Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Hollenskur fréttasnákur

cartoon_20081011

Í nokkurn tíma hef ég fylgst með skrifum hollensks fréttasnáps á Ísland, sem m.a. ritar greinar í NRC Handselsblad í Hollandi. Maður þessi heitir Jan Gerritsen og er skráður til heimilis á Íslandi.

Að mínu mati hefur þessi maður ekki það til brunns að bera sem góður blaðamaður ætti að hafa. Greinar hans eru mjög litaðar af ákveðinni pólitík á Íslandi, og stundum hefur hann greinilega ekki skilið það sem hann er að skrifa um.

Mig grunar, að greinar hans gætu hugsanlega verið ein af ástæðunum fyrir neikvæðni þeirri sem sumir Hollendingar bera í garð Íslendinga allra vegna umfjöllunanrinnar um Icesave i Hollandi. Hann fer t.d. með fleipur í grein sinni: Akkoord over schuld Icesave, þar sem skilja mætti að Ísland hafi þegar gengið frá samningum og samþykkt afarkosti Breta og Hollendinga. 

Þegar þessum samningi verður hafnað, hverju lýgur Gerritsen þá í NRC?

Nú síðast sá ég Gerritsen bregða fyrir á heimasíðu Jón Baldvins Hannibalssonar.

Við Jan Gerritsen og aðra Stórhollendinga segi ég bara:

Godverdomme, Nederlanders - Stop het Ijssave in je nauwe gaatje !

Íslendingar eiga ekki að ganga að meingölluðum samningum við Hollendinga, sem skildi nýlendur sínar eftir í betri ásigkomulagi en því sem þeir ætla að skilja Íslendinga eftir í nú.  Hollendingar kröfðu ekki eins mikils af Þjóðverjum eftir síðari Heimsstyrjöld, og sættu sig við að lepja dauðann úr skel meðan að Þjóðverjar fengu Marshall hjálp sem þökk fyrir þjóðarmorðin (sem margir Hollendingar hjálpuðum þeim reyndar dyggilega með).

Íslenskur almenningur ber enga ábyrgð á mistökum hollenskra sparifjáreiganda. Hollendingar treystu (íslenskum) glæpamönnum á alþjóðamarkaði fyrir peningunum sínum. Hollendingar ávöxtuðu ekki peninga sína hjá íslensku þjóðinni, þeir létu glæpamenn fá þá til að ávaxta þá. En Hollendingar verða að eiga það við íslensku glæpamennina. Það er verið að leita þá uppi nú og frægur dómari, madame Eva Joly, hefur verið fengin til þess að vinna í því 4 daga í mánuði.

Icesave svikamyllan er ekki  "kollektief schuld" Íslendinga. Þetta tap gráðugra Hollendinga kemur ekki íslensku þjóðinni við.  Við erum og vorum ekki með evrur á tilboði.

Skrifaðu það og skrifaðu sannleikann, Jan Gerritsen! Mundu hvað Íslendingar gerðu við nafna þinn Jón Gerreksson..... Við getur orðið mjög reið þjóð.


Komdu og skoðaðu í kistuna mína...

Im dead

Fjölmiðlar alheimsins birtu í dag síðustu myndirnar af Michael Jackson.

PostDoc Kaupmannahafnarpóstur hefur gegnum sambönd í BNA fengið sendar myndir frá krufningunni. Geri aðrir betur.


Láttu ekki breyta þér í svín

 

Útrásarsvín

Þú íslenski erkiasni,

láttu ekki breyta þér í svín

eða draga þig á asnaeyrum

af geltandi langhundum Stór-Evrópu.

 

Vertu maður en ekki mús!

Þú ert hvort sem er 

 ekki velkominn í hið evrópska hús.


Hvað er kreppa eiginlega?

 

poland-ghetto-warsaw-5-13148-large
 

Kvikmyndabrot þau sem þið getið séð hér með því að klikka á slóðirnar og svo á píluna í myndarammanum sem birtist, sýna ástandið í gettóinu í Varsjá í maí 1942. Kreppa Íslendinga hefur verið borin saman við ástandið í gettóum Evrópu á íslenskum bloggum og siðmenntað fólk með hærri og hreinni siðferðiskennd en aðrir Íslendingar, (les vinstrimenn), bera gjarnan sjálfskaparvítið á Gaza við gettóin sem nasistar smöluðu gyðingum í.

http://www.bagnowka.com/flv.php?video=warsaw_ghetto_1942

www.bagnowka.com/flv.php?video=warsaw_ghetto_2

http://www.bagnowka.com/flv.php?video=jewish_police

Það sem þið sjáið á þessum myndskeiðum er fólk sem ekkert hafði, og sem ekki gat barist fyrir rétti sínum. Það hafði ekki sjálfstæði eða vopn, engar varnir. Þeim voru allar bjargir bannaðar. Enginn, ekki einu sinni hreinhjartaðir kratar á Íslandi, talaði máli þeirra.

Íslendingar halda enn grillveislur í miðri kreppunni, aka jeppunum sínum á gangstéttum um leið og þeir hugsa um offitu barna sinna og um ICESAVE i kapp við aumingja Björgólf Thor.

Íslendingar hafa í raun allt til alls. En þeir geta líka misst allt, ef þeir ákveða að afsala sjálfstæði sínu til gráðugra herraþjóða í Evrópu, sem eru að rukka skuld sem ævintýramenn og álfar á Íslandi skelltu á þjóðina. Ríkistjórn á ekki að vera í hlutverki lögreglunnar i gettóinu (3. kvikmyndin), sem tuktar alla til, til að þóknast ógnvaldinu.

Ísland er enn sjálfstætt ríki. Ef einhverjir Samfylkingarmenn og aðrir landsölumenn vilja ganga erinda manna í útlöndum, geta þeir flutt til útlanda og baðað sig í evrum og "frelsi".

ESB er einfaldlega andstætt eðli Íslendinga.


Þvílík og önnur eins starfsorka

Fluga

Nýlega skrifaði ég færslu um „litlu býfluguna" hana Joly .  Nú er ég í vafa um greininguna á þessu norska fyrirbæri. Er þetta ef til vill dægurfluga eða bara fiskifluga?

Það er augljóst að kerlingin má ekkert vera að því að kafa í skít á Íslandi, enda kemur hún hingað aðeins nokkra daga í mánuði, mest til að halda fjölmiðlum og ríkisstjórninni við efnið. Fyrir það fær hún 1,3 milljón á mánuði og það er greinilega ekkert mál að yfirfæra það á reikning maddömunnar í París þrátt fyrir 500.000 kr. yfirfærsluloft á gjaldeyri á mánuði, sem venjulegar býflugur sem fóðra þetta norska fyrirbæri þurfa að sætta sig við.

Nú er hún líka komin með stöðu við háskólann í Þrumu og Fiskerihøgskolen. Já, svo fiskifluga er líklega rétt greining. Til hamingju Madame. Ekki með það að vera fiskifluga, heldur stöðuna þarna í landi Samanna, sem Norðmenn hafa níðst á í aldaraðir. Þeir geta kannski ráðið þig líka?

Stjórnmálin í ESB taka líka mikinn tíma hjá frúnni. Fyrst konan er svona hlaðin starfsorku, ætti hún líka að geta fengið starf í auglýsingum, til dæmis fyrir Duracell rafhlöður. Hvað með norskukennslu í RÚV?

En hvað getur ein manneskja annars verið á launalista á mörgum stöðum í einu án þess að menn fari að gruna hana um græðgi? Kann hún sér yfirleitt hóf? Er kannski dálítill Íslendingur í henni?  Eða er hún kannski alveg eins og vondu Kanarnir sem hún réðst á í ræðu sinni í Tromsø, þegar hún sagði: „Fáir einstaklingar hafa rænt til sín miklum fjármunum með því að halda því fram að þjónusta þeirra sé algerlega nauðsynleg," og bætti við: „Þegar Bandaríkin hnerra fær restin af heiminum kvef," og benti á að Bandaríkin hefðu 25% af brúttó þjóðarframleiðslu heimsins og að 72% af þjóðarframleiðslu Bandaríkjanna væri byggð á neyslu, neyslu sem minnkaði í takt við þau 1,1 milljón störf sem nú hyrfu í því landi í hverjum mánuði.

Á heimasíðu háskólans í Tromsø er haft eftir rektor:  - Vi sørger for en stilling til henne, det er bare formalia. Já, rektor hefur augsjáanlega komist í feitt. Nú fær skólinn almennilegan Ameríkanahatara til að halda uppbyggilegar ræður um sýkingar frá BNA.

Ef þessi gífurlega orka eru bara norsk Messíasar-heilkenni, en ekki amerísk græðgi og neysla sem hrjáir Joly, vonar maður bara að þeir peningar sem hún fær fyrir „formalia" og önnur störf renni í sjóði eða eitthvað skynsamt. Vonandi er starf hennar á Íslandi ekki bara "formalia" sem endar áður en botninum er náð.

Kannski ætti maður að hafa samband við Philippe Cohen, rannsóknarblaðamanninn sem sérhæft hefur sig í flugum eins og Joly?


mbl.is Eva Joly: Botninum ekki náð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ber er hver að baki nema sér Borat eigi

I SAVE YOU

Fitch setur Ísland í flokk með Kasakstan. Þetta gleður Borat frænda sem segir: I SHAVE LIKE ICELAND VERY MUCH TOO

Í hvaða deild ætli spaugararnir hjá Moody's og Standard og Poor's setji okkur?  Jagshemash??


mbl.is Í sama flokki og Búlgaría, Króatía og Kasakstan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kann ekki einu sinni samningaensku

Honni
 

Allt Icesave málið verðu sífellt augljósara, sérstaklega slæleg frammistaða íslensku samninganefndarinnar undir forystu Svavars Gestssonar sendiherra (á framlengingu) í Kaupmannahöfn. Megabloggarinn Jón Valur Jensson birtir úrdrátt úr viðtali á Útvarpi Sögu við Magnús Thoroddsen hrl og fyrrverandi forseta Hæstaréttar, sem sagði:

„Það er kannski skrýtnast í sambandi við þetta, að þessi maður [Svavar Gestsson] hafði verið valinn sem formaður í nefndinni. Hann er hvorki lögfræðingur né, að því er égveit, haft nokkra reynslu í sambandi við samninga af þessu tagi. Og ég vil bara leggja áherzlu á það, að enskt lagamál, það er allt öðruvísi heldur en venjuleg enska. Og menn, sem kunna að vera góðir í enskri tungu, þeir skilja ekki samninga á ensku, alls ekki til fullnustu, að minnsta kosti, ég fullyrði það." (zeturnar er í boði Jóns Vals)

Þetta er líklega rétt hjá Magnúsi. Ekki lærði Svavar samningaensku við HÍ þau ár sem hann kallaði sig stud. jur. Á PHS, Parteihochschule Karl Marx(Rotes Kloster) am Köllnischen Park, i Berlín lögðu menn áherslu á nómenklatúru og Volkswirtschaftslehre, en ekki samningaensku. Þeir sem voru á Institut für Ausländerstudium (Ernst Thälmann Institut hjá Johnny Norden) gætu hugsanlega hafa sótt kúrsa á Lehrstuhl Politische Ökonomie des Kapitalismus, en ekki til annars en að nema þar ókosti og dekadansa Kapítalismans. Sem sagt, engin samningaenska, aðeins kommúnistískt orðagjálfur.

Á þessum síðustu og verstu tímum,  þegar fólk með potta, pönnur og nómenklatúr ringulreiðarinnar hefur sett „ómenntaðan" seðlabankastjóra af, legg ég til að búsáhaldadeildin ærist dulítið yfir manni sem kann meira í kommúnistískum nómenklatúr en samningaensku, en sem á að hafa fyrir okkur vitið í mikilvægustu ákvörðun sem þjóðin hefur þurft að taka.


Er Ögmundur kominn á breytingaraldurinn?

ESB PMS

lýsir hann yfir stuðningi við ESB-aðildarviðræður, já meira að segja aðildarumsókn í allri sinni dýrð.  Miklar breytingar eru greinilega yfirvofandi. Ögmundur lýsir, eins og kunnugt er, gjarnan yfir stuðningi við Hamas og Hizballah, sem ESB skilgreinir sem hryðjuverkasamtök. Mikið verður Mundi að breyta sér til að komast inn í ESB. Það þýðir ekkert að vera stuðningsmaður Hamas, þegar maður vill aðild að ESB. Ég sé fyrirsögnina fyrir mér í stórblöðum Evrópu: Icelandic EU application spokesperson supports Hamas  -  Nei, það gengur auðvitað alls ekki.


Icelandic Trash

White trash
 

Tvær ESB-þjóðir eru að gera Íslendinga að ruslaralýð, sem á endanum fer á vergang og verður flóttamannalýður í ESB löndunum.

Fitch, Moody's og Standard og Poor's eru að sögn bölmóðra stuðningsmanna ríkisstjórnarómyndarinnar okkar, að setja Íslendinga í ruslaflokk. Við erum að verða að skrásettum ruslaralýð. Nokkrir Mammonsrunkarar hjá þessum matsfyrirtækjum hafa lýðveldið okkar í höndum sér. Okkur verður rusluð út um allar jarðir, þegar þeir eru búnir að ljúka sér af. 

Við kusum nefnilega yfir okkar ruslastjórn, sem lét 3. flokks ruslakommúnista með flokksþjálfun frá DDR ganga frá ruslasamninga við Breta og Hollendinga, þar sem við verðum urðuð á ruslahaugi sögunnar, því Landsbankaeignir eru svo mikið rusl, að þær ná aðeins upp í 83% skulda sem ríkisstjórnin ætlar að neyða Íslendinga til að greiða Bretum og Hollendingum. Var nema von að Bretar og Hollendingar vildu ekki láta ruslþjóðina sjá neyðarlega samninginn? Það var stór hætta á því að einhverjir meðal ruslalýðsins áttuðu sig á því hvað um væri að vera.

Eignir Landsbankans rýrna enn meira ef við verðum sett í öskuna af skrásettum ruslaralýð í boði Fitch, Moody's og Standard og Poor's.

Íslenskur ruslalýður verður að sætta sig við að Herraþjóðirnar í Evrópu, sem tókst að sameinaða það sem Hitler mistókst, valta yfir 300.000 manna þjóð, sem var svo einföld að hún lét nokkra gráðuga gauka velta hagkerfi sínu. Herraþjóðirnar í ESB, sem af og til hella peningum í hryðjuverkalið í Palestínu til að ganga frá lýðveldinu Ísrael (og ljúka verki Hitlers), vill nú mergsjúga Íslendinga út af sparireikningum gráðugra Hollendinga og Breta, sem trúðu því að í ruslaríkinu Íslandi væru til menn sem breytt gætu lofti í peninga. Það er þá ekki bara annars flokks þjóð og ruslararlýður sem trúir á slík ævintýri?

Íslendingar, sem gefast upp, geta svo hæglega sótt um hæli sem flóttamenn í ESB og skýrt umsókn sína með að að Hollendingar og Englendingar hafi þvingað þá frá heimilum sínum og ættjörð vegna meintra hryðjuverka nokkurra aðila sem stóðu á bakvið ICESAVE-svindlið.

Flytjum öll til ESB og krefjumst hælis vegna valdbeitingar og fjármálaþvingana ESB ríkja. Við munum örugglega fljótlega fá aðstoð frá ESB löndum. Gervilimina eigum við á lager.

Burt með ríkisstjórnina

Burt með Icesave þrælasamninginn

Burt með hugaróra um ESB-aðild (ESB safnar ekki rusli)


Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband