24.11.2011 | 12:41
Blodrødt lig i lasten
Atvinnu- og framfararáðherra Dana, Ole Sohn, sem nú er meðlimur í Socialistisk Folkeparti (SF), en var áður meðlimur og formaður Dansk Kommunistisk Parti (DKP), hefur reynst nýju ríkisstjórninni í Danmörku léleg auglýsing, jafnvel hættulegri en furðufyrirbærið Sass Larsen sem varð að sjá af ráðherratign vegna þess að hann umgekkst rokkara og annan rumpulýð of mikið. Ole Sohn er ágæt opinberun á ótrúverðugleika nýju ríkisstjórnarinnar, sem er örugglega eftir að valda meira atvinnuleysi í Danmörku en nú er og fara með Danmörku úr öskunni í eldinn.
Þessi fyrrverandi DKP-leiðtogi, sem í den tid kyssti skindauðar hendur og fætur Erichs Honecker, hefur fram í rauðan dauðann logið um vitund sína um rússagull sem rann í stríðum straumum til DKP. Nú, þegar hann er orðinn atvinnumálaráðherra í rauðbleikri sósustjórn hér í Danaveldi, kemur sannleikurinn fyrst í ljós, en þó fyrst eftir að fyrrverandi félagar hans í kommúnistaflokknum sögðu Sohn sinn ljúga, þegar hann sagðist ekki vita eitt eða neitt. Sohn er sagnfræðingur að mennt. Maður les nú hér eftir allt eftir hann með varnagla. Það hljóta að vera pólitískar fegrunarbókmenntir.
Atvinnumálaráðherra, sem lýgur nú um fortíð sína, mun alltaf ljúga. Danaveldi er greinilega á rauðri rennubraut til andskotans. Vont var það með sjálfsblekkingu borgaraflokkanna, en vont versnaði með innantómri stefnu Gucci kerlingarinnar, Thorning-Schmidt, þessari sem er gift hommanum frá Wales (Kinnoch). Hún getur þakkað rússneskum gullnjósnurum gróusöguna um manninn sinn. Thorning-Schmidt var forðum sjálf meðlimur í DKP. Svo ekki sé talað um Gúlagsjarmörinn Villy Søvndahl sem því miður er orðinn utanríkisráðherra. Hann er tikkandi bomba eins og kollega hans á Íslandi, þó Sövndal sé enn ekki farinn að gera hosur sínar grænar fyrir Hamas. Það eru þrátt fyrir allt enn takmörk fyrir brjálseminni í Danaveldi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:48 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 86
- Frá upphafi: 1352301
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 56
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Ekkert er nýtt undir sólinni. Þegar þriðja ríkið féll könnuðust nasistar ekki við neitt. Enginn hafði stutt Hitler. Þeir sögðust í besta falli, eins og kommúnistar nú, „hafa verið blekktir“. En veldi Hitlers var upprætt í blóðugri styrjöld og menn eru nánast daglega minntir á illvirkin. Nasistar gagna því ekki um götur eins og kommúnistar og messa yfir lýðnum um „lýðræði“ og „mannréttindi“. Þeir virðast hafa einhverja sómatilfinningu.
Allt öðru máli gegnir um liðsmenn alræðis og gúlags kommúnista. Allir ráðherrar ríkisstjórnar Íslands (nema Jóhanna) hafa starfað í stuðningsflokki böðlanna, Alþýðubandalaginu. Þeir predika enn í dag, eins og þeir hafa alltaf gert hátt og snjallt yfir lýðnum um mannúð og manngæsku, „lýðræði“ og „mannréttindi“. Ósvífnin er svo yfirgengileg að þeir hafa gert alkunnan Kúbuvin og liðsmann fjölmargra „vináttufélaga“ við blóði drifnar alræðisstjórnir, Ögmund, að „mannréttindaráðherra“. Og enginn segir neitt, nema kannski ég.
Svona gera nasistar þrátt fyrir allt, ekki. Þeir virðast, sem fyrr sagði, hafa einhvers konar sómatilfinningu.
Vilhjálmur Eyþórsson, 24.11.2011 kl. 13:04
Ja, hérna hafa nasistar sómatilfinningu Vilhjálmur Eyþórs? Ekki hef ég tekið eftir henni.
Kannski múslímska bræðralagið líka?
Þeir vilja heldur ekki lýðræði. En minnisleysi, sjálfsblekking og almenn blekking vinstri manna er samt oft ótrúleg.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.11.2011 kl. 18:41
Ég veit ekki með sómatilfinninguna, en nasistar kunna a.m.k betur að skammast sín. Þeir ganga mér vitanlega ekki í Amnesty eins og virkir liðsmenn Stalín, Maós og Pol Pots hafa gert. Og þeir eru ekki hrópandi hátt og títt um lýðræði og mannréttindi eins og íslenskir liðsmenn gúlagsins.
Vilhjálmur Eyþórsson, 24.11.2011 kl. 19:05
Flott myndband af honum fagnandi 40 ára afmæli DDR. Einhvern veginn minnir þessi uppstilling á einræðisherranna fyrir arabíska vorið.
http://www.youtube.com/watch?v=A6IW131HRUs
Rétthugsun (IP-tala skráð) 24.11.2011 kl. 21:37
Það er rétt Vilhjálmur. Íslensku nasistarnir gengu ekki á Amnesty.
Þeir gengu allir í Sjálfstæðisflokkinn!
Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 24.11.2011 kl. 21:43
Svavar minn sæll! Það virðist þurfa að skýra þetta betur fyrir þér. Nasistar, meðan þeir studdu Hitler voru ekki sífellt að predika um mannúð og manngæsku, frið, lýðræði og mannréttindi. Íslenskir kommúnistar, þar á meðal Ögmundur, hafa hins vegar margir hverjir samtímis og samhliða starfað í Amnesty og í skipulegum stuðningshópum við fjarlæga böðla, t.d. MÍR, vináttufélaginu við Austur- Þýskaland, Kúbuvinafélaginu o.s.frv. Ævar Kjartansson var um tíma bæði í stjórn Kúbuvinafélagsins og formaður Amnesty. Svavar Gestsston var t.d. hávær í Amnesty um skeið.
Svona ósvífnir voru nasistar ekki.
Vilhjálmur Eyþórsson, 24.11.2011 kl. 22:06
Sum börn nasistanna eru þó ekki sjaldan með í Amnesty. Sumir vinstri menn hafa nákvæmlega sömu skoðun á vissum hlutum og nasistar.
Oft sýnist manni vera lítill munur á þessum mannfyrirleitnu ismum. Kommúnisminn komst bara upp með fleiri morð en nasisminn án þess að verða ekki í húsum hæfur, og enn er fólk að dekra og gæla við þessa eyðandi og bráðdrepandi hugmyndafræði án þess að það virðist hafa nokkra skömm í skrokknum. Það lýsir siðferðilegri blindu ekki ósvipaðri þeirri sem maður sér hjá baraníðingum eða nauðgurum. Fólk sem telur að það sé saklaust vegna þess að það lýsti ekki opinberlega yfir vilja til blóðugrar byltingar á Íslandi er meira sekt en það heldur.
Stuðningur og barnaleg hrifning af ríkjum þar sem borgurunum var haldið nauðugum undir vökulu auga ofsóknabrjálaðra leiðtoga og valdstjórnar þeirra, þar sem fólki var milljónum saman smalað í Gúlög, á geðveikrahæli eða fyrir aftökusveitir, er glæpur sem mikill hluti íslenskra menntamanna á 20. öldinni gerði sig sekan um. Stuðningur við morðveldi er glæpur.
Nú endurtekur sagan sig. Fólk er ólmt eftir því að hanga í rassgatinu á öfgaíslam. Sameiginlegt hatur heillar.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.11.2011 kl. 23:27
Jú, það er verulegur munur. Kommúnistar töluðu sífellt um „verkalýðinn“ sem þeir svínbeygðu og kúguðu, „friðinn“, þegar þeir hleyptu sjálfir af stað styrjöldum, „lítilmagnann“, sem þeir tröðkuðu í svaðið, að ógleymdu lýðræðinu og mannréttindunum.
Nasistar fóru hvergi í felur með fyrirlitningu sína á lítilmagna og öðru undirmálsliði. Mannfyrirlitning þeirra var opinber og yfirlýst.
Vilhjálmur Eyþórsson, 24.11.2011 kl. 23:35
Hvað varðar ósvífni nasista, Vilhjálmur, þá held ég að þú sért ekki alveg nógu vel að þér.
Tökum t.d. bankastjórann, sem sagðist hafa lært hagfræði í Þýskalandi (Kiel), þar sem hann lauk reyndar aldrei neinu námi, sem var í fremstu röð íslenskra nasista. Hann var talinn fyrirtaks borgari. Var ekki líka lögreglustjóri sem hafði marsérað undir hakakrossinum. Það var fjandi ósvífið að mínu mati að verða lögreglustjóri nokkrum árum eftir að maður hafði tekið þátt í að hylla hreyfingu sem olli einni verstu styrjöld sem mannskepnan hefur kallað yfir sig.
En þannig kalla hafa, álíka og sumir íslenskir kommar, ekki séð synd sýna, þar sem þeir hafa ekki sannanlega skilið eftir sig bæklinga þar sem hvatt er til morða eða útrýmingar á öðruvísi þenkjandi fólki. Það var nú líklega vegna þess að á Íslandi voru nærri allir eins og enginn meirihluti til að hatast út í og til að kenna um allt það sem menn töldu illa hafa farið.
Mikið veltur þetta á siðferðiskennd persóna. Til eru nasistar sem iðrast og kommar sem þykir sárt að hafa gert skyssu. En þeir sem ekki gera það eru haldnir siðferðisbresti. Ef ungt fólk gerir sér grein fyrir þessum bresti er minni hætta á því að við fáum fleiri morðkommúnista og morðnasista í framtíðinni. En því miður er tíðarandinn þannig, að ég er ekki svo viss um að þessar eigingjörnu hugsjónir séu eftir að hverfa.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 24.11.2011 kl. 23:38
Þú ert enn, eins og svo margir aðrir að tala um hvað menn gerðu eftir á. Ég er að tala um það sem fór fram samtímis og samhliða, t.d. þáttaka í Amnesty og Kúbuvinafélaginu, virkur stuðningur við kúgarana alveg samtímis háum hrópum um „lýðræði“ og „mannréttindi“. Það er þetta, sem mér finnst merkilegt, ekki hvað menn gera eftir á.
Vilhjálmur Eyþórsson, 24.11.2011 kl. 23:54
Vinstrisinnar eru komnir núna í ÍsLamfylkinguna.
Rétthugsun (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 01:03
Hún er dýrðleg þessi mynd af dananum að smella kossi á Ulbricht, en ætli til séu samskonar myndir af okkar eigin austantjaldsaðdáendum, meðlimum í S'IA, Svavari, Hjörleifi, o.fl.að smella kossi á hina ástsælu leiðtoga á einhverju æskulýðsmóti? Það væri dýrðleg myndbirting.
En líklega eru þeir búnir að koma öllum slíkum gögnum fyrir kattarnef eins og þeim tókst að fá allar skýrslur um sig fjarlægðar úr skjalasafni STASI
Bjorn Jonssoin (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 10:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.