Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2014

Ekki í tísku að vera hreinræktaður

ilkrsbuc1qjzi.gif

Egill Helgason er ekki hreinræktaður. Það fullvissaði hann lesendur sína um nýlega. Eftir að hafa athugað ættir Egils, finn ég hins vegar enga löglega útlendinga, síðustu 25 ættliðina. Ég hringdi í Kára klón, sem gat staðfest þetta. Rauði liturinn í hárinu á Agli er frá Schwartzkopf en genin undir í gráa hárinu eru öll komin frá Noregi. Ekkert keltakyns fannst í vessum Egils.

Sem útlærður Mischlingseksperte skoðaði ég málið nánar, og tel nú ljóst að Egill sé mjög blandaður, þrátt fyrir allt. Þegar maður skoðar fingra og handapat Egils sér maður glögglega frönsk einkenni. Svona handapat er afar óskandínavískt og gerir það að verkum að ég gef hér með Agli "Keinarierattest". Egill er algjör blöndungur af 1. gráðu.

Ef Framsókn á að eiga sjens á því að fá mann inn á Íslandi í dag, verða menn að læra að tala svona með höndunum.

Egill, vais vous envoyer la facture la semaine prochaine.


Nye tegn i latten

Ny latte i Island

Kære Radikale Venstre,


I har et problem.  Op til det islandske kommunevalg i 2014, som afholdes den 31. maj, fører jeres søsterparti i Island, Framsóknarflokkur, politik i forhold til muslimer, som ikke kan siges at være forenelig med de principper som Radikale Venstre følger.  Partiets spidskandidat i Reykjavík har bebudet, at hun ønsker en beslutning fra det nuværende bystyre i Reykjavík omstødt. Bystyret havde givet en matrikel til Reykjavíks knapt 400 muslimer så de kan bygge sig en regulær moske. Blandt islandske ekstremister førte det til primitive aktioner med grisehoveder som blev placeret på matriklen og griseblod stænkedes på grunden.  Nu ønsker jeres søsterparti, at muslimer i Island ikke får den lovede byggegrund, og ser derved ud til at øge sin popularitet som før denne sag var næste lige med nul.

Én kandidat, blandt partiets kun to kandidater som har trukket sig ud af kandidaturet til bystyret, har oplyst, at partiets øvrige medlemmer bruger nedværdigende betegnelser for muslimer til partiets lokalafdelings møder. Der kalder man muslimer konsekvent for "muslemmer" (múslimir).

Ganske vist har Framsóknarflokkur en dyster fortid som det parti som mest førte sig frem mod statsløse jøder der kom til Island i 1930erne. Partiets ministre var selv aktive i udvisning af jøderne. I 1930erne, da Framsóknarflokkur var Venstres søsterparti, ville det ikke have været unaturligt for partiet at stå de Radikale Venstre nærmere, men Danmark besattes af tyskerne og de Radikale samarbejdede så flot med det Tredje Rige mens Briterne kom til Islands, hvor Framsóknarflokkur og andre i Island surmulede over at Hitler ikke bankede på hos dem.

Er Framsóknarflokkur værdig som det Radikale Venstres søsterparti, når de ikke deler det syn på ligeret og religionsfrihed som søsterpartiet i Danmark har? Bør Radikale Venstre ikke tage kontakt med sit søsterparti, for at undersøge, hvad der foregår i Island? Bør Radikale Venstre ikke afslutte sit søstervenskab med partiet Framsóknarflokkur?  Er det virkelig Radikal Venstres "søsterpolitik",  at modsætte sig religionsfrihed og bruge hadet mod et religiøst mindretals gudsshus som stemmesluger ved et kommunevalg?

Med venlig hilsen,

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, ph.d.

Albertslund


Er Egill Helgason sorry ?

ilkrsbuc1qjzi.gif

Kennari einn sem heitir Hilmar, sem oft veður upp á bloggsíðum manna með hræðilegum gífuryrðum, æstist mjög um daginn þegar ég skrifaði um moskusvik Sveinbjargar framsóknaroddvita.

Ég er reyndar fyrsti Íslendingurinn, sem ég veit um, sem í riti hefur stungið upp á mosku, en ekki Illugi Jökulsson eða Egill Helgason. Ég reit í Moggann í svari til íslensks kynþáttahatara, n.t. 14. des. 1994, bls. 44: „Það er ekki nóg að yrkja landið, fólkið verður einnig að fegra. Ég fagna þeim degi, að moska rís í Mosfellssveit eða sýnagóga á Selfossi og að bænir á Alþingi verði ekki aðeins kristnar". 

egill_i_brotajarni.jpg

 

Hinn ofsafengni kennari, Hilmar, sem á stundum er stuðningsmaður Hamas og yfirlýstur gyðingahatari kallaði mig öllum illum nöfnum. Hann hefur t.d. kallað mig "gyðingaósóma".  Eftirá, þegar æðið rennur af honum,  neitar hann því að heita Hilmar og þvertekur fyrir að hann sé kennari. Hann er þó enn ekki búinn að neita því að hann sé Lionsmaður.

Ég fer ekki ofan af því að andstaða við mosku, sérstaklega mosku sem gefin hefur verið lóð, sem svo á að taka aftur frá söfnuðinum, sé ekkert annað en einhvers konar fordómar. Andstaða sjálfs míns við moskur birtist aðeins þann dag þegar þar verður boðað það hatur sem margir vinstrimenn eru haldnir, en því miður er sögufölsun orðin hluti af trúariðkunum íslensk múslíma (sjá hér). Ég hef þegar látið í ljós skoðanir mínar á síendurteknum kynþáttafordómum þjóðkirkjunnar sem birtast í Passíusálmunum og ég vona að ég þurfi ekki að gera það með múslíma.

Egill Helgason, sem nú biðst auðmjúklega afsökunar fyrir að kalla saklausa konu "rasistakellingu", skeit mig reyndar einnig út á áföllnu Silfrinu árið 2005 með röð lyga. Hann skrifaði m.a. : "Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson komst í fjölmiðla í Danmörku fyrir nokkrum árum þegar hann reyndi að fletta ofan af framgöngu Dana gegn gyðingum. Eins og kunnugt er voru danskir gyðingar ferjaðir yfir sundið til Svíþjóðar haustið 1943 og björguðust flestir með þessum hætti. Vilhjálmi taldi að þessir atburðir hefðu tekið á sig mynd goðsagnar og vildi fá að komast í skjöl útlendingaeftirlitsins til að sanna að í Danmörku hefði verið rekin andgyðingleg stefna. Úr þessu varð talsverð rekistefna." (sjá hér)

Egill birti líka þessa andgyðinglegu óþverragrein sína á visir.is og í DV þann 2.5. 2005.

Hálfum mánuði eftir að Egill Helgason níddist á mér og reyndi að gera lítið úr starfi mínu og rannsóknum, kom út í Danmörku tæplega 500 síðna bók mín Medaljens Bagside. Bók mín, sem fjallaði um flóttamenn af gyðingaættum og aðra sem Danir vísuðu úr landi, fékk mikið lof, reyndar svo mikið að sumir danskir sagnfræðingar, sem reynt höfðu að setja stein í götu mín til að hindra að ég gæti rannsakað efnið, reyndu síðar að ræna heiðrinum af uppgötvunum mínum.  Þegar dönsku dagblöðin fóru að greina frá bókinni, áður en hún kom út, bað forsætisráðherra Dana um eintak af henni, og hjólaði ég sjálfur með bókina í ráðuneytið. Ráðherrann vitnaði svo í hana í Mindelunden 4. maí 2005 við árlega minningarathöfn um lok þýska hernámsins í Danmörku, þar sem hann bað gyðinga afsökunar á þeim glæpum sem fyrirrennarar hans höfðu framið og sem ég greindi frá í bók minni. Egill hefur aldrei beðið mig afsökunar fyrir að svína mig til.

Egill er, eins og allir vita, einn af aðalsérleyfishöfunum á sannar og réttar skoðanir á Íslandi. Slíkir menn biðjast sjaldan afsökunar, og ef þeir gera það, meina þeir ekkert með því.

Einhverju sinni sagði ég frá því á Silfri Egils, að blússöngvarinn Bill Bourne í Kanada væri frændi minn. Bill er afkomandi Stephans G. Stephanssonar og Stephan G. og langafi minn Þórður Sigurðsson voru systrasynir (sjá hér). Viðkvæði Egils var: Aumingja Bill að eiga svona leiðinlegan frænda". Sjá hér.  Egill fór svo í að fjarlægja ónotin af Silfrinu, en það var um seinan eins og sjá má hér fyrir neðan. Dónaskapurinn hafði verið afritaður. Enga afsökun sendi Egill til mín eða Bills.

egils_rau_aritsko_un_1236157.jpg
 
Látum Bill frænda ljúka þessum pistli 


Morðin í Brussel varða Íslendinga


Gyðingahatur er í sókn í ESB, líka á Íslandi, eins og sjá má í umræðunni við þetta blogg. Stundum eru múslímhatarar líka gyðingahatarar og múslímar er það líka oft á tíðum. Á Íslandi þykir það greinilega allt í lagi að Íslendingar séu kallaði gyðingaósómar.

Næstkomandi þriðjudag átti ég að hitta danskan fræðimann sem búið hefur lengi í Bandaríkjunum. Við höfðum mælt okkur móts á Dansk Jødisk Museum í miðborg Kaupmannahafnar. I gærkvöld gat hann allt einu ekki komið á safnið á þriðjudegi, og spurðu hvort ég hefði tíma á mánudegi. Þar sem Dansk Jødisk Museum er alltaf lokað varð ég að stinga upp á öðrum stað til að hitta manninn. Ég geri mér grein fyrir því að maðurinn var vitanlega dauðhræddur við þau tíðindi sem í gær bárust frá Höfuðborg ESB, Brussel. ESB landið Belgía er ekki öruggt og það er ESB landið Danmörk heldur ekki.

media_l_6768401.jpg

Þar hljóp ódæðismaður inn á safn um sögu gyðinga í Brussel og skaut einu eða fleiri skotum í höfuð og háls fórnarlamba sinna. Hjón frá Ísrael voru meðal hinna myrtu, einnig tveir starfsmenn safnsins. Aðalfréttin í dag í Belgíu er samt ESB kosningarnar, þótt evrópska Helförin haldi áfram.

Gyðingahatur er enn landlægt í Evrópu og ESB gerir t.d. ekkert við þeim ofsóknum sem menn verða fyrir í Litháen, þar þeir sem benda á óeðlið í að stjórnvöld í Litháen dýrka gyðingamorðingja sem þjóðhetjur, eiga það á hættu að vera ofsóttir af lögregluyfirvöldum í landinu.

Á Íslandi starfar kennari sem kallar íslenska ríkisborga gyðingaósóma. Maðurinn sem það gerir er barnaskólakennari og virkur í Lionshreyfingunni. Yfirvöld gera ekkert. Gyðingahatarar fá hæli og landvist á Íslandi meðan fólk í lífshættu er sparkað út í hafsauga.

Ætli eðlileg spurningin sé ekki  hvenær gyðingar verða myrtir á Íslandi? Er utanríkisráðherra búinn að senda samúðarkveðjur til Brussel? Nei, en hann styður öfgamenn í Úkraínu sem hata gyðinga, enda er utanríkisráðherra Íslendinga Framsóknarmaður. Framsóknarmenn vilja einnig hefta réttindi múslíma.


Dauðakrampar Framsóknar ?

xbmtyrn.jpg

Aumkunarvert er að sjá oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík höfða til öfgafólks (framsóknarmanna?) með því að lofa að hætta við að úthluta lofaðri lóð fyrir mosku við Mörkina í Reykjavík. Trúfrelsi á nú að hefta til veiða nokkur atkvæði frá svínablóðssletturum.

Framsóknarflokkurinn fór forðum fremstur í atlögu að flóttamönnum af gyðingaættum. Þess vegna er enn ekkert samkunduhús í Reykjavík. Vinstri menn, sumir hverjir komnir af góðum framsóknarheimilum, hafa hjálpað til í því hatri og Sjálfstæðisflokkurinn innbyrti úrval nasistagerpanna og gerði þá að flugmálastjóra, lögreglustjóra, og meira að segja próflausan fánabera að seðlabankastjóra.  

Moska mun rísa, og framtíðin mun svo sýna okkur, hvorir verða öflugri í hatrinu, örvinglaðir framsóknargosar gegn múslímum ellegar múslímar gegn gyðingum og Ísrael.

Augljóst er að íslensk pólitík er og verður á lágu plani. Ef menn eru ekki í því að banna moskur, er darraðardansinn fyrir græðgina hafinn aftur með aðstoð (tæmingu ríkiskassans) til þeirra sem minnst þurfa á henni að halda. Nokkrum árum eftir hrun heimta svo allir launahækkanir, og vitaskuld mest þeir sem ekki þurfa á henni að halda. Aðrir vilja stórspítala sem verður  1/10 af miðbænum í Reykjavík. Samfélagið er sjúkt.

Hvar á að fá fjármagnið? Sumir telja það fundið í veskjum kínverskra súperskálda. Eru Íslendingar ekki búnir að fatta að peningarnir falla ekki af himnum ofan. Eiga fleiri að verða atvinnulausir? Það telja vitaskuld sérleyfishafarnir á réttar skoðanir og hreinar sem allir vilja í ESB, því þar fást bestu dílarnir samkvæmt heilaþvottastöðinni RÚV. Ísland er enn ekki komið með tærnar í fjölda atvinnuleysingja þar sem ESB hefur hælana.  Íslenskir stjórnmálaflokkar velja sem fyrr taumlausa vitleysu sem stefnu sína. Lýðinn þarf að seðja, og greinilegt er að hann hefur ekki vitkast mikið síðan 2008.

Þess ber að geta að Sveinbjörg sem gekk í Álfó, Versló og Háskó og vill banna moskó, vann hjá Atlantó í Jeddó. Ætli hún hafi gengið með slæðu? Ég spái því að hinir krakkarnir vilji ekki lengur með henni í brennó og kíló, því hún er svaka púkó. Hún getur þá alltaf spilað Dr. Mario við sjálfa sig:

"Hvað viltu vita? Ég á þrjú börn, ég er fráskilin, ég lærði lögfræði í Háskóla Íslands, starfa sem lögmaður. Var í Verzló og Álfó. Fannst gaman að fara út í brennó, kíló og yfir þegar ég var ung. Uppáhaldstölvuleikurinn minn er Dr. Mario. Mér finnst gaman að ferðast. Hef unnið hjá Atlanta í Jeddah og Madrid, kokkur og túlkur í fjallaferðum, Deloitte, Ernst&Young, bjó í Luxembourg og naut lífsins þar meginhlutann atvinnulaus. Rek nú Lögmenn Hamraborg 12."


mbl.is Kosið verði um lóð undir mosku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkamenn háloftanna

greed_pilot_icelandair.jpg

Það undraði mig alla æsku mína og uppvaxtarár á Íslandi, af hverju íslenskir flugmenn voru alltaf í "stéttabaráttu". Menn, sem byggðu sér dýrustu villurnar í Garðabæ, sem fóru í endalaus sumarleyfi til Hawaii, áttu sumarbústaði á undan öllum öðrum, en þurftu alltaf meira, og meira og enn meira en aðrir í samfélaginu.

Nú þegar ég hef horft upp á aðgerðir flugmanna í heilan mannsaldur er mér ljóst, að flugmenn eru ekki stétt. Þeir eru hryðjaverkamenn græðginnar. Þetta eru menn, og konur, sem tekið geta samfélagið í gíslingu og eyðilagt ferðamannaiðnaðinn, sem er víst orðinn meira virði fyrir íslenska þjóðarbúið en að draga fisk úr sjó eða gefa amerískum fyrirtækjum upplýsingar úr erfðamengi þess einsstaka stofns sem landið byggir. (Ætli Kári Spaði sé búinn að finna græðgisgenið?).

Græðgi íslenskra flugkappa, sem vitaskuld lifa lífinu hættulega með okkur um borð, er ólýsanleg.  Fyrir hönd Marx og Engels leyfi ég mér sem atvinnuleysingi að lýsa því yfir, að eyðileggjandi aðgerðir flugmanna eru ekki hluti af stéttabaráttu.

Flugfreyjur eru kannski annað mál. Við vitum að sumar þeirra geta ekki lifað án Saga-butique og heyrt hefur maður af freyjum sem stela eggjandi undirfatnaði í verslunum erlendis. Þá er vitanlega þörf á stéttabaráttu. Flugfreyjur verða að hafa ráð á eggjandi undirfatnað, það eru bara lágmarks-kvenréttindi. Hér er smá pakki fyrir strandaglópa í verkfallinu, sem sýnir nýja tísku Icelandair eftir verkfallið og alla baráttuna.

Önnur stétt, sem ekki getur talist vera í stéttabaráttu, nema þá helst við aðrar stéttir, þegar hún tekur sér meira en hún þarf og vel ríflega það, er þessi:

toothfairy.jpg
Lengi lifi byltingin !

mbl.is 100 flugferðir í uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bí Bí Sí og sannleikurinn

Séra sannleikur

Það er afar furðulegt að sjá fangavörðinn fyrrverandi, Hlyn Þór Magnússon, tjá sig á BBC. Fyrir nokkrum árum hélt hann því fram á athugasemdasvæði á bloggi, að Karl Schütz hinn þýski hefði verið Gestapo-maður á Ítalíu.

Fangavörður
schutz.jpg


Upphaflega var þeirri bagalegu mýtu fylgt úr hlaði í grein eftir Óttar "Mayday" Sveinsson í DV (http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2937852), þar sem síra Guðjón Skarphéðinsson hélt þessu fram í viðtali við Óttar inn auðtrúa. "Gestapómaðurinn Karl Schütz", sem Guðjón hvað hafa yfirheyrt skæruliða á Ítalíu, var allt annar maður en Karl Schütz sem kom til Íslands. Gestapo-maðurinn hét Karl Theodor Schütz.

Hlynur baðst velvirðingar á ruglinu, þegar ég greindi honum frá þessari meinloku hjá honum, en Síra Guðjón hefur aldrei leiðrétt þau ósannindi sem hann fóðraði einfeldninga í blaðamannastétt með árið 1996, nýorðinn Drottins boðberi á Snæfellsnesi.

Simon Cox, sem gerist hæstaréttadómari á BBC er svo fréttamaður sem er frægur fyrir allt annað en nákvæma eða fágaða fréttamennsku: http://bbcwatch.org/tag/simon-cox/

Sherlock

Ætli þessi Sherlock, sem ég tel víst að sé heilinn á bak við BBC fréttina, haldi að Karl Schütz hafi verið nasisti? Það er aldrei að vita. Hann segist alltaf vita allt. 

Nú fokið í flest kjól

74071rusli.jpg

Íslensk þjóðfélagsmynd breytist ótt. Ekki er langt síðan konan kom út á atvinnumarkaðinn, fór að ganga í buxum og taka allar bestu stöðurnar frá körlunum. Einstaka embættismaður þorði að ganga eins og mamma, en þá frekast á börum erlendis, þar sem talað var um list og menningu.

Pollapönkarar sýna nú veginn fyrir íslenskan karlpening. Við munum aldrei fá frið og umburðarlyndi í heiminum fyrr en karlar taka alfarið yfir eldhúsið og matseldina.

peysufot
Ruslabrandur kemur hins vegar ekkert á óvart, hann er bara að sýna okkur hundruð ára hefðir á Bretlandseyjum. Konan hans veit að hann er drusla (slut) og mömmu hans grunaði þetta alltaf. 

ruslabrandur.jpg

mbl.is Pollapönkarar og Wurst í kjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skeggjaða pylsan

rembrandur_van_reykjavik.jpg

EUROVISION: Austurríki er land öfganna. Fyrst var foringinn lítill karl með skegg á stærð við frímerki. Nú hefur hann verið kveðinn í kút af litlum pulsugerðamanni sem bregður sér í kjól. Mér líst betur á Austurríkismenn í kjól en í SS-búningi. 

Allt tal um að Austur-Evrópumenn hafi haft horn í síðu skeggjuðu konunnar er orðum ofaukið. Eins og allir vita eru 19% austur-evrópskra kvenna fúlskeggjaðar. Stigin sem gefin voru í Kreml og Kiev sýna þetta vel. Leitt að Vatíkanið fái ekki að vera með í Eurovision. 

Heimur batnandi fer. Til hamingju


Brjótið Káraspaðann !

dna_kar_stefanssonar.jpg
 

Þótt einhverjir kunni ekki að halda munnvatni yfir snilld Kára Stefánssonar, sem líklega veit manna best að það er erfðafræðilegur þáttur sem veldur því að Íslendingar gleyma mjög fljótt, þá þarf fólk ekki að styðja Slysavarnarfélagið Landsbjörg með því að gefa þeim spaðann með slefinu úr sér. Notið slefið í annað, brjótið spaðann hans Kára og gefið Landsbjörgu í staðinn 2000 krónur. Það kemur meira út úr því en að gefa bandarísku fyrirtæki upplýsingar fyrir skitnar 2000 krónur.

Er fólk virkilega búið að gleyma umræðunni um ÍE hér um árið, allri andstöðunni og rökunum gegn þessu uppátæki Kára Stefánssonar? Er fólk búið að gleyma fjarmálaóreiðunni í þessu fyrirtæki?

genbreyttur_kari_1234348.jpg
Rannsóknir ÍE hafa sýnt, að þegar menn ljúga lengjast nef þeirra.
 

Rannsóknir, sem nota á sýnin í verða aldrei "dulkóðaðar" meðan nota á "ættfræðigrunn" fyrirtækisins. 

Þegar Kári Stefánsson segir að Ísland hafi tekið for­ystu í rann­sókn­um á erfðafræði manns­ins, er hann að bæta við enn einni lyginni um starfssemi þessa vafasama fyrirtækis, þar sem hefur ríkt fjármálaóreiða sem og vísindaleg óreiða, því fæstar niðurstöður fyrirtækisins eru annað en yfirlýsingar sem ekki er hægt að sannreyna.

Myndin efst sýnir dollaragen Kára Stefánssonar. Þau eru fá og Kári þarf á meðferð að halda.

Fyrri færsla um ÍE: Heilmikið að gerast á litningi 21 


mbl.is 100 þúsund beiðnir um lífsýni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband