Leita í fréttum mbl.is

The never ending Ellemann-Jensen show

381927-fakta-bl-bog-om-karen-ellemann-- 

Dóttir hins fremur siðlausa siðvandara Uffe Ellemann-Jensens, sem heitir Karen og er kennari að mennt, virðist vera jafn spæjuð og föðurómyndin hennar, sem oft hefur rennt fyrir lax á Íslandi í boði þeirra sem þurftu að nota ruglið í honum í áróður sinn. Ellemann var t.d. árið 2007 fundarstjóri á fundi með Sigurði Einarssyni, Hannesi Smárasyni og Ólafi Ragnari í Kaupmannahöfn árið 2007 og man ég ekki betur en að hann hafi rómað þar mjög bankadrengina okkar. Kallinn er mikið gefinn fyrir alls kyns víkinga og hyllti hér um árið á heldur ósmekklega hátt SS-liða sem drápu saklausa borgara í Eystrasaltslöndunum í síðari heimsstyrjöld.

Síðan þá hefur hinn gamli refur, Uffe Ellemann-Jensen, haft sig mjög í frammi með að lýsa frati á þessa sömu bankavíkinga sem borguðu annars mjög vel fyrir uppitroðslu hans á fundinum í Kaupmannahöfn og í öðru samhengi. Nú er Ellemann hins vegar orðinn talpípa EU-hungraðra loddara á Íslandi og var nýlega Silfrinu hans Egils í slíkum erindagjörðum. Líklegast hefur Uffe landað einhverjum stórlöxum út á það.

Það er ekki bara á Íslandi, að stjórnmálaþátttaka gengur í ættir, enda er þetta gjöful vinna. Í Danmörku er 3. kynslóð Jensenanna að gera usla. Siðleysi Ellemann Jensen ættarinnar virðist vera í genunum. Karen, dóttir Uffe, er 41 árs og fráskilinn, og býr í villu í Taarbæk norður af Kaupmannahöfn. Það er auðvitað algengt meðal fráskyldra kvenna í hér í EU, þar sem hunang og mjólk drýpur af öllu eins og sumir halda. Þessi einstæða móðir sem er ráðherra umhverfismála í ríkisstjórn Danaveldis réði  í fyrra til sín teymi af þýskum iðnaðarmönnum hjá þýska verktakanum Lang, sem undirbýður danska iðnaðarmenn með fátækum iðnaðarmönnum frá Austur-Þýskalandi. Teymið byrjaði vinnuna ofan á Karen fyrir jól. Nú þegar vinnu er nær lokið, kemur í ljós, að þýsku farandiðnaðarmennirnir hafa ekki verið löglega skráðir í Danmörku. Þetta hefur leitt til þess að þeir hafa fengið 10.000 króna sekt (danskar krónur), sem er auðvitað hlægilega lág upphæð. En nú hafa þeir líka verið reknir úr verkinu af Karen Ellemann, sem nú leitar sér nýrra iðnarðamanna til að laga þakið á húsinu sínu. Án þess að drepa tittling segir hún við fjölmiðla, að nágrannar hennar í svindlinu norður af Kaupmannahöfn hafi mælt með þessum þýsku iðnaðarmönnum, sem alltaf mættu tímanlega (sem er víst ekki hægt að segja um danska kollega þeirra). Hún segist vera með þýska iðnaðarmenn "á samevrópskum markaði". Þannig græða þeir enn meira, sem þegar eru á grænni grein á þeim markaði.

Fyrir síðustu jól greindi skólpblaðið Ekstra Bladet, systurblað DV í Danmörku, frá því að blaðamenn þeirra hafi hreinlega grafið í skít : Í nokkur skipti fóru þeir ofan í ruslatunnu Karen Ellemann og fundu þar batterí og ljósaperur og annan úrgang, sem ekki má kasta í ruslið. Hún kastaði víst líka út frekar miklu magni af mat. Skömmu áður en rottur Ekstra Bladets fóru að naga batteríin og kálfasteikina í ruslatunnu Ellemanns hafði hún einmitt sett á laggirnar herferð gegn bruðli með mat. Ekki kenndi hún pólskri hreingerningakonu um, en margir burgeisar þarna norður af Köben hafa slíkar konur á smánarlaunum til að ræsta hjá sér. Um leið og danskar stjórnmálakonur tala hátíðlega um kvenréttindi, púla pólskar konur á heimilum þeirra og annars borgarlegs aðals í Danmörku og skrapa vart saman lægstu launum á markaðnum, þótt þær þræli allan leiðlangan daginn. Svona er nú Samevrópski Markaðurinn sem sumir Íslendingar vilja æstir inn í. Er maður þegar í hankípankíi á Íslandi er það kannski ekki óskiljanlegt að menn vilji ólmir komast í hinn Evrópska félagsskap svindlara.

Hvenær Fritz og Hellmuth koma til að laga þakið hjá Össuri Skarphéðinssyni er allsendis óvíst. Pólverjarnir eru þegar búnir að hertaka markaðinn og sumir þeirra eru meira að segja í aukabissness í að flytja inn E-töflubasa, sem gæti drepið gjörvalla íslensku þjóðina oftar en tvisvar sinnum.  

Já, lengi lifi hinn samevrópski markaður! Kannski geta íslenskar stöllur Karen Ellemanns í pólitíkinni boðið henni í silungsveiði við Þingvallavatn og eftirá í smá sætsýn til að sjá hvernig úrganginum úr bústöðum ríka mannsins við vatnið er komið fyrir í næsta skurði út í mýri, köttur með stýri, úti er ævintýri.  

3 í umhverfisleik
Ellemann og Svavarsdóttir, tvær siðspilltar á hægri og vinstri vængnum, og jafnmiklum pabbastelpum þarf lengi að leita að. Hér er þær komnar upp á einhverja hæð á Grænlandi. Konan fyrir miðju er líka umhverfismálaráðherra í einhverju norrænu landi. Svaka kjút að hafa stelpur í svona stöðum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband