Leita í fréttum mbl.is

Vitfirring er æðsta dómsstig Íslands

Hvarf ungrar, fallegrar konu slær óhug að allri íslensku þjóðinni. Allir tala um málið og hugsar hver sitt. Svo eru þeir sem hugsa meira upphátt en aðrir og það er líka hollt. Enn betra er víst þegar menn tala við sjálfa sig í einrúmi, það er merki um miklar gáfur. Mig grunar að fáir rabbi mikið við sjálfa sig á Íslandi.

Það sem sumt fólk hefur að segja á spjallþráðum fjölmiðla um hvarf Birnu Brjánsdóttur er miklu fremur fordæming í garð óþekktra og ímyndaðra "glæpamanna" en meðkennd með þeirri týndu og fjölskyldu hennar. Strax í upphafi umræðu um hvarfið lýsti ung kona því yfir að hún hefði leitað að rauðum KIA bíl við Keili vegna þess að þar búa margir útlendingar. Getur verið að ungt fólk á Íslandi telji að óathuguðu máli að útlendingar geti einir verið valdir að hvarfi íslenskrar konu. Furðar þá nokkurn að óhæfir dómarar dæmi í málum í slíku landi?

polarseafood.jpg

Hér má sjá glaðlegan starfsmann PolarSeafood að störfum. Margir Íslendingar eru búnir að dæma hann og þjóð hans fyrir hvarf Birnu Brjánsdóttur. Víkingasveitin er á leið í skipið hans. Hér geta menn skoðað auglýsingaefni PolarSeefood.

Svo fór málið út fyrir allan þjófabálk, þegar menn fóru að dæma Grænlendinga á togara. Ekki var fyrr búið að tengja sjómenn á togaranum Polar NANOQ við að hafa tekið KIA bifreið að láni, en að fólk var farið að hamast á fjölmiðlum, t.d. á DV (en ekki bara á DV). Þótt 150 KIA-bifreiðir á þessari gerð og í þessum lit séu til á Íslandi, var einhvers staðar ákveðið að sjómenn á grænlenskum togara væru líklegastir til að hafa setið í þeirri bifreið sem sást bregða fyrir í upptöku frá Laugaveginum. Allt í einu voru Grænlendingar orðnir glæpamenn í hugum Íslendinga. Í skoðunum fólks á t.d. DV og FB kom í ljós að fólk sá fyrir sig "eskimóa" og villimenn sem annað hvort höfðu myrt Birnu eða numið hana á brott á skipinu.  Hvað gerist eiginlega í höfðinu á sumu fólki á Íslandi? Eru útlendingar alltaf versta fólkið á Íslandi? Eru menn ekki skriðnir úr fjárkofunum ennþá, því greinilega er ekki mjög hátt til lofts?

Miðað við hve lág glæpatíðni Grænlendinga er á Íslandi, þá eru litlar líkur á því að álykta eins og fólk gerir. Hugarórar um brottnám íslenskrar konu í grænlenskum togara er víst mest til komin af því að Íslendingar horfa of mikið á bandarískt sjónvarpsefni. Suma dreymdi um að nú yrði henni drekkt á Grænlandshafi, því "Grænlendingarnir fréttu að upp hefði komist um þá". Lesið DV. Svo sjúk er umræðan.

Menn mega heldur ekki gleyma því, að þeir sem vinna á grænlenskum togurum eru ekki allir Grænlendingar. Ef einhverjir af áhöfninni hafa haft einhver afskipti af Birnu Brjánsdóttur, gætu það hafa verið sannir Norðmenn, Danir, Færeyingar, Pólverjar og annarra þjóða kvikindi. Menn verða einnig að muna, að flest fyrirtæki í sjávarútvegi á Grænlandi eru sjaldnast í eigu eða undir stjórn Grænlendinga. Framkvæmdastjórar Polasseafood eru ekki Grænlendingar. Henrik Leth eða Jørgen Fossheim, sem er nýkominn til Íslands til að vera með áhöfn NANOQs þegar þeir koma til hafnar, eru hvorugur Grænlendingur. En í stjórn fyrirtækis þeirra hefur þó setið Grænlendingar sem enga forsendu höfðu til að stjórna fyrirtækjum, t.d. skíðakappinn Michael Binzer, sem á yngri árum keppti á skíðagöngu á Ólympíuleikum, en laug síðar um menntun sína í Noregi, þar sem hann lauk ekki einu sinni námi í íþróttalýðháskóla sem hann var á.

Þótt stjórnarfyrirkomulag í grænlensku efnahagslífi sé oft keimlíkt því íslenska og útgerðamenn þar álíka misjafn sauður og þeir sem gera út á Íslandi, er ekki þar með sagt að grænlenskir sjómenn séu morðingjar vegna þess að þeir taka bíl á leigu á Íslandi. En ef þeir eru líkir íslenskum sjómönnum, gætu þó vitaskuld verið undantekningar.

En hvað fær hluta islensku þjóðarinnar til að dæma áhöfn grænlensk togara? Svarið er að mínu viti: Léleg fréttamennska og furðuleg starfsemi íslenskrar lögreglu, sem mig grunar að hafi séð of margar amerískar glæponamyndir. Þar er sá svarti og indíáninn  alltaf líklegastir til að hafa framið ódæðin. 

Hingað til hafa nú flest ódæðin á Íslandi verið framin af Íslendingum sjálfum. MUNIÐ það landar góðir. Íslendingar eru dugmestu glæpamenn Íslandsögunnar og sumir þeirra ríða líka hrossum í frístundum sínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Mér hefur nú fundist lögreglan frekar varkár í yfirlýsingum sínum og ekki við hana að sakast þótt ímyndunaraflið og sýniþörfin vaði uppi.

Hitt er rétt að margir vilja trúa öllu hinu versta upp á útlendinga umfram landann, þegar mál leggjast þannig og óþarfi að nefna dæmi þar um svo mörg eru þau.

Ragnhildur Kolka, 18.1.2017 kl. 16:31

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Faðir Birnu, Brjánn Guðjónsson, kvartar sáran undan því á FB sinni að frétti af málum í fjölmiðlum, en ekki frá lögreglu. Það eru ekki eðlileg vinnubrögð.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.1.2017 kl. 18:47

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er ekkert óeðlilegt við að grunur falli á áhöfn skips þar sem fótabúnaður hins horfna finnst.   

Hrólfur Þ Hraundal, 18.1.2017 kl. 21:59

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

 Þú segir nokkuð Hraundal. Fundust skór hinnar týndu stúlku um borð í skipinu? Ekki las ég það. Er búið að ganga 100% úr skugga um hvort þetta eru skór hennar? Nei, svo er ekki. Lögreglan grunar menn, en það gefur ekki rétt til að handtaka þá og nú þann þriðja.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.1.2017 kl. 22:46

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er rétt hjá þér Vilhjálmur, faðirinn hefur verið afskiptur í þessu máli, en við erum ekki komin lengra í þróunarsögunni en þetta. Hér er alltaf leitað til móðurinnar, þegar börnin eru annars vegar. Svo virðist sem það hafi líka verið hún sem ýtti á að hafin væri leit að stúlkunni. Kannski eðlilegt að lögreglan hafi þá samband við hana. En ég veit svo sem ekkert meira um þetta en hefur komið fram í fréttum.

Ragnhildur Kolka, 19.1.2017 kl. 00:02

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Orðin móðursýki og múgsefjun hefðu gjarnan mátt fylgja með í fyrirsögn þessa pistils, Vilhjálmur. "Löggubílaeltar" og forvitnir kjánar, hangandi á girðingunni, utanum port lögreglunnar, er eitthvað sem hlýtur að tengjast ofannefndum orðum. Þegar síðan fréttasnápa vantar uppfyllingarefni, milli tilkynninga lögreglu, koma þeir saman og mæra hvurn annan á ríkisfjölmiðlinum, fyrir ábyrgan og "eðlilegan" fréttaflutning og gott samstarf við lögreglu. 

Megi allar góðar vættir vaka yfir aðstandendum Birnu og veita þeim styrk, í þessu hörmulega máli. Hugur okkar allra ætti að vera með þeim.

Með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 19.1.2017 kl. 01:07

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Tek undir óskir þínar Halldór, og er sammmála þér um fólkið í lögguleiknum.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 19.1.2017 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband