Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stuðningur við hryðjuverk

Falleg mynd

vagn
 

Þessa fallegu mynd tók Moggabloggari sem kallar sig Gorgeir, réttu nafni heitir hann Hjálmtýr V. Heiðdal. Við vitum öll að Heiðdal er einn öfgafyllsti stuðningsmaður Palestínumálstaðarins. Fyrr á lífsleiðinni, áður en falsmynd Ríkiskommúnismans féll, var hann víst líka mjög sterkur talsmaður ýmissa fjöldamorðingja úti í heimi. Eftir að það rann allt í vaskinn, fann hann sterkum tilfinningum sínum nýjan farveg í hatri á Ísraelríki, sem hann ásakar reglulega um verstu glæpi sögunnar, líkir gyðingum við nasista og telur að gyðingar nútímans eigi ekkert skylt við þá gyðinga sem lesa má um í Biblíunni.

Heiðdal líkar ekki að samkynhneigðir hafi hengt upp ísraelska fánann á vagn í Gleðigöngunni sem hyllti þau ríki sem standa vörð um réttindi samkynhneigðra. Heiðdal veit vel að þjóð sú sem hann berst fyrir, og þar sem stærsti hluti hennar vill útrýma Ísraelsríki, er bölvanlega aftan á merinni hvað varðar öll mannréttindi. Einhvern daginn mun þeirra fáni hanga á vagni samkynhneigðra í rigningunni í Reykjavík. En það verður líklega fyrst þann dag, að Palestínumenn viðurkenna Ísraelsríki og hætta að tala um að útrýma því. Þá munu aðrar haturskenndir líklega víkja mjög fljótlega og Hjálmtýr verður blíður sem lamb.

En mynd Hjálmtýs vinar míns er falleg. Ef veðrið hefði verið betra, hefði Gleðigangan orðið örlítið léttklæddari. Einhvern daginn mun hinn reiði Guð, sem fordæmir öll hjón sem ekki eru karl og kona, blíðkast og senda nokkra sólargeisla á þessar gleðigöngur sem líta svo sorglega út vegna grámyglunnar. En stjarnan sem Hjálmtýr fann, var á við sól fyrir mig.


Enn lýgur RÚV

6079348-lars-hedegaard-frifundet-for-racisme
 

Í fréttaflutningi af morðtilræðinu í gær gegn Lars Hedegard, greindi RÚV rangt frá. Þá var sagt að hann væri "þekktur fyrir að gagnrýna múslíma" og hafi verið "dæmdur fyrir hatursáróður vegna ummæla sem hann lét falla um trú þeirra" svo notuð séu orðin í fréttum sjónvarps í gærkvöldi.

Í landi dómstóls götunnar, þar sem rumpulýður stundar sjálftektir og bætir við dóma dómstóla með því að berja dæmt fólk í götuna til viðbótar við dómsorðið í réttarsölum, er ekki við örðu að búast en að ríkisfjölmiðill ljúgi og greini ekki rétt frá dómsmáli í siðmenntuðum löndum.

Sama hvað manni finnst um Lars Hedegaard, þá var hann sýknaður af ásökunum um refsiverð ummæli um múslíma í Hæstarétti Danmerkur árið 2011. Fyrra dómsorð var ógilt, en það sagði að Hedegaard bæri að greiða 5000 króna sekt (rúml. 115.000 ISK).

Maður spyr sig, hvort svo lélegur fréttaflutningur á RÚV orsakist af lélegri menntum starfsmanna fréttastofnunnar og úreltum starfs- og siðareglum hjá RÚV, eða  hvort starfsmenn þar séu sumir hverjir fylgjandi þeirri heimsmynd öfga sem Hedegaard og aðrir leyfa sér að gangrýna.  Ég hef í mörgum færslum bent á slagsíðu í fréttaflutningi RÚV sem gæti bent til þess síðastnefnda.


Bandaríkjamenn eru sjálfum sér verstir

Saving Al Quds

Bandaríska þjóðin trúir á mátt byssunnar. Byssuleikur og vopnaskak er greinilega hluti af uppeldi margra barna í Bandaríkjunum. Stundum fer illa, en menn gleyma fljótt Sandy Hook skólanum. Eftir morðin þar vilja bandarískir kennarar gerast gráir fyrir vopnum til að verja sig gegn fyrrverandi nemendum sem ráðast á skólana. Þótt frelsishugsjónin sé komin langt í Bandaríkjunum, eiga Bandaríkjamenn þessa vopnaást sameiginlega með verstu einræðis- og hryðjuverkaríkjum heims.

Það er kannski þess vegna að John Brennan, (f. 1955; sjá mynd að ofan þegar hann tók þátt í veiðinni á Osama bin Laden), sem útnefndur hefur verið sem forstjóri CIA, og sem hefur verið einn helsti ráðgjafi Obama í "andhryðjuverkaátakinu", sótti nýlega ráðstefnu á New York University sem borguð var af Múslímska Bræðralaginu.  Þar sagði John Brennan m.a. í ræðu: „And in all my travels, the city I have come to love most is al Quds ... Jerusalem, where three great faiths come together..." Menn sjá bræður sína í vopnaskakinu. Það er kannski ný stefna hjá Bandaríkjastjórn, að kalla höfuðborg Ísraelsríkis al Quds?

chuck-hagel
Chuck og Osama

Chuck Hagel, (greinilega Jón Sullenberger look-alike), er fyrrverandi Öldungadeildarráðsmaður fyrir Repúblíkana frá Nebraska, og sem m.a. er þekktur fyrir að hafa verið á móti lagatillögu um jafnan rétt barna til skólagöngu í BNA og andvígur ráðningu samkynhneigðra í háar stöður, hefur nýlega lýst því yfir að „innilegar viðræður við Írani" myndu koma í veg fyrir að þeir þróuðu kjarnorkuvopn. Hagel er líka á því að viðræður við Hamas skili tilgangi. Hvað ræða menn við Hamas um? Er það ekki eyðilegging Ísraels, sem er aðalmarkmið Hamas?

Chuck Hagel, sem nú er til tals sem varnarmálaráðherra hjá Obama, líkt og Kerry, var eini öldungadeildaþingsmaðurinn sem árið 1999 neitaði að undirrita yfirlýsingu til Jeltsíns Rússlandsforseta, þar sem Jeltsín var beðinn um að koma í veg fyrir hið svæsna gyðingahatur sem blossað hafði upp í Rússlandi eftir Glasnost. Sumir sérfræðingar eru á því að Hagel sé hugsanlega gyðingahatari. Hann talar fjálglega um eitthvað sem hann kallar "The Jewish Lobby". Hagel álítur heldur ekki að Hezbollah séu hryðjuverkasamtök og getur því örugglega fengið vinnu á RÚV. Sjá enn fremur http://www.chuckhagel.com/category/videos/

Það eru of mörg fífl í háum embættum í Bandaríkjunum. Það hefur lengi verið einn versti vandi þessa mikla veldis. Obama hefur ekki tekist að breyta svo miklu þar um.


Furðudýrafræðingurinn og Eggjahausinn

crop_260x
 

Í morgun var Útvarp Hamas (RÚV) með útsendingu þar sem sjálfsmenntaður furðudýrafræðingur fréttastofunnar, Þorvaldur Friðriksson, og Árni Eggjarauða úr VG helltu úr könnum haturs síns í garð Ísraels og gyðinga. Það var eins og að þeir væru að lesa upp úr Passíusálmunum. "Gyðinga hörð var heiftin beisk, hjartans blindleiki og villan treisk".

Eftir að Þorvaldi Friðrikssyni, sem lært hefur smá fornleifafræði í Svíþjóð, varð ljóst, að "Keltabyggð" frá því fyrir landnám, sem hann þóttist hafa fundið, væri frá 13. öld, gerðist hann fréttamaður á RÚV (með drykklöngum pásum) og sérhæfði sig þar í stuðningi við hryðjuverkasamtök og fiskeldi.

Waldo
Þorvaldur Friðriksson. Efst er Che Che Árni

 

Árni Þór Sigurðsson, er hins vega mest þekktur sem fórnalamb íslensk múgs í fyrra þegar hann fékk egg "í gagnaugað" við setningu Alþingis, og var vart hugað pólitískt líf í langan tíma á eftir. Í kjölfarið vildi hann afnema fundarfrelsi og lýðræðið. Í dag vill Árni helst senda lið til Gaza til að berjast við hina vonda Ísraelsmenn, enda eru þeir með lýðræði. Þetta fár í Árna er ekkert nýtt og heldur ekkert sem Árni tók upp á þegar hann lærði smá slavnesku í Sovétinu sáluga. Nei, þegar Árni var í Róttæka Félaginu í MH árið 1979, lagði hann líka til að að félagið hvetti íslensk stjórnvöld til að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Hann vildi að Ísraelsríki yrði máð út af landakortinu eins og hann orðaði það.

Þessir heiðursmenn voru teknir í viðtal á morgunútvarpi Rásar 2 í Ríkisútvarpinu í morgun, þar sem allir frasarnir um þjóðarmorð, fangelsi, stríðsglæpi osfr. flutu út á öldum ljósvakans. Kryddið á gyðingahaturspítuna var frú Tamimi, sem er leyft að upplýsa þetta um sig á vef Alþingis:  "F. 7. janúar 1960.  Framkvæmdastjóri."  Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, B.A. í Félagsfræði frá Háskóla Íslands.

Ekkert af þessu fólki hefur þó blætt út í opinni umræðu á fjölmiðlum út af fjöldamorðunum á Sýrlandi, en furðudýrfræðingurinn talaði um linnulausar eldflaugaárásir Hamas á Ísrael sem einhverja saklausa flugeldasýningu. Kannski verður Hjálpasveit skáta með 8 metra langar og 90 kg. þungar rakettur frá Íran um áramótin sem Þorvaldur getur krækt sér í. Vonandi er einnig, að Árni eggjahræra fari með Össur-sveit undir vopnum til Gaza. Tamimi, sem ekki þarf að upplýsa um uppruna sinn og ættir á heimasíðu Alþingis eins og aðrir Alþingismenn, getur orðið klappstýra, þó hún kunni greininga ekki að gæta jafnréttis og jafnvægis í skoðunum sínum, sem er auðvitað frábær eiginleiki í stöðu þeirri sem hún hefur fengið af Össuri, fyrir flokksstuðninginn.

hamas-rockets-2012-1 

Fjölbreytt úrval af flugeldum verður fáanlegt hjá VG um næstu áramót. Hjálparsveit Árna skaffar dótið.

Hamasgangur VG og Samfylkingarinnar varðandi Gaza skilar líka alltaf nokkrum plúsprósentum í kosningatölur þessara flokka. Félögunum verði nefnilega ekki eins heitt í hamsi um nokkur önnur mál en ástandið við Botn Miðjarðarhafs. Botninn í íslenskum fjölmiðlum er ekki lengur uppi í Borgarfirði.  

Sjaldan hefur RÚV sýnt sig sem eins ógeðslega áróðursmaskínu eins og morgun

Hlustið ef þið þorið. 


Norwegian Piss Process

Peace in our EU-Times 

Friðarverðlaun Nóbels fara til ESB.  Eitt sinn fóru þau til Yasser Arafats. Yfirsýn Norðmanna er ekki annáluð. Þetta er íhaldssöm sveitaþjóð, þar sem gamalli erfðaelítu langar í ESB, en þjóðin er samt nógu viti borin til að halda sig utan við.

Í ESB eru fjöldi ríkja á barmi borgarastríð vegna stefnu ESB og í einstökum löndum sjá menn ESB sem arftaka 3. ríkisins og leiðtoga þeirra sem endurfædda Hitlera.

Maður veltur því fyrir sér, hvort hinn litli og langi Noregur sé komin í skærustríð. Þessi verðlaun verða eins og Breivik-bomba í löndum eins og Grikklandi, Portúgal, Spáni og Írlandi.

Kannski var það hergagnaútflutningur Frakklands og Þjóðverja sem menn í Noregi telja að standi á bak við friðinn í heiminum? Nei, enginn mótmælir því nema nokkrum þýskum kafbátum til Ísraels og að Danir hafi notað varahluti frá Ísrael þegar þeir tóku þátt í hernaðaraðgerðum gegn Líbýu.

Hitt er þó víst, að Palestínupáfinn okkar í utanríkisráðuneytinu mun örugglega vilja skreyta sig strax í dag með sínum ímyndaða skerf af friðarmedalíunni og jafnvel vilja borga einhverja þorska fyrir í stórfiskakastinu í ESB.


Fréttastofa Írans í Efstaleiti

ahmajinedad_nuclear
 

Hvernig má það vera að fréttamaður á RÚV telji sig vita að Ísraelsmenn hafi drepið íranska kjarnorkusérfræðinga? Hefur fréttamaðurinn eitthvað máli sínu til stuðnings?

Í sjónvarpsfréttum í gær kom það fram í framsetningu Gunnars Hrafns Jónssonar, sem er stjúpsonur Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, að talið sé að síendurtekin hryðjuverk gegn Ísraelsmönnum um heim allan séu að undirlagi Írans og að Írans sé að „hefnd fyrir ítrekuð morð ísraelsku leyniþjónustunnar á írönskum kjarnorkuvísindamönnum". Hlustið og horfið hér á enn eina fréttasköpun Gunnars Hrafns.

RÚV hefur greinilega mikilvægar upplýsingar sem fréttastofan ætti vitaskuld að miðla af. Eða kannski er vandamálið bara að RÚV er með fréttamann sem ekki getur greint á milli raunveruleikans og ævintýranna í 1001 Nótt, þegar kemur að fréttaflutningi þeirra af Miðausturlöndum.

Engin sönnun eða viðurkenning hefur borist fyrir því að Ísraelsmenn hafi staðið á bak við dráp á írönskum kjarnorkusérfræðingum. Aðeins er um að ræða getgátur og stundum illkvittnar sögusagnir, sjá hér

Íranar kenna Ísraelum og gyðingum um allt sem miður fer í heimi hér, og lítill fréttasnápur á RÚV virðist vera á mála hjá Íransstjórn, með því að greina frá því gagnrýnislaust að Íranar hafi með morðum sínum á saklausu ferðafólki í Búlgaríu verið að hefna sín fyrir nokkra kjarnorkusérfræðinga. Slík fréttamennska er ekkert annað en hryðjuverk.

Hefur Gunnari Hrafni, Íranskrummar, og hinum álfunum á RÚV aldrei dottið í hug, að í Íran sé að gerjast öfl sem ætli sér að steypa ógnarstjórninni þar af stóli, líkt og við höfum séð annars staðar í heimi öfganna, þó með misjöfnum árangri. Fólk er búið að fá nóg undir járnhælnum á Amajinidahd og öfgaklerkanna. Sama má með vissu segja um fólk á Íslandi undir járnrassi Jóhönnu stjúpmömmu Gunnars Hrafns. Fólk er búið að fá nóg á lygum stjórnarinnar og fréttastofu hennar.

En hverju er hægt að búast við í landi þar sem flóttamenn frá Íran eru ekki teknir alvarlega?


Sirkus Arafat

Palestinian Circus School
 

Nú á að grafa upp einn eitraðasta karakter síðari tíma, eins og einhvern miðaldabiskup sem taka á í heilagra manna tölu. Það geislar greinilega enn af heilögum Arafat föður hryðjuverkanna. Heilagra manna söguna um Arafat á að síðan að skrá með geigerteljara, enda er þetta translatio aðeins fjölmiðlasirkus til að svala auðtrúarþorsta fylgismanna öfga. 

Al Jazeera hefur búið til enn eina fréttina fyrir vini sína, einfeldningana á Vesturlöndum. Nú er því haldið er fram, að Arafat hafi verið kálað með polonium-210 og gefið í skyn að þar hafi verið Ísraelsmenn, skúrkarnir sem sameina öfga Íslams og lágkúrulegt hatur vinstriheilagra.

Með milligöngu Al Jazeera hefur ekkja Arafats afhent af honum höfuðfat jafnt sem nærbuxur til einhverrar rannsóknarstofu í Sviss. Þar hafa menn fundið polonium-210 í síðasta hemlasporinu í nærbuxum hryðjuverkaleiðtogans. Jallah, Jallah! og allt er að verða vitlaust.

Það er stórfurðulegt með Svisslendinga. Þegar þeir eru beðnir um að finna reikninga þúsunda myrtra gyðinga í bönkum sínum, þá finna þeir ekkert, en þeim tekst að finna polonium 210 í nærbuxum morðingja frá Miðausturlöndum.

Þess ber þó að geta að svissneska rannsóknarstofan tilkynnti að Arafat hefði ekki haft nein sýnileg einkenni þess að eitrað hefði verið fyrir Arafat með 210Po

Ef poloninum-210 hefur fundist í jarteiknum af Arafati, höfuðfati og föðurlandinu hans, þá hefur einhver eiturpési verið að leika sér með undirfatnað PLO-leiðtogans eftir að hann var allur og jafnvel svo nýverið sem á síðari hluta 2011 eða í ár. 

Helmingunartími ísótópsins polonium-210 er aðeins 138,4 dagar,og ef efnið hefur fundist í jarteiknum af Arafat, fötum eða beinum, hefur því verið komið fyrir þar eftir dauða hans, eða réttara sagt mjög nýlega. Nú er því hins vegar gert skóna að Ísrael hafi verið að eitra fyrir Arafat með poloníum. Er ekki einum of langt gengið hjá Ísraelsmönnum að vera að gramsa í nærfataskúffum Arafats eftir dauða hans? Athyglisvert er, að þrátt fyrir að Al Jazeera hafi verið að bauka með óhreinu fötin hryðjuverkakeisarans i 9 mánuði, er stöðin ekkert að grein< fávísum almenningi Íslams, Íslands eða snáðunum á RÚV (sem oft nota Al Jazeera sem sína aðalheimild), að helmingunartími polonium-210 sé rúmlega 138 dagar.

Þótt Arafat sé grafinn upp úr öskuhaug sögunnar og einhver hafi verið að mata hann með geislavirkum málmi, þá mun engin leið vera fær til að finna polonium-210 í þeim leifum. Helmingunartími 210Po er 138,4 dagar. Ég endurtek fyrir auðtrúa kjána á Íslandi: 138,376 dagar.

Ég ég hræddur um að frétt Al Jazeera eigi eftir að hafa miklu lengri helmingunartíma eins og annað eitur sem sá fréttamiðill sendir frá sér.

The Radioactive Leader

Þeir sem reykja sígarettur ættu kannski að vita, að örlítið magn polonium-210 er að finna í reyk þeirra. Það er hættulegt að reykja. Hérna sést dýrlingur öfganna á leiðinni í sína hinstu för. Polonium-210 fór greinilega svo vel í hann, að hann missti ekki eitt einasta hár.

En ef einhver vill vita úr hverju hetjan hann Arafat dó, er til nóg af blóðprufum á þeim sjúkrahúsum sem fylgdust með þeim sljóleika, hristingi og eyðni sem lagðist á karlinn nokkrum árum áður en hann dó. Engin einkenni poloniumeitrunar voru sjáanleg á dauðalegu Arafats. Hann kom með hryðjuverkahýjunginn á fésinu á herspítalann í Frakklandi. Það ógeðfellt að sjá hvernig Frakkar og Svisslendingar sjá ástæðu til að styðja þennan hryðjuverkasirkus.

François Bochud, forstöðumaður rannsóknarstofu fyrir geislavirkni í Lausanne í Sviss sem rannsakaði saursletturnar og hlandið í fötum Arafats sagði Associated Press þetta: "What we can say is that we have an unexplained level of polonium, so this clearly goes toward the hypothesis of a poisoning, but our results are clearly not a proof of any poisoning."  Líkast til er hægt að segja hlutina skýrar, en ekki er þetta orðagjálfur úr skýrslu rannsóknastofunnar miklu betra. Mér sýnist á öllu að L&#39;Institut de radiophysique (IRA) í Lausanne verði að stilla tækin sín betur eða bæta skýrslugerð sína til muna. En þetta er skýrt: "However, this is not sufficient to determine the causes of death. In particular, it will be recalled that, contrary to what happened in the case of the former Russian spy Alexander Litvinenko, Mr. Arafat did not lose his hair, and some of the findings in the forensic report are inconsistent with an acute radiation syndrome."

Það er ótrúlegt hvað sumt fólk vill láta ljúga að sér. Hér er annað gott dæmi:


Íslenskir hryðjuverkamenn í Mónakó

3895889638
 

Nú er íslenska ógæfustjórnin aftur farin að senda frá sér skilaboð. Ekki þó til Íslendinga, heldur alla leið til Palestínu og Ísraels. Þegar maður getur ekki leyst vandamálin heima fyrir, er auðvitað ráðist á garðinn þar sem hann er hæstur. Stjórnin er með „stórt hlutverkið á meðal þjóðanna" og ætla sér að leysa öll heimsins vandamál, áður en hún leysir vandann heima fyrir. Allir vita jú, að réttur Hamas á Gaza til að útrýma Ísraelríki, og eigin þjóð í leiðinni, er mikilvægari en vandi atvinnuleysingjans á Íslandi.

Það var ekki nóg að sækja stuðning fyrir setu Íslands í Öryggisráði SÞ hjá óbótamönnum sem sérhæfa sig í fjöldamorðum á eigin þjóð. Örvingluð og ráðalaus ríkisstjórn hefur nú sent tvö hirðfífl sín á ÖSE-ráðstefnu í Mónakó til að leika af sér í spilavítisborginni. ÖSE stendur reyndar ekki fyrir Össur Skarphéðinsson Europe (þ.e.a.s. ESB), heldur hið gagnstæða. Stofnunin ber heitið OSCE, Organization for Security and Co-operation in Europe. Verkefni þessarar stofnunnar er ekki hægt að misskilja, nema að menn séu rauðklæddir sveinar frá Íslandi.

Guð blessi Ísland

Palestínubjörn

Róbert Marshall og Björn Valur Gíslason voru sendir á þing OSCE í Mónakó sem lauk í dag. Þar sýndu þeir alheiminum að Íslendingar eru meistarar í rússneskri rúllettu. Eina málið sem brann á íslensku útsendurunum var óbein OSCE-aðild Palestínumanna og Palestínuríkis, sem Íslendingar og nokkur önnur öfgaríki hafa viðurkennt.

En hafa trúðarnir Marshall og Björn Valur ekki séð, að hlutverk OSCE er t.d. að berjast gegn hryðjuverkastarfssemi, sem og  fyrir eftirliti með vopnasmygli, eða fyrir lögmætum kosningum sem aldrei hafa þekkst í Palestínu? Allt það sem OSCE á að berast fyrir, er brotið á bak aftur af Palestínumönnum. Í landinu Palestína mega til að mynda ekki búa gyðingar. OSCE berst gegn slíku kynþáttahatri og mismunun.

Spurningin er, hvort Marshallinn, sem setti fram tillöguna í Mónakó, vilji ekki líka fá ræfilstuskuna hann Assad inn í OSCE? Hann var að minnsta kosti nógu góður fyrir Samfylkinguna þegar hún leitaði til hans hér um árið og hélt pönnukökuveislu í New York til að koma Íslandi inn í Öryggisráðið, svo Imba gæti kosið Ísraelsríki út af landakortinu með öðru öfgafólki heimsins.

Imba abbast
ISG_og_Assad_edited-1

Naumur meirihluti kom sem betur fer í veg fyrir morðárás íslensku hryðjuverkasinnanna, með því að stöðva aðild Palestínumanna að OSCE.

Þátttaka „Palestínuríkis" nú væri alvarlegt slys og tímaskekkja, enda er Palestína ekki ríki nema á Íslandi. Meirihlutinn sem hafnaði tillögu Marskálks, veit að óskir hans verða ekki að veruleika í Palestínuríki, þar sem slíkt ríki á svo fátt sameiginlegt með ríkjum þeim sem eiga aðild að OSCE.

Nú, þegar íslamska vorið er að snúast í heitasta sumar sem sögur fara af, er einkennilegt að sjá vinstri menn frá Íslandi ganga erinda öfgaríkja. Það sama hvaða öfgafylking það er, í löndunum umhverfis Ísrael sameinast menn í að traðka á mannréttindum eigin borgara, kvenfrelsi, trúfrelsi og alþjóðlegum lögum og stráfella borgara í sínu eigin landi. Allar þessar stríðandi fylkingar kringum eina lýðræðisríkið á svæðinu geta þó sameinast um eitt: að vilja útrýma Ísraelsríki og gyðingum. Hitler hefði líklega verið kátur ef hann hefði upplifað að sjá heilu þjóðirnar, með stuðningi Íslands, ljúka því sem hann byrjaði á.

Marshall og Björn Valur reyndu sitt besta til að auka á sundrungu og glundroða í Miðausturlöndum. Þeir ætla sér að gera nýtt áhlaup að ári til þess að efla öfgastefnur og hryðjuverk sem gæluverkefni í OSCE. Við þurfum þó ekki að horfa upp á fleiri mistök ríkisstjórnar sem styður helstefnur hryðjuverkastjórna. Hægt er að koma veg fyrir að Marshall og Bjössi bolla verði sendir á OSCE-þing í Albaníu að ári. Kosningarétturinn er enn í gildi á Íslandi.


« Fyrri síða

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband