Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Fornleifarugl á Skriðuklaustri - eða bara sýfilis?

uppgroftur_a_skriduklaustri

Maður veltur því óneitanlega fyrir sér, sem doktor í fornleifafræði sem ekki hefur tök á því að vinna á Íslandi, af hverju sumir íslenskir fornleifafræðingar þurfi að kasta sér út furðufréttaflutning til að auglýsa rannsóknir sínar.  Við höfum á síðustu árum heyrt um "búsetu fyrir landnám" sem "ekki var landnám", sem og um "Eskimóa á Austurlandi", nánar tiltekið að Skriðuklaustri. Umsjónamenn rannsóknanna á Skriðuklaustri setja reyndar met í yfirlýsingagleði, og gefa ástæðu til að ætla, að þeir sem þeim rannsóknum stjórna hafi lítið eða ekkert vit á því sem þeir eru að eiga við - eða að þeir hafi orðið illilega fyrir barðinu á lélegum fréttamönnum RÚV.

Nýjasta fréttin frá Skriðuklaustri er sú að þar hafi fundist risi. Á fréttinni má dæma, að kista nokkur sé rosalega löng, en hún getur auðvitað innihaldið einstakling sem var styttri en kistan. Bíðum og sjáum hvað í kistunni er, áður en að yfirlýsingin er sett út. Nú síðast fannst á Skriðuklaustri "gröf konu sem hefur þjáðst af sjaldgæfum piget-sjúkdómi sem veldur svipaðri vansköpun og hrjáði Joseph Merrick sem kallaður var fílamaðurinn", eða svo segir frétt RÚV. Sjá einnig sjónvarpsfréttina.

Mikið er þetta nú einkennilegt. Joseph Merrick var ekki með piget-sjúkdóm (eða Paget), heldur Proteus syndrome, einnig kallað Wiedemann heilkenni.

Piget sjúkdóm er ég ekki alveg viss um að sé yfirleitt til, nema þá á Skriðuklaustri og mér heyrist fornleifafræðingurinn á Skriðuklaustri sé að tala um Paget. Mig grunar að "sérfræðingarnir" á Skriðuklaustri séu að hugsa um Paget-sjúkdóm, en er þó ekki alveg viss. En þann sjúkdóm var fílamaðurinn Joseph Merrick sem sagt ekki með! 

Annar "fornleifafræðingur" hafa reynt að gera því skóna að Egill Skallagrímsson hafi þjáðst af Paget sjúdómi. Hann skrifaði miklar greinar um þessa uppgötvun sína og leitaði að beinum Egils í fjölda ára að Mosfelli, án þess að gera sér far um að athuga hvernig krankheit þessi lýsa sér á beinum manna.  Hef ég skrifað um þetta áður hér og hér í Leitin að beinum Egils I og II.

Ég tel útilokað að blessuð konan, sem dó drottni sínum á síðmiðöldum á Skriðuklaustri, hafi verið með "Piget" eða Paget. Svona ef dæmt er út frá ljósmyndinni sem fréttastofa RÚV birtir af hauskúpu konunnar (sjá ofar), tel ég líklegra að hún hafi verið með sýfilis eða berkla, og beinkrabba svona til vara. Höfuðbein einstaklingar með Paget sjúkdóm eru mjög brotkennd og frauði líkust á síðari stigum sjúkdómsins. Lærleggur sá sem fornleifafræðingurinn sýndi, ber ekki einkenni Paget-sjúkdóms í beinum. Steinunn Kristjánsdóttir, mér þykir líklegast að þú sért kominn með syffa á Skriðuklaustri. Sjá hér.

En nú er nóg komið. Eskimóar, piget, risar. Hvað finna þau næst á Skriðuklaustri? Sætabrauðsdrenginn og stígvélaða köttinn eða Rauðhettu? Svona dómadags rugl er orðið einum of algengt í íslenskri fornleifafræði og verður að linna.

Íslenskir fornleifafræðingar ættu að gera að venju að lesa yfir það sem blaðamenn og fréttasnápar hafa eftir þeim áður en það er birt. Oft getur það eitt verið til bóta.

Að lokum, ef menn hafa ekki fundið skurðarhníf á Skriðuklaustri, er út í hött að álykta að groddalegt brýni sem fannst í kirkjugarðinum í sumar hafi "ef til vill verið notað til að brýna skurðarhnífa". Það sem kemur í fréttum frá Skriðuklaustri er orðið verra en versti læknareyfari.


Evrusleikir "vinnur" í sumarleyfinu

össurar í sumarleyfi

þegar allir álfarnir í ESB eru í sumarfríi. Síðasti  íslenski jólasveinninn, Evrusleikir, sleikir hér sólina í bakgarðinum við biðstofuna í Brussell með embættismönnum sínum. Grýla og Leppalúði reyna á meðan að halda völdum á Magma-energy töflum. Þau hafa mikla trú á Evrusleiki og eru, þrátt fyrir lasleika, jafnvel til í að éta þau börn sem draga hæfileika Evrusleikis í efa.

Þessi sólarferð Evrusleikis mun eftir að verða fræg í Íslandssögunni, fyrst og fremst af endemum. Enn er ekki ljóst hvað Evrusleikir hefur haft með sér í pinklinum til að færa ættmennum sínum.  En það má víst vera, að það eru ekki smámunir, ef dæma skal út frá því hver glaðlega þeir veifuðu til frænda síns á flugvellinum, þegar hann lenti í forarpytti ESB fyrr í dag. Eitt er víst að það er ekki ókeypis fyrir álf út úr hól frá Íslandi að komast í garden party hjá ESB-álfunum. Íslenskir álfar þykja nefnilega afar púkó og eiga ekki einu sinni bláa klossa.

nazi-gnomes
Afsakið, þetta eru svartálfar Samtaka Iðnaðarsveina, sem eru einu hagsmunasamtökin sem sjá skjótan gróða í ESB-aðild, enda vanir skít og sora.

The Holy Mackerel

Kári og Makríllinn

Makríllinn er tvímælalaust gjöf Guðs til Íslendinga. Þessi mynd er af Kára Stefánssyni á yngri árum, þegar hann uppgötvaði þennan danska makríl í DDR í sumarbúðum barna fatlaðra kommúnistaleiðtoga frá Norðurlöndunum. Makríllinn varð besti vinur Kára í búðunum.

Eins og trúaðir og auðtrúa menn vita, hefur það tíðkast að Guðir sendi hrjáðum þjóðum gjafir af himnum, eða úr sjó.

Eins og flestir muna úr biblíusögunum, féll manna af himnum og mettaði fjöldann.  Þetta gerðist þar sem þurrt er og heitt, enda mun manna vera einhvers konar guðleg kornvara, eins og stór flasa úr gráu hári Drottins. Í löndum þar sem rignir og er kalt, fyllir guð vötnin hins vegar af fiski.  

Manna kom ekki til greina á Íslandi vegna nýlegs öskufalls (sem er verk djöfulsins og greiði hans við spillingaröflin og jarðfræðingana, sérstaklega bróður Seðlabankastjórans).

Makríllinn, Scomber scombrus, er hjálp guðanna til íslensku þjóðarinnar, því  þeir hafa hlustað á forsetann, AFS og fyndna þorskinn í ráðhúsinu í Reykjavík. Eitthvað þarf fólk að borða með 15.000 krónunum, sem gefnir voru ómögum Reykjavíkur meðan allir fara í sumarfrí. Svo er makríllinn líka orðinn þreyttur á því að vera  talinn norskur.

Allur makríllinn í ESB og Noregur hefur nú flutt búferlum til Íslands, enda hvergi betra að vera veiddur í gjörvallri veröld.

Meira get ég ekki kreist úr þessari andlegu makríltúbu minni. Njótið bara gjafa Guðs, eins lengi og þær verða veittar.

3381703853_98aac77d19

Obama forseti, frelsaðu Jonathan Pollard !

 

Einn dæmdur njósnari hefur setið lengur í bandarísku fangelsi en nokkur annar njósnari í sögu BNA.  Það er Jonathan Pollard. 9000 daga hefur hann verið lokaður inni í fangelsi fyrir yfirsjón sína, sem voru njósnir fyrir vinveitt ríki, Ísrael. Hann er nú ísraelskur þegn. Allir, sem dæmdir hafa verið fyrir sams konar sakir og Pollard, voru leystir úr haldi eftir 2-5 ár. Þennan eina mann telja Bandaríkin ástæðu til að halda í 25 ár, eða í 9002 daga í dag.

Ísraeli í Bandarísku fangelsi í 25 ár, meðan hryðjuverkalið leikur lausum hala í BNA. Hvernig getur staðið á þessu?

Nú vona allir velunnarar Jonathans Pollard, að Obama muni koma til Ísraels þann 6. águst og hafa með sér þær góðu fréttir, að Jonathan Pollard verði leystur úr haldi.

Íslendingar geta skrifað sendiráði Bandaríkjanna og krafist lausnar Pollards, þó nýi sendiherrann, Luis E. Arreaga sé enn ekki kominn. Sendið bara bréfið á Sam Watson, og þið sjáið það á Wikipedia eftir smátíma. Já, hlutirnir geta gerst hratt í BNA, t.d. með rússnesku njósnarana, sem voru sendir heim í vodka-partí um daginn. En gyðinga er hægt að loka bak við lás og slá í 25 ár. Hvað ætli Wikileaks-dátinn fái? Hann er ekki gyðingur og mun því ekki sitja inni í BNA í 25 ár.

Einnig er hægt að hringja í Hvíta Húsið (Skype, annað er of dýrt þar sem Obama tekur ekki símann). Sjáið hvernig hér. http://www.jonathanpollard.org/

FANGELSISVIST JONATHANS POLLARDS ER ÓHÆFA

Fyrri færsla um Jonathan Pollard hér


Síðasti súludansinn í Viðey

Friðardúfan2

Nú er einn af fremstu farfuglum hrunsins aftur farin að ýfa fiðrið. Þetta er friðardúfan Imba, þessi með hlutverk á meðal þjóðanna, sem alltaf fýkur út í veður og vind.

Ingibjörg Sólrún, sem er vangstýfð, rauðhöfða allaballadúfa, á ekkert erindi í neina nefnd sem fjallar um Ísrael. En greint er frá því í Morgunblaðinu og í Ha'aretz í Ísrael, að SÞ ætli að fela henni stjórn rannsóknar á tyrknesku friðarskipunum sem send voru með gögn til Hamas á Gaza, en sem komust ekki á leiðarenda eins og frægt er orðið. Ingibjörg Sólrún yrði aldrei hlutlaus í slíkri nefnd. Hún hefði miklu frekar átt að fara með einum af bátunum frá Tyrklandi.

Ég hef gert mér far um að greina lesendum Ha‘aretz í Ísrael frá því hvers konar háskagripur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er, þegar kemur að Miðausturlöndum og Ísrael.

Þegar reynt var að ná íslenskum stríðglæpamanni fyrir dóm fyrir glæpi sem hann framdi sem Evald Mikson í Eistlandi, fann þessi kona hjá sér mikla þörf til að ráðast opinberlega gegn Ísrael, sem reyndar stóð ekki á bak við kröfu um framsal á Eðvaldi Hinrikssyni. Sjá hér (leitið að nafni hennar).

Ingibjörg hefur ekki farið leynt með það, að henni er afar hlýtt til hermdarverkasamtaka í Palestínu og sjáið bréfið sem hún sendi fyrrverandi utanríkisráðherra Ísrael, Livni, eftir að Ingibjörg og aðstoðarkvinnur hennar höfðu setið að sumbli fram eftir kvöldi í utanríkisráðuneytinu á gamlárskvöld 2008. Þar talaði hún í nafni ESB.

Ingibjörg hefur fyrir löngu fyrirgert rétti sínum sem erindreki friðar eftir að hún ferðaðist á milli morðingja í Miðausturlöndum og lofaði þeim lausn á vandamálinu Ísrael, ef þeir styddu umsókn Íslands að Öryggisráði SÞ.   

Sheik yer Assad
Dúfan og gammurinn - Support for Security Counsil

 

Fyrir rúmlega mánuði síðan sendu Ceipaz, samtök eineygðra friðardúfna, út þetta bréf sem er m.a. sent í nafni Ingibjargar. Það kemur fram afar einleit skoðun á ástæðum fyrir ófriði fyrir botni Miðjarðarhafs.

VIÐ ERUM ENGU BÚIN AÐ GLEYMA, IMBA. Þú kostaðir Ísland of mikið. Ísraelsríki þarf ekki að líða sömu örlög vegna þín.


Óeðli í Árborg

Árborgarfressið
 

Í fréttatíma sjónvarps í gær var sagt frá nýju óeðli sem upp er komið í Árborghrepp. Hreppsfíflin hafa nú bannað ketti nema í bandi. Hvað er eiginlega að fólki? Sáuð þið aumingja köttinn sem einn karlinn í hreppnum hafði í bandi í garðinum sínum. Akfeitt kykvendi, sem aldrei fær að lifa eðlilegu og kattsæmandi lífi. Karlinn sagði að kötturinn bæði um það sjálfur. Var það ekki?

Ef Ísland fer í ESB, og það segir Össur hreppstjóri að við munum gera, fæ ég þessu vistarbandi katta í Árborgarhreppi slitið. Kettir eru guðlegar verur, ættaðar suður af landinu helga. Þeir eiga ekki að vera spikfeitar hlussur í bandi, vegna þess að einhver rottufangari á Selfossi, Þröstur Már Arnarson, er farinn að fá of mikla samkeppni af köttunum. Víglundur Hrappsson lögreglustjóri er líklega farinn að hlakka til að fá að skjóta ketti sem ekki eru í hengingarólinni.

Að lokum til fólksins sem er svo annt um litlu, sætu fuglana. Þið eruð flest úr sveit, ómagarnir ykkar, þar sem mýrar hafa verið ræstar fram og þjóðarmorð hefur verið framið á vissum fuglategundum. Íslenska sveitamenn ætti frekar að setja í bönd en ketti. Yfirvöld Árborgarhrepps ættu að skammast sín. Ég stoppa aldrei í hreppnum eftir þetta.


Ég þoli ekki bleikar skyrtur

og menn með bleik bindi, en þessi Farage er bara með lélegan breskan fatasmekk. Það sem hann segir um Ísland og hér um evruna er hins vegar hrákaldur sannleikurinn, óþveginn og skorinorður.


mbl.is Ekki ganga í ESB!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður, betri, bestur

Mundu eftir ostinum
 

15.000 krónur og 5000 á barn. Falleg hugsun á bak við þetta! En það eru víst ýmsir á "framfæri" Reykjavíkur sem fá enn meira, og þurfa akkúrat ekkert á því að halda.

Ef ekki hefðu verið sendar stórar upphæðir frá Íslandi til yfirvalda öfgasamtaka í Palestínu, hefðu kannski verið til enn meiri peningar til að hjálpa Íslendingum með slagsíðu.

Rétti þeir upp krepptan hnefann, sem vita fyrir hverja Þorleifur góði, betri borgarinn Björg Vilhelmsdóttir og Gnarr hinn besti brenna mest ? Ef peningar til Gaza yrðu notaðir á Íslandi myndu ekki einu sinni Sjálfstæðismenn sitja hjá, þegar ölmusa er gefin þeim fátæklingum sem þurfa horfa upp á allan sirkusinn, trúðinn og besta fólkið, í ofanálag á allan sinn vanda.


mbl.is Samþykkt að veita 15.000 kr. sumarstyrk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífsýni úr Fischer

spitmark

Ég er löngu búinn að missa áhugann á Fischer, eftir að hann fór til hel...s um Ölfuss. Svo frétti ég í dag, að hann hafi verið grafinn upp eins og einhverjar fornleifar, svo hægt væri að sanna að hann væri ekki pabbi hennar Jinky litlu Ong.

Allir sem geta séð og vilja sjá, sjá að barnið er ekki líkt karlinum. Það hefur aldrei tekið æði, er ekki með skegg og er ekki enn búið að afneita því að það sé Flippi, afsakið Filipseyingur 

Ég átti reyndar lífsýni úr Fischer. Viktor Kortsnoi gaf mér eitt sinn lífsýni úr Fischer. Það var hráka sem Fischer setti á frímerki, sem sett var á póstkort sem Fischer sendi Kortsnoi með skilaboðunum "I am the best, you fucking Jew". Sjá mynd. Frímerkið var rannsakað hér í Danmörku og í ljós kom að það var sleikt af  50% gyðingi og 50% skyri. Nú fáum við brátt vissu fyrir því, hvort Fischer hafi verið Jew, sem ég tel nokkuð víst, en líka hvort hann hafi yfirleitt verið "fucking".


Auschwitz-fangi á Íslandi

74521a
 

Það er virðingarvert þegar fórnarlömb helfararinnar geta sagt frá hörmungum sínum á gamals aldri. Það þarf oft mikið til og oftast talar fólk ekki um þessi erfiðustu ár ævi sinnar.

Hér í Danmörku hef ég þekkt og talað við nokkra pólska gyðinga sem lifðu af vistina í Auschwitz. Einn góður vinur minn var í fjórum fangabúðum í stríðinu. Ég er að skrifa grein um hann. Ég hef skrifað bók um þá gyðinga sem Danir sendur í dauðann. Nokkrir þeirrar voru myrtir í Auschwitz. Á Íslandi hefur reyndar meira borið á mönnum sem stunduðu gyðingamorð en á gyðingum, sem flestir hafa gengið með veggjum.  Einn böðlanna kom frá Eistlandi og annar maður frá Lettlandi, sem lengi bjó á Íslandi, hafði verið vörður í fanga- og útrýmingarbúðum í síðara heimsstríði.

George Berman, fæddur 1923 í Póllandi, komst lífs af í Auschwitz. Hann á son, Robert, og afkomendur á Íslandi og var í heimsókn á Íslandi á dögunum. Hann hélt um daginn fyrirlestur í HÍ um reynslu sína sem gyðingur í síðari heimsstyrjöld, og hefur RÚV gert þessu erindi hans skil (hlustið hér) og einnig Vísir.is. /Stöð2 og þetta blogg. Hlustið á Georg Berman á Stöð2 og RÚV

Það er ekki á hverjum degi að Íslendingar geta hlustað á vitni segja frá atburði, sem æ fleiri afneita eða misnota á ógeðfelldan hátt í stuðningi sínum við hryðjuverkastarfsemi gagnvart frjálsum heimi.

Myndin efst er tekin af Þjóðverja í Lodz gettóinu. Þar voru seldar bækur, en ekki vopn eins og í dag á þeim svæðum heimsins sem bandamenn hryðjuverka kalla gettó. Myndin hér fyrir neðan er af George Berman.

george_berman
09172
Drengur í Lodz gettóinu

Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband