Leita í fréttum mbl.is

Burt með nasistana og aðra útrunna merkjavöru af Austurvelli !

hakakross_jpg_620x1200_q95

Fólk sem misst hefur heimili sín, vinnuna og jafnvel vitið vegna óstjórnarinnar á Alþingi, verður að koma í veg fyrir að nasistafífl séu að misnota það. Ekki ætla ég útiloka að á meðal nasistanna á Austurvelli séu fólk sem er lemstrað af kreppunni, en hverjum kenna nasistar um?

Troðið eggjum upp í litlu nasistasvínin eða hendið þeim í höfnina. Þeir eru tímaskekkja. Nasismi og kommúnismi eru öfgastefnur og fávitahugsjónir, sem eiga ekki við Íslendinga. "Kommana" úr Alþingishúsinu og nasistana af Austurvelli.

Ungt fólk sem vill sýna "lit", ætti ef til vill að fá sér tattú á handlegginn eins og borgarstjórinn, sem er með sama merkið á handleggnum og strætóinn sem pabbi hann ók í forðum var með á hliðinni. Hollar merkingar eru alltaf góðar, en hamar, sigð, hakakross og ESB-þyrnikrónan eru hins vegar óþörf píningarverkfæri á Íslandi.

bildeCAV1IT0Y
Reykjavík Bus Boy

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Málið er að það voru ekki allir að óska þess sama nema allir virtust sammála að Ríkisstjórnin væri að standa sig afleitlega. Nú boða þeir til áframhaldandi mótmæla en taka fram að þeir vilja ekki kosningar. Hvernig má það vera? Allir sem ég heyrði í kringum mig vildu einmitt kosningar. Svo er það allt þetta skrítna lið, kommúnistar og nasistar og aktvistar etc. sem mótmæla stjórnkerfinu yfir höfuð.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 5.10.2010 kl. 13:27

2 identicon

Eru virkilega til einhver nasistasamtök á Íslandi? Hvar fær maður þá upplýsingar um þau? Veit einhver?

Hólímólí (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 14:15

3 identicon

nasistar

Sjálfstæðismenn

er einhver munur

kveðja

Æsir (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband