16.7.2014 | 06:32
Auf wiedersehen Dr. Brinkmann
Nú þegar ljóst er orðið að ESB tekur ekki nýja meðlimi í gullvagninn, er líklega best fyrir Matthias Brinkmann stækkunarsendiherra sambandsins í Reykjavík að pakka áföllnum prófskírteinum sínum og halda af landi brott. Hann hefur ekkert lengur að gera á Íslandi.
Sjá fyrri færslur um Brinkmann hér og hér
Ég hef nýlega reynt að fá upplýsingar um Matthias Brinkmann, því upplýsingar sem hann gefur upp á síðu ESB stangast á við upplýsingar sem ég hef fengið hjá þeim aðilum sem hann segist starfa fyrir.
Í mars sl. var ég beðinn að senda erindi mitt á erlendum tungumálum og sendi ég það umsvifalaust á ensku og þýsku
Svar kom ekki fyrr en í lok júní. Klemens Þrastarson fyrrv. blaðamaður og nú starfsmaður ESB sendiráðsins á Íslandi skrifaði:
" Sæll Vilhjálmur Örn,
Ekki verður séð af fyrirspurn þinni að þú eigir tilkall til þess að geta krafist upplýsinga um einkalíf sendiherrans. Hins vegar er ein spurning þín almenns eðlis. Sú fjallar um heiti danskrar stofnunar. Þegar Brinkmann starfaði þar var hún kölluð Forskningsdirektoratet á dönsku en jafnan vísað til hennar á ensku sem Ministry of Research.
Bestu kveðjur"
Ég svaraði um hæl því ég læt ekki menn bíða í 3 mánuði eins og ESB:
"Sæll Klemens,
vegna svars þíns við erindum mínum til sendiráðs ESB á Íslandi, langar mig að taka fram að ég hef alls ekki spurt um einkalíf sendiherra ESB á Íslandi eins og þú heldur fram í tölvupósti þínum 30. júní 2014. Einkalíf hr. Brinkmanns er mér er algjörlega óviðkomandi. Þessi ásökun/skoðun þín er mjög fjarstæðukennd og nokkuð alvarleg að mínu mati. Ég hef spurt um atriði í ferli Brinkmanns sem embættismanns hjá ESB og annars staðar, atriði sem hann upplýsir lauslega um á vefsíðu ESB. Þú vísar til ítarlegra spurninga um þessar upplýsingar sem röskun á einkalífi sendiherrans og er mér það algjörlega óskiljanlegt. Mér skilst á svari þínu, að sendiherra ESB á Íslandi telji eftirgrennslan um upplýsingar um embættissögu þá sem hann setur á ESB-vefsíðu vera hnýsni í einkalíf sitt. Það er hvorki rétt túlkun samkv. þýskum, íslenskum lögum, né reglugerðum ESB.
Hvað varðar þá upplýsingu sem þú segir að sé svar við spurningu minni sem sé almenns eðlis, langar mig að taka fram: Þegar Forskningsdirektoratet í Danmörku varð fullgilt direktorat árið 1988 tilheyrði það Undervisningsministeriet (Enska: Ministry of Education) og hélt áfram að tilheyra því ráðuneyti meðan að direktoratet var til. Direktorat á dönsku hefur ávalt verið þýtt directorate á ensku. Þessar upplýsingar hef ég bæði frá Undervisningsministeriet (Ministry of Education), og Ministeriet for Uddannelse og Forskning sem rannsóknarráðuneyti Dana heitir síðan 2012. Kona mín hefur unnið í síðastnefnda ráðuneytinu síðan 1998, svo ég veit sitthvað um það ráðuneyti og sögu þess.
Ég veit vitaskuld að Brinkmann vann í Kaupmannahöfn. Þar var hann titlaður cand.jur. en ekki doktor, eins og fram kemur í upplýsingum um hann í tengslum við starf hans á Íslandi. Hann upplýsir á vefsíðu ESB, að hann hafi fengið menntun sína í lögum og stjórnmálafræði áður en hann starfaði fyrir EF/EU (ESB).
Eins og ég hef áður upplýst varð Forskningsministeriet (Enska: Ministry of Research) ekki til fyrr en árið 1993. Síðan þá hefur ráðuneytið haft mismunandi nöfn. En þú upplýsir mig hins vegar að Forskningsdirektoratet hafi verið kallað Ministry of Research. Það er alrangt hjá þér, vegna þess að Forskningsdirektoratet tilheyrði Undervisningsministeriet meðan Forskningsdirektoratet var og hét. Ef þú hefur aðrar staðfestar upplýsingar, bið ég þig vinsamlegast um að senda mér þær sem allra fyrst. Ég mun í síðasta lagi þann 15. júlí nk. bera upp erindi við Undervisningsministeriet í Kaupmannahöfn um störf Brinkmanns þar í meintu "Ministry of Research" og biðjast staðfestingar á námsgráðu hans í fulltrúaembætti því sem hann gegndi þar.
Mig langar einnig að taka fram, að ég tel leit mína að upplýsingum um háttsettan embættismann í ESB, t.d. prófgráður hans og fyrri störf, hvorki vera aðför á einkalífi Brinkmanns sendiherra, né brot á friðhelgi einstaklings. Ég held að þú fáir þá túlkun staðfesta hjá hvaða lögfræðingi sem er.
Virðingarfyllst,"
Þá svarði Klemens Þrastarson:
"Sæll aftur Vilhjálmur,
Í ljósi athugasemda þinna um stofnanaheiti í dönsku stjórnkerfi fór ég og ræddi þetta betur við sendiherrann. Í ljós kom að það er ekki rétt að hann hafi starfað í forskningsdirektoratinu. Brinkmann var í því sem heitir -eða hét- Forskningssekretariatet. Ég bið þig að afsaka ónákvæmnina.
Besta kveðja"
Ég svaraði Klemens, sem viðurkennt hafði að hafa sent mér röng svör:
Sæll Klemens,
samkvæmt upplýsingum Niels Borgers yfirskjalavarðar Menntamálaráðuneytisins danska var nafnið:
Forskningssekretariatet 1968-88
Forskningsdirektoratet 1988-90
Eftir 1990, þegar Hr. Brinkmann er hættur, kom nýtt nafn Forskningsafdelingen, sem var starfandi fram til 1992. Þá fyrst verður Ministry of Research / Forskningsministeriet til, og er það ráðuneyti búið að bera 3-4 nöfn síðan, allt eftir því hvaða pólitískir vindar blása.
Ég vona að þessar upplýsingar mínar hressi upp á minnið hjá sendiherranum.
bestu kveðjur,
Lokaorð Klemens, sem telur mig vera að brjóta á friðhelgi einkalífs Mattihas Brinkmanns, voru vitaskuld út um þúfur og börð:
"Sæll Vilhjálmur,
Þið Borgers virðist vera með þetta allt á hreinu. Gangi þér vel með rannsóknirnar.
Besta kveðja,
Klemens"
Jamm, ég er með þetta á hreinu Klemens Þrastarson og fyrirgef þér ónákvæmni þína sem þú getur lítið gert að með yfirmann eins þann sem þú vinnur undir. Það er engin ástæða fyrir þig að hjálpa Brinkmann að fela sig á bak við ömurlega afsökun um að ég sé að veitast að einkalífi hans, þegar ég er að spyrja fyrir um embættisferil hans.
Áfram skal haldið. Íslendingar eiga rétt á því að vita hvers konar blýantanagarar eru sendir á skerið til okkar, sem ESB hefur aðeins augastað á í græðgi eftir auðlind okkar fiskinum. Mannvitið er svo sem svo. Einstaka menn á Íslandi fá stjörnur í bókina sína en hinir láta sig dreyma um betra líf sem skósveinar eða afætur þjóðarinnar sem nú ræður ríkjum í ESB og sem stundaði þjóðarmorð fyrir hálfri öld síðan. ESB er á góðri leið með að eyða fiski í lögsögu ESB og við Afríku. Nú skal haldið á billeg mið við Ísland, sögðu menn í skúmaskotum ESB. En svo verður aldrei.
ESB stækki ekki næstu fimm árin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:55 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 1352575
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Sæll kæri dr. Vilhjálmur Örn.
Haf þú hjartans þökk fyrir rannsókn þessa sem og éwg hef svo sem fyrr sagt.
Klenes ætti að vera kunnugt um að doktorsrit eru opinber plögg sem vanalegt er að liggi á lausu að nálgast hjá viðkomandi háskóla sem yfirleitt á prentréttinn nema um annað hafi samist. En þetta þarf auðvitað ekki að segja þér en er greinilega ekki á hreinu hjá Klemensi þessum.
Það er gustuk að hr. Brinkmann vísi á prófskrírteinið eða ritgerðina sjálfa.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 16.7.2014 kl. 15:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.