Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2017

Þeir urðu sakborgningar í nótt

grimur_tvaer.jpg

Þessi frétt Mbl.is greinir ekki frá neinum "sakborningum". Takið eftir orðinu: SAKBORNINGUM sem ég nota. Í gær var í sumum fjölmiðlum talað um, og haft eftir Grími Grímssyni, að

"mennirnir væru grunaðir um að hafa upplýsingar um hvarf Birnu Brjánsdóttur, en að hann vildi ekki staðfesta hvor þeir væru grunaðir um saknæmt athæfi."

En í nótt, þegar ég hafði samband við fréttamann RÚV varðandi skilgreiningar hans í frétt sem hann breytti eftir að ég gerði athugasemd við hana, voru þrímenningarnir frá Grænlandi sem leiddir voru frá borði, orðnir sakborningar. Fréttamaður Útvarpsins tjáði mér þetta - sjá einnig tölvupóstskipti okkar hér. Fréttamaðurinn skrifaði þetta:

"Ég þarf ekki að spyrja Stöð 2, ég talaði við Grím áðan. Hann tók af allan vafa.

Fyrirsögnin er breytt vegna þess að fréttin uppfærðist. Ég bætti inn setningu eftir ábendinguna frá þér áðan - þó hún væri endurtekning á efni sem kom fram fyrr í fréttinni.

En þú getur alveg verið viss. Það leikur enginn vafi á að mennirnir eru grunaðir.

Sakborningar er orðið sem Grímur notaði í viðtali við mig."

Grímur Grímsson lögreglumaður staðfesti þannig við RÚV í nótt fyrir kl. 03.00 að Grænlendingarnir sem færðir voru í land í járnum væru sakborningar, en það kallaði hann þá ekki í gær. Eitthvað hlýtur að hafa komið í ljós við yfirheyrslur?? um borð á skipinu á leið til hafnar eða strax við komuna til Reykjavíkur.

Vona ég svo að Grímur Grímsson, hafi farið að lögum við yfirheyrslur á sakborningunum og virt réttindi mannanna sem sakborninga t.d. rétt þeirra til að  fá upplýsingar um kæruefni samanber 1. mgr. 32. gr. oml. (lög um meðferð opinberra mála) og 3. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem lögfestur var á Íslandi með lögum nr. 62/1994.  Vonandi verður réttur þessa sakborninga til að neita að svara spurningum sem varða refsiverða hegðun sem þeim er gefið að sök, samkvæmt 3. mgr. 32. gr. oml. virtur. 

Á Íslandi ríkja enn ágæt lög fyrir sakborninga, þó svo að sagan sýni okkur að lögreglan sé ekki alltaf með þau á hreinu. Í nótt var vitaskuld farið að ofangreindum lögum. Ég býst ekki við öðru.


mbl.is Rannsókn í skipinu lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitfirring er æðsta dómsstig Íslands

Hvarf ungrar, fallegrar konu slær óhug að allri íslensku þjóðinni. Allir tala um málið og hugsar hver sitt. Svo eru þeir sem hugsa meira upphátt en aðrir og það er líka hollt. Enn betra er víst þegar menn tala við sjálfa sig í einrúmi, það er merki um miklar gáfur. Mig grunar að fáir rabbi mikið við sjálfa sig á Íslandi.

Það sem sumt fólk hefur að segja á spjallþráðum fjölmiðla um hvarf Birnu Brjánsdóttur er miklu fremur fordæming í garð óþekktra og ímyndaðra "glæpamanna" en meðkennd með þeirri týndu og fjölskyldu hennar. Strax í upphafi umræðu um hvarfið lýsti ung kona því yfir að hún hefði leitað að rauðum KIA bíl við Keili vegna þess að þar búa margir útlendingar. Getur verið að ungt fólk á Íslandi telji að óathuguðu máli að útlendingar geti einir verið valdir að hvarfi íslenskrar konu. Furðar þá nokkurn að óhæfir dómarar dæmi í málum í slíku landi?

polarseafood.jpg

Hér má sjá glaðlegan starfsmann PolarSeafood að störfum. Margir Íslendingar eru búnir að dæma hann og þjóð hans fyrir hvarf Birnu Brjánsdóttur. Víkingasveitin er á leið í skipið hans. Hér geta menn skoðað auglýsingaefni PolarSeefood.

Svo fór málið út fyrir allan þjófabálk, þegar menn fóru að dæma Grænlendinga á togara. Ekki var fyrr búið að tengja sjómenn á togaranum Polar NANOQ við að hafa tekið KIA bifreið að láni, en að fólk var farið að hamast á fjölmiðlum, t.d. á DV (en ekki bara á DV). Þótt 150 KIA-bifreiðir á þessari gerð og í þessum lit séu til á Íslandi, var einhvers staðar ákveðið að sjómenn á grænlenskum togara væru líklegastir til að hafa setið í þeirri bifreið sem sást bregða fyrir í upptöku frá Laugaveginum. Allt í einu voru Grænlendingar orðnir glæpamenn í hugum Íslendinga. Í skoðunum fólks á t.d. DV og FB kom í ljós að fólk sá fyrir sig "eskimóa" og villimenn sem annað hvort höfðu myrt Birnu eða numið hana á brott á skipinu.  Hvað gerist eiginlega í höfðinu á sumu fólki á Íslandi? Eru útlendingar alltaf versta fólkið á Íslandi? Eru menn ekki skriðnir úr fjárkofunum ennþá, því greinilega er ekki mjög hátt til lofts?

Miðað við hve lág glæpatíðni Grænlendinga er á Íslandi, þá eru litlar líkur á því að álykta eins og fólk gerir. Hugarórar um brottnám íslenskrar konu í grænlenskum togara er víst mest til komin af því að Íslendingar horfa of mikið á bandarískt sjónvarpsefni. Suma dreymdi um að nú yrði henni drekkt á Grænlandshafi, því "Grænlendingarnir fréttu að upp hefði komist um þá". Lesið DV. Svo sjúk er umræðan.

Menn mega heldur ekki gleyma því, að þeir sem vinna á grænlenskum togurum eru ekki allir Grænlendingar. Ef einhverjir af áhöfninni hafa haft einhver afskipti af Birnu Brjánsdóttur, gætu það hafa verið sannir Norðmenn, Danir, Færeyingar, Pólverjar og annarra þjóða kvikindi. Menn verða einnig að muna, að flest fyrirtæki í sjávarútvegi á Grænlandi eru sjaldnast í eigu eða undir stjórn Grænlendinga. Framkvæmdastjórar Polasseafood eru ekki Grænlendingar. Henrik Leth eða Jørgen Fossheim, sem er nýkominn til Íslands til að vera með áhöfn NANOQs þegar þeir koma til hafnar, eru hvorugur Grænlendingur. En í stjórn fyrirtækis þeirra hefur þó setið Grænlendingar sem enga forsendu höfðu til að stjórna fyrirtækjum, t.d. skíðakappinn Michael Binzer, sem á yngri árum keppti á skíðagöngu á Ólympíuleikum, en laug síðar um menntun sína í Noregi, þar sem hann lauk ekki einu sinni námi í íþróttalýðháskóla sem hann var á.

Þótt stjórnarfyrirkomulag í grænlensku efnahagslífi sé oft keimlíkt því íslenska og útgerðamenn þar álíka misjafn sauður og þeir sem gera út á Íslandi, er ekki þar með sagt að grænlenskir sjómenn séu morðingjar vegna þess að þeir taka bíl á leigu á Íslandi. En ef þeir eru líkir íslenskum sjómönnum, gætu þó vitaskuld verið undantekningar.

En hvað fær hluta islensku þjóðarinnar til að dæma áhöfn grænlensk togara? Svarið er að mínu viti: Léleg fréttamennska og furðuleg starfsemi íslenskrar lögreglu, sem mig grunar að hafi séð of margar amerískar glæponamyndir. Þar er sá svarti og indíáninn  alltaf líklegastir til að hafa framið ódæðin. 

Hingað til hafa nú flest ódæðin á Íslandi verið framin af Íslendingum sjálfum. MUNIÐ það landar góðir. Íslendingar eru dugmestu glæpamenn Íslandsögunnar og sumir þeirra ríða líka hrossum í frístundum sínum.


Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband