Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Hundingjastjórnmál

 

stýra

 

Jóhanna Sigurðardóttir, hýra Stýra, er búin að kynna sitt fyrsta verk sem forsætisráðherra, áður en hún er sest í stólinn. Hún ætlar að reka Davíð Oddsson. Brottrekstrarástæðan er eins og oft tíðkaðist í Ráðstjórnarríkjunum sálugu: "Mér líkar ekki við þig". Davíð Oddsson fær Berufsverbot. Jóhanna gefur þjóðinni syndaaflausn.

Ég hlakka til að sjá röksemdirnar, sem Jóhanna verður líklega að borga mikið fyrir, nema að hún ætli sér að brjóta fleiri lög á la Stalin.

Þessa frétt át ég hráa upp af Eyjunni.

David RIP
David R.I.P.

Um Jónas

 
Kotel velvel

 

Jónas Kristjánsson hefur alltaf staðið í huga mér sem maður sem hataði mjög mikið. Kannski hef ég misskilið hann. Mér líkar margt af því sem hann hefur skrifað. En orðið gyðingur veldur honum greinilega miklum vanda. Andlegum frekar en stílfræðilegum.

Hér fyrr á árum í dagblöðum, sem hann ritstýrði og skrifaði í, var hatrið gegn Ísrael magnað. Jónas notaði rýtinginn óspart á gyðinga, og sagði þeim, þótt nær engir væru til á Íslandi, ærlega til syndanna.

Jónas heldur því nú fram, að "Orðið gyðingahatur sé notað til að hindra frjálsa umræðu um hættulegustu ríki heims". Eitt af þeim ríkjum, ef ekki það einasta, mun að sögn Jónasar vera Ísraelsríki. Hann hvetur svo menn til að hætta að kaupa vörur frá Ísrael.

Jónas kallar hins vegar smádeilur á Íslandi gyðingaofsóknir. Leiti maður að orðinu gyðingur og t.d. í þolfalli á bloggi Jónasar, www.jonas.is, má fljótt sjá að Jónas hefur Gyðingaþjóðina alla, nú og forðum, á hornum sér.

Jónas situr enn við sinn sama keip. Nú tjáir hann okkur, að í Ísrael sé ríkjandi Hitlerismi og að hann kaupi þess vegna ekki ísraelskt.  Reyndar held ég, að enginn maður skrifi meira um gyðinga en Jónas, nema vera skildi ég.

Jónas vitnar meira að segja í mig, og Johnny heitinn, rasistakúreka sem ég fékk sheriffinn af Bloggheimum til að gera útlægan af moggabloggi vegna gyðingahaturs. Það þótti Jónasi gott! .... en Jónas segist hins vegar vera á móti ritskoðunum á afneiturum Helfararinnar. Mig minnir líka að Johnny hafi afneitað helförinni.

Stundum veit maður ekki hvað gamli Jónas er eiginlega að fara. Hann skrifar líklega ekki mikið á tölvur sínar ef hann verslar ekki á einn eða annan hátt við hið vonda "hryðjuverkaríki" Ísrael, sem hann kennir við Hitler. Það er kannski ekki  INTEL INSIDE  í tölvunni hans Jónasar Kristjánssonar?

Er yfirleitt Intel Inside Jónas?

Eða er þetta eins og menn segja í Póllandi. Intel indide - Idiot outside?

 

P.s. ég fann ekki neina góða mynd af Jónasi Kristjánssyni. Nokkrar fann ég, en þær voru ekki góðar.  Ég vona að hann fyrirgefi mér myndina sem ég notaði í staðinn, sem tekin var í Jerúsalem síðast þegar ég var þar. Getið þið fundið mig á myndinni þarna mitt í Hitlerismanum?


Skríllinn eyðileggur líka fornminjar

 
Eyðilegging þjóðararfsins

 

Samkvæmt fréttum DV munu einhverjir mótmælendur við Alþingishúsið hafa farið inn á Alþingisreit, þar sem fornleifarannsóknir hafa verið í gangi og rifið þar upp fornleifar til að kasta í Alþingishúsið.

Fornleifafræðingurinn Vala Björg Garðarsdóttir, sem ber ábyrgð á rannsókninni, þorir ekkert að segja í einhverjum heigulshætti. Þetta er of alvarlegt mál til þess að þeir sem bera ábyrgð á rannsókninni geti ekki tjáð sig um það. Hvað ætlar Vala að skrifa í skýrslum sínum? Kannski: Fornleifar voru þarna, nú eru þær farnar.

Sem doktor í fornleifafræði krefst ég þess af Fornleifavernd Ríkisins og nefndum og Menntamálaráðuneyti, að fram fari lögreglurannsókn á þessum eyðileggingum og þjófnaði á fornleifum nú þegar.

Ef sökudólgar finnast ekki, er ljóst að „skríllinn", stuðningsmenn nýrrar ríkisstjórnar bera alla ábyrgð. Ríkisstjórnin, sem nú er í burðarliðnum, var þá hvött til valda af þjófum og skemmdarvörgum.

Þetta er ekkert annað en nútíma bókabrenna. Það er verið að eyðileggja sögu þjóðarinnar.

Hér , hér  og hér getið þið einnig lesið um hvernig fornleifar eru skemmdar í Jerúsalem. Eyðilegging Jerúsalems er líka enn í gangi.


Ný ríkisstjórn mun slíta stjórnmálasambandi við Ísrael

 

Discofat

Allt bendir nú  til þess að ný ríkisstjórn á Íslandi hafi eina alveg pottþétta áætlun, sem hrint verður í framkvæmd innan skamms: Áframhald helfararinnar.

Samkvæmt áreiðanlegum fréttum er ætlunin að slíta stjórnmálasambandi við Ísraelsríki, ... já fyrir utan allar tiltektirnar í Seðlabankanum.

Sambandsslitin við Ísraelsríki hafa lengi verið mikið hjartans mál fyrir núverandi utanríkisráðherra og algjört kappsmál fyrir nýliðana í stjórninni, Steingrím rauða og Ögmund græna, sem að mínu mati eru sams konar karakterar og hjólhestasalinn á Hverfisgötunni, sem ég bloggaði um hér á undan, að ógleymdum meðlimunum í discosullbandinu Mezzoforte, sem afþökkuðu vinnu í Ísrael vegna fordóma sinna og vanþekkingar. 

Ekki er við öðru að búast í landi, þar sem hægt er að brjóta hegningarlög með því að ráðast á gyðinga, eða þar sem Hamas-talsmönnum er leyft að halda því fram ÓÁREITT, að það hafi ávallt verið ásetningur Ísraelsmanna að útrýma Palestínumönnum.  Á Íslandi er hægt að svívirða trú og uppruna gyðinga án þess að yfirvöld geri nokkuð í málinu. Moggabloggið má nú eiga það, að það hefur verið að reyna að vinsa út verstu hatursbullurnar, en það er mikið verk, enda margar slíkar til. 

Hér getið þið lesið um afa hljómsveitastjórans í Mezzoforte, sem starfaði í Þýskalandi, þegar Hitler var að sölsa til sín völdin. Einhvern tíma skrifa ég meira um Eyþór Gunnarsson, afa rétttrúnaðardiskópopparans Eyþórs Gunnarssonar, sem ekki vill spila í Ísrael.


mbl.is Afþakkaði tónleikahald í Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjólarasistinn á Hverfisgötunni

 
Judar_jpg_280x600_q95

Á 4. áratug 20. aldar var brandari nokkur í umferð í Hollandi. Hann hljóðaði þannig: "Hvað er það hraðasta sem þú hefur séð nýlega?" Svarið var: "Gyðingur frá Þýskalandi á hjóli"

Nú eru gyðingar ekki velkomnir á reiðhjólaverkstæði í Reykjavík (Borgarhjóli), þar sem eigandinn, Maggi, er vinstrisinnaður. Sjá

Magnus_Orn_jpg_550x400_q95
Maggi hjólarasisti með skeifu

 

Hvað ætli verði fyrsta utanríkispólitíska verk nýrrar ríkistjórnar?  Stjórnarslit við Ísrael?

Gott að flestir gyðingar á Íslandi eigi bíl, ég segi ekki annað, svo þeir þurfi ekki að versla við Magnús Örn hinn súra sósíalista í Borgarhjólum á Hverfisgötunni, sem ekkert vill fyrir gyðinga gera.

Ætli Ingibjörg Sólrún geri ekki þennan hjólvitlausa mann að utanstjórnar-utanríkisráðherra?

 

Gyðingar á hjólatúr
Hjólasveit gyðinga er til í slaginn

Úr sögubókum framtíðarinnar

Hundrað í hættunni

Einu sinni var kreppa á Íslandi. Í stað þess að gera eitthvað til að sporna gegn kreppunni, hugsuðu menn sér gott til glóðarinnar. Nú gátu þeir sem aldrei hefðu annars orðið forsætisráðherrar, orðið það. Í kreppu hugsar fólk nefnilega ekki rökrétt. Þjóðin fór í pólitískan slag í stað þess að bjarga sér frá langvarandi eymd.

Eftir að IMF-láninu var skilað til vonda fólksins sem átti peningana, elti ólánið þjóðina undir forystu rauðs forystusauðs sem þjóðin elti yfir öræfi vandamálanna. Hann vildi koma á jöfnuði en myndaði eitt vesta lögregluríki Norðurlandanna, uns allt batnaði rúmum 100 árum síðar, og Ísland tók aftur upp stjórnmálasamband við Ísraelsríki, eina landið sem Ísland vildi ekki eiga samskipti við árið 2009. Stytturnar af Skallagrími og Imbu voru loks teknar niður eða brotnar árið 2109 og sendiráðinu í Gaza var lokað.

Á þeim tíma, sem allt fór til fjandans var mikill leiðtogi meðal þjóðarinnar, sem kallaður var forseti. Hann varð síðar að vatnsmerki og fólk velti því fyrir sér í 100 ár, hver þessi pattaralegi maður hefði verið.

Leiðtogar  syngja

The Gay Cabinet

 Litur gay stjórnar

er nafn nýju ríkisstjórnarinnar?

Ég var að dunda mér við að litgreina ríkisstjórnina. Hér eru nokkrar glaðir litir. Samkvæmt litaprufunni lengst til hægri, er Jóhanna gjörsamlega númer 613. Toppstykkið á Geir var líklega númer 6. Ég treysti mér ekki litgreina Steingrím J. Hjálp, Heiðar!

Nú eftir stjórnarslitin, eftir að ungliðarnir flýja og segja af sér vegna dugleysis eða anna, og fjörið byrjar, hef ég ekki bara verið að velta fyrir mér litrófinu, heldur líka  nafni næstu ríkisstjórnar.  Á visir.is las ég að ef Jóhanna Sigurðardóttir yrði forsætisráðherra yrði hún fyrsti gay forsætisráðherrann í heiminum. Þetta mun auka túrismann. Ég var svo saklaus, að ég uppgötvaði mjög seint, að maður gæti kallað homma og lesbíur gay.

Kannski væri best að kalla ríkistjórnina The gay cabinet, þangað til hún molnar í maí. Ekki veitir af gleðinni, fjörinu og bjartsýninni núna, þegar eftir sitja gamlir og farlama stjórnmálajálkar, og mestur tími þeirra sem ætla að mynda þessa stjórn hefur farið í pólitíska moldvörpustarfsemi í stað þess að vinna að úrbótum í kjölfar hruns íslenska efnahagsundursins.

Ef The Gay Cabinet þykir of enskuslett, væri hægt að kalla þetta Gleðistjórnina. Það verður að vera mikill optímismi hjá stjórn, þar sem mun sitja kollóttur, rauður hrútur, sem vill skila öllu aftur til AGS (IMF).  

Kaffi á Grund Kaffiboð á Grund í dag. Hvar er hýra stýra?

Ég hef reyndar aldrei séð Jóhönnu S. glaða (gay), en það tel ég henni þó ekki til  lasts. Það gæti bent til þess að hún taki öll vandamál þjóðarinnar inn á sig og sé eins konar andlit þjóðarandans. Ástandið er ekki gott, samkvæmt síðustu myndum af henni.

Var Jesús ekki líka gay? Margt gæti bent til þess. Hann var með 12 mönnum í klúbbi.


Í ósk um skjótan bata

 

Geir

Ég tek hattinn af fyrir þeim mótmælendum og trymblum, sem ærsluðust á síðgelgjuskeiði fyrir utan Valhöll í dag. Þegar þeir voru beðnir um að gefa mönnum fundarfrið eftir að forsætisráðherra tilkynnti alvarleg veikindi sín, þá tóku þau potta sína og önnur frumstæð ásláttarhljóðfæri og fluttu sig um set. Gott fólk og greinilega vel upp alið!

Miðað við hvað Geir H. Haarde hefur þurft að þola með þjóðinni sem hann hefur reynt að stýra, og með marga meðlimi hennar á móti sér, furðar það mig ekki að heyra um veikindi hans. Ég leyfi mér að halda því fram, að undir eins miklu álagi og hann hefur verið, sé ekki ólíklegt að "ástandinu" á Íslandi sé um að kenna. Streita, sem fylgir eins ábyrgðarmiklu starfi og Geir gegnir, og áfall það sem þjóðin lenti í, er líklegra til að valda mönnum alvarlegum veikindum en táragasið um daginn, sem sumir gárungar vilja tengja DNA-breytingum og krabbameini.

Ég sendi Geir H. Haarde og fjölskyldu hlýjar kveðjur og óska honum alls góðs gengis með erfiðan tíma sem hann stendur frammi fyrir. Ég þakka honum góð störf, sem ekki hafa verið þökkuð sem skyldi.

Kosningar í vor leysa ekki vanda þjóðarinnar. Þær eru niðurbrotsstarfssemi, sem auka munu glundroða og óvissu undir "stjórn" ævintýramanna, sem ætla þjóðinni að bíta gras norður í Axarfirði Þistilfirði.

 


mbl.is Sjálfstæðismenn í sjokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þið létuð ljúga ykkur full

Halim hvað
 

Corriere della Sera, Mílanóblaðið heimsfræga, greinir frá því í dag, að læknir sem vann á Shifa spítalanum á Gaza haldi því fram, að Hamas hafi vísvitandi blásið upp tölur látinna og slasaðra í hernaðaraðgerðum Ísraels i desember og janúar.

Tölur yfir fjölda fallinna eru því algerleg ótrúverðugar (eins og ég hef reyndar reynt að sýna fram á í nokkrum færslum nýlega, sem mér var þakkað fyrir með líflátshótunum í tölvupósti og als kyns skítkasti í stað athugasemda). Hin nýja Florence Nightengale Noregs og hins sturlaða heims, læknirinn Mads Gilbert, mun örugglega skýra þetta út fyrir ykkur, þegar honum verður stefnt af alþjóðasamtökum fyrir að taka þátt í fjölmiðlasirkus Hamas. Læknar, sem ljúga um dauða fólks, eru ekki læknar.

Þið sem ekki lesið ítölsku, og treystið Ítölum minna en Hamas, lesið þá um þetta hér eða hér . Þið sem hvorki treystið Ísraelum og Ítölum, farið bara niður á Austurvöll og gerið ykkur að fíflum enn einn daginn. Þið lifið í lygi, og viljið lifa í lygi og dreifið lygi vegna þess að þið hyllið hryðjuverk og örþrifaráð.

Myndin efst sýnir skilti á verslun í Tyrklandi, sem eru sett upp þessa dagana í kjölfarið á stórýktum fréttum Hamas og meðreiðarsveina þeirra. Ætli jakkarnir í tyrknesku versluninni séu búnir til úr húðum armenskra eða kúrdískra barna? Tyrkir frömdu þjóðarmorð á Armenum. Myndin neðst er ekki tekin fyrir svo ýkja löngu síðan.

Kauft nicht bei Juden

Gyðingar á Grænlandi

Pesach i Thule-zoom2lille

Frá páskahátíð gyðinga í Thule

Það hljómar vissulega framandi, en það var engu að síður tilfellið. Þeir voru líka þar. Það var þó ekki stofnaður nasistaflokkur á Grænlandi til að stemma stigu við veru þeirra, líkt og gerðist meðal ýmissa dáindisdrengja á Íslandi, sem vildu Nýtt Ísland líkt og menn vilja í dag, enda Grænlendingar sjálfir fórnarlömb þjóðar sem telja sig betri en alla aðra. Já, ég á við Dani, sem höfðu mikið samneyti við Þýskalands nasismans, bæði nauðugir, en aðallega þó viljugir.

Fyrir fáeinum árum skrifaði ég grein á dönsku, sem má lesa hér í tímaritinu Rambam (12:2003), sem ég ritstýri nú, um þá gyðinga sem dvalið höfðu á Grænlandi í lengri eða skemmri  tíma fyrir 1970. Þeir voru margir þegar Bandaríkjamenn voru enn með stórar herstöðvar á Thule Air Base og í Søndre Strømfjord. Nyrstu guðsþjónustur gyðinga, sem sögur fara af, voru líklega haldnar á Thule Base fyrir 40-50 árum. Ég komst í samband við manninn sem fyrstur stóð fyrir helgihaldi meðal gyðinga í bandaríska hernum í Thule.

GR3
Fritz Löwe tálaus i snjóhúsi á Grænlandsjökli

 

Einn þeirra gyðinga er dvaldi á Grænlandi, áður en bandaríkjamenn komu, var Fritz Löwe (1895-1974), sem var samstarfsmaður jarðfræðingsins fræga Alfred Wegeners, þess sem setti fram landrekskenninguna. Fritz Löwe lenti í hremmingum á Grænlandjökli veturinn 1930-31 og kól á tám. Skera varð flestar tær hans af með vasahníf, og þurfti Löwe að kúra í snjóhúsi á Grænlandsjökli þar til voraði. Wegener dó hins vegar á ísnum í þessum rannsóknarleiðangri ásamt grænlenskum aðstoðarmanni. Síðar, er Löwe slapp frá Þýskalandi Hitlers, gerðist hann þekktur jarðfræðingur í Ástralíu.

Þetta og margt annað getið þið lesið um í grein minni um gyðingana á Grænlandi. Góða skemmtun.

 

Kosher selur

Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband