöld. Vissulega hafa Palestínumenn drepið rúmlega þúsund Ísraela síðan seinni Indifata uppreisn Palestínumanna gegn grimmilegu hernámi Ísraela hófst en á sama tíma hafa Ísraelar derpið hátt í fjögur þúsund Palestínmenn.
Skúli Skúlason kemur hér enn með þá þvælu að verið sé að "framleiða börn sem sprengjufóður" hjá Palestínumönnum. Palestínumönnum finst alveg jafn vænt um börn sín og okkur vesturlandabúum. Þeir eru líka í þessari baráttu gegn hernámi Ísraela til að geta skapað þeim betri framtíð. Til að þau geti öðlast það frelsi, sem þeir sjálfir hafa ekki getað öðlast vegna ásælni Ísraela í land þeirra. Þeir hafa alla sína æfi búið við grimmilegt hernám og misskunarlausa kúgun þessara illmenna.
Palestínsk börn hata ekki Ísraela vegna þess að þeim sé kennt það í skólum sínum heldur vegna framferðis Ísraela í garð þeirra og fjölskyldna þeirra. Þau hata þá vegna þeirra illvirkja, sem þau verða vitni að frá hendi ísraelska hersins. Mörg þeirra syrgja ættingja og vini, sem hefur verið slátrað af þessum stríðsglæpamönnum.
Nei Skúli það er ekki von á góðu í Miðausturlöndum nema alþjóðasamfélagið fari að tuska Ísraela til og þvingi þá til að virða alþjóalög og skila aftur hernumdum svæðum, greiða strísskaðabætur fyrir áratuga grimmilegt hernám og þvíngi þá til að afhenda stíðsglæpadómstól stíðsglæpamenn úr sínum röðum eins og til dæmis Serbar hafa verið þvingaðir til að gera.
Það eru Ísraelar, sem eru helstu gerendur í ofbeldisverkum í þessum heimshluta. Sjálfsmorðsárásir Palestínumanna eru ekkert annað en afleiðing af áratuga hernámi og kúgun Ísraela. Ef þú lemur einhvern nógu oft endar með því að hann lemur á móti.
Sigurður M Grétarsson, 2.6.2007 kl. 20:56
Kæri Vilhjálmur
Ég hef séð þetta myndskeið og get ekkert annað en fundið til með aumingja börnunum. Bæði út af örlögum móður þeirra og heilaþvottinum sem þarna er í gangi. Enda hef ég ALDREI sagt að ég styðji aðgerðir palestínumanna. En ég skil þær!
Þegar þjóð hefur verið niðurlægð svona grimmilega eins og ísraelar hafa gert í yfir 60 ár er engin von. Engu að tapa. Vinir Ísraels þurfa að fara að gera sér grein fyrir því að það er ekki í lagi hvernig gyðingar koma fram við nágrannann. Upplýsingar mínar koma frá ísraelsku mannréttindasamtökunum btselem .
Ekki spyrða mig saman við vinstri græna eða gera mig að sérstökum vini palestínskra barna. Þá titla á ég ekki skilið enda ekki í þeim flokki né málkunnugur neinu palestínsku barni.
Það er aumt þegar þið trúarfasistarnir verjið gerðir gyðinga sem hafa verið úthrópaðar af öllum hinum siðmenntaða heimi en verndarvængur Bandaríkjanna heldur enn á floti. Enda stærsti kaupandi vopna frá þeim auk þess sem bandarískum fjölmiðlum og afþreyingariðnaði er að mestu stýrt af gyðingum sem vilja ekki flytja til Ísrael en kaupa sitt aflátsbréf með stuðningi.
Ævar Rafn Kjartansson, 2.6.2007 kl. 23:18
velkominn í hóp trúarfasista..ja hérna. Þeir sem gleypa hrátt við lyginni sem kemur frá Palestínu porpaganda maskínunni, sína hvað þeir vita afskaplega lítið um sögu svæðisins í gegn um aldirnar og ekki síst síðustu 100 árin eða svo. Einn skrifaði hjá mér að honum væri sama um eldgamla sögu Gyðinga, enn svo er í lagi að tala um eldgamla skáldsögum um tilveru rétt Araba á Palestínu. Vanþekkingin er sorgleg. Þetta ofbeldi er sorglegt og þessi barna níðing Araba er skelfing. Merkilegt að Vg vilji í stjórnasamstarf við barnaníðinga! Nema að fólk telji að kenna börnum að halda á byssum til þessa að drepa gyðinga sé ekki níð, eða nota teiknimyndir til að kenna hatur á gyðingum, ég hélt að það væri ekki kewl að vera rasisti, það er greinilega í lagi ef um er að ræða gyðingahatur. Skammarlegt alveg og hræðilegt hvað fólk getur verið blekkt.
Linda, 3.6.2007 kl. 00:50
Linda. Það eru fyrst og frems lyga propaganda maskína Ísraela, sem hefur verið að afbaka sýn Vesturlandabúa á ástandinu í þessum heimshluta. Ég geri ráð fyrir að þú sért að tala um skrif mín þegar þú talar um mann, sem sagði að honum væri sama um eldgamla sögu Gyðinga. Það, sem ég á við þar og þú virðist ekki skilja er að sú saga skiptir bara ekki nokkru máli. Ástæða þess að ég fór að segja að Arabar hefðu verið þarna líka er sú að jafnvel þó við færum að gefa þessum fornsögum eitthvert vægi þá myndi það ekki einu sinni réttlæta kröfum Ísraela.
Það er rétt að ofbeldið þarna er sorglegt en það er fyrst og femst vegna "níðingar" Ísraela en ekki öfugt. Aðgerðir Pelstínumanna eru einfaldlega afleiðin af ofgeldi Ísraela.
Þú talar um sögu þessa svæðis síðustu 100 árin. Sú saga geymir fyrst og fremst sögu um Gyðinga, sem smám saman hafa verið að hrekja íbúa svæðisins burtu með vopnavaldi og fjöldamorðum til að stela landi þeirra. Það er ástæða þess að allir menn með heilbrygða réttltissýn hafa andúð á framferði Ísraela. Það er þeirra hegðun, sem er rót ofbeldisins þarna og það verður að sparka duglega í þá og þvinga þá til að virða alþjóðalög.
Sigurður M Grétarsson, 3.6.2007 kl. 08:54
Sigurður M Grétarsson er maður með heilbrigt réttlætisskyn, sem ætlar að "sparka duglega í" Ísraelsmenn, "tuska þá til" og "þvinga þá". Æi.....nýr Pontíus Pílatus!
Hinn íslenski Pontíus verður þó að gera sér grein fyrir því, að Palestínumenn sparka nú þegar í Ísraelsmenn, tuska þá til, þvinga, og myrða þá líka til að fá frelsi sitt. Hömlulaust ofbeldi er sem sagt enn talin rétta leiðin? Arabarnir í Palestínu hafa valið Hamas og eru því sammála SMG. Ofbeldi, spörk, tusk og þvinganir eru ekki rétta leiðin. Einn góðan veðurdag munu Palestínumenn uppgötva það.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.6.2007 kl. 09:43
Það eru nú fyrst og fremst Ísraelar, sem hafa verið að beita hömlulausu ofbeldi gegn Palestínumönnum og sparka fast í þá. Palestínumenn hafa svarað fyrir sig og drepið um að bil einn Ísraelsmann á móti þremur til fjórum myrtum Palestínumönnum.
Æji hvað það hlýtur að vera mikil illmennska að vilja þvinga Ísraela til að fara að alþjóðalögum. Ástæða þess að Palestínumann hafa valið Hamas er væntalega sú að þeim hefur fundist Fatah vilja gefa of mikið eftir af rétti þeirra til að kaupa sér frið. Þeir vilja frekar berjast áfram fyrir rétti sínum helsur en að láta óréttlætið yfir sig ganga og láta stela nær öllu landi sínu þannig að þeir verði sildir eftir á svæðum það litlum og sundurskornum að það verði ómögulegt að reka þar eitt ríki sem virkar, sem slíkt. Palestínumenn eru fyrir löngu búnir að gera sér grein fyrir því að það er ekki hægt að ná fram réttlátum friðasamningum við Ísraelsmenn. Um daginn höfnuðu þeir mjög svo rausnalegu tilboði frá Arabaríkjum. Þar var mjög langt seilst til að reyna að ná fram sáttum og var Ísraelum boðið að halda eftir helming þess lands, sem þeir hafa ólöglega hernumið af Palestínumönnum frá því Sameinuðu þjóðirnar ákváðu skiptingu landsins.
Segðu mér eitt. Var anspyrna hernuminna þjóða Evrópu í síðari heimstyrjöldinni gegn hernámsliði Þjóðverja ofbeldi og hryðjuverk?
Sigurður M Grétarsson, 3.6.2007 kl. 14:47
Elsku Sigurður,
ert þú að líkja Ísraelsmönnum saman við nasista? Mér sýnist það. Mundu að Palestínumenn voru bandamenn Hitlers. Nasistar höfðu að markmiði að útrýma gyðingum og það hafa Palestínumenn greinilega líka haft að meginmarkmiði í áratugi.
Samlíking ykkar milli Ísraelsmanna og nasista er ógeðfelld og er í raun versta gerð afneitunar á helför gyðinga. Forfeður Palestínumanna byggðu ekki þetta land, sem gyðingar voru hraktir frá. Flestir Palestínumenn aðhyllast Íslam, sem í dag er notað til að boða að gyðingar sé helsti óvinur mannkyns. Þú virðist aðhyllast álíka skoðanir. Ef til vill kominn tími til að gerast fylgismaður Múhameðs spámanns.
Þú virðist greinilega heldur ekki vita að Palestínumenn hófu morðárásir á gyðinga í Palestínu löngu áður en Ísraelsríki var stofnað.
Veistu t.d. að Chaim Arlozoff, frændi stúlku sem Íslendingurinn Edvald Hinriksson nauðgaði (skv. ákærum vitna) í Eistlandi, var myrtur af Palestínumönnum í Tel Aviv árið 1933. Arolzoff var leiðtogi Mapai, sem síðar varð verkamannaflokkurinn í Ísrael. Á þeim tíma heyrðis fyrst ásökunin um að gyðingar væru að flæma Palestínumenn burt af svæðinu. Þetta rannsökuðu Bretar og tóku skýrlega fram að væri rugl, þó svo að þeir væru á sama tíma að snúast gegn gyðingum í Palestínu.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 3.6.2007 kl. 19:59
Þó margt af því, sem Ísraelar hafa gert gagnvart Palestínumönnum minni á framferði Nasista þá er ég ekki að líkja þeim við þá. Ég er einfaldlega að líkja hernámi við hernám. Vopnuð andspyrna við hernámi er heimil samkvæmt alþjóðasáttmálum, þar með töldum Genfarsáttmálanum og telst til sjálfsvarnar.
Það er því engin munur á árásum íbúa hernuminna landa Þjóðverja á Þýska hermenn, árásum Palestínumanna á ísraelska hermenn, árásum Afgana á Sovéska hermann á meðan Sovétmenn hernámu Afganistan eða árásum Kuwita á íraska hermenn meðan á hernámi þeirra stóð þar.
Þó svo dauði hvers manns sé harmur fyrir hans aðstandendur þá er það einfaldlega hluti þess, sem reikna má ef hermenn eru sendir til að hernema aðra þjóð og kúga hana síðan. Dauði þeirra er fyrst og fremst sök þeirra, sem sendu þá til slíkra verka en ekki þeirra, sem eru að verja hendur sínar og berjast fyrir frelsi sínu.
Það eru engin ný sannindi að gyðingar og arabar réðust oft á hvorir aðra á þessum slóðum löngu áður en Ísraelsríki var stofnað. Innfæddir íbúar þessa svæðis voru flestir á móti öllum þessum innflutningi gyðinga inn á land sitt, sem hófst í lok nítjándu aldar. Þeir reyndu sitt til að hrekja þá í burtu. Hvað heldur þú að við Íslendingar myndur gera ef við værum hernumin þjóð og það færu allt í einu að flæða inn í landið fólk, sem við vildum ekki sjá en hernámsþjóðinni væri slétt sama og gerði lítið eða ekkert til að sprona við aðstreyminu?
Þaðer rangt hjá þér að Islam sé notað til að boða að gyðingar séu helsut óvinir mannkyns. Hins vegar eru það fyrst og fremst Arabar, sem fynna til samstöðu meða kúgaðri þjóð Palestínumanna og hafa trúarleðtogar farið þar fremstir í flokki. Þetta hefur ekkert með trúarbrögðin sjálf að gera fremur en að fjöldamorð krossfarana á þessum slóðum hafi haft eitthvað með kristna trú að gera þó Páfinn hafi hvatt til þessara aðgeraða þegar honum fanst kristnum mönnum ógnað.
Hvað heldur þú að myndi gerast hér á norðurlöndunum ef eihverjir kæmu fram við Færeyinga eins og Ísraelar hafa komið fram við Palestínumenn? Ef við bættist að um væri að ræða menn, sem væru ekki kristnir, hvernig heldur þú þá að öfgakristnir menn í þessum löndum myndu tala?
Sigurður M Grétarsson, 4.6.2007 kl. 23:25
´Þetta friðartilboð felst aðeins í því að virða alþjóðalög. Flóttamenn eiga að fá að snúa aftur heim til sín að átökum loknum samkvæmt Genfarsáttmálanum. Þessu verða Ísralar bara að kyngja. Þetta er ekki land Ísraela heldur þeirra flóttamanna, sem voru hraktir frá því með fjöldamorðum og hryðjuverkum Zíonista.
Þessir fordómar þínir gagnvart Múslimun er hreinlega sjúkleg. Þetta bull þitt á ekkert skilt við raunveruleikann. Mikill meirihluti Múslima heimsins lifir í ágætis sátt við nágranna sína. Þú getur ekki dæmt fjöldan út frá nokkrum skemmdum eplum. Ef þú villt kynnast sannleikanum um Múslima og Islam ráðlegg ég þér að ná í þína fræðslu einhvers staðar annar staðar en í Omega.
Sigurður M Grétarsson, 7.6.2007 kl. 23:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.