Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Matur og drykkur

Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu

1415254

Stríðssöngvakeppni Evrópuráðsins er lokið í Reykjavík. Lítil umfjöllun var sem betur fór um þessa ómerkilegu söngvakeppni úti í hinum stóra heimi. En stigin hafa verið talin:

Enginn sigraði líkt og oftast gerist í stríði. Sumir þáðu krampakoSS hjá Kötu. En aðeins einn, Petr Pavel, fyrrverandi hershöfðingi frá Tékklandi, og sonur njósnafulltrúa sem tók mjög virkan þátt í ofsóknum kommúnistastjórnarinnar í Tékklandi 1968, fékk sér SS pylsu með öllum hergögnunum, og pilsner með.

Pétur Páll komst þó fljótt að þeirri niðurstöðu, að Tékkland væri enn fremsta pylsulandið í Evrópu. Hann var einnig lítið hrifinn af nafninu á íslensku pylsunni - og það vantaði súrkál. Pétur Páll, sem er mikill áhugamaður um pylsur, lét þau orð falla, að þetta hlytu að vera pylsur fyrir Íslendinga, enda það sem Danir kalla oft "Dødens Pølse" og vita upp sig skömmina.

Á stórskjá frá Kív birtist Volodymyr líkt og skúrkurinn í Dr. Strangelove forðum, og kvartaði yfir því að hafa misst af SS-pulsunum. Hann hafði þegar fengið sinnepsgas og þakkaði fyrir það, og vildi miklu meira, t.d. nokkrar sendingar af SS-pulsum, sem hann telur vera príma Kosher fæði. Hann vildi halda stríðinu áfram og það vill hin herskáa Evrópa greinilega einnig. Hún er búin að gleyma þýsku SS-pylsudrengjunum og hjálparkokkum þeirra frá ýmsum löndum.

En nú vitum við hvað leynivopn Ísland gaf Zelenskyj: SS-pylsur, fyrir fremstu bragðarefi Evrópu. Þið þekkið þá á brögðunum.

Þetta var svo sem allt sem kom út úr skattfé almennings og helmingi fjárlaga á Íslandi. Hægt var að rannsaka glæpi Rússa, en ekki er til nóg til að rannsaka glæpi Úkraínumanna, og Íslendingar fá frest frá ESB (sem einnig stjórnar öllu í Evrópuráðinu) til að bæta losun sinneps- og hláturgass.

Myndin hér fyrir neðan er tekin af fyrrv. formanni BHM, sem var fylgisveinn Petr Pavels, og er í boði Utanríkisráðuneytisins (Dísu hjá prjónastofu Dísu og Kötu) sem hann vinnur nú fyrir við að staga í græna sokka sem gefnir eru til Úkraínu.

Munið FRIÐINN, sem greinilega var úthýst í tvo daga alla leið út í Örfirisey, fyrrv. óðal ættar minnar.

1415411 Pétur Páll fær sér pylsu


mbl.is Forseti Tékklands fékk sér pylsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífshætta í Costco

Rusl á þaki

Meira eða minna ak- og offeitt fólk sem flykkist eins og órúið fé í risaverslunina Costco er flest í bráðri lífshættu. Ekki er það hjartaáfall, insúlínsjokk eða tappi sem gæti orðið bani þessa íturvaxna og kaupglaða fólks. Örugglega er hægt að kaupa ódýrustu hjartastartarana á byggðu bóli í Costco og verslunin virðist greinilega hafa bjargað geðheilsu marga síðustu dagana. 

Nei, banamein þessa aumingja fólks gæti hæglega orðið spýtnarusl og annað lauslegt sem liggur á þaki verslunarinnar. Þetta sýna loftmyndir sem Wikileak lak í gær. Spurningar hafa einnig vaknað um að þarna gæti hryðjuverkastarfsemi verið í uppsiglingu?

Yfirvöld verða að loka versluninni nú þegar, þangað til að brakið á þakinu verður fjarlægt. Sorpið á þakinu gæti hæglega fokið í næstu lægð ofan á örvinglað fólk sem ekki finnur kerrur eða frið í sálinni fyrr en það hefur verið rúið inn að beini í Costco. Það má ekki gerast.

Spýtnaruslið má sjá efst á loftmyndinni, þar sem það liggur eins og hráviði á tyrfðu þaki fjárhúss Costcos. Ljóst er að Costco hefur stefnt lífi fólks í bráða hættu og verður að greiða sektir og miskabætur. Ógnin af þessu fyrirætlaða hryðjuverki hlýtur að róa landsbyggðarfólkið sem var búið að plana 500 rútuferðir í Costco til að fylla hlöður sínar og útihús af dómadags rusli.

Þess ber strax að geta, að Óttar í Hættunni verður með bók 'Hættan leynist á Þakinu' og björgunaraðgerðirnar í Costco í jólabókaflóðinu í Costco, þar sem bækurnar verða.... gefnar þeim sem lifðu æðið af.

 

Frétt þessi birtist fyrst í Færeyska blaðinu Sósíalúrín.


Vítahringur íslensku þjóðarinnar

11700980_443458632499687_5107779828152919137_o.jpg

Hægfara sjálfsmorð íslensku þjóðarinnar er löngu hafið, en nýlega var því hraðað til muna. Því hefur verið hótað að 16 nýir skyndibitastaðir muni hjálpa til við þjóðarsjálfsmorðið.

Misskiljið mig ekki. Ég hef ekkert á móti hóflegum kapítalisma. Ég tel hins vegar að menn eigi ekki að éta sig í hel hans vegna. Það á ekki að troða kapítalisma ofan í kok á fólki, frekar en fimm ára áætlunum og sænskum kanelbullum frá IKEA.

Íslendingar eru vissulega að drekkja sér í fitu og kafna í sykurpytti. Þetta er eins og hernaður. Nú er líka búið að hertaka íslenska fánann og setja hann á amerískan vítahring. Reyndar nær litarefnið í sykurdrullunni ekki bláa litnum í ilhýra fánanum okkar. Dunkin´ Donuts brýtur því íslensk fánalög með þessum E-1944 blue lit.

Afnám tolla og gjalda á fitu og sykur meðan að tollar á grænmeti hækkuðu, komu sér eins og himnasending fyrir Pétur Árna Jónsson sykurpabba á Dunkin' Donuts. Forstjóri 10-11 virðist reyndar sjálfur vera orðinn fórnarlamb sölumennsku sinnar. Bíldekk eru farin að myndast um mjöðm og um háls þessa áður svo mjóslegna framtaksmann. Líklega er einnig farið að þrengja að kransæðunum í Pétri, því nú drekkur hann bara blávatn að læknisráði þegar hann er Dunkin´ Donuts (sjá hér). Pétur Árni mælir þó ekki með að aðrir fari að því ráði. Hann græðir nefnilega á sykri og fitu.

Sú staðreynd blasir við, að þeir sem versla munu á öllum Dunkin´ Donuts stöðum Péturs Árna (og borða kjúklinga á KFC í kvöldmat), munu að meðaltali lifa miklu skemur en foreldrar þeirra, afar og ömmur, sem létu sér nægja eina og eina kleinu með kaffinu og það án fánalitanna úr sykurdrullumixi. 

Ekki skilja mig rangt, mér þykja góðir kleinuhringir, en án drullu, og ég bý þá sjálfur til 2-3svar á ári, en ég tel að þessi matvara, eins og allt annað matarkyns sem þróað var áfram  í Bandaríkjunum sé aðeins hollt fyrir menn sem vinna erfiðisvinnu, t.d. Pólverjana og Litháa sem þrælað er út í verslunum 10-11.

ramos-dunkin_donuts.jpgWilliam Rosenberg, bandarískur gyðingur sem hætti í skóla þegar hann var 14 ára til að lifa af, stofnaði Dunkin´ Donuts keðjuna árið 1950, þegar honum var ljóst sem smásölumanni fyrir matvörur til iðnaðarfyrirtækja, að kaffi og kleinuhringir voru vinsælustu matvörur verkamanna, sem unnu langan og erfiðan vinnudag. Rosenberg borðaði aldrei mikið af kleinuhringjum sjálfur, enda vann hann ekki erfiðisvinnu. Það er heldur ekki  í sjálfu sér honum að kenna, að þjóðarbrot sem ekki eru vön djúpsteiktum mat og hafa lifað á horriminni í aldaraðir fitna óeðlilega mikið þegar þau komast í slíkt "fæði". Á þetta við um þeldökka Bandaríkjamenn, Íra sem sem og Íslendinga og margar aðrar þjóðir. ekki síst. frumbyggja Bandaríkjanna, sem nú er verið að útrýma á miklu hagkvæmari hátt en á 19. öld. Þegar fólk fer að innbyrða alla fituna og sykurefnin í kleinuhringjunum er hægfara sjálfsmorð hafið. Fólk með skaðaða sjálfsímynd, fátæklingarnir, fólk með "fíkilsgen" og þeir sem vantar hemla þegar að matarlist kemur, verða fórnarlömb fitu og sykurdrullunnar.

11845136_443458629166354_3684176175669955316_o.jpgDónuttarar. Myndin fannst á FB Dunkin´ Donuts. Þeim virðist illt í rassinum.

Ekki er ég þó viss um að sugar-daddyar íslensku þjóðarinnar sem troða fitusoðnum kjúklingum og kleinuhringjum ofan í garnir Íslendinga og skola því út með ropvatni í öllum regnbogans litum, muni skila arði sínum í einstaka sjúkrahús eða spítaladeildir, þar sem afleiðingar þessa einstaka framtaks þeirra verða "læknaðar" á kostnað skattborgaranna.  Þeir fara ekki að fordæmi Williams Rosenbergs, sem gaf nokkrar krabbameinsdeildir þegar hann var sjálfur kominn með krabbamein í annað hvert líffæri. Íslensku sykurotrarnir og fitukjúklingarnir borga ekkert og munu hlæja alla leið í bankann með arðinn af sjálfsmorðsvilja viðskiptavinanna.

Eftir situr hin hreina og einstaka þjóð, í súpersize rúmum á troðfullum hjarta- og krabbameinsdeildum, ef fólkið er þá ekki þegar farið úr bráðaristilbólgu, lífhimnubólgu eða skitusting.


Bananaskýrsla SÞ

ali_bin_banani.jpg

 

Loftslagsskýrsla SÞ var borin fram með rotnum ávöxtum í sjónvarpsfréttum RÚV í gær með aðferðum sem er alkunnar á þeirri stofnum. Enn erum við að tala um öfgatrúarbrögð, þegar rökin fyrir meintri aukningu bilsins milli ríkra og fátækra sökum loftslagsbreytinga á jörðinni okkar er studd með bananaræktanda í Jórdaníu (sjá hér).

Bananaræktandi í Jórdaníu er jafnvel fjarstæðukenndara fyrirbæri en bananaræktandi í gróðurhúsi í Hveragerði. Bananar eru hitabeltisávöxtur og Jórdanía hefur ekki verið í hitabeltinu eins lengi og elstu menn muna. Að nota vatn í bananaframleiðslu í Jórdaníu er eins fjarstæðukennt og að reisa 50 metra keppnislaug á Gaza (sem hefur verið gert,  og sundlaugar byggðar við annað hvert hótel), meðan "vatnslaus og langþyrst" börn eru notuð í áróðrinum gegn Ísrael, sem ranglega er kennt um að stela vatninu.

Svo kom Sigmundur Davíð og vitnaði í enn einn gervispámanninn hjá UCLA, Laurence C. Smith, landfræðing sem stundað hefur framtíðarfræði, sem segir að Ísland verði á meðal 8 farsælustu þjóða í heimi eftir 50 ár. Sigmundur sér sóknartækifæri í loftslagsbreytingunum og telur greinilega að íslenskir bændur verði orðnir ofurmatarframleiðendur hungraðs heim áður en langt um líður.

Var Sigmundur ekki einu sinni blaðamaður? Það leynir sér ekki. Nú getur hann hæglega snúið sér að bananaræktun eða tómu tóbaki. 

Já, ég sé þetta fyrir mér, Ísland er að verða að framsóknarparadís hér á jörð. Vísir hf getur þá farið að flytja aftur til Húsavíkur og Þingeyrar. Nóg verður af fiski. Makríllinn verður vissulega kominn á fyrrverandi Norðurpólinn og loðnan alveg horfin, enda bara til leiðinda. Flugfiskar munu hins vegar fljúga á land í íslenskum verstöðvum og börnin þurfa ekki lengur að kaupa matreiðsluvín í Kaupfélaginu. Þau verða vínbændur og besta vínið Mouton Rottenchild 2060.


Typpasleikjó

of=50,590,442
 

Íslendingar eru alltof uppteknir af kynlífi og kynhneigð. Það finnst mér, og það á örugglega við um mig líka. 

Þótt réttindi samkynhneigðra séu vart meiri á byggðu bóli en á Íslandi, fer heil vika þjóðarinnar í frekar dauflega göngu fyrir samkynhneigða í rigningu og sudda, og svo í rugl og raus í siðapostulum í kjölfarið. Það sem mest höfðar til kynhneigðar þjóðarinnar í göngunni er uppátæki borgastjórans í Reykjavík, sem var í gervi prestsmadömmu í ár.

Réttur fólks af öllum tegundum til að elskast og ganga í hjónaband, án þess að verða fyrir aðkasti fyrir það, er lögleiddur á Íslandi. Ég sé ekkert af því að karlmenn sleiki hvern annan á almannafæri ef það er fyrir ofan beltisstað og neðan lendarklæðis. En stundum finnst mér að sumir samkynhneigðir vilji eitthvað meira en grundvallarréttindin og að kynlíf þeirra og ást fjalli mest um sýndarmennsku. Mér skjátlast örugglega, því til er fólk sem borðar hreinlega smiðsson, gyðing, á táknrænan hátt í stórum húsum með turnum, sem geta minnt menn og konur með frjósamt ímyndunarafl á rausnarlegt reður. Hallgrímskirkja, uuhhm.

Þegar maður les í athugasemdum við fréttir af hommaóþoli Gylfa Ægissonar skemmtikrafts, að 5 ára börn hafi gengið um götur borgarinnar og sleikt sleikipinna sem lagaðir voru eins og typpi, er ekki laust viða maður sé hættur að skilja baráttu samkynhneigðra.

Allir hafa vitaskuld rétt á því að sleikja typpi maka sinna og hvað sem þeir vilja -  en 5 ára börn, jafnvel 3ja ára eins og maður sér ef maður googlar, eiga fjandakornið fyrir enga muni að vera að sleikja sykurtyppi. Þau eiga að eiga það til góða. Það er að minnsta kosti mín skoðun. En nú til dags geta þau vitanlega séð morð og nauðganir í sjónvarpinu á hverju kvöldi, svo þau eru líklegast með meira hár á brjóstinu en ég var á þeirra aldri og kalla ekki alt ömmu sína í kynlífsmálunum. Líklega vita íslensk börn hvað hommi er þegar þau eru 3-5 ára. Ég vissi fyrst hvað það var svona um 12 ára aldur.

Ef rétt er, að hommar og lesbíur séu að dreifa typpasleikjó til barna í gleðigöngunni, er blygðunarkennd minni misboðið, þótt ég sé ýmsu vanur. Fólk sem telur mannréttindabrot að tala með óvirðingu um öfgafulla spámenn sem ekki má nefna, en gefur svo smábörnum typpi úr sykri til að sjúga, er ekki sjálfur sér samkvæmt.

Eru Hinsegin Dagar að fara framúr sér? Eru þeir einvörðungu til að ögra þeim sem ekki hugsa sífellt um að sleikja reður? Ég bara spyr.

Myndina efst fann ég á myndsíðu íslensk ungmennis sem er að sýna heiminum hvernig ungmenni i sletta úr klaufunum á erlendri grundu þegar pabbi og mamma sjá ekki til. Foreldrar barna sem þiggja typpasleikjó ráða hins vegar hvað börn þeirra sleikja, og ef fólk á Íslandi telur það gott mál að litlu börnin þeirra séu að bryðja sleikibrjóstsykur, sem er eins og reður í laginu, skipti ég mér ekkert frekar að því. 

Ég hefði líklega ekki átt að skrifa þetta, því það er víst afar gamaldags að sleikja ekki typpasleikjó. Ég er greinilega að verða gamall. Typpasleikjó er það sem koma skal. 

Hvaða bragðtegundir eru til?

181513252
Ekki veit ég hvort þessar stúlkur eru íslenskar.

Sendiherrann viðkunnanlegi

Iftar-32 

Nýlegar lokanir á sendiráðum Bandaríkjanna í fjölda landa hafði engin áhrif á Íslandi.  Ekki er mér kunnugt um að Bandaríska sendiráðið við Laufásveg hafi verið lokað, enda lítil ástæða til þess. Íslendingar eru hættulegasti sjáfum sér og terroristar ganga lítið eftir Laufásveginum, þótt steinsteypuhindranir BNA-sendiráðsins gæti gefið aðra mynd. Nú ræður ríkjum mjög óvenjulegur bandarískur sendiherra, sem á góðviðrisdögum gerir Laufásveginn litríkari og lýsir stuðningi við það sama og flestir Íslendingar, með því að rúlla út fána samkynhneigðra.

IDAHO Flags 2
USA-Embassy Reykjavík - Glad to be gay!

 

Sendiherrann heitir Luis E. Arreaga og er fæddur og uppalinn í Guatemala á viðsjárverðum tímum, eða um það leyti sem herforingjar rændu þar völdum árið 1954 með dyggri aðstoð CIA. Luis Arreage hafði, eins og börn elítunnar í Guatemala, tök á því að fara í framhaldsnám til Bandaríkjanna og settist þar að.

Síðan að sendiherrann kom loksins til landsins, hefur hann verið mjög virkur í almannatengslum og að kynna sér land og þjóð, sem og að kynna land sitt. Hann heldur úti bloggi, sem hann kallar Ambassdor's Blog, sem ég hvet alla til að kynna sér. Áður hafa mest setið stífflibbar og merkikerti í sendiráðinu, eins og oft vill verða í diplómatíunni, en Luis er búinn að koma dálitlum Ladínó-salsaanda inn í utanríkisþjónustu. Áhugavert að lesa, og sjá hvernig hann skjallar Íslendinga upp úr skónum, ferðast um landið og kynnir sér margar hliðar þess lands sem hann gistir og þjónar landi sínu í. Hann ber mikla virðingu fyrir Íslendingum og hefur greinilega uppgötvað, að Íslendingar eru hálfgerðir Kanar og að smáhluti þessara eyjaskeggja er "Norther-Ladínó".

Meðlimir múslímasafnaðarins í Öskuhlíð, sem ýmsir bloggarar rita um sem Íslamista og öfgamenn, hafa meira að segja verið á gestalista Arreaga, svo vart getur hann verið haldinn íslamófóbíu eins og 80% Bandaríkjamanna. Arreaga hefur meira að segja farið í samkomuhús þeirra. Myndirnar eru af bloggi sendiherrans alþýðlega og sýnir efsta ljósmyndin gesti hans við iftar-máltíð í Sendiráðinu á nýafstaðinni Ramadan-föstuhátíð. Múslímar frá báðum söfnuðum Múslíma á Íslandi voru mættir. Sóttur var bandarískur imam í veisluna. Egypskur klerkur safnaðarins í Öskjuhlíðinni var líka mættur í partíið, en hann "misskildu" allir um daginn, þegar hann var að tjá sig um konur og samkynhneigða. Þarna voru einnig múslímar á Íslandi sem á fasbókum sínum hafa tjáð sig fjálglega um nauðsyn þess að útrýma Ísrael og einn sem setti "læk" á öfgaklerk í Sádi-Arabíu, sem vill útrýma öllum gyðingum.

USA ISLAND ISLAM
USA - ICELAND - ISLAM

Eitt er öruggt, Luis E. Arreaga hefur fundið sér besta stað í heimi til að vera bandarískur sendiherra frá Guatemala. Á Íslandi er hryðjuverkahættan=0. Við vonum að hann verði sem lengst á Laufásveginum og haldi fleiri veislur.

Iftar Dinner-6
Iftar Ramadan party 2012 in the USA Embassy Reykjavík, Iceland
AMB Visit to the Islamic Cultural Center-1
I bet the goofy guy on the far right is the CIA operative  Smile 
Here is Goofy- this time in the Gay Parade
Gay CIA
I bet John Kerry was talking about Manning, when he said this!

Allt er gott í hófi

eitur

 

Nú berast fréttir af því að Omega 3 sé (mögulega) krabbameinsvaldandi. Slíka pillu eiga sannir Íslendingar, sem þamba lýsi og éta Omega 3 í öll mál, erfitt með að kyngja. En ef Omega 3 fitusýra er tekin inn sem fæðubót og til heilsubóta eiga menn nú á hættu að lenda á krabbameinsdeildinni.

Fyrir skömmu kom ég inn á aðrar hættur sem vísindamenn í Danmörku hafa tengt Omega 3. Sjá hér. Lítið, ef nokkuð, var greint frá þeim niðurstöðum í íslenskum fjölmiðlum. 

Það er kannski orðið hollara að reykja en að fylla sig af lýsi (ljósaolíu)? Allt er gott í hófi eins og kerlingin sagði.

Poisson Poison

Genginn í Samfylkinguna

depardieu

Hinn heimsfrægi franski leikari og flóttamaður Gerard Depardieu, sem hefur gamalt Green card frá BNA og fölsk vegabréf frá öðrum hverjum einræðisherra í Sovétríkjunum fyrrverandi, vill nú fá sér íslenskt vegabréf. Hann safnar nefnilega vegabréfum og ríkisföngum og hefur heyrt að Íslendingar séu sérstaklega einfaldir og gjafmildir á slík skilríki fyrir fólk sem ekki er í neyð samkvæmt alþjóðarsáttmálum.

Sigurður Líndal, fyrrverandi, fyrrverandi lagaprófesseur segist hafa fundið því lagastöð í Rómarrétti, að gefa beri mönnum sem ekki passa lengur í föt sín hæli. Depardieu hefði ekkert á móti Æli í Reppum.

Depardieu bendir sjálfur á að hann sé álíka vitlaus og Bobby Fischer, sé t.d. heimsmeistari í kappáti í truflum, sem og að hann geti fyrir enga muni haldið neinu leyndarmáli í heilan dag frekar en Assange. Depardieu er genginn í Samfylkinguna og ber því við að erfðamengi sítt sé úr Fljótunum að hluta til og að hinn hlutinn sé lokkandi og safarík ESB-skinka. Hann ætlar að taka sér íslenska nafnið Geirharður Valtýsson, ef það er ekki upptekið.

Nú er hann svo svangur að hann gæti étið hval ef hjólastóllinn þyldi álagið. Sannur Íslandsvinur !

Gerard_Depardieu_an_875790m

Illugi með öllu nema lauk

Glatt Kosher 

Það er ekki nóg með að Illugi Jökulsson sé alvitur um sekt og sakleysi manna. Hann er líka óhemju vel að sér í pylsufræðum, ef ekki sérfræðingur.

Illugi hefur rekist á gamlar og skemmtilegar auglýsingamyndir af Kosher grjúpánum í Bandaríkjunum og er það honum tilefni til að reyna að vera fyndinn á kostnað matarvenja og trúar annarra manna. 

Illugi sýnir okkur léttklæddar konur og Hebrew National og Zion pylsur, en gleymir vitaskuld Oscar Mayer, sem reyndar eru ekki lengur Kosher.

Frankfurter malkah

Illugi telur fyrirsæturnar sem stilla sér upp með pylsunum vera "kosher líka".  Er Illugi með þessu að gefa í skyn að gyðingar borði konur? Það væri nú við hæfi hér á páskunum.

 Ali og SS á Ísafirði VÖV Photo

Menn, sem helst vilja sporðrenna SS pulsum og háma í sig Ali álegg, ættu síst af öllum að vera að ybba gogg. Ekki fékk Clinton fyrir hjartað þegar hann fékk sér Zions dætur í bláum kjól á cígarinn (pulsuna), en hann fór beint á Mount Zinai eftir að hafa kokrennt SS með öllu í Reykjavík.

Clinton SS wienerBloggvinur minn einn, Aðalbjörn Leifsson kjötiðnaðarmaður, skrifaði eitt sinn: Þegar ég var í skinkuskólanum í Hróarskeldu þá sögðu Danirnir mér að pulsur væru guðdómlegar, því það vissi engin hvað væri í þeim nema Guð einn. Læt ég þau vísu orð vera rúsínuna í pylsuendanum.


Svín og fávitar í Finnlandi

Þessi stuttmynd frá Finnlandi talar sinni eigin svínatungu. Myndin er reyndar hluti af samnorrænu verkefni.

Hvað ungum Finnum vill til með þessu ógeðfellda uppátæki, að grilla svínakjöt og bacon fyrir framan afganskan flóttamann sem er í hungurverkfalli fyrir framan finnska þinghúsið, veit ég ekki. Ef þetta er húmor, er hann sjúkur. Það er greinilega eitthvað að í finnsku samfélagi. Þetta minnir á frumstætt fólk á Íslandi sem segist ætla að grafa svín í grunn nýrrar mosku. Er ekki nóg móðgun, að slík svínmenni séu til?

Afganski flóttamaðurinn, sem er með glært augnaráð þess sem sveltur, nýtir sér hitann frá grilli svínanna, sem éta og drekka fyrir framan hungraðan manninn, sem berst fyrir tilverurétti sínum. Svo þegar pattaralegu finnsku drengirnir eru búnir að éta nægju sýna, brýst sýndarfýsn þeirra fram í ljósum logum og þeir fara að spúa eldi, berrassa sig og hlaupa nektarhlaup umhverfis þinghúsið sem ber hið fagra nafn Eduskunta.

Þetta er greinilega toppurinn á finnskri og Norðurlandamenningunni í dag. Finnland er víst ESB-land.


Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband