29.9.2011 | 10:15
Mixa und die Juden
Már Wolfgang Mixa doktorsnemi og kennari við Háskólann í Reykjavík er með afar ósmekklegan pistil á Eyjunni sem hann nefnir Hverjir stjórna heiminum? Þar kennir Mixa Rotschild-ættinni (hinni ríku) um stríðsrekstur og Goldman Sachs (GS) um heimsyfirráð. Sjá einnig hér.
Hann á ekki langt að sækja svona kenningar, þessi gaflaraaríi. Sjáið hvernig hvernig honum kippir í kynið, með því að lesa um karl föður hans hér í ritdómi mínum á eina af hans fyrstu bloggfærslum. Greini ég þar líka frá afa Más Mixa:
Faðir hans [þ.e. afi Wolfgangs], dr. Franz Mixa (1902-1994), sem starfaði á Íslandi á 3. og 4. áratug 20. aldar gekk nefnilega í nasistaflokkinn þegar þann 16. janúar 1932. Hann var félagi í flokknum númer 782.617. Hann var nasistaembættismaður og tónlistarstjóri í Gau Steiermark frá 1938 til 1943. Ekki var verið að greina frá þessu í minningargrein um hann árið 1994 í Mogganum. Hann var í þýska hernum og var tekinn höndum og var fangi Frakka fram til 1947 fyrir sakir sem sonur hans þekkir örugglega betur en ég og hann "Jahve". Hann Mixa júníor segir okkur einhvern tíma frá því, þegar hann er búinn að jafna sig.
Þrjár kynslóðir Mixa sem hafa gyðinga á hornum sér. Þetta stoppar víst ekki í sumum ættum.
"Í upphafi tuttugustu aldar var sagt að ekki væri hægt að fara í mikil hernað [sic] án þess að Rothschild fjölskyldan og samstarfsmenn hennar samþykktu að fjármagna það."
Már Wolfgang Mixa 28.9.2011.
Ég get reyndar svarað Má Wolfgang Mixa spurningu hans um hverjir stjórna heiminum. Það gera menn sem hata á sama hátt og hann gerir.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Gyðingdómur, Íslenskt gyðingahatur | Breytt s.d. kl. 10:37 | Facebook
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Á mér stendur ..... Bjarni Ben
- Minnislaus síðan í síðustu ESB-kosningu
- Gamlir dónar sem fokka sér - Meet the Fockers II
- Icelandic Police Bared
- Niðurstaðan: KiSS or Bæjarins beztu
- Zelenskij fór í ranga flugvél - verður í Færeyjum næstu dagana
- Sjúklega svæsinn gyðingahatari er vinsæll á Moggablogginu
- Valdemar á svölunum er látinn
- Svæsnir fordómar eru ekki hluti af málfrelsi og tjáningu
- Ástráður eins og lús á feldi
- Utanríkisráðherra eyðir um efni fram í útlöndum
- Ódýrasta Laxness-bókin er enn til
- Geimöldin hafin á Íslandi
- Mannvinurinn Johnny Gun
- Jón hinn óboðlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 0
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 60
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Desember 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Ágúst 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Júlí 2021
- Maí 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Athugasemdir
Þar sem ég skrifaði nokkrar athugasemdir við pistil Más Wolfgang Mixa og blandast því óbeint inní þetta mál, þá vil ég gjarnan spyrja þig Vilhjálmur Örn, hvort þú sért ekki eins og ég, sammála þeim gömlu varúðarorðum Thomasar Jefferson, líkast til virtasta forseta í sögu Bandaríkjanna, um að það þyrfti að setja einkabönkum alveg sérstakar skorður, svo þeir gætu ekki leikið sér með lögeyri ríkjanna, til verðbólgu og verðhjöðnunar? Í dag er þetta oft kallað stöðutaka og er þekkt aðferð vogunarsjóða stórbankanna á Wall Street, City og Frankfurt og svo sem víðar? Oft kennd við hrægamma, sem rífa á hol lömbin (heimili meðal-Jóns og Gunnu) eftir að þeim hefur verið slátrað vegna vesaldóms ríksvaldsins við að setja hrægömmunum skorður.
Einnig langar mig til að spyrja þig Vilhjálmur Örn, hvort þér finnist þau Steingrímur og Jóhanna ekki hafa setið nógu lengi á þingi hér á landi, en eins og þér er vafalaust kunnugt um hafa þau tvö, Steingrímur og Jóhanna, setið samtals yfir 60 ár á þingi, ég ítreka … yfir 60 ár á þingi. Finnst þér ekki eins og mér eðlilegt að benda þeim á kynna sér önnur varúðarorð Jefferson:
Með vinsamlegri kveðju, Shalom til þín, því oft hef ég haft mjög gaman af mörgu sem þú hefur skrifað.“Experience hath shewn, that even under the best forms of governments,
those entrusted with power have, in time, and by slow operations, perverted it into tyranny.”
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 29.9.2011 kl. 16:05
Pétur,
Jefferson sagði aldrei það sem þú vitnar í um lögeyri, verðbólgu og verðhjöðnun:
http://www.snopes.com/quotes/jefferson/banks.asp
Kalli (IP-tala skráð) 29.9.2011 kl. 20:06
Kalli,
Hér er mín heimild og mér finnst undarlegt, ef þú dregur moticello,org í efa:
http://www.monticello.org/site/jefferson/private-banks-quotation
Quotation: "If the American people ever allow private banks to control the issue of their currency, first by inflation, then by deflation, the banks and corporations that will grow up around them will deprive the people of all property until their children wake up homeless on the continent their Fathers conquered...I believe that banking institutions are more dangerous to our liberties than standing armies... The issuing power should be taken from the banks and restored to the people, to whom it properly belongs."
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 29.9.2011 kl. 23:05
Afsakið, "ef þú dregur
monticello.org í efa",
átti það að vera
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 29.9.2011 kl. 23:29
Eitt er að gagnrýna nasista og gyðingahatara, það er þarfaverk. En að lá fólki faðerni? Enginn kýs sér það. Og má nú ekki gagnrýna þessa ógeðslegu guðshugmynd, Jahve, án þess að það teljist gyðingahatur? Þá er komið út í rasisma, nútímafólk af gyðingaættum er þá gert ábyrgt fyrir öllu ruglinu í Biblíunni, eins og það væri gyðingum eðlislægt!
Örn Ólafsson (IP-tala skráð) 30.9.2011 kl. 07:19
@Pétur; það kemur fram í heimildinni sem þú vísar í, og hefur greinilega ekki lesið, að Jeffersonkvótið sem þú birtir er seinni tíma rugl. Það ert semsé þú sem ert undarlegur og rétt að draga þig í efa.
Ron Paul (IP-tala skráð) 30.9.2011 kl. 09:38
Jahérna Vilhjálmur. Þessi færsla er snargalin. Bróðir minn lætur ekki eitt einasta yrði falla í allri greininni sem hægt er að bendla við hatur. Heiftin í þér er hins vegar blind.
Það kemur hvergi fram í hvern bróðir minn er að vísa til varnar með grein sinni, hvergi minnist hann einu orði á gyðinga, nefnir hvergi að Rothschild og Goldman hafi verið gyðingar og kvótið þitt í Má um Rothschild (sem var ein setning með engri persónulegri afstöðu hans) er í þokkabót úr öllu samhengi við inntak og innihald greinarinnar, hann kennir ættinni ekki um eitt né neitt.
Það kann vel að vera að Má hrjósi hugur við veldi Goldman Sacks og ítökum þeirra víða (þótt ég viti ekkert um það). Hann er þá ekki einn um það án þess að þurfi hatandi fólk til. Hann nefnir dæmi um ítök þeirra. Það var þá gyðingahatrið. Einhverjir leggja greininni til faglegt orð. Þú leggur henni til tilfinningaofhlaðinn og persónulegan róg.
Ég las greinina hans eins og hver annar leikmaður, sem ég er. En eftir þína langsóttu aðför að bróður mínum las ég mér lauslega til um alla aðila sem hann nefnir til sögunnar, einkum með í huga tengsl við gyðinga eða gyðingdóm. Mig þraut þolinmæði til að kynna mér þetta til hlítar en sá þó til að mynda að Niall Ferguson, sem Már vísar í, hafi skrifað þannig um Rothschild að sé í miklum metum hjá gyðingum og hann jafnvel hlotið viðurkenningu fyrir meðal þeirra. Svona er hatrið margslungið, hah.
En ætli mín heimildarannsókn um Má Wolfgang Mixa og gyðinga sem þú brigslar honum hatur á (sem og föður mínum og afa, líka óverðskuldað), sé ekki álíka groddalegt fúsk og þínar forsendur fyrir a) hatursstimplinum og b) því að bendla bróður minn við bæði Aría og Gaflara og það í sama orðinu. Þú leggur vonandi almennt meiri rækt í rannsóknir og mann(kosta)greiningar en þær að fletta manni upp á ja.is og draga af niðurstöðunni þá ályktun að viðkomandi sé Gaflari.
Í guðs friði.
Katrín Mixa (IP-tala skráð) 2.10.2011 kl. 18:17
Katrín, Gordon Brown meinti heldur ekkert með því að setja hryðjuverkastimpilinn á Íslendinga. En manst þú hver mikið hann sárnaði Íslendingu og veist þú hvað mikið hann kostaði?
Sú gamla andstyggilega ásökun um að gyðingar stjórni því hvort stríð séu háð og borgi fyrir stríð og stjórni heiminum kemur orðrétt fram í grein bróður þíns. Þetta er nasistameinloka sem vinstri menn klæmast á í tíma og ótíma og sem stuðningsmenn hryðjuverkafólks í Palestínu gera sig seka um í allri umræðu.
En það er nú einu sinni svo að "teutoniskar" þjóðir, sem geta þakkað gyðingum mjög mikið, hafa átt upptökin af stærst stríðum og hryðjuverkum 20. aldarinnar. Gyðingar voru hins vegar aðalfórnarlömbin. Afi þinn gekk í þann vargaflokk sem olli síðari Heimsstyrjöld. Í því stríði voru myrtar 6 milljónir gyðinga. Guð þeirra, þessi "hefnigjarni Jahve" sem faðir þinn tönnlaðist á, átti á engan þátt í því morðæði sem afi þinn tók þátt í, þegar hann fullviljugur gekk í þýska nasistaflokkinn árið 1932!
Þú sérð kannski ekki hvað særandi orð bróður þíns og föður eru. En þau eru hluti að veruleika þeim sem gyðingar þurfa að horfa upp á í dag, þar sem allt í lagi virðist vera að svína þá til og trampa á minningu þeirra sem voru myrtir í síðustu helförinni. Gyðingum, og Ísrael er enn kennt um allt af vandræðagemlingum heimsins. Helfarirnar hafa verið margar, og í glundroða hins íslamska heim leita öfgafullir menn, með annan guð í gíslingu, lausna í útrýmingu á Ísraelríki og eyðileggingu þess frelsis sem við höfum á Vesturlöndum. Frelsi sem þakka má mörgum hugsuðum með gyðinglegan uppruna. Þeir sem styðja það hatur, eru vitaskuld gyðingahatarar og ekkert annað.
Rotschild og Goldman Sachs hafa aldregi gert Íslendingum neitt. Íslendingar hafa að mestu gengið sjálfala gegnum aldirnar og þekkja ekki stríð og hörmungar annarra þjóða. Rotschild ættin sem bróðir þinn vísar til átti engan þátt í stærst morðstríði sögunnar. Það áttu hins vegar Þjóðverjar þess tíma sem kusu Hitler yfir sig.
Guð minn skal enginn kalla hefnigjarnan, meðan morðæði mannfólksins er ekki honum að kenna.
En ert þú ekki hún Katrín J. Mixa, sem setið hefur í ritstjórn "Frjálsrar Palestínu" sem gefið er út af samtökum sem hafur samneyti við Hamas. http://www.palestina.is/frettir/frjals-palestina-neydarsofnun/Hvað guðs friði kemur þú með, Katrín, og hvernig er það að styðja "þjóð" sem kaus Hamas yfir sig eins og Þjóðverjar kusu Hitler og nasimann, og sem hefur fyrir sport að lýsa yfir útrýmingu gyðinga í tíma og ótíma, líkt og reyndar margir Þjóðvejar gerður áður en það varð að allt að veruleika?
Hvernig dirfist þér að tala um snarvitlausa færslu, þegar þú berst gegn frjálsu ríki og það fyrir ríki sem er stýrt af hryðjuverkamönnum, sem heldur sinni eigin þjóð í heljartaki? Næst þegar þú hvetur fólk til að kaupa ekki ísraelskar vörur, mundu að segja þeim að afi þinn vann fyri flokk sem hvatti fólk til þess að kaupa ekki hjá gyðingum og að faðir þinn er á því að Jahve sé hefnigjarn. Vandamálið er, að þú sérð ekki fyrir bjálkanum í augunum á þér; Hatrið er blint.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 2.10.2011 kl. 21:47
Vilhjálmur. Orðræða þín er afskaplega ósmekkleg og illa ígrunduð. Þú ættir næst að leggja bjórinn frá þér og sofa á meiningu þinni áður en þú birtir svona texta.
Gunnar Kristinn Þórðarson (IP-tala skráð) 3.10.2011 kl. 21:45
Vilhjálmur. Þessi útlisting þín öll jaðrar við sturlun. Frá Gordon Brown til þess sem snertir hagsmuni Íslendinga öðru fremur er vaðall sem kemur þessu ekkert við.
Í raun kemur það umræðunni heldur ekkert við að afi hafi árið 1932(!) gengið í Nazistaflokkinn. Þú veist vel að Nazistaflokkurinn var ekki reistur á gyðingahatri frekar en Sjálfstæðisflokkurinn á Danahatri, hann þróaðist út í það og dró hina ýmsu menn óverðskuldað í svaðið. Uppgangur hans varð í kjölfar kreppunnar miklu og þar voru gyðingar heppilegur blóraböggull sem ásamt með mögnuðum skammti af heilaþvotti, ásamt uppgangi þjóðernishyggju Evrópu, varð að þeim hörmungum sem allir vestrænir menn fordæma fyrir hönd gyðinga, líka hinir voðalegu Mixarar. Þjóðernishyggja hafði fyrir löngu grafið um sig í Evrópu. Zionisminn er eldra fyrirbæri en nazísk þjóðernisviðspyrna. Það veistu svo mæta vel.
Já, útlistun þinni er hægt að svara efnislega í löngu máli og magsundurliðað. Kjarna málsins sömuleiðis.
Ég hnýt stöðugt um þessa dæmalausu orðræðu um hatrið. Þar er tungumálið mótandi og leiðandi, hugtakið gyðingahatur hefur skotið rótum með sérstæðum hætti vegna nærtæks og áþreifanlegra samhengis en almennt gerist. Ekkert sambærilegt hugtak er til um heimóttalegar íslenskar dekurrófur sem fjandskapast út í Pólverja og Kínverja í verkamannastörfunum hér, palestínsku konurnar á Akranesi og annað flóttafólk, búddamunkana og Arabana sem hingað koma, frjálsir eða á flótta. "Arabahatur" á alveg jafn vel við þig, ef ekki betur, hugtakið er bara ekki eins hlaðið þeim heppilegu aukaforsendum sem sagan hefur hlaðið á "gyðingahatur".
Því er leiðin, eða afvegaleiðin öllu heldur, svo mun greiðari fyrir zionista og "arabahatara" að brigsla svona ógeðslega um hatur, það snertir viðkvæmar taugar, vegna sögulegra ítaka. Það er einhver billegasti strámannshernaður sem ég veit um. Engan þekki ég sem mælir helförinni nokkra einustu bót, né þjóðernishreinsunum almennt. Engan.
Því vil ég spyrja þig hvort þú trúir því í fúlustu alvöru að "við" sem fordæmum landtöku ísraelskra stjórnvalda í sínu galna veldi myndu bregðast öðruvísi við ef nákvæmlega þessi aðför væri að henda í Þýskalandi og gagnvart gyðingum. Eða ef helförin ætti sér stað í dag hvar sem væri í heiminum. Ég er nefnilega fullviss um að það sé af og frá.
Ég skora á þig að fylgja hatursstimplinum eftir. Þú hlýtur að verða að fullyrða fullum fetum að "okkur", "höturunum", þætti æðislega svalandi að vita af milljónum gyðinga stráfellda í útrýmingarbúðum á næsta ári. Ef þú gerir það þá stuðlarðu í það minnsta að því að hatrið hætti að vera blint, úr hvaða ranni sem er.
En jú, ég tók einu sinni þátt í útgáfu Frjálsrar Palestínu og var í stjórn Íslands-Palestínu. Þú hittir sjálfan þig fyrir þegar þú jafnar því saman því að "berjast gegn sjálfstæðu ríki" og fyrir öllu því sem Hamas stendur fyrir. Viltu ræða það efnislega? Ég er tilbúin í þann slag líka. Það er athugunarefni út af fyrir sig hvernig maður eins og þú, sem ver svona miklum tíma í vísindalega heimildavinnu, grúsk og gagnasöfnun getur sjálfur verið svo fastur í samskonar meinloku og hann sjálfur deilir á, um gyðinga sem viðstöðulaus fórnarlömb alls staðar og Hamas í viðstöðulausum gjöreyðingarham.
Um Ísrael og gyðingdóminn má rökræða á trúarlegum nótum, sem mér sýnist vera þitt sjónarhorn og það þrengir áþreifanlega að réttsýni þinni. Þeirri afstöðu get ég ekki mætt. Né heldur pabbi minn og bróðir, hvað þá látinn afi minn. Hið pólitíska sjónarmið á minn fókus, almennt og yfirleitt, og er nokk viss um að sama gildi um föður og bróður. Því unni ég fólki trúleysis og þess að tjá sitt trúleysi, eða andstöðu við tiltekin trúarbrögð, á hvern þann hátt sem því sýnist. Og það gerði pabbi á sínum tíma, einfaldlega. Að segja það hatur, hvað þá að draga það í ógeðslegasta mögulega samhengi sem unnt er, er sjúk rökleiðsla. Hið sama má segja um ályktunarhæfnina sem beindist að Má. En þarna byrgir guðsóttinn, hverju nafni sem hann nefnist, sýn og herjar á dómgreind og víðsýni mun meira en þrætur á málefnið séð út frá litrófi á pólitískum skala.
Katrín Mixa (IP-tala skráð) 4.10.2011 kl. 13:25
Gunnar Kristinn Þórðarson, ég drekk ekki bjór.
Katrín Mixa, smekkleysi þitt og guðs þíns er er ekki mitt vandamál. Analogíur þínar eru svo langt úti, t.d. að líkja gyðingahatri við Danahatur, að það tekur því ekki að svara þér.
Mig langar bara að minna þig á að vinir þínir í Palestínuvinafélaginu hafa signt og heilagt kallað ástandið á Gaza "helför". Þeir vita ekki hvað helför er. Þeir haf líkt Gaza við Warszawa gettóið. Þeir vita ekki hvað gettó er. Það voru 1140 gettó, sem sköpuð voru af Þjóðverjum nasismans og handlöngurum þeirra í Síðara stríði. Kynnið ykkur söguna áður en þið afskræmið hana í hatri ykkar.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.10.2011 kl. 22:29
Nei, það er auðvitað tilgangslaust að eyða í þetta orku. Það var tapað stríð frá upphafi, ekki vegna skerar málefnastöðu mín megin heldur þessa forherta upplags hatandi hatursgreinandans sem best er að leiða bara hjá sér. En það er samt gott dæmi um það þegar þú, annars að mörgu leyti dúndufræðimaður, ofhleður málstaðinn tilfinningasemi, túlkar orð mín svo að ég sé að "líkja saman" gyðingahatri og "Danahatri". Best að hætta að ræða þetta og unna þér þess að hatast við mig, bróður, föður og afa, þótt á afbökun sé byggt. En vita máttu, sem augljóst er, að hvorki Mixarar né þeir sem ég þekki úr Palestínufélaginu, afsaka eða réttlæta helförina. Engan þekki ég sem það gerir. Libbðu heill.
Katrín Mixa (IP-tala skráð) 7.10.2011 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.