Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2014

Hvað sameinar danska vinstri menn og nasista ?

7133046-_1227312.jpg

Varla er nokkuð leiðinlegra en íslensk stjórnmál, ef vera skyldi þau dönsku. En nú er fjör á Hallarhólma. SF, Socialistisk Folkeparti, hefur yfirgefið stjórnarsamstarfið. Formaður flokksins Annette Vilhelmsen hefur ekki sér séð fært að halda áfram í ríkisstjórninni eftir að flokkstjórn SF hefur andmælt ákvörðun hennar og stjórnarmeðlimanna í SF að styðja við ríkisstjórnina sem vill selja 19% í orku- og gasfyrirtækinu DONG til Goldman Sachs.

Nú á eftir verður kosið um tillögu ríkistjórnarinnar um að selja 19% hlut DONG til Goldman Sachs, og þrátt fyrir brotthvarf SF úr stjórninni, verður öruggur meirihluti fyrir þeirri ákvörðun. Jafnvel hörðustu kommar í SF, eins og Ole Sohn, sem ég ber mikla virðingu fyrir sem sagnfræðingi, styðja söluna. Þeir sem ekki gera það, láta skoðanir sínar á Goldman Sachs stjórna gerðum sínum.

Nasistar mótmæla með vinstri mönnum

Við þekkjum öll sögu Goldman Sachs á síðari árum, en þegar maður heyrir fólk fyrir framan Christiansborg sem mótmælir sölunni, vegna þess að Goldman Sachs er "gyðingabanki", er ljóst hvað drífur suma vinstri menn áfram: Það er GYÐINGAHATUR Um daginn fór um Danmörku tölvubréf frá fyrrverandi yfirlækni í augnlækningum, sem hvatti fólk til að mótmæla sölu 19% hluta DONG til Goldman Sachs. Læknirinn upplýsti fólk um að Danmörk skuldaði fjölda milljarða til Rothschild Banka.  Danskir nasistar tóku þátt í mótmælum gegn sölu hlutabréfa Dong til Goldman Sachs, vegna þess "Goldman Sachs eru gyðingar."  Sumir hafa svipaðan hugsunarhátt. 

7133039-.jpg

Þennan öldung þekki ég. Við vorum einu sinni saman í norrænum vinnuhóp til að bæta við minjum á Heimsminjaskrá UNESCO. Hann er fyrrverandi prófessor á RUC (Roskilde Universitetscenter). Mjög dagfarpróður maður en með laus skrúfu þegar að því kemur að leysa t.d. atvinnuleysisvandann og önnur vandamál í Danmörku.

Svipað gyðingahatur og blossaði upp eftir hrun á Íslandi, þegar menn og jafnvel verstu bankadónarnir voru að gera því skóna að "gyðingabankar" stæðu á bak við glæpi íslensku fjáróreglumannanna: Sjá hér. Og fræg er orðin greinin eftir íslenska hagræðingin Mixa sem var á þeirri skoðun að Rotschild ættin stæði á bak við og fjármagnaði stríð, sjá hér.

samsaerisheilar.jpg
Eftir hrunið á Íslandi töldu sumir Íslendingar sig vera í gettói og fórnarlömb helfarar meðan aðrir kenndu gyðingum um stöðuna.

 

Fyndið, jafnvel neyðarlegt, er að sjá hvernig sumir meðlimir SF, sem er nú klofinn í herðar niður sem flokkur, tala um "baráttu gegn heimskapítalismanum" og um að flokkurinn eigi að vera "afgerandi sósíalistaflokkur". Hvernig á að útrýma atvinnuleysi í Danmörku? Kannski með heimilisiðnaði og föndri?

Danska ríkisstjórnin er nú minnihlutastjórn Krata og Radikale Venstre (sem er einn af systurflokkum Framsóknar) þótt stefna Framsóknar og Radikale Venstre séu á allan hátt ólíkar. Nú er veik stjórn í Danmörku, og heldur varla velli mjög lengi, vegna þess að nöfnin Goldman og Sachs fara illa í "ekta" sósíalista í Danmörku. Þeir og nasistar vilja ekki að DONG sé selt úr landi, vilja helst reka fyrirtækið sem ríkisstofnun. Kallaðist það ekki hér um árið þjóðernissósíalismi eða var það kannski þjóðernisrómantík...?

kolkrabbinn.jpg

Mótmælendur DONG-sölunnar nota kolkrabbann líkt og nasistar gera á teikningum sínum litla myndin er af síðu andsíonista.


Sendisveinar Obama

image.jpg
 

Björn Bjarnason og Evrópuvaktin birtu í gær áhugaverða greiningu á útnefningu nýrra sendiherra Bandaríkjamanna á Íslandi, í Noregi og Ungverjalandi. Þeir einstaklingar sem Obama-stjórnin tilnefndi komu fyrir nefnd, U.S. Senate Committee on Foreign Relations, þ. 16 janúar sl. Sjá upptöku hér. Ég er á því að slík nefnd væri nauðsyn á Íslandi. Fólk verður að kunna eitthvað, vita eitthvað og kunna sig sem fulltrúar landa sinna, en jafnframt bera virðingu fyrir þeirri þjóð sem þeir eru fulltrúar fyrir.

Greinilegt er að Norðmenn fá ekki skarpasta hnífinn í skúffunni, þegar Georges James Tsunis (mynd efst) sest á stól sendiherra BNA í Noregi. Tsunis er af grískum ættum, sonur fátækra innflytjanda sem náðu í skerf af ameríska draumnum. Hann hefur sjálfur risið hátt í lögfræðifyrirtækjum og hótelbransanum, og keypt sér áhrif. Nú er verið að launa honum greiðann.

Fáviska sú sem Tsunis sýndi fyrir nefndinni, þegar kom að stjórnmálum í Noregi, var afar neyðarleg. John McCain gerði réttilega grín að frammistöðu sendiherraefnanna. Því sem Tsunis þurfti að svara, hefði hann getað kynnt sér áður á hálfsdags hringferð á veraldarvefnum. Tsunis varð svara vant, strandaði í svörum sínum, talaði um forætisráðherra Noregs sem forseta og var fullur af vanþekkingu á Framfaraflokknum í Noregi, en það er þó ekki að undra miðað við hvernig heimspressan hefur brennimerkt þann flokk af vanþekkingu. Í salnum fyrir aftan spyrjendur voru greinilega blaðakonur frá Noregi, sem hristu hausinn yfir frammistöðu Tsunis.

journalist_not_impressed.jpg
 
colleen-bell-and-bradley-bell-lacmas-art_3594514_1226479.jpg
Bell hjónin, bold and beautiful
 
Verðandi sendiherra BNA í Ungverjalandi heitir Colleen Bradley Bell. Hún fer til lands þar sem kynþáttafordómar og öfgar eru stórt vandamál. Hún sýndi líka mjög mikla vankunnáttu. Hún er framleiðandi Bold and the Beautiful-þáttanna, sem er furðulegt þegar tekið er tillit til þess að hún er demókrati. Hún fékk góða kennslustund um fasismann og öfgarnar í Ungverjalandi. Hún var mest beautiful.
rob_c_barber_1226481.jpg
Rob Barber nýr sendiherra BNA á Íslandi.

 

Nýr sendiherra BNA á Íslandi, Robert C. Barber, slapp best í gegnum nálaraugað af þeim þremur sem prófið þreyttu. Þetta virðist vera ágætis maður, 63 ára lögfræðingur. Barber er fæddur deap down in Georgia og ólst upp í Suður-Karólínu. Hann kann að setja sig inn í efnið og hann hafði unnið heimavinnuna sína. Vonandi verður hann ekki eins mikill trúður og fráfarandi sendiherra, sem bauð íslamistum í veislu einn daginn og samkynhneigðum hinn daginn (sjá hér). Sagt er að Barber hafi lokið prófið hinum fína menntaskóla Philips Academy árið 1968. Hann er enn ekki kominn á "vegg" fyrir merka nema í þeim skóla (m.a. George W. Bush), en kemst það líklega eftir veruna á Íslandi.

Takið annars eftir hrósi Senators Benjamin Cardins um Ísland (ca. 1:09) sem er eins og klippt og skorið út úr ræðu eftir Ólaf Ragnar Grímsson. Þetta gleymdi Björn Bjarnason að nefna !


Það eru víðar til svín en í Póllandi

mord-rytualny_2_1226343.jpg

Pólverjar eru ekki svo ósvipaðir Íslendingum. Gyðingahatur er æði mikið meðal beggja þjóða, jafnvel þótt að á Íslandi hafi vart búið gyðingar svo heita mætti, og þó svo að gyðingum Póllands hafi verið útrýmt og þeir sem eftir urðu hafi verið flæmdir í burtu af kommúnistum.

Nýleg rannsókn, sem fór fram í Póllandi og gerð var af háskólanum í Varsjá, sýnir að meirihluti Pólverja álíti að gyðinglegt samsæri sé á bak við banka og fjármál heimsins sem og fjölmiðlana. 90% Pólverja segjast hins vegar aldrei hafa hitt fyrir gyðing.

Rannsóknin leiddi einnig í ljós 8% aukningu síðan 2009 á meira "hefðbundnu" gyðingahatri. 23% Pólverja trúa því nú að Gyðingar hafi myrt Jesús og noti blóð kristinna við ýmsar helgiathafnir.

Gott fólk í Póllandi hefur áhyggjur af þessari þróun, en samt heyrast raddir í pólska þinginu, Sejm, sem telja gyðinga í Póllandi föðurlandssvikara. Lesið greinina í Haaretz. 

Til að bæta svörtu ofan grátt, ofan á allt gyðingahatrið sem er daglegur viðburður í Póllandi, þá ákváðu menn nýlega að hengja upp málverk frá 18. öld í dómkirkjunni í Sandomierz, sem sýna á morðathafnir Gyðinga á börnum fyrr á öldum.  Sjá hér og myndina efst. 

Slík upphenging er kannski ekki mikið verri en þegar menn lesa Passíusálmana á Íslandi. Hvortveggja er ósmekkleg tímaskekkja.

En kommúnistar, nasistar og múslímar léku sér einnig, og leika sér reyndar enn, af ásökunum á hendur gyðingum fyrir barnamorð, þar sem gyðingar eru ásakaðir um að nota blóðið í t.a.m. hin ósýrðu brauð á Páskum sínum. Nú hefur þessi miðaldaóskapnaður verið færður yfir á Ísraelsríki, sem allir fullgildir sérleyfishafar á réttar skoðanir til vinstri vaða í frumstæðum hatursáróðri gegn Ísrael.

images_1226345.jpg
iran-cartoon-gaza4_1226347.png

Wer im Glashaus sitzt, sollte nicht mit Steinen werfen

15267728056459584803.jpg

Ummæli illa upplýsts fréttamanns á RÚV, (og eru hann einn margra slíkra), hafa dregið dilk á eftir sér. Svo virðist sem í austurríska handknattleikssambandinu, Österreichischer Handball Bund, séu menn jafn sögulausir og starfslið RÚV, því sambandið "ætlar að leita réttar síns" út af ummælum íslenska fréttamannsins sem lýsti  íslenska landsliðinu sem "þýskum nasistum sem slátruðu Austurríkismönnunm árið 1939".

Fáum hlutina á hreint: Þó svo að menn séu fádæma illa að sér á Fréttastofu RÚV, visir.is sem og á sænskum og þýskum fjölmiðlum, þá réðust Þjóðverjar ekki á Austurríki árið 1939 og Austurríkismönnum var aldrei slátrað. Þeir tóku hins vegar þátt í slátruninni. Innlimum Austurríkis í Þýska Ríkið átti sér stað í mars 1938 og hét sú innlimun Anschluss, sem Austurríkismenn tóku að mestu leyti með stillingu. Síðar kusu Austurríkismenn að tilheyra Þýskalandi í frjálsum kosningum, og allir vita líka að Adolf Hitler kanslari Þýskalands var Austurríkismaður.

Íslenska landsliðið slátraði ekki einu sinni Austurríkismönnum, eins og þýski herinn slátraði gyðingum og í þeim her voru Austurríkismenn, og foringi þeirra var Austurríkismaður. Ekki veit ég hve margir handknattleiksmannanna úr liðunum á myndinni efst, sem hittust á Makkabí-leikunum, heimsleikum gyðinga, í Berlín haustið 1936, fórust í helförinni. En ef til vill voru slátrarar þeirra í þeim liðum frá Þýskalandi, Danmörku, Austurríki og Svíþjóð sem kepptu í handbolta í febrúar árið 1938 í Þýskalandi?

82090752.jpg
Nasistabolti árið 1938. Þýskaland vann mótið og innlimaði mánuði síðar Austurríki.
 

Anschluss varð til þess að gyðingar í Austurríki misstu öll sín réttindi, og síðar var þeim sem ekki tókst að koma sér í burtu ekið í fanga- og útrýmingarbúðir. Vonandi veit Austurríska Handknattleikssambandið þetta. Stundum er ég í vafa um, hvort nokkur viti þetta á fréttastofu RÚV, því þar er enn slíkur óheyrilegur áróður í garð Gyðinga og þjóðríkis þeirra, sem m.a. varð til vegna árásar Þjóðverja á Austurríki og meðreiðar Austríkismanna í helförinni. Halda mætti að annar hver í ungliðadeild fréttastofu RÚV væri öfgafullur gyðingahatari.

Austurríska handknattleikssambandið getur vart leitað réttar síns yfir fávisku Íslendings hjá ríkisfjölmiðli, en ef menn þar á bæ eru jafn illa af sér í morðsögu nasismans, þá ættu þeir að minnast þeirra gyðinga sem bannað var að stunda íþróttir eftir Anschluss í mars 1938 og sem síðar voru sendir í dauðann af Þjóðverjum og meðhjálpurum þeirra, Austurríkismönnum, sem tóku svo um munar þátt í helförinni! Það verður ekki af þeim skafið.

Nú þegar Björn Bragi Arnarsson, sem hlýtur að hafa verið fallisti eða tossi í sögu, ef hún hefur þá yfirleitt verið kennd í þeim skólum sem hann sótti, er búinn að biðjast afsökunar, væri kannski við hæfi að Österreichischer Handball Bund bæðist einnig afsökunar á vankunnáttu sinna manna á sögu landsins.

Og hvenær baðst svo austurríska handboltasambandi afsökunar á þessu framferði í Vín í maí 1937 ? Þetta vara greinilega mikil nasistaíþrótt sem laðaði að sér öfgar - og gerir því miður enn. Þetta gerist einnig í öðrum íþróttagreiningum. Sjá hér og neðst, þegar króatískur leikmaður heilsaði að hætti fasista eftir leik við ... Íslendinga.

15_mai_1937_1226325.jpg


Þegar þaga á Ísrael í hel ...

invitation_public_fr_small_1226226.jpg

UNESCO, menningarstofnun Sameinuðu Þjóðanna, bannaði á síðustu stundu sýningu um Ísrael sem opna átti 20. janúar næstkomandi í aðalstöðvum stofnunarinnar í París.

Sýningin, sem ber heitið "People, Book, Land - The 3,500 Year Relationship of the Jewish People and the Land of Israel", er unnin af Simon Wiesenthal stofnuninni í samráði og samvinnu við UNESCO og aðra aðila. Búið var að bjóða til sýningarinnar en hryðjuverk innan UNESCO veldur því að hætt hefur verið við sýninguna, alveg eins og gert er við myndlistasýningar sem þykja of klámfengnar.

Ísrael og sýning um ríkið og þjóð gyðinga fer fyrir brjóstið á öfgamúslímum og mörgum stuðningsmönnum þeirra á Vesturlöndum - og samkvæmt nýjustu fréttum eru það einnig viðrini í stjórn Obama sem standa á bak við bannið á sýningunni.

Sannast hér með að allur heimur araba og múslíma vill Ísraelríki feigt og reynir að koma í veg fyrir að heimurinn geri sér grein fyrir því að landið hefur verið kjarni tilveru Gyðinga í meira en 3500 ár.

Forstöðumaður Simon Wiesenthal stofnunarinnar, Rabbí Marvin Hier hefur  m.a. sagt:

UNESCO er ekki ætlað að vera ritskoðunarstaður ... stofnuninni er ekki ætlað að neita einni þjóð um sögu sína" 

Nú eru gyðingar ekki myrtir í útrýmingarbúðum í Evrópu eins og fyrir 70 árum síðan, en reynt er með öllum ráðum að útrýma sögu þjóðarinnar, sem líka markaði spor í löndum eins og Sýrlandi, sem nú er verið að eyðileggja - ja með blessun UNESCO, sem heldur ekki sagði neitt þegar einræðisherra Sýrlands byggði hraðbraut til flugvallar Damaskusborgar og ruddi burt stærsta grafreit gyðinga í Miðausturlöndum. Saga UNESCO er ljót og stútfull af tvískinnungi og hatri.

Sjá frekar hér


Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband