Færsluflokkur: Minjavernd
6.10.2018 | 18:24
Við bíðum í bragganum
A fundi borgarstjórnar Reykjavíkur 2. október 2018 var þetta ákveðið:
Tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins um óháða rannsókn vegna braggans í Nauthólsvík Borgarstjórn samþykkir að óháður aðili rannsaki hvers vegna framkvæmdir við endurgerð braggans í Nauthólsvík fóru langt fram úr kostnaðaráætlunum. Til grundvallar rannsókninni verði athugað hverjir höfðu umsjón með verkefninu, gáfu heimildir fyrir framúrkeyrslunni, hvort verkefnið hafi verið boðið út og hvaða verktakar unnu að verkinu.
Meðan að við bíðum í bragganum eftir því að birt verða nöfn þeirra sem unnu í happadrætti þessu, þar sem rúmar 400 milljónir voru mjólkaðar úr sjóðum Reykjavíkur, minnist maður þess hve Þór Magnússon fyrrverandi þjóðminjavörður var alltaf svo neikvæður hvað varðar endurbætur á stríðsáraminjum hér á árum áður. Var það einfaldlega vegna ótta við fyrirsjáanlega kostnað? Ég held að hann hafi í lokin hætt að hlusta á flokkana sem sáu eftir því að Hitler heimsóttu ekki Íslands, og frekar óttast þá gæðinga sem hann sjálfur vandi á húsafriðunarspenann og sem blóðmjólkuðu hann reglulega; Átu hann jafnvel. Hver veit, kannski er einhver úr þeirra röðum enn að maka krókinn í opinbera kerfinu.
Óháð rannsókn mun vonandi veita svörin, en svona til upplýsingar frétti ég að á háskóla þeim sem kona mín vinnur á í Danmörku var heildarkostnaður við að reisa risastóra braggabyggingu til rannsókna, með öllum kostnaði, um 700.000 DKK. Það eru tæplega 12.400.000 ISK.
Eins og skipstjórar fara niður með skipum sínum standandi í brúnni, ber borgarstjórum að bera fulla ábyrgð á því sem fer úrskeiðis í rekstri borgarinnar sem þeir stýra. Furðulegt er að Dagur Barrack geti ekki sagt almenningi strax, hvernig svo stórum fjárhæðum er dreift á uppmælingaaðalinn og teiknigammana. Lögreglurannsókn á málinu kemur vitaskuld vel til greina. Þjófnaður um hábjartan dag er einmitt eitthvað fyrir lögguna.
Við bíðum öll í bröggunum, nýs og betri dags og vonum að það þurfi ekki að borga nokkur hundruð milljóna til lögfræðinga og erlendra matsfyrirtækja í braggabissness til að fá þann permanentaða í ráðhúsinu til að segja okkur skilmerkilega frá því sem gerðist.
31.3.2012 | 05:18
Sumarbústaður á besta stað
Löngu áður en Kristín Sigurðardóttir forstöðumaður Fornleifaverndar Ríkisins fékk þá stöðu sem hún situr nú í, braut hún einnig þjóðminjalög, líkt og hún gerði þegar stofnun sú sem hún stýrir veitti leyfi til að byggja Þorláksbúðarkofann í Skálholti.
Á síðasta tug 20. aldar fól Fornleifanefnd, sem var valdameiri þá en hún er í dag, undirrituðum að heimsækja Skáldastaði í Berufirði í Reykhólasveit á Barðaströnd. Þar vildi einhver lyfsali reisa sér sumarbústað svo að segja ofan í fjöruborði, á stað sem aðeins er hægt að kalla einstaka náttúruperlu. Tveir aldraðir bræður á bænum Skáldastöðum vildu selja landið, en ákveðnum valdsmanni hjá Reykhólahreppi var ískyggilega mikið annt um að apótekarinn skyldi fá að reisa sumarbústað sinn. Bræðurnir, sem ég reyndi að ná tali af, vildu ekkert við mig tala þegar þeir heyrðu hvaðan ég kom og vísuðu á lókalpólitíkusinn.
Tvær vetfangsferðir, og ein þar sem formaður Forleifanefndar, prófessor Sveinbjörn Rafnsson, og Kristín Sigurðardóttir voru með í för, gáfu aðeins eina niðurstöðu. Hún var sú að sumarbústaðurinn og vegur að honum gætu ekki verið á þeim stað sem þeim hafði verið valinn af framkvæmdaaðilum. Bústaðurinn og vegurinn lágu minna en 25 metra frá friðlýstum fornleifum, einum stærsta kumlateig á Íslandi. Þar að auki var bústaðurinn um 10 metra frá flæðarmáli sem stangast á við Náttúruverndarlög.
Ég skilaði áliti mínu og mælti með því að bústaðurinn og vegurinn yrðu færðir annað. Mótmæli og harmkvæli bárust frá einum manni í Reykhólahreppi með gífuryrðum. Þessi maður var auðvitað samflokka náttúrverndarfrömuðinum Össuri Skarphéðinssyni sem þá var einmitt umhverfisráðherra. Lókalhöfðinginn klagaði í Össur og mér var skömmu síðar tilkynnt, að ráðherra hefði hringt í Þjóðminjavörð og Náttúruverndarráð og hótað fólki. Apótekarinn var nefnilega vinur ránfuglsins í ráðuneytinu og fuglaskoðari (eða var það veiðimaður?), og eins og menn vita þá þurfa fuglaskoðarar að brjóta þjóðminjalög og náttúruverndarlög til að skoða bí bí og blaka á fallegustu stöðunum á landinu.
Ég sagði mig frá málinu vegna hamagangs lókalfurstans í Reykhólahreppi sem meira að segja hringdi heim til mín, og tók Kristín Sigurðardóttir málið svo að sér. Hún sýndi þar snemma hve góð hún var í pólitískum reddingum.
Ég hef þó aldrei séð neinar fuglaskoðunarskýrslur eftir apótekarann þarna í Berufirðinum, en hann er kannski þekktari fyrir að gefa "baráttuafslátt" á lyfjum handa verkalýðsfélagsmönnum uppi á Skaga, sem kostaði hann dýrt hér um árið. Ódýr lyf sem valda því að menn kjósa spillingu í Samfylkingu.
Bústaður fuglaskoðarans var reistur fljótlega eftir að Kristín Sigurðardóttir samdi nýja greinargerð fyrir Fornleifanefnd. Samkvæmt loftmynd sé ég, að bústaðurinn er nær fjöruborði en sagt var í framkvæmdaskýrslu. Einnig var búið til bílastæði eitt mikið ofan í rústum og nú er komið eitthvað bátalægi svo að segja í fjörunni sjálfri. Apótekaranum var líklega gefið eitthvað meira en Samfylkingarbaráttuafsláttur af meðulum Össurar Skarphéðinssonar.
Slík er ómenningin í menningargeiranum á Íslandi og haldið þið svo að maður eins og Össur Skarphéðinsson fylgi reglum og lögum í ESB-ferlinu? Þar verður valtað yfir lög, almenna skynsemi og vilja almennings. Össur skí(ý)tur á smáfuglana þegar þess er þörf og étur þá eins og ránfugla er siður.
Sjá færslu um Þorláksbúð í dag á Fornleifi.
P.s. Þess ber að geta, að Fornleif grunar að kumlateigurinn í Berufirði sé einnig austan sumarbústaðarins, þ.e. til hægri við hann á myndinni hér að ofan. Þar þyrftu að fara fram rannsóknir og hefðu átt að fara fram á kostnað lyfsalans. Rannsókn á þessum hér fyrir neðan er einnig orðin tímabær.
Minjavernd | Breytt 1.4.2012 kl. 05:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 1352575
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007