Leita í fréttum mbl.is

Próf seðlabankastjóra, alþingismanns og nasista

davi_lafsson_og_flaskan.jpg

Davíð Ólafsson seðlabankastjóri stundaði nám í Þýskalandi 1935-1939. Samkvæmt Hagfræðingatali hlotnaðist honum prófráðan Bac. sc. oecon. eða "bac[calaureus] sc[ientiæ] oecon[omicæ]. Það er bara einn galli á gjöf Njarðar við þessa upplýsingu, og heldur stór, og hann er sá að ekki voru gefnar bakkalaureus gráður í Þýskalandi eftir 1820 (þið lesið rétt: Átjánhundruð og tuttugu). (sjá hér og hér).

Á vefsíðu Alþingis er upplýst, að Davíð Ólafsson hafi verið hagfræðingur og stundað nám við háskólana í München og í Kiel. Á síðastliðnu ári hafði ég samband við Landesarchiv í Schleswig, sem upplýsti mig að engin göng fyndust um nám eða próf Davíðs Ólafssonar við háskólann í Kiel. Gat þetta verið vegna þessa að mikið magn ganga eyðilagðist í stríðinu, en skjalavörður sem rannsakaði málið fann heldur ekki nafn Davíðs á varðveittum lista yfir erlenda námsmenn við háskólann á þeim tíma sem Davíð á að hafa stundað nám við skólann.

skatarnir_i_hafnafir_i_1935.jpg

 Fánaliði nasista á Íslandi á Hamrinum í Hafnafirði sumarið 1935, sumarið sem Davíð Ólafsson hélt til náms í Þýskalandi nasismans. Myndin efst er tekin á góðri stundu. Maðurinn í miðið er Jón Þ. Árnason einn fremsti foringi íslenskra nasista. Í lautarferð nasistanna var Bakkus gamli álíka mikið lofsunginn og Adolf Hitler, og það er Davíð Ólafsson sem teygir sig þarna í viskípelann.  Ljósmyndirnar eru úr öndvegisverki Illuga og Hrafns Jökulssona, Íslenskir Nasistar (1988).

Davíð Ólafsson, var fánaliði nasista á Íslandi á 4. áratugnum. Þýskaland var líklega eðlilegur staður að fara í nám fyrir ungmenni með slíkar öfgaskoðanir. Menn dreymdi einnig um stóra og sameinaða Evrópu þá, líkt og fasista og gyðingahatara í Úkraínu dreymir ESB-drauminn í dag. Með námi við þýskan háskóla var hægt að marséra ein og maður gerði heima á Íslandi.

Mig langar að komast til botns í þessu undarlega máli varðandi menntun fyrrverandi seðlabankastjóra, alþingismanns, nasista og sjálfstæðismanns. Kannski á Seðlabankinn skjöl sem varpað geta ljósi á menntun Davíðs eða ef til vill á fjölskylda Davíðs einhver prófgögn. Fékk Davíð kannski einhvern sérstakan titil sem nasistar gáfu erlendum námsmönnum sem aðhylltust hugmyndafræði nasismans?  Hafa ritstjórar Hagfræðingatals gert skyssu eða háskólinn í Kiel? Allar upplýsingar væru vel þegnar til að koma þessari óvissu á hreint.

Ég minni einnig á leit mína að upplýsingum um sendiherra ESB á Íslandi Matthias Brinkmann. Ég hef spurst fyrir um nokkur atriði í sendiráðinu vegna alvarlegra mótsagna í ferilskrá dr. Brinkmanns, en ég fæ engin svör. (Sjá hér).

unikiel1938a.jpg
Nasistar marséra við háskólann í Kiel

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Á Davíð Ólafsson að gjalda fyrir það, að hafa hvorki verið Gyðingur né samkynhneigður.

Sigurgeir Jónsson, 26.3.2014 kl. 22:46

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurgeir, ég spyr eins og Elvis gerði forðum: "Are you lonesome tonite?"

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.3.2014 kl. 22:48

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Höfum það bara á hreinu, Davíð Ólafsson var ekkert fórnarlamb.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.3.2014 kl. 22:49

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæll kæri dr. Vilhjálmur Örn.

Þeta er verðugt rannsóknarefni !

Það virðist vera sem doktorsgráða Ingimars sem hann fékk fyrir hina stórkostlegu ritgerð um íþróttir í háskóla í Leipzig að mig minnir á tímum Sovéskra yfirráða þar, sé þá merkilegri en gráða Davíðs ? Ingimar skrifaði þó fáein vísdómsorð á pappír !

Einhver „velunnari“ hans þýddi stórvirkið yfir á ástkæra ylhýra og setti á stand í fjölriti í Eymundsson, að mig minnir, handa hverjum sem hafa vildi ókeypis.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.3.2014 kl. 23:47

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Dr. Ingimar :

http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=976994

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 27.3.2014 kl. 00:10

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Grundzüge der Geschichte des Sports in Island in der ersten Hälfte des 20. Jahrhunderts frá Deutsche Hochschule für Körperkultur zu Leipzig (1968) var nær 250 bls. ritgerð (fjölrit), svo já, Ingimar þurfti að hafa fyrir hlutunum. Gervigráður voru algengari undir nasismanum en í DDR. Menn rugla líklega sumum styttri fræðigreinum Ingimars við sjálfa doktorsritgerðina, og vera kann að einhverjar þeirra hafi verið þýddar yfir á íslensku og seldar í Eymundsson. En svo minnir mig að út hafi komið bók á íslensku skömmu eftir 1980, sem byggði á doktorsritgerðinni. 

Eiður Kvaran, nasisti, sem ekkert má skrifa um, nema að eiga í hættu að Kvaranarnir komi eftir manni með lögsókn, skrifaði afar ómerkilegan bleðil um það sem hann taldi vera kynþáttaval til forna á Íslandi. Tómt rugl. En hann skreytti sig með doktorsnafnbót frá háskólanum í Greifswald fyrir það áður en hann dó úr berklum árið 1939.

Bara að ég vissi hvað "bakkalá"-ritgerðin hans Davíðs Ólafssonar í Kíl hafi verið kölluð. Ef einhver á hana heyri ég frá viðkomandi. En auðvitað var það engin doktorsritgerð, sem manni þætti nú að fleiri ættu að hafa upp á vasann sem gegna háum stöðum a Íslandi. En svo er nú ekki.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.3.2014 kl. 05:35

7 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Já kæri dr. Vilhjálmur Ön.

Sjálfur las ég ekki fjölritið sem um var að ræða í bóksölunni. Mér var sagt að það hefði verið maður sem átti leið um Leipzig sem hafi gert sér ferð í skólann til að fá eintak af doktorsriti Ingimars og hafi þýtt það og fjölritað Ingimari til háðungar því það hafi, samkvæmt heimildarmanni mínum, þótt svo ómerkilegur snepill eins og það var orðað. Hann hafi lagt þetta fram eins og nú er gert með eins og til dæmis Bændablaðið, sem liggur víða frammi ókeypis, svo allir gætu séð að gráðan hafi nánast verið hluti innihalds  í morgunkornspakka Ingimars eins og stundum er sagt. En þessa sögu heyrði ég á nokkrum stöðum á þennan veg frá mönnum sem ég hef ekki þekkta af því að segja rangt frá. Hitt er annað að ég man ekki hvort þessir sömu hafi sagt að þeir hefðu sjálfir lesið fjölritið þannig að ég vil ekki fjölyrða um hversu góð ritgerðin hafi verið. Gaman væri kannski að heyra um þetta frá einhverjum sem hefur raunverulega lesið rit hans og er hlutlaus í skoðun sinni áIngimari sem einstaklingi, en ég hef heyrt að Ingimar sé alveg þokkalegur í að tefla.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 27.3.2014 kl. 12:17

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Grundvallarreglan, maður á ekki að hlusta á slúður.  Maður á að spyrja spurninga. Ritgerðina hans Ingimars er hægt að lesa í Þjóðarbókhlöðunni. 250 bls. á góðri þýsku getur oft verið seig tugga. En ef þú átt leið hjá Þjóðarbókhlöðunni gætir þú litið á hana og byrjað á 1. kafla. Ég þekki ekkert til Ingimars. 

Ritgerðaleysi Davíðs Ólafssonar er hins vegar ekkert slúður. Hann var með titil sem ekki var til í Þýskalandi og engin gögn eru til um að hann hafi verið í Kílarháskóla. Hvað var hann að gera í Þýskalandi? Nýttist það í starfi hans síðar á ævinni? 

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.3.2014 kl. 07:16

9 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Já kæri dr. Vilhjálmur Örn, ég er sammála þér með slúðrið, en í þessu tilfelli var slúðrið haft eftir 2-3 mönnum sem ég treysti vel og þekktu til Ingimars eitthvað, en það þýðir ekki að þetta sé rétt. Þess vegna setti ég eigin fyrirvara um þetta en vitnaði i að þetta væri álit manna sem þekktu til Ingimars. Ég þekki enn einn sem þekkir vel til skákmennsku hans og segir hann ágætan að tefla, en sá sem ég hef þetta eftir er verulega mikill skákjöfur.

Þetta með Davíð finnst mér að þurfi að skoða betur og það væri gaman ef einhver veit eitthvað um málið. Mér finnst það nauðsynlegt að komast til botns í þessu, því hafi Davíð verið að flagga upplognum titlum þá er það verulega alvarlegt mál að mínum dómi.

Það á ekki síður við um tóma möppuna merkt Svavari Gestssyni í skjalasafni STASI. En einhverjum mánuðum áður, en rétt eftir að hægt var að komast í skjalasafnið, var Svavar ásamt konu sinni og hópi samlanda okkar í rútuferðalagi um Pólland meðal annars. Þegar áð var við landamæri Þýskalands hvars Svavar úr hópnum og birtist þremur dögum síðar eftir því sem fólk úr hópnum hefur upplýst.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.3.2014 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband