Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2014

Farið öll til Noregs, sem fyrst!

norway12nurses.jpg

Norðmenn bjóða betri kjör, nýjan bíl og meira fjör. Þar að auki þjást Norðmenn auðvitað miklu meira en Íslendingar og í anda Florence Nightengale heitinnar er vitaskuld um að gera fyrir íslenskar hjúkkur að fórna sér og fara til Noregs með íslensku læknunum sem þangað hóta að fara. Þar geta þær hjálpað til i allri eymdinni í stað þess að aðstoða fólk sem veikist vegna fátæktar, þegar það getur ekki lengið fengið atvinnuleysisbætur á Íslandi.

Því er haldið fram af formanni hjúkrunarfræðinga, að hundruð starfssystkina hans hafi leyfi til að vinna í Noregi. En það er auðvitað innantóm lygi. Ég skora á Ólafa G. Skúlason að sanna mál sitt!

Hér er greinilega verið að notast við klassískar íslenskar læknalygar! Eins og þegar læknar halda því fram að þeir hafi lægri laun en læknar í Slóvakíu (sjá hér). Nokkrir tugir hjúkrunarfræðingar hafa fengið leyfi til að vinna í Noregi. Málanámskeiðin í norsku sem haldin hafa verið fyrir hjúkkur hafa nú ekki beint orðið til þess að hundruð hjúkka hafi leyfi til að vinna í Noregi.

Svo fara hjúkrunarfræðingar venjulega til Noregs í stuttan tíma í senn. Það gera hjúkrunarfræðingar frá Danmörku líka, þegar þær langar í meiri aur og smá utanvaktaævintýr í knallhytta. Þegar vinnan er miðluð í gegnum vikar-þjónustur eru launin vissulega hærri en þegar maður ræður sig í fastar stöður. En mest er boðið upp á afleysingar í nokkrar vikur í senn og flugið er borgað.

Oft er ekki hægt að treysta á þessar vinnumiðlanir. Vinnumiðlunin Helsenor er annáluð fyrir svik og pretti og Centric Care sem ásakar Helsenor er víst ekki miklu áreiðanlegri.

Spurningin sem vaknar er, hvort Íslendingar séu ginnkeyptari fyrir lygi en aðrar þjóðir??

Maður verður líka að spyrja sig, af hverju ríkt land eins og Noregur hefur ekki "framleitt" nóg magn af hjúkkum? Fara norskar hjúkkur til enn ríkari landa, eða eru þær ekki til? Hjúkrunarfræðingar í Noregi eru líka í launabaráttu.

norwegian-nurses-dark-small-78067.jpg

Kannski hefur skyndilegur skeggvöxtur norskra hjúkrunarfræðinga í kjarabaráttum orðið til þess að atvinnumöguleikar hafa skapast fyrir íslenskar hjúkkur.

profileequal-status-for-nurses-why-small-47707.jpg

Sjúklegar ýkjur í lækna og hjúkrunarfræðingastétt Íslands virðast liggja í genunum. Þessi andskoti hefur borist hingað við landnám. Á þessu áróðursspjaldi er því haldið fram að "Tíu Þúsund hjúkrunarfræðingar í Noregi hafi yfirgefið fag sitt". Grunar Gvend, að sú tala sé úr lausu lofti gripin eins og margt í röksemdafærslu heilbrigðisstétta. En hver veit, kannski eru hundruðin af íslenskum læknum sem ráðnir eru á norsk sjúkrahús svo leiðinlegir, að norskar hjúkkur flýja. Sú tilgáta er engu síðri en yfirlýsing um að 10000 hjúkrunarfræðingar hafi yfirgefið fagið í Noregi. Stundum, og reyndar oft fara hjúkkur í barnseignarfrí. Dæmi þekki ég af því frá dönskum spítölum að ein deild þurfti að fá 80 afleysingarhjúkkur, því fastahjúkkurnar voru svo frjósamar í kór. En 10.000 hjúkkur sem hverfa bendir einna helst til þess að Svarti dauði herji enn í afdölum Noregs, eða að Breivik eigi bróður sem útrými hjúkrunarfræðingum.

 

Hér áður fyrr fóru margar norskar hjúkrunarkonur og þjónuðu SS á vígstöðvunum. Þær kunnu nóga þýsku, svona álíka og íslenskir hjúkrunarfræðingar pluma sig á norsku. En þar fyrir utan voru SS-hjúkkurnar allsleipar í rúmmensku.

norwegian_ss_frontline_nurses_by_maxwrite-d4ob1ns.jpg

Norskar SS-hjúkkur gerðu sitt til þess að þýskir hermenn gætu drepið fleiri. Þær eru alltaf veikar fyrir áróðri, stúlkurnar í hvítu kirtlunum.

 

Það er vitanlega algjörlega óferjandi að ríkasta land heimsins sé að flytja út vandamál sín og lokka til sín íslenskar hjúkkur vegna þess að velferðakerfi þeirra er meingallað.

Góða ferð hjúkkur, þetta er frjáls heimur. Ef þið getið ekki lifað af á Íslandi, þá er um að gera að bjarga sér úti í heimi.


mbl.is Norðmenn bjóða betri kjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lygaherferð íslenskra lækna

medicine-money.jpg

Í "kjarabaráttu" best stæðu stétta Íslands er oft notast við sjónhverfingar og lygaherferðir til að halda tekjum sínum yfir tekjum allra annarra í þjóðfélaginu. Þetta er hörð barátta.

Oft er bent á að læknar neyðist til að flytja úr landi og til að finna sér vinnu erlendis og er Noregur ekki svo ósjaldan nefndur í því samhengi. Þar mun vera gósenland í heilbrigðiskerfinu samkvæmt íslenskum læknum og allt miklu betra en á Íslandi, sem er vitaskuld aftast allra ríkja á merinni .

Lítum þá á nokkrar norskar fréttir árið 2014:

Hvergi í Vestur-Evrópu eru eins fá sjúkrarúm og í Noregi. Lesið þetta. Þetta hljómar víst aðeins öðruvísi en áróður íslenskra lækna.

Í Noregi þurfa læknar enn að nota forgamlar faxvélar. Það eru þannig vélar sem íslenskir læknar sækja greinilega í að nota. Líklega einhver rómantík. Lesið hér

40% lækna sem menntaðir eru í Norður-Noregi flytja í burtu frá Norður-Noregi. Lesið hér. Á háskólasjúkrahúsinu í Harstad er 70 milljón króna halli á rekstri á þessu ári. Þar ætla íslenskri læknar líkast til að fá sér vinnu. Skyldi það vera að þeir valdi hallanum.

Lesið um tölvukost norskra sjúkrahúsa hér og hér. Norðmenn skara greinilega fram úr.

Það er flott ástandið í draumlandinu handan við hafið, þangað sem íslenskir læknar ætla að leita, þegar þeir yfirgefa eymdina og betlið í sínu eigin landi til að láta ríkustu þjóð heimsins njóta góðs af snilld sinni.

l5fvsiyll3njhqmq4efyiarmyommrhef6q49oxjrypiq_1251828.jpg

Á norskum sjúkrahúsum eru oft sundlaugar fyrir lækna í kjöllurum

Einhvern veginn fær maður á tilfinninguna að íslenskir læknar muni ugglaust svara þessu með því að norski ríkisfjölmiðillin Norsk Kringkastning sé ótrúverðugur miðill líkt og RÚV, sem stundar áróður fyrir íslenska lækna, því tilgangurinn helgar meðalið í baráttu fréttastofunnar að koma vanskapaðri ríkisstjórninni frá. NRK þarf þó ekki lengur að notast við faxvélar líkt og margir sérfræðingar sjúkrahúsa í olíuveldinu Noregi.

Nú í byrjun 2015, þegar á ný verður leikið með líf íslenskra sjúklinga með verkfallsaðgerðum, vegna þess að íslenskir læknar vilja hlutfallslega meira en allir aðrir þegnar þessa fátæka lands, er gott að hugsa til Noregs. Ja, vi elsker dette landet!

Gleðilegt græðgisár beiningarmenn Íslands

doctor-money-2.jpg

Klínísk almenn læknisfræði (fagheiti: Kleptomanía)

Fyrri greinar um íslensku læknafátæklingana hér og hér.

Tekið skal fram, að höfundur er ekki sósíalisti, heldur raunsæismaður.


Jólaball Vantrúar

fjeldsted.jpg

Það nálgast guðlast, þegar yfirlýstir byltingarsósíalistar og Vantrúarmen Íslands lýsa því yfir, að þeir kæri sig ekki um að íhaldssöm, kristin öfl ræni jólunum á Íslandi.

Einn þessara skrítnu byltingarkarla á seingelgjuskeiði er Vésteinn Valgarðsson, sem nú elur manninn í eintómri "julehygge" á Jótlandi. Hann vill láta banna trúarlega innrætingu eins og gert var í Sovétsófétinu og DDR forðum, eða bara öll önnur trúarbrögð en Vantrú og kannski væga útgáfu af Íslam. Sjá hér, hér, hér og hér. Minnir þetta óneitanlega á bönn öfgamúslíma sem þola heldur ekkert annað en sína eigin bókstafstrú.

Litli læknissonurinn, sem er sonur Katrínar Fjeldsted sem er ráðssett sjálfstæðiskona og fyrrum þingmaður, var nú ekki aldeilis á þeim skónum að banna trúarlega innrætingu þegar hann fór árið 2008 á friðarráðstefnu í Kaíró, sem var haldin af Múslímska Bræðralaginu. Þar sat hann innan um klerka og verðandi hryðjuverkamenn, sem ofsækja og drepa kristna í nafni trúar sinnar og hafa heitið því að útrýma gyðingum og eyða Ísraelsríki. Vantrúarmarmeðlimurinn Vésteinn Valgaðrsson fór á slíka ráðstefnu til að hylla frið.

Um leið og Kaírófarinn Vésteinn, vinur Bræðralagsmanna, lýsir kirkjudeildum á Íslandi sem öfgasamtökum sem stunda heilaþvott í skólum, er honum nú líka í nöp við múslimaklerka þar sem hann býr í Árósum í Danmörku. Hann skilur ekki, af hverju ekki er búið er að sprengja upp mosku í Árósi, þar sem innræting á sér stað á stráklingum og smákrimmum áður en þeir eru sendir til að myrða á Sýrlandi (sjá hér). Kannski sér Vésteinn Vantrúarmaður samhengið, þegar hann uppgötvar, að andlegur leiðtogi ISIS var eitt sinn meðlimur í Múslímska Bræðralaginu (sjá hér og hér). Vonandi er honum ekki eins kalt til kirkjunnar og meints heilaþvotts hennar. En kannski förum við að sjá kirkjusprengingar eða kirkjubruna eins og í Noregi (þar munu þó hafa verið satanistar eða sjúklingar á ferð).

Um leið og ég óska Vésteini Valgarðssyni gleðilegrar hátíðar, þar sem hann situr og hræsnast yfir jólum flestra Íslendinga þar sem hann stundar andagt í Árósi í Danmörku, vona ég að hann átti sig á því að jólafræðsla kirkjunnar manna á Íslandi eru ekki öfgar, heldur hluti af friðarboðskap. Friðarboðskap er vitaskuld einnig hægt að snúa yfir í öfgar eins og Kaíróferð Vésteins ætti að hafa kennt honum. Fræðslan í öfgamoskum í Danmörku og víðar er hins vegar hatursboðskapur, þar sem kjarninn er svipaður og í ákveðinni útleggingu kommúnista á tilverunni. Ástæðan fyrir því að svo margt er líkt með ráðstjórnarkommúnisma, öfgaíslam og nasisma, og að fólk úr þeim "trúarbrögðum" leika vel saman eru elstu og frumstæðustu kenndir mannsins (sem eitt sinn var líka stunduð af kristnum): Það er að kenna öðrum um það sem miður fer. Þess vegna hefur gyðingahatrið verið svo vinsælt á meðal þessara andlegu bræðra.

Höfum það líka á hreinu, að vinstri menn eru ekki mannréttindasinnaðri en aðrir, þótt að Vésteinn trúboði Vantrúar skrifi það í inngangi jólapistils síns frá Danmörku. Það sjáum við bara á fjölda þeirra mann sem drepnir hafa verið fyrir boðskap "vinstrisinna" eða annarra sem þeir eru í bræðralagi við.

 


Elton John giftist ekki

Já, loksins eftir 21 árs reynslutíma og 9 ár í skráðri sambúð. En eitt er víst. Elton John giftist hvorki né kvænist David Furnish! Furnish er nefnilega ekki kona frekar en Sir Elton. Þeir félagar verða gefnir saman eða ganga í hjónaband. Menn kvænast konum og konur giftast körlum. Kannski ættum við frekar að segja að þeir séu samgefnir fyrst þeir eru samkynhneigðir?

"Breski tón­list­armaður­inn Elt­on John ætl­ar í dag að gifta sig". Er ekki lengur kennd setningafræði á Íslandi? Kannski er Jón Valur hættur að prófarkarlesa á Morgunblaðinu, eða vill hann ekki koma nálægt fréttum af eins óheilögu fyrirbæri laughing og hjónaböndum samkynhneigðra?

Ég óska körlunum til hamingju með "brúðhlaupið" og óska þeim alls hins besta í að minnsta kosti 21 ár til viðbótar reynslutímanum. Um leið vona ég að málfarið batni á íslenskum fjölmiðlum.


mbl.is Elton John giftir sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og svo segja menn að ekki sé fært...

funnar_og_fabius_1251421.jpg

Gunnar Bragi er í París. Var ekki annars kolófært út á Keflavíkurflugvöll? Sjáið  sveitamanninn, búinn að tileinka sér franska siði á einum degi, t.d. lausa úlnliðinn. Hann er farinn að tala með höndunum, Si vous plait! Svo hefur utanríkis fengið sér bindi í stíl við Fabius, perlulitað. Uhlala. Les boys skemmta sér greinilega í París.

En leitt þykir mér, að í allri munnræpunni sem fór þeirra á milli, og þar sem þeir leystu gyðingavandamálið í Palestínu og Gunni fullvissaði Fabius um hvað Íslendingar væru smáir og sérstæðir, þá gleymdi Gunnar Bragi að nefna hrútinn Erlend og ána Vigdísi, sem voru íslensk fórnarlömb franskrar Upplýsingar á 18. öld.

Þau Erlendur og Dísa voru verðlaunadýr sem franskir landmælinga- menn numdu á brott snemma sumars 1760. Gunnar Bragi var búinn að lofa að spyrjast fyrir um meint örlög þessara merkisdýra sem Fornleifur hefur nú afhjúpað að ákveðnu marki. Bæði voru þau frá Skagaströnd, úr kjördæmi Gunnars Braga. Dísa endaði sem súpukraftur í Versaille og Erlendur sem ragout í Bastillunni.

Nú fá sauðasmalar Íslands aldrei að vita smáatriðin um örlög þessa ólöglega útflutnings árið 1760.

Gunnar Bragi, þú brást. Þú ert jarmandi fíaskó.

rollan.jpg_rihyrndur_hrutur_b_1251420.jpg

In Memoriam Disa og Erlendur


mbl.is Gunnar Bragi fundaði með Fabius
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinar Tamimis kalla ekki á fleiri hríðskotabyssur

jolasveinar_muslum_style.jpg

Ef Íslendingar hafa horft á fréttir Sjónvarps á milli vindkviðanna í gær, hafa þeir vafalaust uppgötvað að Íslam og Ísland eru að þróast til miklu betri vegar.

Hafa múslímar á hjara heims nú tekið heilagan Nikulás í sínar raðir í stað þess að ofsækja hann og myrða sem trúleysingja, guðsspottara og klæðaskipting. Tilbeiðsla á íslenskum jólasveinum er nú leyfð á meðal íslenskra múslíma á þar til gerðum heimilisaltörum sem á arabísku eru kallaðar Chommodah.

Þrátt fyrir þessar trúbætur eru Hurðaskellir og Hummusseikir þó ekkert á leið til IS-lendinga á Sýrlandi, enda er menntunarstigið miklu hærra á meðal jólasveina á Íslandi en t.d. í Danmörku að sögn Tamimis. Danmörk er þróunarland. Grýla og Leppalúði hafa alið drengina sína upp sem smákrimma og hrekkjalóma, en "enginn þeirra mun leika knattspyrnu með afhöggna hausa hermanna Assads, meðan þeir geta ybbað gogg við Ísraelsmenn", segir Tamimi í óspurðum fréttum.

wallabilly.jpg

Íslenskir jólasveinar eru nefnilega langt frá því að vera haldnir ofstæki. Hér er ljósmynd af einum af fréttasveinum RÚV, Fatahskiptingi, uppeldissyni Grýlu. Eitt sinn um jól í Landinu helga sótti á hann óhemjumikil löngun að vefja sig í Fatahföt. Hann notaði mynd af slíkum höfuðföthum á moggabloggi sínu, sem alltaf var frekar óvirkt og öfgalaust. Ekki var að spyrja að því.Ísraelsher skaut á hann úr skriðdreka. Það eru ekki eru til öfgar í þeim sveini.

Byssur, pístólur og hólkar eru aðeins nauðsynlegar í löndum eins og Noregi, þar sem þær eru notaðar til að drepa blómann af flóru verðandi krata. Eins og allir vita, flýðu íslensku jólasveinarnir Noreg árið 871 plús mínus 2 ár. Eftir í landinu langa urðu fúlmenni og fantar, allt norður í Berangur. Ekki er því ólíku saman að líkja. Menntunarstigið í Noregi er vitaskuld enn lægra en í Danmörku. Við erum að tala um frumstæðar öfgaþjóðir.

santa_protester.jpg

Giljagaur og Stúfur.


Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband