Færsluflokkur: Kjaramál
29.3.2019 | 08:15
Nýtt flugfélag - VÖV air
Ágætu Íslendingar!
Ég leyfi mér að kynna hér stofnun nýs flugfélags sem (f)lýgur um allan heim, hvert á land sem er og með nóg rými fyrir höfuð, herðar, hné og rass, hné og rass. Flug félagsins er algjörlega vistvænt.
VÖV air er framsækið og háfleygt flugfélag sem notar 100% hreina orku, hugarorku. Hugarorka skapar hugarflug;(einnig er notast við örlítið danskt kartöflumjöl).
Flugfélag unga fólksins
Á tímum heimshitnunar og græðgi vex úr grasi ung kynslóð sem krefst þess að hún fái heiminn í sínar hendur í heilu lagi og betri en við skiljum við hann. Þessi kynslóð leggur áherslu á að lögð séu gjöld á þotueldsneyti eins og allt annað eldsneyti. Unga fólkið sem mótmælir of- og misnotkun auðlinda heimsins hefur talað. Hún vill ekki taka bílpróf eða fara í 5+ utanlandsferðir á ári líkt og foreldrar þeirra (eigingjarna og sjálfselska kynslóðin). Unga kynslóðin krefst hugarflugs. Það fær hún ódýrt hjá VöV air.
Hugarflug fer oftast fram á nóttunni, en þó geta menn einnig látið hugann fljúga með VÖV air á daginn, þegar það situr í strætisvagninum á leið til vinnu. Góð bók er ávallt góður félagi í flugferðum með VÖV air. En ein teskeið af kartöfluméli í glas af kranavatni fyrir svefninn eykur hugarflug. Kartöflumjöl er vistvænt flugeldsneyti. Það eykur upplifelsið í draumaferðum VÖV.
Meðan verið er að gera smálagfæringar á WOW vélunum, sem við fengum fyrir slikk, svo á þeim standi VÖV, er verið að búa til verðskrá. 97% skyndihækkanir á fargjöldum Icelandair, aðalsamkeppnisaðila VÖV air, verða skammvinnar ef Flugdólgsfélagið Icelandair vill vera samkeppnishæft. Icelandair mun vart geta hamlað gegn lágu verðlagi VÖV air.
Matur um borð
Vinir mínir í ferðaiðnaðinu hafa spurt mig, hvaða matur verður í boði í flugvélun VÖV. Því er auðsvarað. Fólk tekur bara kvöldmatinn sinn með sér heiman frá sér og skilar úrgöngum af sér eftir ferðina.
Mikið hefur þegar verið spurt um flugfreyjustörf hjá VÖV air. Atvinnulausum flugfreyjum er bent á að gera það sama og farþegar VÖV. Þær eiga að láta sig dreyma og muna að taka ekki of stóran skammt af kartöfluméli. Það er þó nóg pláss á milli sætaraðanna ef þær tækju upp á því að leggja sig út í draumaferðum VÖV air. Allt flug er Judy free flug. Vitaskuld leiðinlegt fyrir Judy, en svona er það bara einu sinni.
Aðeins einn flugmaður starfar hjá VöV Air. Hann er spænskur og heitir Don Emmanuel Delasonar.
Ég lofa ykkur svo myndum af innréttingum í íbúð minni, t.d. af sófaborðinu og útsýninu úr klósettglugganum. Ég er ekki með krana úr gulli, en alla úr platínum.
Flugfreyjur, taka ber fram: Ég er á föstu með með gömlu módeli, og henni verður ekki svo auðveldlega skipt út um sinn, enda væri það algjörlega andstætt stefnu VÖV air um endurnotkun auðlinda og 0-losun.
Flug VÖV eru Flugdólgalaus. Flug framtíðarinnr.
Flug unga fólksins
Útlendingum er ekki vísað úr landi með VÖV air.
Flugfélagið VÖV - Hugarflug - Engin losun eða losaraháttur
LÁTIÐ YKKUR DREYMA eða lesið góða bók.
FEEL THE VÖV FACTOR
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.1.2019 | 05:32
Samningur DV og Metoo JBH
Afkomendur Gróu á Leiti komumst í feitt nú eftir hátíðirnar. Síðasta flísin af hamborgarahryggnum hafði vart verið skorin af beini, er nýr og feitari göltur hlammaðist upp á fatið. Ef þið eruð í vafa um ættartengslin við heiðurskonuna Gróu, leitiði hana uppi á Íslendingabók. Hafið þið hins vegar á síðustu dögum heilögum kíkt með og blaðrað um ósamlynda fjölskyldu Jóns Baldvins og Bryndísar Schram, þurfið þið ekki að ómaka ykkur við leit; Þið eruð örugglega komin af maddömu Gróu á Leiti og síra Ólafi Besserwisser eiginmanni hennar.
Sá afkomandi afkomandi Gróu sem þetta ritar, er ekkert öðruvísi en svo margir afkomendur kellingarinnar. Ég er ólmur í svæsnar og söftugar kjaftasögur þegar mér leiðist. Þær staðfesta hve leiðinlegu lífi maður lifir.
Systir Bryndísar spurði mig um daginn á athugasemdasvæði við grein um Jón Baldvin og Fam. hvort ég væri að "perrast með Jóni". Nú er ég svo gamall að ég veit ekki hvað sögnin að perrast þýðir. Orðabækur mínar eru líklega forngripir, því ég finn heldur ekki orðið þar. En við frekari leit á nýrri uppfinningu sem mér var sagt frá nýlega, sá ég að þetta orðskrípi á ekki við um mig. Ég er að bara að lesa "fjölmiðla" gamla heimalandsins míns, og að reyna að raðgreina hvað sé eiginlega að, þegar kolruglað fólk getur stjórnað bönkum, setið á Alþingi orðið ráðherrar og stýrt allri umræðu í landinu. En í landi þar sem ekki fellur á silfur sem hefur verið 1000 ár í jörðu, geta víst ýmis undur gerst.
Þó ég viðurkenni tengslin við Gróu gömlu, er ég er líka komin af fólki sem þótti svo gagnrýnið að því hefur ekki verið neins staðar vært. Þegar ég les kjaftasögurnar á prenti byrja ég sjálfkrafa að detta um alls kyns ósamfellur, þó ég geri mér grein fyrir því að söguhetjan JBH sé vitaskuld helsta ósamfellan í jöfnunni. Á Íslandi er víst aðeins til einn "graðan satírikon" eins og hans sagðist vera í bréfi frá íslenska sendiráðinu í Washington hér um árið, sem er þó ekki skráð í bréfasafn Utanríkisráðuneytisins, þó svo ætti með réttu að vera.
Um daginn gerðist það hins vegar á athugasemdasvæði á DV við grein að einn af meginleikurunum í hinu laaannga tragíkómíska ættardrama Jóns Baldvins Hannibalssonar, að stúlka sú sem hann sannarlega ritaði nokkuð furðuleg bréf þegar hún var komin vel yfir fermingu, birtist í athugasemdunum og sagðist vera með samning við DV. Nokkrum mínútum síðar var greinin horfin af DV og þar með safarík saga um/eftir nafnlausa konu sem átti í ástarsambandi við Jón rektor fyrir Vestan. Nafnlausa konan fékk samkvæmt sögunni eintak af skáldsögunni Lólítu, áritaða af Jóni, sem vitanlega er ekki höfundurinn. Það var hann Nabukov. Sagan á DV greindi frá því að Jón hefði verið barinn af skólapilti fyrir Vestan, sem einnig bar hlýjan hug til nafnlausu konunnar.
Kannski var ég að perrast þegar ég algjörlega óvart sló á þrjá hnappa á tölvunni minni, þá sem á stendur ctrl, alt og prt sc. Ég geri það stundum ósjálfrátt, þegar ég er kominn með ritkrampa og fæ spasma. Ég hef síðan uppgötvað að í hvert sinn sem ég rekst svona á lyklaborðið með fingurna, þá hleð ég niður mynd af skjánum. Þannig er það nú að ég á mynd af þessum athugasemdum við greinina, og athugasemdina, sem hvarf.
Ég spyr mig nú, hvort íslenskri "fjölmiðlar" geri samninga við fólk á Íslandi um safaríkt efni? Ef svo er, vil ég ekkert með þetta hafa, og skila þessari skjámynd af mér til DV, sem kannski hefur týnt þessu og greininni sem hvarf. Mér finnst þetta allt frekar dularfullt og óþægilegt og vill ekkert frekar blandast inn í þessi mál hinnar ósamlyndu fjölskyldu.
Ég óska fjölskyldunni alls hins besta og vona að þau geti komið sér saman um að fara í allsherjar hóptherapíu til að leysa sín einkamál og ættarhöfðingjans. Kannski væri málið að fá skólapiltinn að Vestan til að berja sönsum í þetta slekti. Á meðan getur þjóðin snúið sér að mikilvægari og vitsmunalegri málum fyrir ofan mitti.
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2011 | 06:57
Stelið ekki í Hagkaup !
Í gær las ég um konuræfil í Reykjavík sem stal snyrtivörum fyrir 6098 kr. í Hagkaup. Konan hefur í héraðsdómi verið dæmd í 60 daga óskilorðsbundið fangelsi, sem gera einn sólahring fyrir hverjar 100 krónur sem hún stal. Þetta er náttúrulega hin versta kona, örugglega með ítrekaðan brotavilja til að ná sér í maskara og bodylotion á kostnað Hagkaups. Hún verðskuldar sérhvern dag í steininum, þar sem henni getur lærst að útlitið er ekki allt.
En eru íslensk dómsyfirvöld svo samkvæm sjálfum sér í dómum. Ég sé fram á nokkra 3-20.000 ára dóma yfir fjárglæframönnum á Íslandi, sem með ítrekaðan brotavilja stálu jafnt frá íslenskum almenningi sem erlendum. Sigurður Einarsson og hinum ræflunum mun á þeim tíma gefast nægur tími til að læra að peningar eru ekki allt, en oft mikils virði fyrir þá sem þeim hefur verið stolið frá.
Hverjir ætli eigi Hagkaup og eru allir meðhöndlaðir réttilega í verslunum þeirra?
Eru ekki allir sammála um að eitthvað sé mikið að á Íslandi? Kvittið hér fyrir neðan ef þið mótmælið dómskerfinu á Íslandi. Hvort þið þorið í Hagkaup er ykkar mál.
Hér er svo til gamans blað úr spjaldsrká yfir búðarþjóf í New Orleans frá 1915 (blaðið er hægt að kaupa á netinu). Hann fékk 60 daga fyrir búðarhnupl. Héraðsdómur gæti hugsanlega hafa tekið mið af þessum dómi:
ORIGIN: Department of Police, New Orleans
DATE: 1915
CRIMINAL NAME: Paul Portillo
ALIAS: None listed
AGE: 23
NATIVITY: Mexico
COLOR: Listed as White
OCCUPATION: Laborer
CRIME: Petty Larceny - shop lifting
SENTENCE: 60 days in Parish Prison
TATTOOS LISTED: None listed
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 07:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
12.6.2010 | 12:14
Holy Joly bjargar Gaza á launum frá Íslandi
Eva Joly, aðal-prívatvinkona Egils Helgasonar (þau nota líka sama hárlitunarefnið), ætlar ekki bara að redda okkur Íslendingum í því að dæma þá sem settu Ísland á hausinn. Hún er líka á gríðarlaunum á Íslandi, þegar hún ferðast sem ESB-fulltrúi og fer í skemmtiheimsókn til hryðjuverkasamtakanna Hamas á Gaza. Hamas setti á svið smá show fyrir Joly og ferðafélaga hennar og hún þakkaði fyrir sig með því að skrifa í Morgenbladet. Sjá einnig hér.
Við höfum enn ekki heyrt um eins afgerandi lausnir í þágu Íslendinga og Joly vill fá á Gaza. Joly talar mikið um að draga alla fyrir rétt og hegna öllum, en ekki að læra af mistökunum, svo þau endurtaki sig ekki. Joly vill láta aflétta hafnbanni á Gaza og draga þá sem stöðvuðu tyrkneska skipið Mavi Marmaris fyrir rétt í Noregi. Hvað þá með að setja íslenska glæpamenn fyrir Gulaþingsdóm?
Hefur Joly nokkuð heyrt, að skipverjar um borð á þessu heimsfræga friðarskipi" sögðu Ísraelsmönnum að fara aftur til Auschwitz", eða hvernig þeir sungu um dráplöngun sína á gyðingum? Mig grunar að svo sé ekki, enda held ég að Joly sjái ekki allt, og heldur ekki á Íslandi.
Joly er hins vegar örugglega eftir að sjá, að ef hafnbanni verði aflétt á Gaza, munu skipsfarmar eins sá sem tekinn var af Ísraelsmönnum árið 2002, og sem sýndur er í myndbandinu hér að ofan, verða ástæða til enn meiri átaka við botn Miðjarðarhafs. Eina leiðin til að íbúar Gaza fái það sem þá vantar, er að Hamas-samtökin aflétti því heljartaki sem það hefur á íbúum Gaza.
Joly vill gyðinga fyrir dómsstóla í Noregi. Síðast sendu frændur okkar Norðmenn gyðinga til Auschwitz, á "one way"-miða. Það var búið að gera Noreg Judenrein og hreinsa þá burtu úr Grüneløkke-hverfinu i Osló, þegar bjartasta stjarna Eyjunnar og greinilega einnig á Gaza, hún Gro Eva Buhre Farseth, fæddist þar árið 1943.
Að lokum ein góð stuttmynd um manninn í "friðarflotanum" með sjúklegu píslavættaheilkennin. Geta Íslendingar ekki borgað fyrir lækningu þessa arma mans í Noregi? Við borgum fyrir margt asnalegra en það.
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 18:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 2
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 62
- Frá upphafi: 1352568
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007