Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Pólítísk rétthugsun á RÚV

Píanó féll ofan á Arafat

Gayarafata 

Íslenskir fjölmiđlar eru ţegar búnir ađ kenna Ísraelsmönnum um morđiđ á Arafat međ Pólóníum-210. Furđudýrafrćđingur fréttastofu RÚV, Ţorvaldur Friđriksson, flutti nýlega frétt ţess efnis. Ţađ er komiđ í íslenska annála. Össur Skarphéđinsson var meira ađ segja búinn ađ mótmćla "morđinu" áđur en hann var settur af sem utanríkisráđherra.

Nú kennir örugglega einhver á fréttastofu Fatah í Efstaleitinu Ísraelsríki fyrir ígerđina sem Arafat var međ og sem dró hann til dauđa. Á endanum verđur líklega hćgt ađ klína ţví á Ísraelsríki ađ ţeir hafi skaffađ rassdrengina sem smituđu frelsishetjuna af AIDS.

Rússar eru ţegar búnir ađ útiloka Pólóníum-210 sem dauđaorsök foringjans. Ef einhverjir eru sérfrćđingar í Pólóníum-210 ţá er ţađ hirđ Pútíns keisara  En ţeir segja okkur líklega á endanum ađ karlinn hafi orđiđ undir píanói.

Frelsishetja, í landi sem aldrei hefur veriđ til og sem arabar töldu á sínum tíma hluta af Sýrlandi, deyr vitaskuld á mjög mismunandi hátt. Menn eru margsaga af Palestínu og sagan sem menn segja er ósönn ađ mestu leyti.

Takiđ eftir úlnliđnum á Arafat á myndinni efst.

d_bloggi_jo_hof_ingjar_tveir

Úr sögu Framsóknarflokksins. Ađalástćđan fyrir ţví ađ ég treysti ekki ţeim flokki. Sjá hér.


mbl.is Ekki eitrađ fyrir Arafat
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Svíar eru svo jävla korrekt

88an lanserades 1964

Nú vilja menn í Svíţjóđ banna ís, pinnaís. Um er ađ rćđa ísana Black Nogger og 88. 88 hefur veriđ framleiddur síđan 1964.

Tvćr reiđar konur frá Antidiskrimineringsbyrĺn í Malmö telja ţessa ísa vera rasíska og hafa ţađ fyrir satt ađ 88 séu bókstafirnir HH, en H er 8. bókstafurinn í stafrófinu. Konurnar telja ađ 88 sé skammstöfun fyrir Heil Hitler og ađ ísinn sé nasískur.

Talsmađur ísverksmiđjunnar GB sem framleiđir 88, Petronella Warg (hljómar einnig grunsamlega nasískt), segir enga áćtlanir um ađ taka ţennan ís af markađinum. Sumir telja ís ţeirra sem kallast Igloo Cola vera dulnefni fyrir kókaínmisnotkun eskimóa. GB ţýđir vitanlega Görings Bedrift, ţó ţađ standi í raun fyrir Glace Bolaget, og er nú í eigu Unilever-samsteypunnar eins og allt annađ.

Á alţjóđlegu skeytamáli (telegrafista) ţýđir 88 reyndar "Love and kisses" og 73 t.d. Bestu kveđjur og 99 "farđu til helvítis". 111 ţýddi hér áđur fyrr, ađ ekki hafi vćri ráđ á ţví ađ kaupa klósettpappír. Talnaspeki er áhugaverđ frćđi. Ţiđ eruđ algjör 0 ef ţiđ vitiđ ţetta ekki.

Engin furđa á ţessum tímum samsćriskenninga, ađ RÚV og fréttamađurinn Ţorvaldur Friđriksson, sem lćrđi í Svíţjóđ, séu búinn ađ myrđa Arafat, ţótt ekkert sanni ađ hann hafi veriđ myrtur. Pol-210 ţýđir víst hjá furđudýrafrćđingum, ađ Ísraelsmenn voru međ matsölu fyrir Arafat 160 dögum fyrir dauđa hans.

En ef GB fer ađ framleiđa ís sem ţeir kalla Islänning, ţá er ţađ vitaskuld rasismi. Í Danmörku er selt speltbrauđ, fullt af lofti, sem kallast Palme-brřd. Eitthvađ er nú gruggugt viđ ţađ.

Jón Gnarr segir okkur ađ siginn fiskur sé asísk uppfinning. Spurningin er hvort banna eigi Jón eđa siginn fisk. Hvortveggja er eitrađra en Pol-210.

99, lesendur mínir, over and out.


Verndarar íslenska tittlingsins

skorinn tittlingur 

Gróf lygasaga RÚV um 16 ára strák međ áhyggjur af umskurn, sem ég greindi nýlega frá (sjá hér), hefur nú borist til útlanda.  RÚV laug ţví í ţjóđina, ađ fyrirspurn frá 16 ára umskornum dreng hefđi orđiđ tilefniđ ađ ályktun norrćnna umbođsmanna barna gegn umskurn. Hvergi kom fram í fyrirspurn drengsins ađ hann vćri umskorinn, eđa hvađ ţá gyđingur eđa múslími. RÚV kryddađi söguna.

Ćsingurinn út af umskurn í trúarlegum tilgangi sameinar öfgaöflin á vinstri og hćgri vćngnum. Ekki er laust viđ ađ hćgt sé ađ stofna typpabandalag upp úr hatursflórunni. 

Ćtli berist ekki brátt bođ um ađ Ređursafniđ neiti ađ taka á móti umskornum limum. 

Hvađ er eiginlega ađ íslensku ţjóđinni. Ef hún er ekki á fullu í gyđingahatrinu í Passíusálmunum, ţá er hún ađ atast á móti trúarvenjum múslíma. Verstir eru ţeir sem í skinheilagleika sínum styđja moskur. Sumir ţeirra sem eđlilega hafa ekkert á móti moskum vilja ólmir láta banna hluta af ţeim trúarbrögđum sem heiđruđ eru í moskum. 

Halda mćtti ađ margir Íslendingar vilji einvörđungu fá moskur vegna starfa sem kynnu ađ skapast viđ framkvćmdir, frekar en af virđingu viđ trúfrelsiđ. Ţađ eru engar undantekningar fyrir Íslendinga í ţessum  málum frekar en í öđru. Ţađ er ekki hćgt ađ fá sér-Íslam og sér-Gyđingdóm á Íslandi.

Annađhvort er trúfrelsi á Íslandi eđa ekki


mbl.is Leggst gegn banni viđ umskurđi drengja
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Stökkbreytti Egill

Egill Eyjapeyi

Stökkbreytti Egill frá Folegandros sagđi okkur um daginn frá ţví ađ hann hafđi séđ sígauna međ ljóshćrt barn og taldi ţađ einna helst finnskt og líklegast stoliđ (sjá hér). Ţetta var í kjölfariđ á ţví ađ "hvíta englinum" Maríu var bjargađ frá vondri sígaunafjölskyldu á Grikklandi.

Eins og ég benti Agli og öđrum á (sjá einni hér), eru mismunandi stig af albínisma algeng međal sígauna. Ţetta ćtti illa rauđhćrđur mađur og stökkbreyttur ađ vita.

Nú er komiđ í ljós, ađ "ljóshćrđa" María í Larissa er vissulega sígauni. Hún er dóttir dökkrar konu í Búlgaríu, sem fćđir eintóm albinóabörn af mismunandi litaafbrigđum. Egill er mútant eins og "hvíti engillinn" María og systkin hennar í Búlgaríu.

703877

Systkini Maríu, eđa ómagar á Íslandi?

Ásakanir um ađ sígaunar rćni börnum eru fordómaminni eins og sögur af gyđingum sem skera litla drengi á háls til ađ tappa úr ţeim blóđ til ađ nota í ósýrđ brauđ. Sú saga er reyndar nú afar vinsćl í löndum múslíma.

Egill er stökkbreyttur eins og margir á Íslandi. Margir Íslendingar eru einnig komnir af sveitaómögum sem deilt var á fjölskyldur. Ţađ er nú kannski ekki mikill munur á Íslendingum og sígaunum og stundum fć ég á tilfinninguna ađ Egill Helgason sé eins konar Gipsy King.

Líklegt ţykir mér ađ landnámsmenn á Íslandi hafi veriđ einhvers konar sígaunar (Rjómafólk), og svo hafa endalausar stökkbreytingar og flöskuhálsar líklega orđiđ til ţess ađ landiđ byggir nú ljós og rauđhćrt fólk.


Stundin Okkar

Gonzo

Stundin okkar verđur ekki svipur hjá sjón ţegar hún birtist í nýju formi í dag.

Af fréttum Sjónvarps í gćr mátti ljóst ţykja, ađ ţetta verđur allt saman samansullađ og stoliđ úr bandarískum frumleika, Sessamy Street (Sesamstrćti) og Muppet Show (Prúđuleikurunum), fyrir utan einhverja sjálfsmeđaumkvun umsjónarmannsins, sem leyfir okkur ađ sjá hvernig hann hélt vinnu sinni á stofnun, ţar sem menn ćttu ekki ađ halda ađ ţađ sé sjálfgefiđ ađ menn fái annan sjens ef brandararnir eru slappir og í samrćmi viđ lélegan húmor fyrrverandi ríkisstjórnar.

Ţess vegna hefur líklega veriđ taliđ hentugast ađ sćkja í smiđju öruggra fyrirmynda sem höfđa til skopskins fólks sem dreymir um dollara og evrur. Enginn hlćr lengur ađ krónubröndurum. Danskir fimmaurabrandarar duga ţó enn, enda 21,9 sinnum betri en ţeir íslensku.

 Hvađ finnst ţér Villi

Hvađ finnst ţér Villi?

Ljóst er ađ Fúsi heitinn flakkari og Krummi muni snúa sér viđ í gröfinni. Stundin okkar er ekki ţjóđleg lengur. Á kannski ađ fara ađ gera grín ađ ţjóđdönsum og tala vel um land og ţjóđ?

Sem fyrrverandi smástirni í spurningarkeppni í Stundinni Okkar, sem sá mikli heiđursmađur Pálmi heitinn Pétursson stjórnađi fyrir 43 árum, leyfi ég mér ađ vona ađ sú kynslóđ sem nú er er međtćkilegust fyrir Stundinni Okkar, ţ.e. Samfylkingin, VG og börnin, verđi ekki međ ćvilanga fordóma gegn fólki međ stór nef, sem sprengt er í loft upp. Ţađ er einfaldlega of nćrri veruleikanum. En slíkur frumleiki er líka međ í "nýrri" Stundinni Okkar.

Ég sá líka ađ sćnski kokkurinn, eđa frćndi hans, hefur greinilega fengiđ annan sjens í Stundinni Okkar. Hann er ađ minnsta kosti skemmtilegri en Hringekjan og fréttirnar. 

Húmanisminn er augsjáanlega alveg ađ fara međ menn á RÚV.

Sćnski kokkurinn


Ómar Ragnarsson líkir Dachau viđ Guantanamo

UnkDachau1

Á bloggi sínu í gćr sagđi Ómar Ragnarsson frá öskubakka sem hann á, sem gerđur var af Baldri Svanhólm Ásgeirssyni. Baldur gaf föđur Ómars öskubakkann sem er međ hauskúpu og krosslögđum leggjum á kantinum, kannski til ađ minna á hćttur reykinga.

Baldur var einn ţeirra Íslendinga sem fór í keramíknám í Dachau áriđ 1936. Öskubakkinn minnti Ómar á ýmislegt ljótt frá ţeim tíma og mun Ómar fjarlćgja bakkann á jólum, svo hangikjötiđ standi ekki í fólkinu hans, sem er allt pólitískt rétthugsandi.

Ég gerđi athugasemd viđ fćrsluna á bloggi Ómars Ragnarssonar og bćtti ţar viđ nokkrum fróđleiksmolum. Ómar svarađi ţví ekki beint en skrifađi:  

Allur heimurinn vissi um Dachau fangabúđirnar 1936 en samt voru Ólympíuleikarnir haldnir í Berlín. Halldór Laxness fylgdist međ útrýmingarréttarhöldum Stalíns og lét sér vel líka.

Ekkert, ekki einu sinni loforđ Obama, virđist geta haggađ fangabúđunum á Guantanamo.

Ţyrluflugmennirnir bandarísku sem sölluđu međ ánćgju niđur óbreytta borgara í Bagdad, voru ósnertanlegir en ţann, sem kom upp um ódćđiđ á ađ senda í langa fangelsisvist.

Ţađ leynir sér ekki ađ Ómar hefur unniđ á Fréttastofu RÚV, og kannski sett ţar ásamt öđrum grunntón heimsku og einfeldningsháttar.

Ćtli Ómar sé virkilega ađ líkja saman gyđingum í Dachau og hryđjuverkamönnum á Guantanamo? Veit Ómar hvers konar fólk sat og situr inni í Guantanamo? Veit Ómar ekki, ađ ţađ fer tvennum sögum af ţví hver "fórnarlömb" ţyrluskotárásar Wikileaks voru? En vitaskuld trúir Ómar frekar Kristinni Hrafnssyni en skynseminni.

Danskur Guantanamofangi var sendur heim frá Guantanamo. Hann fékk starf sem póstur. Í starfi sínu í Greve og Hróarskeldu stal hann greiđslukortum og pössum, međan ađ hann var ađ stefna dönskum ráđherrum. Eftir ađ hafa setiđ 10 mánuđi í steininum í Danmörku, sneri aftur í stríđ sitt fyrir Allah og er nú talinn af, drepinn í stríđinu á Sýrlandi.

Gyđingar í Dachau voru hvorki ţjófar né hryđjuverkamenn. Reyndu ađ koma ţví inn í kollóttann hausinn á ţér, Ómar Ragnarsson. Öskubakkinn ţinn hefur ekkert međ Guantanamo ađ gera. Öskubakka Guantanamos finnur ţú í New York. Eđa mannstu ekki lengur 11/9, 2001?


Fréttastofa Írans í Efstaleiti

ahmajinedad_nuclear
 

Hvernig má ţađ vera ađ fréttamađur á RÚV telji sig vita ađ Ísraelsmenn hafi drepiđ íranska kjarnorkusérfrćđinga? Hefur fréttamađurinn eitthvađ máli sínu til stuđnings?

Í sjónvarpsfréttum í gćr kom ţađ fram í framsetningu Gunnars Hrafns Jónssonar, sem er stjúpsonur Jóhönnu Sigurđardóttur forsćtisráđherra, ađ taliđ sé ađ síendurtekin hryđjuverk gegn Ísraelsmönnum um heim allan séu ađ undirlagi Írans og ađ Írans sé ađ „hefnd fyrir ítrekuđ morđ ísraelsku leyniţjónustunnar á írönskum kjarnorkuvísindamönnum". Hlustiđ og horfiđ hér á enn eina fréttasköpun Gunnars Hrafns.

RÚV hefur greinilega mikilvćgar upplýsingar sem fréttastofan ćtti vitaskuld ađ miđla af. Eđa kannski er vandamáliđ bara ađ RÚV er međ fréttamann sem ekki getur greint á milli raunveruleikans og ćvintýranna í 1001 Nótt, ţegar kemur ađ fréttaflutningi ţeirra af Miđausturlöndum.

Engin sönnun eđa viđurkenning hefur borist fyrir ţví ađ Ísraelsmenn hafi stađiđ á bak viđ dráp á írönskum kjarnorkusérfrćđingum. Ađeins er um ađ rćđa getgátur og stundum illkvittnar sögusagnir, sjá hér

Íranar kenna Ísraelum og gyđingum um allt sem miđur fer í heimi hér, og lítill fréttasnápur á RÚV virđist vera á mála hjá Íransstjórn, međ ţví ađ greina frá ţví gagnrýnislaust ađ Íranar hafi međ morđum sínum á saklausu ferđafólki í Búlgaríu veriđ ađ hefna sín fyrir nokkra kjarnorkusérfrćđinga. Slík fréttamennska er ekkert annađ en hryđjuverk.

Hefur Gunnari Hrafni, Íranskrummar, og hinum álfunum á RÚV aldrei dottiđ í hug, ađ í Íran sé ađ gerjast öfl sem ćtli sér ađ steypa ógnarstjórninni ţar af stóli, líkt og viđ höfum séđ annars stađar í heimi öfganna, ţó međ misjöfnum árangri. Fólk er búiđ ađ fá nóg undir járnhćlnum á Amajinidahd og öfgaklerkanna. Sama má međ vissu segja um fólk á Íslandi undir járnrassi Jóhönnu stjúpmömmu Gunnars Hrafns. Fólk er búiđ ađ fá nóg á lygum stjórnarinnar og fréttastofu hennar.

En hverju er hćgt ađ búast viđ í landi ţar sem flóttamenn frá Íran eru ekki teknir alvarlega?


Krummafréttir

Zawad
 

Ţađ er logiđ miklu ađ fólki í fréttum RÚV, m.a. vegna ţess ađ fréttastofan er ađalmálgagn óvinsćllar ríkisstjórnar og fréttamennirnir flestir í sama svínsbleika samfestingnum og ríkisstjórnin. Einn fréttamannanna er meira ađ segja stjúpsonur forsćtisráđherrans. Fréttum varđandi Miđausturlönd er alls ekki hćgt ađ treysta á RÚV, ţegar ţćr varđa Ísrael. Fréttamenn á RÚV eru ađ farast úr pólitískri rétthugsun, tilbúnir ađ hliđra til sannleikanum eins og viđ sáum t.d. í saltmálinu, sem var stormur í vatnsglasi, en hefur skiliđ eftir sjúkt fólk sem ekki eru enn búiđ ađ ná sér eftir salteitrun fjölmiđlanna.

Í gćr laug fréttamađurinn Gunnar Hrafn Jónsson enn einu sinni, og ţađ gerđi hann međ glćsibrag er hann krunkađi á léttu nótunum í Síđdegisútvarpinu. Ég hef margoft skrifađ um glannalegan fréttaflutning ţessa unga fréttammanns og annarra kollega hans. Vegna rangfćrslu hans og vanţekkingar ţeirra sem hann bar opinberlega á torg ritađi ég umsjónarmönnum Síđdegisútvarpsins, Halla Thorsteins, Lindu og Guffa:


Vegna ummćla Gunnars Hrafns Jónssonar fréttamanns í Síđdegisútvarpinu fyrir rúmum 15 mínútum um Black Cobras glćpagengiđ í Danmörku, sem eru glćpasamtök innflytjenda međ múslímskan bakgrunn, ţá  er mjög einfalt ađ benda á réttar upplýsingar um ţessi samtök: http://da.wikipedia.org/wiki/Black_Cobra.

Gunnar gerđi lítiđ úr ţví hve hćttuleg ţessi samtök eru. En ţau eiga mannslíf á samviskunni.

Gunnar sagđi "gamansögu" af einhverri fyllibittu sem kom til Malmö og vildi klippingu, og eins frá ţjófnađi á bakkelsi úr sendiferđabíl. Glćpir Black Cobras eru hins vegar miklu alvarlegri en ţessi dćmi Gunnars gćtu gefiđ til kynna og hefur hann ekki unniđ heimavinnuna sína - enn einu sinni.

Mađur verđur undrandi vegna lélegrar rannsóknarvinnu ţessa unga fréttamanns sem mér virđist alveg vera ađ farast úr pólitískri rétthugsun
.

Gunnar Hrafn sagđi í Síđdegisútvarpinu, ađ hann hefđi átt erfitt međ ađ finna eitthvađ um Black Cobras gengiđ. Er fćrt ađ fréttamađur á fullum launum hjá RÚV geti ekki googlađ og fundiđ lágmarksupplýsingar? Ég hef enga trú á ţví ađ hann geti ekki fundiđ neitt um glćpi „skrýtna glćđagengisins Black Cobra" eins og hann kallađi ţađ. Ef til vill er tölva stjúpsonar Jóhönnu Sig. međ einhverja stillingu sem síar allt ljótt um múslíma í burtu, eins og vírus og hvađ annađ barnaklám.

Hvađ á mađur ađ halda? Hvernig getur fréttamađur sem sér um erlendar fréttir talađ á léttum nótum um glćpagengi í Danmörku sem á mannslíf á samviskunni. Black Cobras er glćpagegni sem keppir viđ Hells Angels og Bandidos rokkara í eiturlyfjasölu og öđrum glćpum. Ţađ eru til önnur gengi svipuđ Black Cobras, t.d. "Ghetto Outlaws" sem er stjórnađ af »Múhameđ málara« – Mohammed Figuigui, sem einnig var međlimur í Hizb ut Tharir, öfgasamtökum múslíma í Danmörku, ţar sem talsmenn hafa veriđ dćmdir fyrir ađ hvetja til ađ drepa gyđinga hvar sem ţá er ađ finna. Figuigui er nú vel geymdur í steininum, en áriđ 2010 reyndu fylgismenn hann ađ "frelsa" hann ţegar ekiđ var međ hann á milli fangelsa..

Fariđ nú ađ segja fréttir á RÚV, en ekki ykkar afbökuđu persónulegu skođanir sem allt of oft eru allar atađur út í fáránlegri pólitískri rétthugsun ćsingamannsins. Allir vita, ađ margir í stétt blađa- og fréttamanna er fólk sem hefur óhemju stórt álit á ađ ţađ sé ađ bjarga heiminum og málunum í gegnum fréttaflutning sinn. Er lygi og vanţekking rétta leiđin til ţess ađ segja fréttir? Til hvers ţarf fréttamađur á RÚV ađ vera međ grínfrétt um eitt hćttulegasta glćpagengi Norđurlanda?

Myndin efst er af Zahed Mawad palestínskum međlimi Black Cobras (sem nú er hćttur) Myndin neđst er af bróđurómyndinni hans sem slasađist er hann fauk af mótorhjóli á 190 km á klukkustund  í íbúđarhverfi. Ţegar lögreglan skóf hann upp sagđi litli karlinn ţetta.

 »Fucking löggusvín«

»Mamma ţín er mella«

»Komdu bara og slástu viđ mig«

Rami Mawad var heppin og var útskrifađur af spítala 14 dögum eftir slysiđ, ţá lét hann ţessa skođun í ljós viđ lćrisveina sína: 

»Ţađ er einn ţarna uppi sem heldur yfir mér hlífđarhendi.«

Greinilega eru fleiri "ţarna uppi", ţví á Fréttastofu RÚV á Íslandi er mönnum fyrirmunađ ađ segja sannleikann um hardcore múslímsk glćpagengi í Danmörku. Á ríkisrekinni fréttastofu á Íslandi er gert lítiđ úr vandanum og sagđar skemmtisögur af vínabrauđsstuldi Black Cobras.

Réttast vćri ađ senda RÚV reikning fyrir leiđréttingar ţessar, en heillasamlegast vćri fyrir RÚV ađ losa sig viđ ónýta fréttamenn.

Rami
Rami Mawad, Palestínudani og kókaínsali, nú til heimilis í fangelsi fyrir alvarlega glćpi. Efst má sjá bróđur hans á jólasýningu danska hersins. Górillan efst, sem er ólćs, teiknađi félagsmerki Black Cobra.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband