Leita í fréttum mbl.is

Bréf til Alþingis vegna umskurðarbannstillögunnar

Það er afar áhugavert að lesa þau bréf sem háttvirtu Alþingi hafa þegar borist vegna tillögu nokkurra þingmanna til að banna umskurð drengja  - og um leið gera foreldra þeirra að ótíndum glæpamönnum. Ég hef nú lesið þessi bréf. Ágæt bréf eru þarna inni á milli, en fyrir utan bréf frá samtökum gyðinga erlendis og þeirra sem þekkja til umskurðar, þá er þarna þunnur þrettándi frá öfgamönnum, kynlegum kvistum og sérvitringum. Mér þykir leitt að sjá slík bréf.

Mér þykir líka leitt að sjá að bréf hafi ekki borist frá gyðingum á Íslandi eða múslímum, en afstaða þeirra er hins vegar vel þekkt og ekki þarf að fara í grafgötur með þær. Réttur þeirra er tryggður. Á Íslandi er trúfrelsi. Tillaga fólksins sem eyðir tíma Alþingis með tillögu um umskurðarbann er fyrst og fremst árás á trúfrelsi og á aldagamla siði minnihlutahópa. Tillaga, sem ætlað er að banna umskurð drengja er í rauninni ekkert annað en lögbrot. Réttur til umskurðar er tryggður með trúfrelsi.

Þegar maður les skoðanir margra Íslendinga um þetta mál verður manni fljótlega ljóst að fordómar og kynþáttahatur ræður ferðinni hjá mjög mörgu fólki í þessari umræðu um bannið. Það er í raun meira áhyggjuefni en trúarlegur umskurður að mínu mati.

Nú skulu nefnd þrjú dæmi um furðulegustu bréfin sem send hafa verið Alþingi í þeim tilgangi að hafa áhrif á störf löggjafavaldsins í landinu.

1) Eitt bréfanna er frá Gísla Gissurarsyni, lesið bréf hans til Alþingis. Sami maður hefur skrifað um gyðinga á veraldarvefnum og kallað þá "sub-Humans", sem er ensk þýðing á því sem nasistar kölluðu Untermennschen og áttu þeir m.a. við gyðinga er þar orðskrípi var notað.  Gísli Gissurarson hefur algjörlega dæmt sig úr leik og bréf hans til Alþingis er móðgun við öll frelsisgildi sem Íslendingar hafa ákveðið að fylgja (sjá frekar hér).

2) Annar bréfritari er Jacob Sysser, sem skrifar bréf til Alþingis sem höfðaði greinilega svo til eins þingmanns pírata, Jóns Þórs Ólafssonar, að hann birti það á FB sinni (MYND). Sysser sem ættaður er frá Rússlandi, en búsettur í Riga og Helsinki, og er ekki gyðingur. Hann hefur heillast af jiddísku sem hann hefur lært og sótt námskeið í, en fyrir utan það eru sambönd hans við söfnuði gyðinga engin. Þegar hann skrifar Alþingi, mætti á orðalaginu halda að hann væri erindreki frjálslyndra gyðinga, en hann talar í raun einvörðungu fyrir sjálfan sig.

Yaron Nadbornik formaður gyðingasamfélagsins í Finnlandi hefur tjáð mér að Sysser sé ekki þekktur í neinum söfnuði gyðinga í Finnlandi, enda sé þar enginn svokallaður frjálslyndur söfnuður. 

Yaron

Yaron Nadbornik, formaður gyðingasamfélagsins í Finnlandi telur fráleitt að Sysser tali fyrir hönd gyðinga. Sysser er að hans sögn ekki meðlimur safnaða eða samtaka gyðinga í Finnlandi.

Jacob Sysser er hins vegar þekktur fyrir að vera deilugjarn og þrætugjarn á FB síðum manna sem fjalla um jiddísk málefni - en hann hefur engin sambönd við gyðinga og talar ekki fyrir hönd þeirra. Þess má geta að frjálslyndur söfnuðir gyðinga í Danmörku og Svíðþjóð styðja nær heils hugar umskurð. Jacob Sysser er einvörðungu að rita sína persónulegu skoðanir sem koma gyðingum ekkert við. En íslenskir þingmenn hoppa strax á skoðanir hans og telja hann vera umboðsmann frjálslyndra gyðinga. Þetta sýnir á hvaða stigi umræðan er. Þess ber að geta að Skoðun Syssers var birt á Kjarnanum . Ritstjóra Kjarnans var boðin skoðun Syssers á ensku, en hafnaði henni. Hann tjáði þá Sysser að ef grein hans væri þýdd yfir á íslensku, yrði hún birt. Sysser hefur greinilega fundið einhvern sem gat þýtt yfir á íslensku. Þannig varð skoðun manns sem ekki er gyðingur að skoðun frjálslyndra gyðinga um allan heim. Ekki er nú öll vitleysan eins.

9b3b8d3a-39e1-4463-ae30-5e62ac34a706

3) Brian Earp, sálfræðingur og heimspekingur, skrifar einnig bréf, þar sem hann greinir frá titlum sínum og háskólagráðum, en ekki frá því að hann tilheyrir svæsnum samtökum öfgamanna sem berjast gegn umskurði á mjög frumstæðan hátt. Þó Brian sé vel menntaður, tókst honum nýlega í samfloti við danskan lækni, Morten Frisch, sem er einn af forsvarsmönnum samtakanna Intact Denmark, sem eru systursamtök Intact Iceland, að ráðast á fræðigrein tveggja danskra lækna um umskurð og skíta hann út og sverta til.  Reyndust ásakanir Earps og Frisch ekki á rökum reistar og sýnt var fram á að þeir færu með með staðlausa stafi og grófar rangfærslur (sjá hér).

brotherk

Samstarfmaður Brian Earp, Brother K.

Þess má geta að Morten Frisch stundar nú þá iðju að hvetja Dani sem greinilega eru rasistar og múslímahatarar að styðja borgarakosningar gegn umskurði sem hann hefur sett í gang í Danmörku (sjá t.d. hér).

Hér birti ég mynd af Earp með Brother K, yfirlýstum bandarískum kynþáttahatara sem gert hefur umskurð að meginmáli sínu til að hatast út í gyðinga og múslíma, þegar hann mótmælir á götum úti í blóðugum búningi sínum. Brian Earp siglir undir fölsku flaggi í bréfi sínu til Alþingis. Hann er einnig liðsmaður öfgasamtaka, en nefnir það ekki í bréfi sínu til Alþingis vegna máls sem hann telur ástæðu til að blanda sér í sem bandarískur ríkisborgari.

Earp 2014 on Brother K's site

Earp stendur fyrir miðju í gallabuxum. Hann er þarna árið 2014 á þingi með Brother K. og öðru fólki sem ekki getur verndað forhúðina án þess að bann öllum umskurð.

Já, það er mjög merkilegt að kynna sér hvaða fólk telur sig til knúið að skrifa háttvirtu Alþingi á Íslandi.

Eitt bréf utan úr heimi, meðal þeirra sem Alþingi hefur móttekið í þessu máli, sker sig þó úr og er í sérlegu uppáhaldi hjá mér. Það er skrifað af Dr. Ian Watson . Þetta er sérlega yfirvegað bréf, sem segir það sem þarf að skrifa og af þekkingu og ekta húmanisma. Sonur Watsons átti við forhúðarvanda að stríða og var umskorinn. Ég vona að menn hafi tíma til að lesa bréf Watsons, sér í lagi sumt fólk í heilbrigðisstéttum á Íslandi sem hafa látið áróður og rugl hrífa sig með, jafnvel þó það hafi ekki neina sérstaka fræðilega þekkingu á umskurði.  Ég get aðeins vonað að slíkt fólk skammist sín.


Þessa greiningu mína sendi ég nú einnig háttvirtu Alþingi, í þeirri von að fólk sem hugsanlega lesi orð mín, nái áttum og sjái hve mikið rugl þetta mál er frá upphafi og hve miklir öfgar hafa fylgt því. Í hæsta máta hefur það gefið fólki með hættulega fordóma gagnvart minnihlutum einhverja ankannalega stundargleði.

Menn verða að muna, að þó þeir séu á móti einhverju, þá sé til önnur lausn en að banna, fordæma og dæma fólk í fangelsi, þó það hafi aðra siði og skoðanir. Annað eru eintómar öfgar.

Virðingarfyllst,

Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
umskorinn Íslendingur búsettur í Danmörku
Jelsbuen 1
2620 Albertslund
Danmark


Bloggfærslur 20. mars 2018

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband