Leita í fréttum mbl.is

Herr Brinkmann, sendiherra ESB á Íslandi

matthias_brinkmann4.jpg

Sigmundur Davíđ Gunnlaugsson er ekki ađeins upptekinn af fornleifamálum og verndun gamalla húsa. Nýlega kallađi forsćtisráđherra sendiherra ESB á Íslandi til sín á teppiđ. Sendiherrann hafđi sagt eitthvađ sem ríkisstjórninni líkađi ekki og sem ekki getur talist sannleikanum samkvćmt, nema ađ mađur sé ESB-sinni.

Ég hef lengi haft áhuga á stjórnmálamönnum sem segja ósatt. Sumir gera ekkert annađ. Óalgengara er ađ löglćrđir embćttismenn eins og sendifulltrúar ríkja segi ósatt. Ég á erfitt ađ dćma um ummćli Matthias Brinkmann sendiherra ţví "ESB-sendiráđiđ í Reykjavík vill ekki tjá sig um fund Sigmundar međ Brinkmann".  Brinkmann er ekki á landinu og heldur ekki Sigmundur. Ef til vill hafa ţeir fariđ saman  til ađ leita ađ sannleikanum.

Starfađi í ráđuneyti sem ekki var til

Ţar sem ég veit ýmislegt um Sigmund Davíđ, langađi mig ađ forvitnast  um feril Matthias Brinkmanns. Á vef ESB eru gefnar upp stađlađar upplýsingar um manninn (Sjá t.d. hér). Ţar kemur međal annars fram ađ hann hafi veriđ ráđinn (lánađur) ađ rannsóknarráđuneyti Dana á árunum 1987-90. Ţađ kom mér heldur betur á óvart, ţví ađ rannsóknarráđuneytiđ danska varđ ekki til fyrr en 1993. Hvernig getur Matthias Brinkmann hafa unniđ á 9. áratugnum í ráđuneyti sem ekki varđ til fyrr en 1993?  Ţađ er mér hulin ráđgáta. Vonandi skýrir Brinkmann ţetta yfir Íslendingum.

Reyndar hefur rannsóknaráđuneyti Dana haft mörg, örlítiđ mismunandi nöfn, og ţeir sem starfa ţar, t.d. kona mín, eiga stundum erfitt međ ađ muna nýtt nafn ráđuneytisins í hvert skipti, en nafniđ breytist gjarnan međ stjórnarskiptum og nýjum ráđherrum. En ţađ breytir ekki ađ ráđuneytiđ varđ ekki til fyrr en áriđ 1993. Hr. Brinkmann, afsakiđ, Dr. Brinkmann, hefur aldrei unniđ í rannsóknarráđuneyti Dana á tímabilinu 1987-90. Ţađ er ekki mögulegt.

Einhver skekkja eđa ónákvćmni er greinilega í ferilskrá Brinkmanns, sem stundum hefur kallađ sig Bernhard Matthias. Ţar er einnig upplýst, ađ hann hafi veriđ dómari viđ Verwaltungsgericht í Hamborg áđur en hann hóf störf í Framkvćmdastjórn Evrópusambandsins áriđ 1983 og hafi einnig doktorspróf í alţjóđarétti. Slík ábyrgđastörf og titlar voru alls fjarri ţeim veruleika sem hann vann viđ í Stokkhólmi áriđ 1995, ţegar hann var ađeins upplýsingafulltrúi ESB-skrifstofunnar i Stokkhólmi og auglýsti eftir tilbođum í prentun á bćklingum fyrir skrifstofu Framkvćmdastjórnar Evrópusambandsins í Stokkhólmi. (Sjá t.d. hér)

Starfađi hjá flóttamálastofnun SŢ, en sýnir algjöra vankunnátta á högumn flóttamanna og minnihlutahópa í ESB

Furđu sćtir ađ mađur sem segist hafa unniđ á skrifstofu Flóttamannstofnunnar SŢ í Genf hafi orđiđ sér ađ fífli í Kanada, ţegar hann móđgađi Rómafólk, međ ósannindum og fordómum í garđ ţeirra: (sjá hér). Dr. Brinkmann sýndi klárlega fordóma í garđ Rómafólks, sem og ađ hann ţekkti ekki ţađ sem Thomas Hammarberg fráfarandi forstöđumađur Flóttamannastofnunnar SŢ í Genf hafđi  látiđ í ljós skömmu áđur um hag Rómafólks í Evrópu.

Greinilegt er, ađ Dr.  Matthias Brinkmann er ekki mjög trúverđugur embćttismađur og hefur jafnvel unniđ á stofnunum sem ekki voru til ţegar hann segist hafa unniđ ţar.

Af hverju ćttu Íslendingar ađ trúa ţví sem hann og ESB-sinnar segja, ţegar ţeir hafa heyrt annađ frá yfirmönnum Brinkmanns og séđ óhemju neikvćđa afstöđu ESB til landsins í ýmsum málum?

Bloggfćrslur 20. mars 2014

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband