Leita í fréttum mbl.is

Próf seđlabankastjóra, alţingismanns og nasista

davi_lafsson_og_flaskan.jpg

Davíđ Ólafsson seđlabankastjóri stundađi nám í Ţýskalandi 1935-1939. Samkvćmt Hagfrćđingatali hlotnađist honum prófráđan Bac. sc. oecon. eđa "bac[calaureus] sc[ientić] oecon[omicć]. Ţađ er bara einn galli á gjöf Njarđar viđ ţessa upplýsingu, og heldur stór, og hann er sá ađ ekki voru gefnar bakkalaureus gráđur í Ţýskalandi eftir 1820 (ţiđ lesiđ rétt: Átjánhundruđ og tuttugu). (sjá hér og hér).

Á vefsíđu Alţingis er upplýst, ađ Davíđ Ólafsson hafi veriđ hagfrćđingur og stundađ nám viđ háskólana í München og í Kiel. Á síđastliđnu ári hafđi ég samband viđ Landesarchiv í Schleswig, sem upplýsti mig ađ engin göng fyndust um nám eđa próf Davíđs Ólafssonar viđ háskólann í Kiel. Gat ţetta veriđ vegna ţessa ađ mikiđ magn ganga eyđilagđist í stríđinu, en skjalavörđur sem rannsakađi máliđ fann heldur ekki nafn Davíđs á varđveittum lista yfir erlenda námsmenn viđ háskólann á ţeim tíma sem Davíđ á ađ hafa stundađ nám viđ skólann.

skatarnir_i_hafnafir_i_1935.jpg

 Fánaliđi nasista á Íslandi á Hamrinum í Hafnafirđi sumariđ 1935, sumariđ sem Davíđ Ólafsson hélt til náms í Ţýskalandi nasismans. Myndin efst er tekin á góđri stundu. Mađurinn í miđiđ er Jón Ţ. Árnason einn fremsti foringi íslenskra nasista. Í lautarferđ nasistanna var Bakkus gamli álíka mikiđ lofsunginn og Adolf Hitler, og ţađ er Davíđ Ólafsson sem teygir sig ţarna í viskípelann.  Ljósmyndirnar eru úr öndvegisverki Illuga og Hrafns Jökulssona, Íslenskir Nasistar (1988).

Davíđ Ólafsson, var fánaliđi nasista á Íslandi á 4. áratugnum. Ţýskaland var líklega eđlilegur stađur ađ fara í nám fyrir ungmenni međ slíkar öfgaskođanir. Menn dreymdi einnig um stóra og sameinađa Evrópu ţá, líkt og fasista og gyđingahatara í Úkraínu dreymir ESB-drauminn í dag. Međ námi viđ ţýskan háskóla var hćgt ađ marséra ein og mađur gerđi heima á Íslandi.

Mig langar ađ komast til botns í ţessu undarlega máli varđandi menntun fyrrverandi seđlabankastjóra, alţingismanns, nasista og sjálfstćđismanns. Kannski á Seđlabankinn skjöl sem varpađ geta ljósi á menntun Davíđs eđa ef til vill á fjölskylda Davíđs einhver prófgögn. Fékk Davíđ kannski einhvern sérstakan titil sem nasistar gáfu erlendum námsmönnum sem ađhylltust hugmyndafrćđi nasismans?  Hafa ritstjórar Hagfrćđingatals gert skyssu eđa háskólinn í Kiel? Allar upplýsingar vćru vel ţegnar til ađ koma ţessari óvissu á hreint.

Ég minni einnig á leit mína ađ upplýsingum um sendiherra ESB á Íslandi Matthias Brinkmann. Ég hef spurst fyrir um nokkur atriđi í sendiráđinu vegna alvarlegra mótsagna í ferilskrá dr. Brinkmanns, en ég fć engin svör. (Sjá hér).

unikiel1938a.jpg
Nasistar marséra viđ háskólann í Kiel

Bloggfćrslur 26. mars 2014

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband