Leita í fréttum mbl.is

Íslendingar eru algjörir snillingar

a_nation_of_geniuses.jpg

Á Íslandi ættu að búa 26 milljónir manna. Þetta segir rektor Háskóla Íslands, vegna þess að 11 mannanöfn, sem reyndar tilheyra ekki öll Íslendingum, eru á lista yfir 3000 vísindamenn í heiminum sem koma oftast og best fyrir í vísindagreinum, jafnvel í greinum sem þeir hafa ekki skrifað neitt í, sem og í greinum þar sem engin sönnun er sett fram fyrir því sem haldið er fram, því menn telja niðurstöðuna vera verndaða verslunarvöru sem hægt verður að búa til pillur úr með tíð og tíma.

Rektorinn er alvörurektor yfir HÍ, þar sem fjöldi starfsmanna skrifaði einu sinni undir áskorun til að kom í veg fyrir þjóðarmorð og hreinsanir sem þeir héldu fram að Ísraelsríki ætlaði að fremja. Létu þessi starfsmenn glepjast af vefsvikum, þar sem haldið var fram að 187 ísraelskir prófessorar væru á sömu skoðun og hefðu hafið þessa undirskrifasöfnun. Þegar verið er að slátra íbúum Sýrlands heyrist ekkert í þessu eðalfólki, sem réttast ætti að teljast til milljónaþjóða, þar sem vitleysingarnir hverfa í fjöldann. Á Íslandi stinga þeir bara í augun.

Það búa aðeins nokkrar hræður á Íslandi og afstaða margra þeirra í garð umheimsins, í garð minnihluta, sýnir að fáir eru snillingar og að fjöldin allur á afar erfitt með rökhugsun, hugsanlega vegna skyldleikaræktar fyrri alda. Menn sem stutt hafa Pol Pot og Hamas telja sig helstu verndara lýðræðis. Aðrir sem telja sig óefað snillinga og að minnsta kosti sérleyfishafa á réttar og sannar skoðanir, berjast hetjulega fyrir mosku, en um leið gegn umskurn.

Það er alltaf sama sagan. Íslendingar vilja tilheyra þeim stóru í lítilleika sínum, en vera litlir þess á milli á alls kyns undanþágum frá hinum stóra heimi vegna smæðar sinnar. Suma dreymir um ESB og Öryggisráðið og aðra um að vera með á ráðstefnu í BNA um höfin þeirra. Eitt sinn vildi fjöldi Íslendinga fljóta með Hitler og Stalín. En vegna smæðar sinnar hverfa Íslendingar venjulega í hafið, fyrir utan 11 einstaklinga sem bjarga öllum heiminum.

Íslendingar eru reyndar svo heppnir að tilheyra sjálfum sér, en það þykir víst ekki nógu fínt lengur. Mér er sjálfum næst að halda að við séum bara á flötu pönnukökustiginu eins og sumir gerðu sér að lokum grein fyrir þegar þeir seldu pönnsur á Manhattan þegar þeim varð ljóst var að stuðningur Assads og annarra þjóðarmorðingja var ekki tryggður fyrir setu Íslands í Öryggisráðinu. Þar ætluðu íslenskir snillingar að brillera og sýna umheiminum hlutverk Íslendinga á meðal þjóðanna, þegar Ingibjörg Sólrún var utanríkisráðherra og Ísland ætlaði að bjarga friðinum fyrir botni Miðjarðarhafs fyrir fullt og allt.

as_sad_as_a_sad_ass_can_be.jpg
Þegar konan á myndinni tók í höndinni á manninum taldi hún víst að Ísraelsmenn væru þjóðarmorðingar. Hún er greinilega ekki snillingur.
 

Kannski ætti HÍ að leggja meiri áherslu á kennslu í heimildarýni, sjálfsgagnrýni og hafa reglulega kúrsa í minnimáttarkennd í öllum deildum og skorum. Hugsanlega myndi Íslendingum fækka úr 26.000.000 þykistunni Íslendingum niður í viðráðanlega tölu. Segjum svona ca. 320.000 manns.

Í dag sagði Ómar Stefánsson sig úr Framsóknarflokkunum, búinn að fá sig fullsaddan af þjóðernispopúlisma. Án þess að fara út í smáatriði, þá hét Ómar eitt sinn Abdallah og er líkast til umskorinn eins og flestir sem bera það nafn. Ætli réttar skoðanir hans nú og hrein samviska geri honum létt fyrir þegar hann styður mosku. Þá vona ég að hann þurfi ekki að ærast út af umskurn á drengjum, því það gera flestir hreinhjartaðir stuðningsmenn mosku á Íslandi. Þeir vilja mosku - en ekki fyrir neina muni umskurn. Ómar finnur örugglega einhverja átillu og undanþágu til að hata umskurn með öllum hinum sem ekki eru popúlistar.

Ekki heyrði ég mikið í Ómari hér um árið þegar sígaunum var hent út úr landi jafnóðum og þeir hófu að leika á nikku við verslanir á Íslandi ... og hvar lógaði hann Abdallah???


Bloggfærslur 22. júní 2014

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband