Leita í fréttum mbl.is

Vitfirring er ćđsta dómsstig Íslands

Hvarf ungrar, fallegrar konu slćr óhug ađ allri íslensku ţjóđinni. Allir tala um máliđ og hugsar hver sitt. Svo eru ţeir sem hugsa meira upphátt en ađrir og ţađ er líka hollt. Enn betra er víst ţegar menn tala viđ sjálfa sig í einrúmi, ţađ er merki um miklar gáfur. Mig grunar ađ fáir rabbi mikiđ viđ sjálfa sig á Íslandi.

Ţađ sem sumt fólk hefur ađ segja á spjallţráđum fjölmiđla um hvarf Birnu Brjánsdóttur er miklu fremur fordćming í garđ óţekktra og ímyndađra "glćpamanna" en međkennd međ ţeirri týndu og fjölskyldu hennar. Strax í upphafi umrćđu um hvarfiđ lýsti ung kona ţví yfir ađ hún hefđi leitađ ađ rauđum KIA bíl viđ Keili vegna ţess ađ ţar búa margir útlendingar. Getur veriđ ađ ungt fólk á Íslandi telji ađ óathuguđu máli ađ útlendingar geti einir veriđ valdir ađ hvarfi íslenskrar konu. Furđar ţá nokkurn ađ óhćfir dómarar dćmi í málum í slíku landi?

polarseafood.jpg

Hér má sjá glađlegan starfsmann PolarSeafood ađ störfum. Margir Íslendingar eru búnir ađ dćma hann og ţjóđ hans fyrir hvarf Birnu Brjánsdóttur. Víkingasveitin er á leiđ í skipiđ hans. Hér geta menn skođađ auglýsingaefni PolarSeefood.

Svo fór máliđ út fyrir allan ţjófabálk, ţegar menn fóru ađ dćma Grćnlendinga á togara. Ekki var fyrr búiđ ađ tengja sjómenn á togaranum Polar NANOQ viđ ađ hafa tekiđ KIA bifreiđ ađ láni, en ađ fólk var fariđ ađ hamast á fjölmiđlum, t.d. á DV (en ekki bara á DV). Ţótt 150 KIA-bifreiđir á ţessari gerđ og í ţessum lit séu til á Íslandi, var einhvers stađar ákveđiđ ađ sjómenn á grćnlenskum togara vćru líklegastir til ađ hafa setiđ í ţeirri bifreiđ sem sást bregđa fyrir í upptöku frá Laugaveginum. Allt í einu voru Grćnlendingar orđnir glćpamenn í hugum Íslendinga. Í skođunum fólks á t.d. DV og FB kom í ljós ađ fólk sá fyrir sig "eskimóa" og villimenn sem annađ hvort höfđu myrt Birnu eđa numiđ hana á brott á skipinu.  Hvađ gerist eiginlega í höfđinu á sumu fólki á Íslandi? Eru útlendingar alltaf versta fólkiđ á Íslandi? Eru menn ekki skriđnir úr fjárkofunum ennţá, ţví greinilega er ekki mjög hátt til lofts?

Miđađ viđ hve lág glćpatíđni Grćnlendinga er á Íslandi, ţá eru litlar líkur á ţví ađ álykta eins og fólk gerir. Hugarórar um brottnám íslenskrar konu í grćnlenskum togara er víst mest til komin af ţví ađ Íslendingar horfa of mikiđ á bandarískt sjónvarpsefni. Suma dreymdi um ađ nú yrđi henni drekkt á Grćnlandshafi, ţví "Grćnlendingarnir fréttu ađ upp hefđi komist um ţá". Lesiđ DV. Svo sjúk er umrćđan.

Menn mega heldur ekki gleyma ţví, ađ ţeir sem vinna á grćnlenskum togurum eru ekki allir Grćnlendingar. Ef einhverjir af áhöfninni hafa haft einhver afskipti af Birnu Brjánsdóttur, gćtu ţađ hafa veriđ sannir Norđmenn, Danir, Fćreyingar, Pólverjar og annarra ţjóđa kvikindi. Menn verđa einnig ađ muna, ađ flest fyrirtćki í sjávarútvegi á Grćnlandi eru sjaldnast í eigu eđa undir stjórn Grćnlendinga. Framkvćmdastjórar Polasseafood eru ekki Grćnlendingar. Henrik Leth eđa Jřrgen Fossheim, sem er nýkominn til Íslands til ađ vera međ áhöfn NANOQs ţegar ţeir koma til hafnar, eru hvorugur Grćnlendingur. En í stjórn fyrirtćkis ţeirra hefur ţó setiđ Grćnlendingar sem enga forsendu höfđu til ađ stjórna fyrirtćkjum, t.d. skíđakappinn Michael Binzer, sem á yngri árum keppti á skíđagöngu á Ólympíuleikum, en laug síđar um menntun sína í Noregi, ţar sem hann lauk ekki einu sinni námi í íţróttalýđháskóla sem hann var á.

Ţótt stjórnarfyrirkomulag í grćnlensku efnahagslífi sé oft keimlíkt ţví íslenska og útgerđamenn ţar álíka misjafn sauđur og ţeir sem gera út á Íslandi, er ekki ţar međ sagt ađ grćnlenskir sjómenn séu morđingjar vegna ţess ađ ţeir taka bíl á leigu á Íslandi. En ef ţeir eru líkir íslenskum sjómönnum, gćtu ţó vitaskuld veriđ undantekningar.

En hvađ fćr hluta islensku ţjóđarinnar til ađ dćma áhöfn grćnlensk togara? Svariđ er ađ mínu viti: Léleg fréttamennska og furđuleg starfsemi íslenskrar lögreglu, sem mig grunar ađ hafi séđ of margar amerískar glćponamyndir. Ţar er sá svarti og indíáninn  alltaf líklegastir til ađ hafa framiđ ódćđin. 

Hingađ til hafa nú flest ódćđin á Íslandi veriđ framin af Íslendingum sjálfum. MUNIĐ ţađ landar góđir. Íslendingar eru dugmestu glćpamenn Íslandsögunnar og sumir ţeirra ríđa líka hrossum í frístundum sínum.


Bloggfćrslur 18. janúar 2017

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband