Leita í fréttum mbl.is

Heilmikiđ ađ gerast á litningi 21

Genbreyttur Kári

Er karlinn orđinn ellićr hugsađi ég, er ég heyrđi og las um umbreytinguna á Alzheimersgeni Kára Stefánssonar, eđa er ég kominn međ Alzheimer á heilann eins og hann? 

Ađ sögn voru 1795 Íslendingar rađgreindir vegna ţessarar nýjustu rannsóknar Íslenskrar Erfđagreiningar, sem er sögđ stađfesta ađ APP (Amyloid peptíđ) valdi Alzheimer (ţó mér sýnist ađ íslenska rannsóknin gefi sér ţađ) og ađ umbreyting, sem kölluđ er A673T, á geni nokkru á litningi 21 valdi ţví ađ sumt fólk fái alls ekki Alzheimer.

Ef Íslendingar eru 320.000 erum viđ ađ tala um ágćtt úrtak eđa um hálft prósent ţjóđarinnar. deCODE upplýsir, ađ út frá rađgreiningunni á ţessum 1795 einstaklingum sé tölfrćđilegur grunnur til ađ álykta ađ 750 núlifandi Íslendingar séu međ breytileika sem veldur ţví ađ ţeir geti svo ađ segja ekki fengiđ Alzheimer.

Ţađ er ađ segja ef mađur gengur út frá ţví ađ FAD-Alzheimer orsakist fyrst og fremst af Amyloid peptíđi, eđa amyloid-β precursor protein (APP) sem veldur „elliskellum" eđa taugafrumusiggi í heila ţeirra sem fá sjúkdóminn.

Breytileikinn finnst ađ sögn Kára og Co í 1% Íslendinga (sjá hér) en tímaritiđ Nature upplýsir hins vegar í frétt međ greininni, ađ 0,5 % Íslendinga hafi ţessa erfđabreytingu í litningi 21, ţannig ađ ţeir séu í lítilli hćttu á ţví ađ fá Alzheimer. 750 Íslendingar eru hins vegar hvorki 0.5% eđa 1% ţjóđarinnar?

Ţeir sem ekki voru međ erfđabreytileikann sem varnar Alzheimer hafa líklega sumir hverjir veriđ skilgreindir sem Alzheimer sjúklingar af íslenskum lćknum. Gaman vćri ađ vita, hvort ţađ hafi veriđ gert međ rannsókn á heila ţeirra allra eftir krufningu. Var gengiđ úr skugga um ađ ţeir vćru međ „elliskelli" vegna APP?  Eins og viđ vitum er ekki langt síđan menn fóru ađ nota skilgreininguna Alzheimer á Íslandi, og síđast er ég vissi voru lćknisfrćđi eđa erfđafrćđi ekki orđin absólút frćđi.

Leitiđ í öllum ritum ađ Alzheimer á www.timarit.is frá 1900 til 1985 og upp koma 25 skipti ţar sem sjúkdómurinn er rćddur í rituđum miđlum. Í öll skipti eftir 1980. Alzheimur sjúkdómurinn var samt skilgreindur og gefiđ nafn í byrjun 20. aldar. Áhrif APP á heilafrumur uppgötvađist síđan ekki fyrr en fyrir 25 árum. Hvenćr var fyrst sagt frá ţeim áhrifum í  tímaritum á Íslandi?

Ég vona ađ elliskellur eđa Elli kerlin sé ekki farin ađ hrjá starfsemina hjá Íslenskri Erfđagreiningu, en ekki myndi ég kaupa ţessa rannsókn og óska eftir samstarfi viđ deCODE ef ég ćtti stórt lyfjafyrirtćki. Ţađ eru framsetning eins og ţessi:„Extending this work further, the team investigated cognitive function using a seven-category test in carriers of the mutation and non-carriers in the age range of 80 to 100 years old.  The research team found a statistically significant difference between carriers and non-carriers, with the carriers of the mutation having a score indicative of better-conserved cognition.  After removing known AD [Alzheimer disease] cases, the team again found that carriers had better cognitive function, suggesting that the mutation extends its protective effect to the elderly in general" (sjá hér í stórkallalegri grein Kára), sem fćr mig til ađ sjá rautt. 

Hlutlćgt mat á vitsmunalegri getu gamalmenna, međ eđa án meintrar umbreytingar í geni á litningi 21, fćr mig til ađ minnast gagnrýni eins og ţeirrar sem greint er frá hér: Hve margir einstaklingar hafa t.d. tekiđ ţátt í ţessari rannsókn á 80-100 ára gamalmennum? Er virkilega rétt, ađ mađur ţurfi ađ kaupa ađgang ađ niđurstöđum Kára og Co í Nature til ađ geta séđ ţađ (ef ţađ er ţá upplýst)? Mađur ţarf ađ leggja í meiri kostnađ en Kári, sem hefur fengiđ sýni sín ađ kostnađarlausu frá blessuđum gamlingjunum og úr íslenska heilbrigđiskerfinu, sem er óspart á ađ gera menn ađ Alzheimer-sjúklingum. Hlutabréfin í deCODE eru vonandi aftur farin ađ dafna eftir fréttatilkynninguna frá krómósómi 21? 

En nú er ađ bíđa og sjá og vona ađ mađur verđi ekki orđinn vitstola áđur en Kári kemur međ kúrinn. Margir hafa veriđ ađ bíđa síđan 2000, ţegar Hoffmann-la Roche spýtti í kassann er Íslensk erfđagreining lýsti ţví ţá yfir ađ hún vćri ađ leita ađ lausnum varđandi Alzheimer. Gafst ekki F. Hoffmann-la Roche upp á deCODE? Ţađ er eins og mig rámi í ţađ. En Kári vonar auđvitađ ađ Íslendingar séu allir ađ farast af Alzheimer eđa naflaskođun, svo ţeir séu búnir ađ gleyma ćvintýrum ársins 2000, sjá um ţau hér.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Eyţórsson

Eins og ţú hlýtur ađ vita komst ekki í tísku ađ tala um Alzheimer fyrr en fyrir nokkrum áratugum. Fram ađ ţví og allt síđan í fornöld, t.d. hjá Cicero var talađ um „elliglöp“ eđa einfaldlega „kölkun“. Ţví er út í hött ađ leita ađ „Alzheimer“, nema í nýlegum ritum.

Vilhjálmur Eyţórsson, 15.7.2012 kl. 14:23

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Veit ek vel nafni. Minniđ er ekki langt í ţessum bransa. Áriđ 2000 spýtti F. Hoffmann-la Roche dágóđri upphćđ í rannsóknir Íslenskrar Erfđargreiningar á Alzheimer. Hvađ kom út úr ţví? Fólk virđist hafa gleymt ţví, ţótt tćp 12. ár séu liđin.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.7.2012 kl. 14:59

3 identicon

Merkilegt ţetta međ 21. litninginn. Downs-heilkenni er vegna ţrístćđu 21. litningsins og Alzheimer er algengara hjá fólki međ Downs.

Jóhannes (IP-tala skráđ) 15.7.2012 kl. 16:40

4 Smámynd: Hörđur Halldórsson

Er ađ koma  eitthvađ "breakthrough"hjá ÍE ?  Fyrir  rúmum áratug var "eina vitiđ " ađ sögn " sérfrćđinga " ađ setja peningana  í hlutabréf ÍE ,ţví ţađ var eitthvađ stórt í pípunum ţar . Aldrei ađ segja aldrei. Kannski kemur "breakthrough-iđ "

Hörđur Halldórsson, 15.7.2012 kl. 19:02

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nú verđa einstaklingar međ Downs-heilkenni ekki 80-100 ára, Jóhannes, og ekki eru sömu einkenni á AD hjá fólki med DS, eins og hjá okkur hinum sem ekki erum međ galla á litningi 21.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.7.2012 kl. 21:50

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hvađ hafa menn fengiđ út úr bréfum sínum hjá ÍE, Hörđur?

Ef ég ćtti pening, myndi ég ekki setja hann ţangađ til ávöxtunar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.7.2012 kl. 23:32

7 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Upp međ góđa skapiđ:http://www.youtube.com/watch?v=VmJsjdmuirs

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 16.7.2012 kl. 00:44

9 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Er góđa skapiđ nú líka komiđ til vegna erfđabreytinga á krómósómi 21, Sigurđur?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.7.2012 kl. 00:59

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband