Leita í fréttum mbl.is

Jónas er engum líkur, eða hvað?

nasiJonas 

Margir hafa þurft að þola það síðustu  9 mánuðina að vera líkt við hinn geðveika, norska fjöldamorðingja Breivik, sem í dag var leiddur fyrir rétt. Þetta er orðin dægradvöl sumra manna, sem telja að siðferðið á vinstri vængnum sé betra en á þeim hægri. Nú er ekki nóg fyrir suma vinstri menn, jafnvel þá sem stutt hafa Polpot og aðra þjóðarmorðingja, að nota verstu skammaryrðin frá Kreml. Andstæðingurinn er eins og Anders Behring Breivik, ef maður vill sverta pólitíska andstæðinga sína sem mest.

kveðja Breiviks
Danskir dátar úr Modstandsbevægelsen heilsa á rússneskan hershöfðingja á Kastrup eftir síðari heimsstyrjöld

 

Veruleikaflóttinn er svo svakalegur, að kveðja sú sem Breivik hefur haft í frammi í réttarsal er sögð vera kveðja hægrimanna. Googlið myndir með textanum "Neo Nazi salute". Er fjölmiðlafólk í afneitun eða er komin ný kynslóð fávita í þessa stétt? Steyttur hnefi er ekki meira hægrisinnaður en Mörður Árnason í Maóskóm.

10000kallinn

Sá einasti sem mér finnst líkur Breivik á Íslandi er hins vegar blessað þjóðskáldið, Jónas Hallgrímsson. Sannast það að Íslendingar eiga ættir sínar að rekja til Noregs. Jónas er að verða að 10.000 kalli. Það verður líklega síðasti seðillinn áður en við fáum blíða ásjónu Jóhönnu Sigurðardóttur og Össurar Skarphéðinssonar á evruseðlana. Ljótt er til þess að hugsa, að verðmætasti seðillinn á Íslandi, áður en þjóðin verður prettuð inn í ESB, muni minna umheiminn á versta fjöldamorðingja Norðurlandanna, eða var sá versti ekki annars Dani?  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Leifur Þorsteinsson

Þessi mynd sem tekin er á Kastrup flugvelli af komu rúsnesk hershöfðigja til Danmerkur er ekki af dönskum hermönnum heldur af komúniskum hjemeverns

félögum að heilsa rúsanum. Komma kveðjan var útrétt hönd með kreftum hnefa

Land og Folk prentaði myndina altaf spegilventa til að gera kveðjuna þannig að

vinstri hödin virtist notuð en ekki sú hægri sem altaf var notuð, en eftir stríð mynti

það óþirmilega á útrétta hægri hönd. Orginal myndin er birt í Dansk Fotografisk

Historie

Leifur Þorsteinsson, 17.4.2012 kl. 13:11

2 identicon

Það er auðvitað tómt bull að kalla kveðju Breiviks kveðju nýnasista, hún er kveðja English (Danish / Norwegian) Defence League hópanna, hér er dæmi: http://www.guardian.co.uk/world/2009/sep/11/english-defence-league-chaotic-alliance

Það er að vísu lítill munur á kúk og skít en munur samt.

Matthías (IP-tala skráð) 17.4.2012 kl. 14:10

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Rétt hjá þér Leifur (ég leiðrétti) og líka hjá þér Matthías. Það hefur lengi verið ljót fýla af kommúnistum og nasistum. Báðir ismarnir þrífast á mannfyrirlitningu, sem er kúkur með lítið áburðargildi.

Hugsanlega eru þessir defense league hópar farnir að nota kommakveðju, þar sem aðalfjandinn, múslímurinn, notar nasistakveðju? Veistu eitthvað um það Matthías? Googlaðu "Muslim Nazi salute" myndir og sjáðu. Það er líka bölvuð ræpa, svo ég noti safaríkt mál þitt.

Mig minnir ekki betur en að skátar eða KFUM á Íslandi hafi hælað á fánann á svipaðan hátt og nýlega fór ég með son minn og tvo jafnaldra hans á fótboltaleik í Brøndby Parken og mér sýndist ekki betur en að bullur Brøndby hafi líka hælað á hætti nasista. Ég fer ekki aftur á Brøndby leik.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.4.2012 kl. 15:03

4 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Raunar er þessi kveðja rómversk og má sjá suma keisarana, t.d. Ágústus heilsa þannig. Mússólíní apaði þetta eftir fjarlægum forfeðrum sínum, en síðan apaði Hitler þetta aftur eftir ítölskum fasistum, eins og reyndar margt annað.

Vilhjálmur Eyþórsson, 17.4.2012 kl. 15:34

5 identicon

Ég hef nú ekki mikið sett mig inn í þessar fasistakveðjur allar, Vilhjálmur, en auðvitað eru ýmsir hópar sem nota þær einmitt af því að þeir vita að umhverfinu finnst þær ögrandi, kannski ekki alltaf mikil hugmyndaleg innistæða þar á ferð. Stundum krepptur hnefi, stundum ekki, en allt í raun sama kveðjan, hönd yfir höfuð, og örugglega ævaforn, líklega mun eldra en Rómarríki. Þörf manna til að markera að þeir tilheyri öflugum hópi hefur sennilega lengi mikil.

Matthías (IP-tala skráð) 17.4.2012 kl. 16:54

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Heil'a nafni og Moussolini. Var rómversk kveðja ekki hærri en sú tautnóníska? Annars þekki ég ekki neina antíka sönnun þess að rómverska kveðjan hafi verið sú sama og það sem Mussolíní gerði af æfingum. Mig grunar að þessi vitleysa hafi orðið til á 19. öld.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.4.2012 kl. 17:34

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Matthías, ætli Jónas Hallgrímsson hafi nokkuð steytt annað en görn?

Give me five.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.4.2012 kl. 17:39

8 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Jacques-Louis David's painting The Oath of the Horatii (1784) provided the starting point for the gesture that became later known as the Roman salute. The gesture and its identification with Roman culture was further developed in other French neoclassic artworks. This was further elaborated upon in popular culture during the late 19th and early 20th centuries in plays and films that portrayed the salute as an ancient Roman custom. These included a 1914 film called Cabiria based upon a screenplay by the Italian nationalist Gabriele d'Annunzio. In 1919, d'Annunzio adopted the cinematographically depicted salute as a neo-imperial ritual when he led the occupation of Fiume.

From Wikipedia, the free encyclopedia

Svanur Gísli Þorkelsson, 17.4.2012 kl. 18:36

9 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Wikipedia er vitur, en ekki alvitur. Það er hins vegar ævafornt, að menn rétta fram opna hendi til að sýna að þeir fari með friði og beri ekki vopn. Rómverska-fasista-nasistakveðjan er afbrigði af þessu.

Vilhjálmur Eyþórsson, 17.4.2012 kl. 18:44

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Það held ég ekki nafni. Ágústus og aðrir keisarar eru með höndina uppi á annan hátt en ítalska fíflið með hanann á hattinum í Allo Allo þáttunum, sem heilsaði Heila Mussolini.

Heil þér, Svanur Gísli fyrir að staðfesta grun minn um að þessi asnalega handkveðja nasista og fasista sé tilbúningur, alveg eins og kveðja Breiviks brjálaða í Noregi.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.4.2012 kl. 20:08

11 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Svanur vitnar í Wikipedia, þú vitnar í capitano Bertorelli. Hverjum á ég að trúa? En menn hafa rétt fram opna hendi í aldir og ótaldar árþúsundir. Handaband Vestulandabúa er eitt afbrigði af því.

Vilhjálmur Eyþórsson, 17.4.2012 kl. 20:49

12 identicon

http://www.bbc.co.uk/news/magazine-17739105

Jóhann (IP-tala skráð) 17.4.2012 kl. 21:12

13 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

En þið eruð að tala um kveðju með krepptum hnefa. Það hefur þveröfuga merkingu og er mjög agressíft.

Vilhjálmur Eyþórsson, 17.4.2012 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband