Leita í fréttum mbl.is

Tengsl Climategate-svindlaranna við Ísland

Ef menn eru ekki að hugsa um Icesave og ESB, er vart talað meira um annað þessa dagana en loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn og Climategate. Vegna anna hef ég ekki getað lesið hina frægu tölvupósta sem Phil Jones í Norwitch lét ræna frá sér fyrr en nú. Þeim hefur verið dreift um heiminn frá Tomsk í Síberíu, öllum sannleiksleitandi mönnum til mikillar ánægju og vísindunum til aðhalds.

                                Professor-Phil-Jones-Dire-001
Phil Jones

Leitar maður að Íslandi á þessum tölvupósti (sjá http://www.eastangliaemails.com/) kemur ýmislegt áhugavert í ljóst. Phil Jones, aðalsvindlarinn, var t.d. á Íslandi í fyrra (2008) þegar kollega hans, Mick Kelly, sem einnig hefur verið gripinn í stórsvindli á Nýja Sjálandi ritar honum þetta:

Hi Phil
Just updated my global temperature trend graphic for a public talk and noted that the level has really been quite stable since 2000 or so and 2008 doesn't look too hot.
Anticipating the sceptics latching on to this soon, if they haven't done already, has anyone had a good look at the large-scale circulation anomalies over this period? I haven't noticed anything consistent coming up in the annual climate reviews but then I wasn't really looking.
 

Be awkward if we went through a early 1940s type swing!

Phil svaraði:

Mick,
They have noticed for years - mostly wrt the warm year of 1998. The recent coolish years down to La Nina. When I get this question I have 1991-2000 and 2001-2007/8 averages to hand. Last time I did this they were about 0.2 different, which is what you'd expect.

Þetta skrifar Phil á Íslandi, þar sem hann var í boði Astrid Ogilvie, sem ég gagnrýndi fyrir langalöngu á ráðstefnu á Bowdoin College í Maine í Bandaríkjunum árið 1989 fyrir hlægilega notkun og ofurtrú á íslenska annála og aðrar ritheimildir. Hún skrifaði síðar traustari grein með Trausta Jónssyni í Climatic Change árið 2001 (sem í miklu byggði á niðurstöðum Páls Bergþórssonar). Greinin var einnig var gefin út í bókinni The Iceberg in the Mist, þar sem reknu climategateskúrkarnir Phil Jones og K. R. Briffa skrifa formála.

p_ogilvie Astrid Ogilvie trausti jónsson Trausti Jónsson

Eru þau líka með heimshita? Stofnun Trausta má ekki tjá sig.

Ogilvie og Trausti bentu á, að áhrif litlu Ísaldarinnar hefði ekki gætt eins mikið á Íslandi og hugsanlega annars staðar. Þetta er síðar "stutt" af öðrum rannsóknum og er t.d. að ofbeit hafi valdið eyðingu byggða eins og Þjórsárdals frekar en kólnandi veðurfar, ef trúa má þeim sérfræðingum sem skrifa þessa grein og sem einnig hafa gert hafa sig seka um að ræna niðurstöðum annarra.

Meðan Phil Jones var á Íslandi bætti hann þessu við í bréfi sínu til andfætlingsins Kelly:

In Iceland at a meeting that Astrid invited me to. Cold with snow on the ground, but things cheap as the currency has gone down 30-40% wrt even the pound.

Kelly svarar:

Yeah, it wasn't so much 1998 and all that that I was concerned about, used to dealing with that, but the possibility that we might be going through a longer - 10 year - period of relatively stable temperatures beyond what you might expect from La Nina etc.

Speculation, but if I see this as a possibility then others might also. Anyway, I'll maybe cut the last few points off the filtered curve before I give the talk again as that's trending down as a result of the end effects and the recent cold-ish years
.

Enjoy Iceland and pass on my best wishes to Astrid.

Mick

Meðan að Phil var á Íslandi skrifaði hann einnig Ben (Santer), og er greinilegt að Phil grunar að meðhöfundur að einhverri grein sé í sambandi við Steve McIntyre, guðföður efasemdamanna:

Ben,

It seems that Climate Audit  has been discussing the paper. I ad a look whilst I was in Iceland as I had nothing better to do a few times. It was cold and snowy outside, there was internet.....
Seems as though they are making some poor assumptions; someone is trying to defend us, but gets rounded upon and one of the co-authors on the paper is in touch with McIntyre.

As it isn't me, and I can rule out a number of the others, my list of who it might be isn't that long....
Looking forward to next week !!
Cheers
Phil

Það er gaman að sjá hvað kalda veðrið á Íslandi hentar heimshitnunarmanninum illa.

Mann_treering 
Michael Mann hefur snúist hugur. Nú talar hann ekki lengur um kaldar miðaldir. Nú er
hann að reyna að tengja heimshitnun á miðöldum við eldgos á Íslandi. Eldgos á Íslandi þyrftu líkalega að fá umboðsmann, það er alltaf verið að misnota þau.

 

Nú er búið að setja Jones og Briffa af á CRU í Norwich meðan verið er að rannsaka óeðli vísindastarfa þeirra. Michael Mann á Penn State, nánum samstarfsmanni þeirra, hefur snúist við og viðurkennt að hann hafi vísvitandi reynt að dylja hitaskeið á miðöldum.

 

keith-briffa-2007-222x300
 Keith Briffa
er kannski hetjan sem lak öllu gegnum út fra Tomsk. ´
Han mun hafa legið fyrir dauðanum í einhvern tíma.
En aðrir koma til greina og Rússum hefur þegar verið kennt um.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað er að vera ''með heimshita''.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.12.2009 kl. 15:23

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Gerðu okkur svo grein fyrir hlægilegri notkun og ofurtrú Ogilvie á íslenskum annálum og öðrum ritheimildum. Þú hlýtur að eiga við veðurfarshluta annálanna.  Gæti orðið fróðleg og myndarleg færsla.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.12.2009 kl. 15:27

3 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Þarft verk að fletta ofan af svikum og prettum veðurfars-flónanna, sem ég hef nefnt svo. Hins vegar er ég að komast á þá skoðun að þetta séu ekki saklaus flón, heldur harðsvírað glæpagengi.

Þakkir fyrir áhugaverða færslu, eins og ávallt.

Loftur Altice Þorsteinsson, 13.12.2009 kl. 15:39

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður Þór, annálar fyrri alda voru ekki fyrst og fremst skrifaðir til að lýsa veðri, eldgosum, tvíhöfða kálfum og halastjörnum. Veðurlýsingar manna eru mismunandi og háðar því hvar þeir voru á landinu. Ég mun aldrei lýsa veðri eins og þú og þú sérð norðuljósin öðruvísi en ég. 

Ogilvie hefur notað þessi gögn eins og þetta væri eitthvað frá Veðurstofunni. Það þarf ekki lærða grein um hennar störf. Hún er sagnfræðingur, að því ég best veit, en hefur gleymt sagnfræðilegum vinnubrögðum í verkum sínum.

Að vera með heimshita, er að æsast út af "heimsenda", sem maður veit ekkert um meira um en vitleysingurinn með skiltið á 4. breiðstræti í New York sem boðar endalokin kl. 15.00. Global Warming teóríur eru dæmigerðar fyrir fólk með heimshita.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.12.2009 kl. 15:58

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þú hefur meira úthald en ég, Vilhjálmur, þegar kemur að grúski úr þessum tölvupóstum. Það var ekki við öðru að búast en að Ísland kæmi þarna við sögu. Íslenskir vísindamenn hafa ekki viljað missa af fjörinu.  Vorum við ekki öll high á sjálfsánægjunni og sjálfumgleðinni?  Segir þó ekkert af þátttöku þeirra í svindlinu.

Það væri ágætlega fróðlegt að vita hvað Climate Audit gómaði í ártalinu 1945 í Nature greininni. Jones vísar í þetta hér og ártalið er gefið upp í færslunni sem ég birti á minni síður. EA-mönnum stóð greinilega ógn af þessu grúski CA.

Samkvæmt póstunum var East Anglia háskólinn líka upptekin af því að koma styrkjunum undan skattmann og notaði við það áþekkar leiðir og Samfylkingin notaði við fjáröflun sína. Tortola sá ég hins vegar hvergi nefnda á nafn.

Góð yfirferð og fróðleg færsla. Enn á margt þó eftir að koma í ljós, þ.m.t hvers vegna obbinn að Kanadísku vísindamönnunum kaus að kljúfa sig frá IPCC.

Ragnhildur Kolka, 13.12.2009 kl. 16:02

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Loftur, þetta eru trúarbrögð, yfirgengileg trúarbrögð, þar sem vísindamaðurinn gerist guð. Saklausir eru þeir ekki, við sjáum vinnubrögðin. Þeir hafa líka stórgrætt á þessu.

Fyrirbæri sem heitir NABO, sem er ræningjasamkoma vísindamanna, sem m.a. fá að rannsaka á Íslandi án nokkurs teljandi eftirlits, þar sem menn eru galopnir fyrir öllu, bara ef töluð er útlenska, hefur stórgrætt á þessum loftslags-dómsdagsiðnaði. Stofnandi þessa félagsskapar gengur hér um með hótunum eins og kom fram í sumar er í ljós kom að hann bolaði íslenskum doktorsnema úr námi, þar sem hún leyfði sér að bjóða í sama verkefni og gæludýr prófessorsins (McGoverns) hjá "Fornleifastofnun Íslands".

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.12.2009 kl. 16:18

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ragnhildur, ég sá nafn Ogilvie um daginn á einhverju bloggi um mögulega uppljóstrara, og minntist þá mjög frelsaðs fyrirlestur hennar í Maine vorið 1989. Ég gluggaði í bók hennar og Trausta fyrir nokkrum árum (ég keypti hana reyndar) og er greinilegt að hún er styrkt af gúrúunum  Jones og Briffa og í þeirra hirð, on the take. En ekki held ég nú að Íslendingar eða hún hafi almennt fært þeim það sem þeir vildu. En þeir vitna óspart í hana og Trausta the weatherman.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.12.2009 kl. 16:41

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Oglivie hefur held ég ekki skirfað neitt um annála nema veðurtengt. Það er ekki úr miklum heimildum að velja um gamalt veður. Hún hefur reyndar hafnað mörgum annálum. Ég á líka þessa bók sem þú vísar til.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.12.2009 kl. 21:47

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er einfaldlega rangt að segja að Ogilvie noti heimildir sýnar án gagnrýni.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.12.2009 kl. 21:58

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nú er úti veður vont, Sigurður, hún Ástríður O´Gylfa var illa að sér í annálum þegar ég heyrði í henni fyrst árið 1989, eins og ég skrifaði.

Ekki snúa út úr. En ég gef ekki mikið fyrir þau fræði að tengja náttúruvísindi við annála. Ég er annálaður fyrir það. Það verður alltaf svo ógeðslega hlutlægt að segja eitthvað afgerandi um heilan áratug eða 50 ár út frá einhverju sem einhverjum munkafjandi fannst um verðrið vegna þess að hann var kveif. Það er og verður tilgátusagnfræði, en er því miður einum of oft orðið að teóríufjanda, sem menn éta upp eftir hvorum öðrum eins og heilagan sannleikann.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.12.2009 kl. 23:33

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Astrid hefur verið að reyna að meta veðurfar fyrri tima út frá annálum. Hún hefur metið þá alla og ýtt mörgum til hliðar. Hún einbeitir sér eingnögu að tíðarfarslýsingum í þeim. Hvað varðar ritaðar heimildir um veðurfar fyrri alda, þangað til sýslumannabréfin fóru að koma á 18.öld, er um tvennt að ræða: Annála eða alls ekki neitt. Astrid hefur reynt að nota þessar svo að segja einu heimildir sem til eru. Það hafa fleiri gert, t.d. Páll Bergþórsson og hefur aðallega með hjálp þeirra  sett fram þekkt línurit um veðurfar eftir þremur áratugum í einu. Þegar niðurstöður setlagarannsókna fóru að berast og hægt var að gera línurit um þróun veðurfars á Íslandi eftir þeim kom í ljós að þau víkja ekki verulega frá línuriti Páls. Ef eitthvað er hafa nýrri náttúrfarsrannsóknir fremur styrkt heimildagildi fornra annála um veðurfar en veikt þá. P.S. Ég hef ekki verið að snúa neitt út úr. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.12.2009 kl. 11:13

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hins vegar er full ástæða til að skrifa loftslagssögu Íslands eftir bestu fáanlegu heimildum um veðurfar í landinu frá a.m.k. landnámi. Þessi saga hefur aldrei verið skrifuð í heild sinni. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.12.2009 kl. 11:27

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst þessi tenging þín við meint loftslagsssvindl sem kemur fram í tövlupóstinum við Astrid og Trausta ekki þjóna neinum tilgangi, þó svo að Jones og Briffa skrifi formála að bók sem þau skrifa í. Þarna ertu ómaklega að gera á einhvern hátt lítið í fræðimansheiðri þeirra. Það virðist vera eini tilgangurinn með þessari tenginu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.12.2009 kl. 11:36

14 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þér er velkomið að hafa þá meiningu, Sigurður og kettinum þínum líka. Ég gef lítið fyrir þetta hvæs í ykkur. 

Ekki skrifaði ég neitt um svindl Astrid og Trausta, og ég veit ekki til þess að það sé bannað að benda fólki á tengsl. T.d. benti ég á að sjóður sem Andri Snær fékk peninga úr um daginn væri frá stofnun sem héldi minningu gamals nasista á lofti. Ekki gerði ég því skóna að Andri Snær væri nasisti. En hugsanlega eru til menn sem halda það og tengja hlutina einkennilega. Það gæti hugsast að annálaskrifarar hafi einnig verið því marki brenndir að þeir skrifuðu, en sáu ekki.

En athyglisvert er, að menn eru að spá dómsdegi, spá sem m.a. byggir á túlkun fólks á íslenskum miðaldaannálum. Ertu til í að mæta dómsdegi á þeim forsendum, Sigurður Þór?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.12.2009 kl. 12:29

15 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mali setur nú bara upp kryppu yfir þessu.  Og hvæsir því út úr sér að hann gefi minna en lítið fyrir þetta nýjasta úlfspangól frá Köben. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.12.2009 kl. 13:19

16 identicon

Össur Kristinsson (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 13:30

17 identicon

Mikð þykir okkur hér í íhaldssömum Bandaríkjunum gott að vita af fólki eins og okkur sem hefur alltaf vitað að jörðin er flöt og snýst ekki.

Emil (IP-tala skráð) 15.12.2009 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband