Leita í fréttum mbl.is

Nú verđur valsađ međ peningana

euroman.jpg

Dagur B. Eggertsson er greinilega lítilsigldur og lítt floginn kall. Hann líkir fyrirhuguđu Hlíđarendahverfi Valsara og annarra framkvćmdaađila viđ evrópskar borgir, eđa réttara sagt skipulagiđ í ţeim. Ég get alveg upplýst Dag um, ađ evrópskar borgir eru ekki byggđar rétt viđ lendingarbrautir flugvalla, ţótt sést hafi gras á ţökum húsa á síđustu 30 árum og ađ sumar borganna í ESB-útópíunni hafi hjólastíga.

Ég sé ađ ţarna er gert ráđ fyrir litlum íbúđum og stúdentagörđum. Spurningin er, hvort ţetta eru litlar íbúđir fyrir fólk sem hefur ekki ráđ á stóru, eđa hvort ađ ţetta verđa lúxusíbúđir fyrir fjársterkt fólk sem  ćtlar ađ minnka viđ sig, og ađ "stúdentagarđurinn" sér fyrir börn velefnađra foreldra sem eru Valsarar, stórhluthafar og fjárfestar.

valsa.jpg

Mikiđ er annars dásamlegt ađ heyra ađ einhver eigi 25-30 milljarđa í handrađanum á Íslandi í dag. Ekki verđa menn svo ríkir af fótbolta, er ţađ? Ekki er langt síđan ađ Valsmenn hf. áttu ađeins 50 miljónir.  Ţetta er mesta framkvćmd á Íslandi síđan í Hruni, en hún er líka greinilega í dćmigerđum hrunastíl.

Ég legg til ađ malbikiđ í nýja hverfinu hans Dags verđi málađ rautt og hvítt til heiđurs Degi og Valsmönnum og lánsfé ţeirra, og ađ verslun í hverfinu verđi kölluđ Evran. Einnig legg ég til ađ forstjóri Valsmanna, Brynjar Harđarson, segi rétt til um á smettiskruddu sinni hvenćr hann varđ stúdent. Ţar stendur, ađ ţađ hafi hann orđiđ áriđ 1978, ţegar Brynjar var 16 vetra. Ekki man ég eftir ţví ađ Brynjar hafi veriđ svo mikill námsmađur en kannski er hann eitt af ţessum íslensku séníum? Vonandi er hann ekki svona ónákvćmur í tölunum í kostnađaráćtlunum fyrir Hlíđarendahverfiđ.


mbl.is Líkir Hlíđarenda viđ evrópskar borgir
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 5. mars 2014

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband