Leita í fréttum mbl.is

Jólaball Vantrúar

fjeldsted.jpg

Það nálgast guðlast, þegar yfirlýstir byltingarsósíalistar og Vantrúarmen Íslands lýsa því yfir, að þeir kæri sig ekki um að íhaldssöm, kristin öfl ræni jólunum á Íslandi.

Einn þessara skrítnu byltingarkarla á seingelgjuskeiði er Vésteinn Valgarðsson, sem nú elur manninn í eintómri "julehygge" á Jótlandi. Hann vill láta banna trúarlega innrætingu eins og gert var í Sovétsófétinu og DDR forðum, eða bara öll önnur trúarbrögð en Vantrú og kannski væga útgáfu af Íslam. Sjá hér, hér, hér og hér. Minnir þetta óneitanlega á bönn öfgamúslíma sem þola heldur ekkert annað en sína eigin bókstafstrú.

Litli læknissonurinn, sem er sonur Katrínar Fjeldsted sem er ráðssett sjálfstæðiskona og fyrrum þingmaður, var nú ekki aldeilis á þeim skónum að banna trúarlega innrætingu þegar hann fór árið 2008 á friðarráðstefnu í Kaíró, sem var haldin af Múslímska Bræðralaginu. Þar sat hann innan um klerka og verðandi hryðjuverkamenn, sem ofsækja og drepa kristna í nafni trúar sinnar og hafa heitið því að útrýma gyðingum og eyða Ísraelsríki. Vantrúarmarmeðlimurinn Vésteinn Valgaðrsson fór á slíka ráðstefnu til að hylla frið.

Um leið og Kaírófarinn Vésteinn, vinur Bræðralagsmanna, lýsir kirkjudeildum á Íslandi sem öfgasamtökum sem stunda heilaþvott í skólum, er honum nú líka í nöp við múslimaklerka þar sem hann býr í Árósum í Danmörku. Hann skilur ekki, af hverju ekki er búið er að sprengja upp mosku í Árósi, þar sem innræting á sér stað á stráklingum og smákrimmum áður en þeir eru sendir til að myrða á Sýrlandi (sjá hér). Kannski sér Vésteinn Vantrúarmaður samhengið, þegar hann uppgötvar, að andlegur leiðtogi ISIS var eitt sinn meðlimur í Múslímska Bræðralaginu (sjá hér og hér). Vonandi er honum ekki eins kalt til kirkjunnar og meints heilaþvotts hennar. En kannski förum við að sjá kirkjusprengingar eða kirkjubruna eins og í Noregi (þar munu þó hafa verið satanistar eða sjúklingar á ferð).

Um leið og ég óska Vésteini Valgarðssyni gleðilegrar hátíðar, þar sem hann situr og hræsnast yfir jólum flestra Íslendinga þar sem hann stundar andagt í Árósi í Danmörku, vona ég að hann átti sig á því að jólafræðsla kirkjunnar manna á Íslandi eru ekki öfgar, heldur hluti af friðarboðskap. Friðarboðskap er vitaskuld einnig hægt að snúa yfir í öfgar eins og Kaíróferð Vésteins ætti að hafa kennt honum. Fræðslan í öfgamoskum í Danmörku og víðar er hins vegar hatursboðskapur, þar sem kjarninn er svipaður og í ákveðinni útleggingu kommúnista á tilverunni. Ástæðan fyrir því að svo margt er líkt með ráðstjórnarkommúnisma, öfgaíslam og nasisma, og að fólk úr þeim "trúarbrögðum" leika vel saman eru elstu og frumstæðustu kenndir mannsins (sem eitt sinn var líka stunduð af kristnum): Það er að kenna öðrum um það sem miður fer. Þess vegna hefur gyðingahatrið verið svo vinsælt á meðal þessara andlegu bræðra.

Höfum það líka á hreinu, að vinstri menn eru ekki mannréttindasinnaðri en aðrir, þótt að Vésteinn trúboði Vantrúar skrifi það í inngangi jólapistils síns frá Danmörku. Það sjáum við bara á fjölda þeirra mann sem drepnir hafa verið fyrir boðskap "vinstrisinna" eða annarra sem þeir eru í bræðralagi við.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Orðavalið um mannréttindasinna er tekið úr orðræðu íslenskra hægrimanna, sem tala af fyrirlitningu um mannréttindaráð og "svokallaða" mannréttindasinna sem vilja t.d. hafa trúfrelsi á Íslandi.

Ég ætla ekki að reyna enn einu sinni að tyggja ofan í þig einhverjar leiðréttingar sem þú vilt ekki skilja, en manni þætti skrítið að maður með doktorsgráðu væri haldinn svona heiftarlegri vanþekkingu, ef maður vissi ekki að það byggju annarlegar hvatir að baki skrifum þínum.

Vésteinn Valgarðsson, 25.12.2014 kl. 13:48

2 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Fyrir utan augljósar annarlegar hvatir Vilhjálms hlýt ég að spyrja hvort einhver efnisleg gagnrýni á grein Vésteins sé í farvatninu eða hvort Vilhjálmur hafi einfaldlega fengið flogakast við að sjá grein eftir Véstein og ákveðið að "drulla yfir hann" af því tilefni.

Matthías Ásgeirsson, 25.12.2014 kl. 13:50

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nú Vésteinn, neitar þú að hafa verið í Kaíró árið 2008?

Annarlegar hvatir eru það þegar félagi í Vantrú heldur til Kaíró til að hylla frið með ofsatrúarfólki sem hefur þjóðarmorð á dagsskránni.

Grein Vésteins dæmir sig sjálf. Menn sem hafa ekki nógu mikið umburðarlyndi til að leyfa trúuðu fóli að vera í friði með sínum guðum, ættu ekki að vera að tala um trúfrelsi og mannréttindi.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 25.12.2014 kl. 16:54

4 identicon

Það er vinsælt hjá fólki með slæman málstað að verja að ófrægja andstæðinginn frekar en að benda á kosti síns málstaðar eða ræða málin efnislega, og þá er sannleiksgildið oft aukaatriði og rangfærslur algengar.

Ufsi (IP-tala skráð) 25.12.2014 kl. 18:51

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

 Þorskur ertu Ufsi. Valgarður hefur það sér eitt til málsbóta, að hann hafi gert upp við Múslímska Bræðralagið  https://eggin2.wordpress.com/2008/09/03/bralag-mma/ Það gerði hann 9 mánuðum eftir að ég afhjúpaði þessa sneypuferð hans.

Ef maður les svo þetta uppgjör, sér maður vel hve veikur maðurinn er fyrir öfgastefnu. Vésteinn ritaði: Að þessu öllu sögðu get ég ekki sleppt því að nefna Bræðralag múslima og afstöðuna til gyðinga. Ég varð ekki var við beint gyðingahatur hjá þeim. Hins vegar eru þeir mjög miklir andstæðingar zíonismans og holdtekju hans, Ísraelsríkis. Það er háttur zíonista að segja að andstæðingar zíonískrar kynþátta/trúrembu/júðernishyggju séu ekki annað en óþvegnir gyðingahatarar. Þá dellu nenni ég ekki að fjölyrða um.

Vésteinn trúir greinilega ekki að Múslímska Bræðralagið hafi predikað gyðingahatur síðan það var stofnað, og hann veit náttúrulega miklu betur en gyðingar sjálfir, hvað gyðingahatur er.

Sjáið orðavalið, t.d. "Júðernishyggja".

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 25.12.2014 kl. 19:13

6 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ráðstefnan var í apríl 2008, Vilmundur. Þú byrjaðir að spinna þína óra hér á blogginu um sumarið og ég skrifaði grein snemma hausts. Ég sé ekki hvar níu mánuðir komast fyrir á þessu tímabili.

Um gyðingahatur Bræðralagsins sagði ég ekki annað en að ég hefði ekki beint orðið var við það hjá þeim á ráðstefnunni, annað er frá þér sjálfum komið.

Þú ættir að leita þér hjálpar við þessari þrálátu útúrsnúningsáráttu þinni.

Vésteinn Valgarðsson, 25.12.2014 kl. 19:39

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

3. maí 2008 skrifaði ég um ráðstefnu sem þú varst á, sem tók þig 5 mánuði að melta (ásláttarvilla hjá mér með 9 mánuði). Þeir sem fara á ráðstefnur Bræðralagsins, og skrifa um gettó, helförina og Ísraelsríki eins og þú hefur ítrekað gert, eru kynþáttahatarar. Svo einfalt er það. Vinstri menn geta hæglega verið kynþáttahatarar ekkert síður en hægrimenn. Kristnir menn og múslímar hötuðu gyðinga gegnum aldirnar, síðar kommar, nasistar og nú einfeldningar á Vesturlöndum, sem hatast einnig út í menningu Vesturlanda og BNA með öfgaíslamistum.

Þú ert einnig fyrir löngu búinn að dæma sjálfan þig úr leik í "vantrúarruglinu". Maður sem situr ráðstefnur trúaröfgasamtaka og boðar vantrú í sínu eigin landi er ekki sjálfum sér samkvæmir. Það er nú aðalvandamál þitt. Þess vegna liggur þú svo vel við gangrýni, eins og allt öfgafólk sem ekki þolir mannréttindi. Ósk  þín um að stýra því hvað annað fólk hugsar er veikleiki veruleikakommúnismans og nasismans. Þess vegna spila þessir "ismar" svo vel við öfgaíslam, því hatrið og hugsanafjötrar er það sem heldur þessum helstefnum ykkar gangandi. 

Þú ert ekki maður frelsis og friðar og verður það seint.

Óvirðing Vantrúarmanna við trúað fólk er ekkert annað en mannréttindabrot og fordómar. Fólk eins og þú hefur ekki innistæðu fyrir hjalinu um mannréttindi séu því kærari en öðru fólki.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 25.12.2014 kl. 20:25

8 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Þú spólar bara í sömu spýjunni. Ef maður smættar málflutninginn þinn, þá ertu ekki að segja annað en að ég sé bjáni og þú sjálfur sért rosa klár. Annað eru bara málalengingar.

Til hamingju með að vera einn af þessum sárafáu guðs útvöldu, réttlátu mönnum. Þótt það hlýtur að vera frústrerandi að allir þessir goyim skuli ekki meta þig að verðleikum.

Vésteinn Valgarðsson, 25.12.2014 kl. 20:56

9 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

"Það hlýtur að vera..." átti að standa.

Vésteinn Valgarðsson, 25.12.2014 kl. 20:59

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

2004_1001_140228AA

Helgi og arftakinn

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 25.12.2014 kl. 22:46

11 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Grein Vésteins dæmir sig sjálf. Menn sem hafa ekki nógu mikið umburðarlyndi til að leyfa trúuðu fóli að vera í friði með sínum guðum,

Þessir menn eru ekki til nema í kollinum á þér. Reyndu a.m.k. að kynna þér málstað þeirra sem þú drullar yfir, þetta er bara pínlegt.

Matthías Ásgeirsson, 25.12.2014 kl. 23:32

12 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

"Trúuðu fólki" átti að standa þarna ekki trúuðu fóli.

Ég hef kynnt mér málstað ykkar Matthías, og sé ekki annað en að þið "drullið" yfir allt og alla. Þið eruð "evangelískari" en þjóðkirkjan í áróðri ykkar yfir sælunni sem fylgir því að trúa ekki á neitt nema typpið á sér og mannsins mátt og megin.En það síðastnefnda hafið þig greininga erfitt með að sýna. Typpi (sjá mynd ofar) og drullu eigið þið nóga.

Það er engu líkara, eins og ég segi, en að þið séuð á seingelgjuskeiði, og séuð í einhverri uppreisn við foreldra eða fjölskyldu.

Tvískinnungurinn er einnig mikill og maður sér hann líka hjá mörgu vinstri mönnum, sem sumir hverjir keppast um að fara í kirkjur til að lesa Passíusálmana í einhverri andagt.

Það er tvískinnungur þegar maður eins og Vésteinn fer á ráðstefnur öfgatrúarhóps, þar sem hann sameinast "trúarnöttum", svo notuð sé orðabók ykkar, í hatri sínu á Ísraelsríki og gyðingum. Á Íslandi færi hann örugglega aldrei á friðarráðstefnu Hvítasunnusafnaðarins.

Svo er hann hér i umræðu sem hann hefur sjálfur með gyðingafordóma. Trúleysingjar eru oft fordómamesta fólk sem ég hitti. Þið kunnið ekki að höndla "hamingju" ykkar án þess að lýsa yfir vandlætingu á öðrum.

Að mínu mati hljótið þið að vera mjög óhamingjusamt fólk.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.12.2014 kl. 07:53

13 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Þessi athugasemd þín innihélt ekkert nema órökstutt skítkast. Til hamingju með það.

Matthías Ásgeirsson, 26.12.2014 kl. 17:21

14 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Matthías Ásgeirsson, er allt málfar þitt smitað af endagörninni?

Þú átt virkilega bágt. Lifðu heill.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 26.12.2014 kl. 20:15

15 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Hér skrifaði ég í gær kl. 18:55: "Vilhjálmur, hættu þessu nú. Þú verður þér til skammar."

Sú athugasemd er horfin.

Er vöndur ritskoðunarinnar kominn á loft?

Vésteinn Valgarðsson, 27.12.2014 kl. 11:15

16 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Aumingja Vésteinn. Heldur þú að þú getir verið með vinstri-gyðingahatur og um leið heimtað mannréttindi fyrir sjálfan þig, þegar þú ímyndar þér að þú hafir orðið fyrir ritskoðun. Í raun skín íhaldsfrekjan (sem bregður fyrir hjá sumum afkomendum Sjálfstæðismanna) sem þú ert alin upp við út úr öllu hegðunarmynstri þínu. Þú leyfir þér allt, og vilt banna öðrum lífshamingju. Þannig ert þú umhverfisskaðaður að mínu mati. Þú ert illa upp alinn einstaklingur og enginn þarf að skammast sín eins mikið og þú.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.12.2014 kl. 11:58

17 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Hægðir eru mér hugleiknar þegar ég heimsæki rotþróna sem þetta blogg þitt er.

Matthías Ásgeirsson, 27.12.2014 kl. 20:52

18 Smámynd: FORNLEIFUR

Þú ert frekar frumstæður karl, Matthías; Líklega tilvalið meistarastykki fyrir sálfræðing sem vill rannsaka kúk og piss syndróm hjá fullvaxta einstaklingi.

Lifðu samt heill og gerðu það nú fyrir mig að gera stykki þín annars staðar en hér. Vona ég að þú vitrist og sjáir með tímanum að fordómar þínir gegn fólk sem hefur trú er afar frumstæð kennd. Við verðum öll að vera hér. Trúin er vandmeðfarin, en það er trúleysið líka.

FORNLEIFUR, 27.12.2014 kl. 21:22

19 Smámynd: Snorri Hansson

Ég er vantrúa . Ég virði samt trú annara og siði og ég virði þjóðkirkjuna ,  Þar eru flestir.

Ég sé ekkert að því að Þjóðkirkjan ,Fríkirkjan,Hvítasunnusöfnuðurinn og allir hinir kristnu og ekki kristnu söfnuðir fái að kynna sitt starf innan og utan skóla.

Ef foreldrum er í nöp við vissar kenningar þá þurfa börn þeirra ekki að mæta.

Það er algerlega fyrir ofan minn skilning að messa móti barn til endanlegrar skoðunar  á trúmálum .

Ég hef andstyggð á þegar lítill hópur sem þikist tala fyrir hönd  allra þeirra sem eru efins í trúmálum. Öskrar á torgum og í fjölmiðlum um það hvað megi og hvað megi ekki.

 Að prestur megi segja þetta og ekki annað  við þetta  eða hitt tækifærið. 

Þessi pínu litli hópur stundar að mínu mati ofbeldi og ofstæki.  Einmitt það sem ég hef mesta andstyggð á

 Það minnir mig óþægilega á trúflokk sem telur að stúlkubörn eigi ekki að læra að lesa.

Snorri Hansson, 28.12.2014 kl. 03:01

20 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Hva, búinn að opna aftur fyrir athugasemdir?

Vésteinn Valgarðsson, 28.12.2014 kl. 09:09

21 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Er eitthvað að tölvunni þinni Vésteinn. Kannski vírus frá Bræðralaginu?

Snorri, meðlimir Vantrúar hatast í frístundum út í Ísrael á sama hátt og þeir sem banna vilja stúlkum að læra að lesa. Þeim finnst allt í lagi að svína heimstrúarbrögð og frjálst ríki (Ísrael) til með hatursorðræðu. En þegar einhver leyfir sér að skrifa gagnrýni á öfgar Íslams eru þessi vaktmenn "frelsis" fyrstir á staðinn með öfgafullar yfirlýsingar um óeðli og rasisma þeirra sem gagnrýna. Þetta eru jú sérleyfishafar á réttar og sannar skoðanir. En svona tvískinnungur ber vott um heimsku og alvarlega vöntun á rökhugsun.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.12.2014 kl. 12:18

22 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Meðlimir Vantrúar hafa enga eina skoðun á Ísrael.

Ég hef andstyggð á þegar lítill hópur sem þikist tala fyrir hönd  allra þeirra sem eru efins í trúmálum. Öskrar á torgum og í fjölmiðlum um það hvað megi og hvað megi ekki.

Þessi hópur er ekki til. A.m.k. er þetta ekkert líkt því sem Vantrú gerir.

Matthías Ásgeirsson, 28.12.2014 kl. 17:54

23 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Vona ég að þú vitrist og sjáir með tímanum að fordómar þínir gegn fólk sem hefur trú er afar frumstæð kennd. Við verðum öll að vera hér. Trúin er vandmeðfarin, en það er trúleysið 

Ég hef enga fordóma gegn fólki sem hefur trú. Þetta er einfaldlega órar í fólki sem þolir ekki gagnrýni á trúarbrögð og boðun þeirra.

Matthías Ásgeirsson, 28.12.2014 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband