Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Nú er úti veður vont

Nú er jafnvel kalt í helvíti/paradís

snow 1900

Það hefur vart farið framhjá nokkrum, að snjó hefur kyngt niður í Miðausturlöndum. Snjór féll meira að segja í miklum mæli í Kaíró og á blóðið sem rennur á Sýrlandi. Reyndar eru snjókomur á þessum slóðum ekkert nýtt fyrirbæri, nema fyrir nýjum kynslóðum af fréttamönnum sem eru að uppgötva heiminn. Myndin efst er af niðurkomu í Jórsölum árið 1900 og þessi myndarlegi snjókarl var einnig búinn til í Jerúsalem:

snow man

Vinur minn einn í Ísrael sem býr í Efrat, sagði að mest hefði verið 80 sm snjóalög þar sem hann býr nærri Hebron og á nokkrum stöðum varð rafmangslaust vegna fannfergisins.

Þetta óvenjulega veðurfar er mönnum mikill gleðigjafi. Flestir skemmtu sér og gleymdu meintri heimshitnun í einhvern tíma:

article-2260223-16DB99A5000005DC-415_964x638
Frosty the Rabbi
Mr. Snowman meets Rabbi Schneeman
Rabbi Schneur Schneersohn Eisbein, future Rabbi of Iceland
peres-snowman
Frozen peacenik
 
article-2260223-16DABD80000005DC-546_964x631
Bolnonium 210 snowman?
 
Mideast_Israel_Pale_807437a
 
article-2260223-16DAD4F5000005DC-549_964x623
Israel's missile defence?
 
Kannski þarf snjó í "friðarferlið"?  En snjókoma fær ekki alltaf það góða fram í öllum mönnum eins og  kvikmyndin hér neðst sýnir. Myndin sýnir skrílsháttalag sem minnir á gyðingaofsóknir í Evrópu fyrr á öldum. Þannig var reyndar líka ráðist á Ísraelsk hjón í Reykjavík fyrir nokkrum árum, af skólakrökkum á för með kennurum sínum. Flestir Íslendingar halda auðvitað með skrílnum og óska ég þeim gleðilegra jóla. Jesúsbarnið var víst líka gyðingur. Kastið fyrsta snjóboltanum í það ef þið eruð syndlaus.


Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband