Leita í fréttum mbl.is

Var Gunnar Gunnarsson nasisti ?

Gunnar Gunnarsson 2 

Um nćstu helgi minnast menn mikils áfanga á Skriđuklaustri á Hérađi. Rannsóknum á leifum klaustursins er lokiđ og haldiđ verđur upp á ţađ međ pompi og prakt, nú er 500 ár eru liđin frá ţví ađ klausturkirkjan var vígđ.

Dagsdaglega minnast menn hins vegar á Skriđuklaustri Gunnars Gunnarssonar stórbónda á Skriđu, sem lét reisa sér ţar stórhýsi í bćverskum fjallastíl. Gunnarsstofa er rekin ađ Skriđuklaustri og margar upplýsingar er ađ finna um hann og ćvi hans og list á www.skriđuklaustur.is 

Ţrátt fyrir ađ mikiđ hafi veriđ ritađ um ćvi og störf Gunnars og ađ nýlega hafi komiđ út merk bók um hann, hafa ţeir sem um hann rituđu tekist ađ sigla um skerjagarđ heimaldanna án ţess ađ rekast verulega utan í ţann svarta klett sem inniheldur upplýsingar um blinda ást Gunnars Gunnarssonar á nasismanum. Ţessir sjómenn í ölduróti heimaldanna neita ţví algjörlega ađ slíkt sker sé til og ađ Gunnar hafi nokkur sinni veriđ nasisti.

Stórhátíđ á Skriđuklaustri er ágćt ástćđa til ađ rifja upp upplýsingar um nasisma Gunnars og náin tengsl hans viđ stórmenni 3. ríkisins sáluga.

Sjá umrćđuna á Fornleifi nú

Vinir Gunnars i NG

Yfirmenn Gunnars Gunnarssonar í Nordische Gesellschaft


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ţú talar hér um "blinda ást Gunnars Gunnarssonar á nasismanum," en ćtli ţađ sé ekki réttara ađ tala um ást hans á Ţjóđverjum og Germönum annars vegar og hlálega blindni gagnvart nazista-valdhöfunum hins vegar.

Svo á ég lengra innlegg á hinni vefsíđunni ţinni.

Jón Valur Jensson, 16.8.2012 kl. 22:09

2 identicon

Ég ćtla rétt ađ vona ađ Gunnar hafi ekki veriđ ađdáđandi Passíusálmanna.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráđ) 16.8.2012 kl. 22:13

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ţeir eru nú meinhollir og lausir viđ allan racisma.

Jón Valur Jensson, 16.8.2012 kl. 22:22

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég ćtla rétt ađ vona, ađ H.T. Bjarnason leggi ekki niđur bloggiđ sitt, ţá myndi aths. hans hér hverfa og mitt innlegg nr. 2 koma mjög illa út!

Jón Valur Jensson, 16.8.2012 kl. 22:24

5 Smámynd: FORNLEIFUR

Hér er heimildin sem ţú spyrđ um, og er hún ekki fengin hjá Yngva. Sumt af ţessu hef ég fengiđ úr nýlegri danskri kandídatsritgerđ um Nordische Gesellschaft.Ef eitthvađ meira er til um fund Gunnars viđ Hitler, ţćtti mér, og vonandi forstöđumönnum Skriđuklausturs sem ekki greina frá neinu slíku www.skriđuklaustur.is, vćnt um ađ heyra ţađ.Arrivederci a (per) Lei, signore Giovanni Miđvikudagur 27. Apríl 1938.

MORGUNBLAĐIĐ

Gunnar Gunnarsson skrifar um sameiningu Ţýskalands og Austurríkis í brjefi til „Nordische Gesellschaft" í Lübeck, kemst Gunnar Gunnarsson skáld,  svo  ađ orđi: Leyfiđ  mjer fyrst  ađ  láta í   ljós  gleđi  mína  yfir hinum mikla viđburđi,  sameiningu    Austurríkis    viđ    Ţýskaland. Ţjer vitiđ, ađ jeg hefi um langt skeiđ  litiđ  á ţessa sameiningu, sem sjálfsagđa. Nú get jeg óskađ yđur hjartanlega til hamingju   međ   ţađ,   ađ   ţetta gerđist jafn fljótt og raun varđ á — og ađ ţađ gerđist á friđsamlegan hátt. Hjer voru menn dálítiđ vandrćđalegir og skildu ţetta ekki! Menn höfđu í fullri alvöru   trúađ    ţví,    ađ    ţýskir menn  í   Austurríki,   sem  vildu hverfa   heim    til    Ţýskalands, vćru   ađeins   lítill   minnihluti. —   Getur   mađur   vćnst   skilnings af mönnum, sem ekki vita betur?  Mikiđ veđur var gert út af „ofbeldinu", sem austurrísku  ţjóđinni  hafi  veriđ sýnt, og órjettinum, sem henni hafi veriđ gerđur. En ekki var talađ um ofbeldi og órjettlćti, ţegar Austurríki var á sínum tíma hindrađ  í  ţví, ađ sameinast Ţýskalandi. Hrćsni hinná'gömlu „friđarpostula" veldur mjer meiri hugarćsingu,  en hitt, hvernig Ţýskaland fór nú ađ ráđi sínu".Sjá einnig hér http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1235827

FORNLEIFUR, 16.8.2012 kl. 22:51

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hvađ segirđu Jón, á ég ađ fjarlćgja athugasemd H.T. og ţína ţriđju?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 16.8.2012 kl. 22:53

7 Smámynd: FORNLEIFUR

Gunnar andmćlti aldrei gyđingahatri félaga sinna í Nordische Gesellschaft.

Ţar sem ekki eru varđveittar allar rćđur hans í Nordische Gesellschaft, getur mađur ekki útilokađ ađ hann, eins og ađrir, hafi komiđ inn á hatur sitt gagnvart gyđingum.

FORNLEIFUR, 16.8.2012 kl. 23:11

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei takk, Vilhjálmur, taktu ţćr athss. ekki út!

Ertu viss um, ađ Nordische Gesellschaft hafi sem slíkt bođađ opinskátt Gyđingahatur? Vitaskuld voru bćđi SS-foringinn Himmler og Rosenberg siđlausir Gyđingahatarar og virkir í ţví, en ţađ leiđir samt ekki af sjálfu sér, ađ ţar međ hafi Nordische Gesellschaft veriđ opinskátt í bođun Gyđingahaturs. En ţú ert kannski međ uppl. um ţađ (ef einhver er!).

Já, ţessi texti hans Gunnars um innlimun Austurríkis er fáránlega infantíll, ekkert minna, og í raun óskammfeilinn, ţađ getur ekki hjá ţví fariđ.

Jón Valur Jensson, 16.8.2012 kl. 23:23

9 Smámynd: FORNLEIFUR

Norđulandadeild Nordisches Gesellschaft lék sér mest ađ ţönkum um hiđ Norrćna. Tal um gyđinga fyllti ekki fundi í Danmörku, en ýmsir rithöfundar og frćđimenn í ţessum félagsskap á  Norđurlöndunum voru sannfćrđir gyđingahatarar eins og t.d. hinn sćnski Fredrik Böök.

Annađ mál var međ fundi í Ţýskalandi. En ţar sem Gunnar Gunnarson var oft í höfuđstöđvum Nordisches Gesellschaft í Lübeck hlýtur hann ađ hafa orđiđ var viđ ţađ og jafnvel viđ međferđ gyđinga í bćnum og í Ţýskalandi.

Nordic League á Bretlandseyjum var mynduđ sem deild af Nordisches Gesellschaft. Ţar voru menn ekkert ađ fela gyđingahatur sitt og allt vitist snúa um andúđ á gyđingum.

FORNLEIFUR, 17.8.2012 kl. 00:05

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Göring var nú ekki beinlínis grannvaxinn á efri árum!

Herman Göring

Jón Valur Jensson, 17.8.2012 kl. 00:19

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ć, ţetta innlegg átti víst ađ vera á hinni síđunni ţinni! Ţér er velkomiđ ađ taka ţađ (og ţetta) út hér, ef ţú vilt.

Jón Valur Jensson, 17.8.2012 kl. 02:21

12 Smámynd: FORNLEIFUR

Göring hjálpađi reyndar gyđingum ađ komast til Danmörku. Ţetta kemur fram í bók Bent Blüdnikows, Som om de ikke eksisterede.

Svo vil ég nefna, ađ til er mynd af Gunnari Gunnarssyni er kann kemur af fundinum međ Hitler. Bókin sem hún er í er ţví miđur ekki til á Konunglega bókasafninu í Danmörku og svo virđist sem engir ađrir eigi ţetta verk. Ţar kemur fram ađ:  Der isländische Dichter Gunnar Gunnarson wurde im März 1940 vom Führer und Reichskanzler empfangen. Gunnarson und der Leiter der Nordischen Gesellschaft, Gauleiter Lohse, verlassen die Reichskanzlei (geleitet von einem Offizier der Leibstandarte SS Adolf Hitler);

Lohse ţessi var Hinrich Lohse frá Kiel, sem m.a. bar ábyrgđ á gettóinu í Riga í Lettlandi.

Gunnar gekk međal morđingja! 

FORNLEIFUR, 17.8.2012 kl. 06:38

13 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Menn verđa ađ setja sig inn í veruleika ţess tíma ţegar Gunnar, Halldór Laxness, Jóhannes úr Kötlum og ótal ađrir listamenn voru uppi og sýndust oft meira og minna hallir undir nasisma og kommúnisma, Stalín og Hitler.

Sem dćmi má nefna ađ Benjamino Gigli, sem var sem óperusöngvari talinn arftaki Carusos, átti undir högg ađ sćkja fyrst eftir stríđ af ţví ađ Mussolini hafđi, eins og ađrir Ítalir, miklar mćtur á Gigli og sýndi honum margvíslegan heiđur.

Ómar Ragnarsson, 17.8.2012 kl. 12:45

14 Smámynd: FORNLEIFUR

Ómar var Gigli ekki búinn ađ missa röddina eftir stríđ? Hann gaf út bókina Confidenze, ţar sem hann skrifađi ađ "Hitler og ráđherrar hans Himmler og Göbbels hefđu heiđrađ sig međ vináttu sinni".

Ţetta minnir mann eiginlega mest á ítalska ofurstahanann í Allo, allo ţáttunum, sem heilsađi "Heil'a Mussolini".

FORNLEIFUR, 17.8.2012 kl. 13:30

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband