Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íslenskt gyðingahatur

Er nokkrum vært á Íslandi fyrir heimsku?

gustav_adolf_1253190.jpg

Sem fyrsta Íslendingnum, sem í rituðu máli stakk upp á byggingu mosku á Íslandi, þykir mér sárt þegar sígaunahatari, sem haldið hefur því fram, að Rómafólk ræni ljóshærðum börnum frá Svíþjóð og Finnlandi, banni mig í fjölmiðlaumræðu á íslenskum fjölmiðli. Kannist þið við Egil Helgason? Þið þekkið hann ekki, heilagleikann, ef þið vissuð ekki að ég er hér einmitt að nefna hann, þann gamla baráttumann fyrir frelsi og jafnrétti, sem hann kann meistaralega að beygja að sínum hentugleika,líkt og aðrir lýðskrumarar.

En ég er orðinn þreyttur á Agli og þetta fjallar um annan öfgamann: Gústaf Níelsson inn óferjandi. Gústaf, sem að öllum líkindum er sígaunabarn sem rænt var í Napólí af íslenskum kapteini (ef trúa má uppeldisbróður hans), hefur svo sem einnig látið mig heyra það, t.d. á smettisskruddu Gísla Gunnarssonar prófessors. Oft hefur Gustavo ásakað mig fyrir að vera drykkjumann eða á lyfjum. En þrátt fyrir æsinginn í þessum blóðheita innflytjenda tel ég óeðli og ólýðræðislegt, þegar maður með skoðanir Gústafs Adolfs er útilokaður frá nefnd um jafnréttismál, ef hann hefur verið kosinn í hana á löglegan hátt. Slíkt getur aðeins gert á Íslandi, líkt og þegar læknar fá 20-30 % launahækkun, þegar þjóðarskútan er að sökkva.

Gústaf hatar múslíma. Það tel ég næsta öruggt, jafnvel þá sem ekki eru morðóðir í nafni trúar sinnar, líkt og margir þeirra eru - því miður. Gústi er líka afar hræddur við homma. Þess vegna keppast allir við að hreinsa hendur sínar og afneita þessum orðhvata manni sem hleypir engu karlkyns nær rassi sínum en 4-5 metra fyrir framan sig.

En eins og ég er nú opin fyrir moskum og hommum og jafnvel hommum í moskum (þar sem ekki er boðað hatur), öllum litum og trúarbrögðum, þá er ég einnig opinn fyrir opinskárri og hreinskilinni umræðu. Ég hélt að margir væru það, en kannski missýndist eða -heyrðist mér hér um daginn, er menn voru farnir að tala frönsku og sögðust heita Charlie.

Ef menn banna Gústaf Adolf, þá eru þeir ekki samkvæmir sjálfum sér. Gústaf hatar homma á sama hátt og stór meirihluti múslíma í heiminum gerir (þó hefur Gústaf aldrei sagt að þá beri að grýta eða hálshöggva), og það hefur ekki farið leynt að einn af prestum múslíma á Íslandi er skoðanabróðir Gústafs hvað varðar homma og lesbíur.

Múslímar á Ísland eins og annars staðar hata líka gyðinga og styðja hryðjuverk. Það er staðreynd. Ef þið afneitið því, eruð þið gyðingahatarar (sjá hér). Íslenskir múslímar hrópa jafnvel á eftir fólki sem þeim líkar ekki, að þeir séu "helvítis gyðingar". Ekkert heyrist þó í æðstaráði einherra æviráðinna dularfullra kvenna í HÍ þegar slíkt gerist, en þær ærast þegar Gústaf Adolf er kominn í einhverja nefnd.

Sumir múslímar eru jafnvel svo ósvífnir að líkja sér við fólk sem múslímar hata mest. Um daginn lét talsmaður íslenskra múslíma, Sverrir Hebdo, þá skoðun sína í ljós að "múslímar væru gyðingar samtímans" og væru ofsóttir eins og gyðingar forðum. Þvílík smekkleysa. Ætti ekki að reka manninn úr vinnu sinni? Nei, Sverrir er svo vænn við homma, að það tekur ekki að æsa sig upp yfir slíkum tittlingaskít.

Ég hef séð, að fólk með ættarnafnið Tamimi, haldi því ranglega fram og jafnvel stolt á góðri stundu, að það sé skylt konu einni sem framið hefur hryðjuverk gegn saklausu fólki í Ísrael. Þetta gera sumir íslenskir Tamimiar, þó svo að enginn skyldleiki sé við hryðjuverkakonuna samkvæmt "ættarhöfðingjanum" Salman Tamimi. En í hita leiksins, þar sem tilgangurinn helgar meðalið, telja margir Íslendingar og jafvel fólk með þetta eftirnafn á Íslandi, að allir Tamimi heimsins, sem líklega telja nokkur hundruð þúsund manna, ef ekki milljónir, séu komnir af sama forföðurnum. Sumir ættingjar Salmanns eru greinilega viljugir til að spyrða sig með upplognum skyldleika við hryðjuverkafólk sem drepur saklaust fólk í Jerúsalem.

Þessir ættingjar Salmanns Tamimis á Íslandi eru bornir á gullstóli þegar þeir segjast ofsóttir af múslímahöturum í kjölfarið á hryðjuverkaárás á gyðinga og skopteiknara í París, meðan hinn stóryrti Gústaf er jarðaður sem kynþáttahatari og hómófób. Eins og það sé ekki nóg. Hann er líka útilokaður af afdalaflokki þeim sem hann tilheyrir, sem sannarlega hefur reynst gyðingum sem komu til Íslands sem flóttamenn verr en nokkur múslími á Íslandi. Nú er afdalaflokkurinn sem sagt kominn með stefnu í mannréttindamálum, á síðustu dögum heilögum. Fljótt skipast veður í Moskuborg.

Það liggur við að maður lýsi yfir stuðningi við Gústaf eins og aðra minnihlutahópa. En ég er hvorki á lyfjum eða á flöskunni, eins og Gústaf hefur skrifað um mig, svo meiri stuðning fær hinn ofsafengni og blóðheiti sígauni (afsakið orðbragðið) ekki hér en þessi lokaorð:

Gústaf Adolf Níelsson virðist mér ekki vera meiri öfgamaður en margur annar Íslendingurinn. Þegar fólk flykkist á Lækjartorg til þess að styðja Hamas og er orðið að Fransmanninum Charlie Hebdo nokkrum mánuðum síðar, er ekki laust við að þjóðin sé geðklofa. Ekki útiloka ég þó, að meinið sé bara slæmt tilfelli af hræsni og heimsku.

(Myndina efst fékk ég lánaða hjá Charlie Hebdo)


"Gyðingar samtímans"

ey_imerkurprinsinn.png

Einn af talsmönnum múslíma á Íslandi var eitt sinn ævintýramaður og eyðimerkurprins. Nú er hann orðinn eins konar spámaður á RÚV og telur múslíma Evrópu gyðinga samtímans.

Síðastnefndu meinloku og söguleysu hélt Sverrir Agnarsson enn einu fram í Kastljósi í gær. Hann fékk að ljúka viðtalinu með því að ítreka þessa hjákátlegu vanþekkingu sína. Sverrir sagði "Ég sagði, að áróðurinn gegn múslímum væri farinn að líkjast áróðri nasista gegn gyðingum fyrir 60 árum síðan." Þetta er vitanlega ekki rétt hjá Sverri. Sverrir þarf ekki annað en að lesa blöð og horfa á sjónvarp í heimi Múslíma til að vita að áróður nasista gegn gyðingum fyrir 60 árum er endurtekið efni í fjölmiðlum múslíma um allan heim.

Þessa samlíkingu, sem á engan rétt á sér, hefur maður svo sem séð áður. Gasa er orðið að gettóinu í Varsjá og Ísraelsmenn fremja samkvæmt flestum múslímum helför.  En þó Sverrir sé orðinn gjaldgengur múslími verður hann, eða trúbræður hans aldrei gyðingar samtímans - einfaldlega vegna þess að múslímar nútímans eru enn að óska gyðingum nútímans dauða og pínu - og drepa þá í nafni trúarbragða sinna - og ekki eingöngu fámennur hópur íslamista og Jihadista með sprengjubelti.

gy_ingur_21_aldar.jpg

Nú þegar múslímar taka gísla í verslun gyðinga og myrða þá, eins nú og í París eða þegar þeir drepa gyðinga á safni þeirra, ráðast á skóla þeirra, dagheimili og samkunduhús, Þá eru múslímar ekki gyðingar samtímans.

Gegnum söguna hafa múslímar ofsótt gyðinga. Hvernig geta múslímar verið gyðingar? Múslímar ætluðu að hjálpa Hitler í lokalausninni (Helförinni). Hvernig í ósköpunum getur Sverrir Agnarsson líkt múslímum við gyðinga? Þegar rannsóknir sýna að meirihluti múslíma hata gyðinga og að sumir telji þá réttdræpa , þá eru múslímar ekki gyðingar. Þetta verður talsmaður múslíma á Íslandi að læra. Hann veit vel, að þegar Palestínumúslíminn Salman Tamimi öskrar "helvítis gyðingar" að fólki sem ekki eru honum sammála, þá er Salman vitaskuld ekki gyðingur nútímans, heldur stuðningsmaður öfga.

Þegar múslímar á Íslandi fara með hatursfullar lygasögur um gyðinga (sjá hér) úr helgiritum sínum í íslenskum fjölmiðlum, þá eru múslímar ekki gyðingar. Sumir þeirra eru reyndar komnir af gyðingum sem neyddir voru til Íslam með ofbeldi, en það vilja múslímar ekki heyra.

Meðan trúarrit og skólabækur í löndum múslíma bjóða upp á samlíkingu á gyðingum við dýr, þá er ekki mikil von um að múslímar sættist við sjálfa sig, frekar en aðra. Menn geta enn lært af þeim trúarbrögðum sem Múhameð lánaði frá með hjálp Allah. Múslímar geta vitanlega ekki verið skyldir þeim mönnum sem múslímar líkja við óæðri dýr?? Meðan múslímar prenta og lesa Mein Kampf eru þeir vitanlega ekki gyðingar samtímans. Þeir geta ekki orðið gyðingar neinna tíma.

Múslímar sem frömdu fjöldamorð á gyðingum við tilurð trúarbragða múslíma, geta aldrei orðið gyðingar. Æ ljótari saga íslamísks heimsráðastefnu og yfirgangs hefur nú náð slíkum hæðum í illmennsku, að það er óréttlætanlegt að líka múslímum við gyðinga, MEÐAN STÆRSTI HLUTI MÚSLÍMA Í HEIMINUM VILL MEINA GYÐINGUM AÐ EIGA SÉR EITT LÍTIÐ LAND,ÍSRAEL, þá eru þeir og verða ekki gyðingar.


Össur píningur

Össur Skarphéðinsson (S) vill "pína Ísraelsmenn" til að sætta sig við útrýmingarherferð á Ísrael og gyðingum. Þessar píningarhugleiðingar sínar, það er viðskiptabann á Ísrael, afhjúpaði hann á hinu háa Alþingi um daginn. 
papa_gazaroni_1246553.jpg

Sjáið bara hér (8:50 mínútur inn í fréttatímann). Núverandi utanríkisráðherra útilokaði ekki að "Pína"  gyðinga ef heimurinn allur tæki þátt í slíkri "píningu".  Píning og útilokun á gyðinga var líka yfirlýst stefna forráðamanna Framsóknar á 4. áratug síðustu aldar. Allur heimurinn er sem betur fer ekki farinn aftur á sama menningarstig og Össur Skarphéðinsson, þar sem píningar og hryðjuverk eru verkfæri í mannlegum samskiptum.

Íslendingum má vera ljóst, að hagsmunir Íslendinga eru í húfi ef Ísland fer í sóló píningarherferðir gegn Ísraelsríki. Land sem leyfir einhverju braskfyrirtæki að veiða hval í óþökk siðmenntaðra þjóða, sama hve mikið slíkar þjóðir menga og drepa af fólki og hnísum, þá er stuðningur við "píningar" gegn þjóðum sem þegar eru fórnarlömb hryðjuverka, útrýmingarherferðar og haturs heilla heimstrúarbragða ekki sniðug aðferð til að gæta hagsmuna Íslendinga. Munið hverjir kaupa íslenskan fisk? Það gera hvorki Framsóknarmenn né píningarmeistari Samfylkingarinnar, flokks sem leitaði fulltingis hjá Assad Sýrlandsmorðingja, þegar Samfylkingin ætlaði inn í Öryggisráð SÞ, þar sem ætlunin var að ganga frá Ísrael.

Píningarmeistarar og sadistavinir Össurar í Samfylkingunni eru sjálfum sér verstir, þótt þeir fái "læk" á smettiskruddur sínar frá fólki sem kallar gyðinga "djöfla" og íslenska stuðningsmenn Ísraels "helvítis gyðinga".


Íslendingar styðja nýnasista í Úkraínu

ukraine-neo-nazi-5_3002183b.jpg

Rússar kaupa líklega íslenskan fisk, þangað til þeir fá ógeð á því að sjá Katrínu Jakobsdóttur og flokksfélaga hennar í Vinstri Grænum sem og aðra blindingja hylla nasista og gyðingahatara í Úkraínu.

Sveitir nýnasista berjast gegn aðskilnaðarsinnum í Austur-Úkraínu (Sjá hér og hér)

Katrín hyllir einnig gyðingahatara í Palestínu, svo hún er ekki að reyna þetta í fyrsta sinn. Hún er heldur enginn nýgræðingur, þegar hún vill að Rússar setji bann á íslenskar vörur eða að ESB-móðurskipið skipi okkur það. Kata hefur verið öflug í að banna og bannfæra. Hún vill banna fólki að kaupa vörur frá Ísrael meðan uppáhalds döðlutertan hennar er búin til úr döðlum frá Íran sem vaxa á pálmum í nánd við byggingakrana þar sem ayatollarnir og dauðasveitir þeirra hengja fólkið fyrir minnstu sakir, t.d. samkynhneigð. Sterku strákarnir með gula fánana í Úkraínu heilla Kötu litlu álíka og sterku strákarnir í Hamas, Hizbollah og IS. Þeir vilja líka banna allt.  Kaldhæðni örlaganna er það vissulega, að SS nútímans ISIS, ISIL etc. hefur tekið upp nafnið IS. 

Ekki þarf að segja af óláni Íslendinga. Myndin neðst er frá mótmælum við Bandaríska sendiráðið í Reykjavík. Þar hefur Davíðsstjörnu verið komið fyrir í stað 50 ríkjastyrnanna.

10544788_10152280301798034_4938175071600590012_n.jpg
Íslenskir gyðingahatarar mótmæla við sendiráð BNA

Gyðingahatrið í Gaza-umræðunni

sveinn_runar_hauksson.jpg

Í hvert sinn sem stríð hefur blossað upp milli Palestínumanna og Ísraela á síðari árum, fyrst og fremst vegna þess að sumir Palestínumenn og stuðningsmenn þeirra á Vesturlöndum vilja útrýma Ísraelsríki,  hefur stór hópur Íslendinga farið yfir um í umræðum á bloggum og á fasbók. Viðbrögð Íslendinga sem halda með útrýmingarherferð Hamas, eru oft hreinræktað gyðingahatur.  Íslendingar halda að þeir einir geti vaðið í gyðingahatri án þess að það hafi nokkrar afleiðingar.

 

visir_is_1241292.jpg

Annars dagfarsprútt fólk og vel menntað byrjar að tala um flutninga gyðinga á afskekktar slóðir (nú síðast Utah sem er kannski ekki afksekktur staður en frekar leiðinlegur) meðan aðrir lýsa því yfir að þeir sjái eftir því að Hitler hafi ekki lokið ætlunarverki sínu. Enn aðrir vilja ekki hafa viðskipti við gyðinga. Endalaust nota Íslendingar á vinstri vængnum og nasistar samlíkingar á Ísraelríki við Þýskaland nasismans og Gaza er auðvitað fyrir löngu orðið að gettói sem fólk sem notar þessar andgyðinglegu samlíkingar veit ekkert um. Holocaust-relativism er gerð af gyðingahatri og óbeinni helfararafneitum, þar sem gyðingum og Ísraelsmönnum er núið um nasir að þeir séu eins og nasistar,  að gera það sama við Palestínuþjóðina og nasistar gerðu gyðingum. Slíkar samlíkingar lýsa ekki bara hatri, heldur einnig einfeldni og fávisku.

untitled-duplicated-09.jpg
hef_i_kosi_hana.jpg
 

Í gær sá ég á blogg Hlyns Þórs Magnússonar umræðu þar sem maður er heitir Rögnvaldur Bjarnarson lýsti því yfir að hann hefði viljað sjá "guttann" (Hitler) ljúka ætlunarverki sínu, það er að myrða alla gyðinga (sem er einnig ætlunarverk Hamas). Sami maður lýsir á fasbók sinni hrifningu sinni á framsóknarkonunni miklu sem ekki vill mosku í Sogamýrinni. Hvað kallar maður mann sem bæði er með óþol fyrir moskum og gyðingum?

Í sömu umræðunni hjá Hlyni fyrrverandi fangaverði tekur þátt kona sem býr á Ísafirði, sem skreytir um þessar mundir fasbók sína með palestínskum fána. Faðir hennar gekk 17 vetra í Waffen-SS. Það dregur greinilega ekki úr mönnum kjarkinn þegar að hatrinu kemur. Kannski gengur þetta í ættir.

Rithöfundinn Þorsteinn Antonsson falsar söguna (eða tekur sér skáldaleyfi) og skrifar að Ísraelsmenn eigi ættir sína að rekja til " hinna ýmsu ættbálka sem upp eru taldi í nefndri heimild [Dómarabók] og bjuggu á því sama landsvæði á ritunartíð þessarar bókar, fyrir þúsundum ára, sem tilheyrði svo Palestínuaröbum fram til þess að Vesturveldin stefndu gyðingum á þennan reit upp úr lokum síðari heimstyrjaldarinnar til að fría sig sambúðarvanda sem löngum hefur fylgt þessum þjóðflokki, gyðingum."

_orsteinn_antonsson.jpg
 

Samkvæmt íslenskum rithöfundi, Þorsteini Antonssyni, fengu gyðingar Ísraelsríki svo "Vesturveldin gætu friðað sig af sambúðarvanda af gyðingum". Þorsteinn Antonsson er greinilega svæsinn gyðingahatari og sögufalsari, sem líklega hefur aldrei heyrt um þjóðarmorðið á 6 milljónum gyðinga í síðari heimsstyrjöld, styrjöld sem faðir Herdísar Hübner tók virkan þátt í, og gefur henni ástæðu til að skreyta sig með Palestínufána í hatri sínu á gyðingum Ísraelsríkis sem verja sig gegn samtökum sem hafa það sama á stefnuskrá sinni og Hitler.  Herdís er greinilega pabbastelpa.

 

_ortsteinn_antonson_svarar.jpg
Þorsteinn getur ekki svarað
 
Íslendingar bera einnig ábyrgð á úrslitum síðari heimsstyrjaldar, því þeir voru ekki til í að hjálpa landflótta gyðingum á 4. áratugnum. Hins vegar kom Rauði Kross Íslands, (Lúðvík Guðmundsson og Sigurður Sigurðsson) föður Herdísar til Íslands úr fangabúðum fyrir SS-liða á Englandi en samtökin höfðu engan áhuga á að hjálpa gyðingum. Og svo þurftu gyðingar sem fluttu til Íslands eftir stríð að skríða meðfram veggjum.

Þannig eru (sumir) Íslendingar - Ekkert nema hræsnin og óþverrahátturinn. Jafnvel talsmaður múslíma á Íslandi þakkar fyrir sig með dálitlu gyðingahatri þegar hann skrifar þetta á fasbók einni í gær:

salman.jpg
Mundu Salmann Tamimi, að sumt fólk sem hatar moskuna þína hatar líka gyðinga, t.d. Rögnvaldur Bjarnason.

Íslensk list nær nýjum hæðum

Íslensk "list" hefur nú náð nýjum hæðum sem aldregi hafa áður náðst. Snorri Ásmundsson er ekki aðeins laglaus og smekklaus transvestít, hann er einnig gyðingahatari sem misnotar þroskaskert fólk í hatursáróðri. Snorri hefur áður tekið þátt í "listrænni" uppákomu þar sem gyðingur var m.a. hengdur:
http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/133566/
http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/133718/

 


Sögur af Vesturbakkanum

children-3.jpg

I. Stúlkan sem dó og lifnaði aftur

Kraftaverkin eru aftur farin að gerast í landinu helga. Íslensk kona, Fríða Rós Valdimarsdóttir, skrifaði þann 2 júlí sl. um stúlku sem hún hélt að hafi verið myrt af Ísraela, sem átti að hafa ekið á hana. Daginn eftir leiðrétti Fríða Rós þessa frétt sína, sem annars hafði verið lofuð mjög af Agli Helgasyni á gránuðu Silfri hans. Ekki vantaði gyðingahatrið í athugasemdunum sem er ekkert nýtt hjá vinum Egils.

Samkvæmt palestínskum fréttamiðlum átti drápið eða slysið að hafa átt sér stað í smábænum Jab'a suðvestur af Betlehem á Vesturbakkanum. Fréttamiðlarnir palestínsku upplýsa okkur að Ísraeli í hefndarhug hafi sem stytt sér leið gegnum Jab'a hafi ekið á stúlkuna með vilja og skilið hana eftir í skurði. Sumir miðlarnir tala um að hún hafi verið myrt, aðrir að hún liggi alvarlega slösuð á spítala.

Fríða Rós Valdimarsdóttir breytti svo sögu sinni á Facebook og skrifaði:

Leiðrétting: Stúlkan sem settler keyrði á á mánudaginn var, berst enn fyrir lífi sínu. Hún er 9 ára og heitir Sanabel. Henni var ekki hugað líf í fyrstu en hún er greinilega sterk hún Sanabel.

Samkvæmt fréttaveitunni IMEMC (http://www.imemc.org/article/68291) gerðist þetta:

She was taken to the Bethlehem Arab Society Hospital suffering serious fractures and bruises in the head, face and abdomen.

Skoðum því þær myndir af stúlkunni sem birst hafa með fréttunum. Engin sár sjást í andliti, á höfði né á kviði, en sárabindi eru á fótlegg hennar. Hvað er að gerast?

raids2_340_220.jpg

Þessi mynd á að vera af stúlkunni frá Jab'a. Hvar eru sárin á höfði og andlitinu sem palestínskir fréttamiðlar skrifa um?

 10514594_10152975547485760_7739594891563212033_n.jpg

 Myndir af slysstað. Yfir stúlkunni bograr ísraelskur hermaður

 

10462961_10152975547515760_5688735716254960037_n.jpg

 

Mynd af Sanabel á sjúkrahúsi Beit Jalla. Engin mein á höfði eða andlit. Heldur ekki á kviði en vinstri fótleggurinn virðist í sáraumbúðum, en ekki í gipsi. Kallar Fríða Rós þetta að berjast fyrir lífi sínu? Myndin efst sýnir palestínsk börn gleðjast yfir ráni á þremur ungum mönnum og það á einum heilagasta stað þeirra og á heilagasta stað gyðinga.

 

Skrítið, en svona eru fréttir Palestínufréttastofa sem mikið eru fluttar á Íslandi. En skoðum aðeins staðhætti. Ef Ísraelsmaður ætlar að stytta sér leið á þjóðveginum fer hann ekki gegnum Jab'a. Jab'a liggur úr leið við þjóðveginn. Á myndum sem birst hafa af þessu slysi má sjá ísraelskan hermann og læknir og sjúkraliða frá Magen David Adom, Rauðu Davíðsstjörnunni í Ísrael. Myndirnar eru alls ekki frá slysi í Jab'a, því sjúkraliðar frá Magen David Adom hafa örugglega ekki ekið stúlkunni á Bethlehem Arab Society Hospital i Beit Jala. Þangað fer enginn ísraelskur sjúkrabíll ef starfsmenn vilja halda lífi og limum.

childwounded.jpg

Mynd af meintum slysstað. Tveir landnemar með kollhúfur (kippot/keppel/jarmúlkur) á höfði huga að ástandi stúlku.  Ísraelskur hermaður með bakpoka bograr einnig yfir stúlkunni.

 

II. "Fréttirnar eru síaðar af Ísraelsmönnum"

juif_presse-jew-press.jpgEftirfarandi klausu fann ég í viðtali við Fríðu Rós og eiginmann hennar á RÚV.

Fríða Rós á RÚV 9. maí, 2014  http://www.ruv.is/mannlif/fluttu-med-fjolskylduna-til-palestinu

"Við erum mötum af fréttum sem eru síaðar af Ísraelsmönnum og af gyðingum, bara svona alla stærstu fréttaveitur heims eru eeh eru þannig".

Fríða Rós, mannfræðingur frá Íslandi segir gyðinga sía fréttir og stjórna öllum fréttaveitum heims. Þessar ásakanir notuðu nasistar einnig á sínum tíma og gáfu það líka í skyn í fordómafullum teiknimyndum. Það gera vinstri menn og Palestínumenn einnig í dag.

En hvað kallar Fríða Rós þá "fréttveitur" þær sem hún notar og sem Egill Helgason, ómenntaður og óvandaður blaðamaður á Íslandi, matreiðir á bloggi sínu. Lygaveita væri rétt nafn eða hatursveita miðað við sumar athugasemdirnar sem menn skilja eftir sig á Silfri Egils.

Á facebók Fríðu fann ég líka mynd af henni og dóttur hennar. Þær eru bráðhuggulegar mæðgurnar, en við myndina finnur maður þessa síður fallegu skýringu:

Hér var mynd af Fríðu og dóttur hennar. Fríða, sem kennir barni sínu að hata Ísrael þegar maður hennar er að vinna fyrir SÞ í Austur-Jerúsalem, bað Árni Matthíasson a Moggabloggi um að myndin yrði fjarlægð að beiðni konunnar sem er á myndinni. Hatursmenn Ísraelsríkis eru ekki mikil augnaprýði að mínu mati, svo myndin hefur verið fjarlægð með góðu geði.  En við myndina stjóð þetta:

 

"Síðasta myndin sem var tekin af okkur mæðum á þessum slóðum - í bili að minnsta kosti. Hún var tekin á flugvellinum í Tel Aviv, Ben Gourion - öryggisbrjáðasta flugvelli í heimi. Ronja vildi ekki segja cheese eða brosa heldur öskraði hún hátt og snjall svo glumdi um flugvöllinn - PALESTÍNA -"

Er þetta ekki sætt? Vera kann að einhverjir síi fréttir, en mér sýnist að Fríða Rós nauðgi þeim til þess eins að halla á Ísraelsríki og gyðinga. Svo getur maður spurt sig af hverju ætli dóttir hennar hafi haft þörf á því að "öskra PALESTíNA" á ísraelskum flugvelli?

Fréttamiðlun Palestínumanna er því miður á mjög frumstæðu stigi. Palestínumenn búa til fréttir og nota gjarnan nasistaminni og líkja örlögum sínum fjálglega við gyðinga í Síðari heimsstyrjöld. Velur maður að trúa á tilbúnar og upplognar fréttir verður maður að vera viðbúinn því að þær séu vegnar og fundnar afar léttvægar.


Morðin í Brussel varða Íslendinga


Gyðingahatur er í sókn í ESB, líka á Íslandi, eins og sjá má í umræðunni við þetta blogg. Stundum eru múslímhatarar líka gyðingahatarar og múslímar er það líka oft á tíðum. Á Íslandi þykir það greinilega allt í lagi að Íslendingar séu kallaði gyðingaósómar.

Næstkomandi þriðjudag átti ég að hitta danskan fræðimann sem búið hefur lengi í Bandaríkjunum. Við höfðum mælt okkur móts á Dansk Jødisk Museum í miðborg Kaupmannahafnar. I gærkvöld gat hann allt einu ekki komið á safnið á þriðjudegi, og spurðu hvort ég hefði tíma á mánudegi. Þar sem Dansk Jødisk Museum er alltaf lokað varð ég að stinga upp á öðrum stað til að hitta manninn. Ég geri mér grein fyrir því að maðurinn var vitanlega dauðhræddur við þau tíðindi sem í gær bárust frá Höfuðborg ESB, Brussel. ESB landið Belgía er ekki öruggt og það er ESB landið Danmörk heldur ekki.

media_l_6768401.jpg

Þar hljóp ódæðismaður inn á safn um sögu gyðinga í Brussel og skaut einu eða fleiri skotum í höfuð og háls fórnarlamba sinna. Hjón frá Ísrael voru meðal hinna myrtu, einnig tveir starfsmenn safnsins. Aðalfréttin í dag í Belgíu er samt ESB kosningarnar, þótt evrópska Helförin haldi áfram.

Gyðingahatur er enn landlægt í Evrópu og ESB gerir t.d. ekkert við þeim ofsóknum sem menn verða fyrir í Litháen, þar þeir sem benda á óeðlið í að stjórnvöld í Litháen dýrka gyðingamorðingja sem þjóðhetjur, eiga það á hættu að vera ofsóttir af lögregluyfirvöldum í landinu.

Á Íslandi starfar kennari sem kallar íslenska ríkisborga gyðingaósóma. Maðurinn sem það gerir er barnaskólakennari og virkur í Lionshreyfingunni. Yfirvöld gera ekkert. Gyðingahatarar fá hæli og landvist á Íslandi meðan fólk í lífshættu er sparkað út í hafsauga.

Ætli eðlileg spurningin sé ekki  hvenær gyðingar verða myrtir á Íslandi? Er utanríkisráðherra búinn að senda samúðarkveðjur til Brussel? Nei, en hann styður öfgamenn í Úkraínu sem hata gyðinga, enda er utanríkisráðherra Íslendinga Framsóknarmaður. Framsóknarmenn vilja einnig hefta réttindi múslíma.


Kraftaverk í ESB

 

Í löndum ESB, t.d. Ungverjalandi og Eystrasaltsríkjunum, vex nasisma og fasisma fiskur um hrygg. ESB sækist eftir samskiptum við fasistastjórnina í Úkraínu og telur Úkraínu líklegri til að verða ESB-ríki en t.d. Ísland, þótt nóg sé vitaskuld af vinstri-nasistum á Ísland, sem ólmir reyna að líkja öllum með ESB-óbeit við fasista og nasista.

Sagan um nasistann og gyðingahatarann Szegedi Csánad er góð til að minna fólk á tilgangsleysi kynþáttahaturs. Á Íslandi andmæla menn eins og Egill Helgason og Guðmundur Andri Thorsson því að frægir Íslendingar hafi verið nasistar. Egill gerist karaktervitni fyrir Davíð Ólafsson nasista og bankastjóra. Halda þessir karlar, að menn séu bara nasistar ef þeir stunda þjóðarmorð? Þá ætti Egill að hrópa hærra þegar Íslendingar ásaka Ísraelsmenn um þjóðarmorð og þjóðarhreinsun um leið og Palestínumenn og aðrir lýsa því endalaust yfir að þeir ætli sér að útrýma Ísraelsríki og gyðingum.


Eftirfrétt af skothríð

fyndnasti_maurinn.jpg

DV birti nýverið mikinn bálk um "fyndnasta mann Íslands", Gunnar Hrafn Jónsson, ævi hans og vandamál. Gunnar Hrafn er ungur að árum, en í viðtalinu er engu líkara en að miðaldra maður sé að segja sögu sína. Þrátt fyrir að eiga góða að, hefur Gunnar Hrafn, sem einnig er kallaður Krummi, verið óhamingjusamur og jafnvel orðið fyrir skotárás Ísraelsmanna. Þá getur það víst ekki orðið verra í lífi ungs manns.

Ég, sem er vondur síonisti, dvaldi aðeins við þessa skotárás þegar ég las um hana í fyrsta sinn um daginn á vef DV. Mér finnst ég ekki hafa lesið eða heyrt um árásina á Krumm áður en að DV gerði hann að forsíðuefni. Við vitum öll, að það má ekki blása á Íslending erlendis án þess að það komi í fyrstu frétt á RÚV, vinnustað Krumma.

Þess vegna þykir mér svo skondið, að ég geti ekki fundið þess nein ummerki á fréttamiðlum, að Gunnar Hrafn hafi verið í hættu að völdum Ísraelsmanna. Gunnar Hrafn fór að eigin sögn "út úr líkamanum" þegar hann og samferðamenn hans ákváðu "að fara í leyfisleysi fram hjá ísraelskri landamærastöð". Hvernig er það hægt? Nú er um árabil er RÚV búið að fylla Íslendinga með þeim upplýsingum að Ísrael sé víggirt með múr. Hann kemur þó ekki við sögu í frásögn Gunnars Hrafns. Hvar var Gunnar þegar þetta gerðist og hvenær átti þetta uppistand sér stað?

Gunnar Hrafn heldur því einnig fram að skotið hafi verið á hann úr skriðdreka frá hæð í nágrenni við landamærastöðina. Var Gunnar Hrafn að fara yfir landmærin í Suður-Líbanon eða við sýrlensku landamærin í Golan?  Samkvæmt ferðaupplýsingum Krumma í DV var hann ekki í Egyptalandi og hefur ekki verið að reyna að komast inn eða út úr Ísrael í Negev, en þar er hæðótt og t.d. við landamærastöðina rétt suður af Eilat. Annars man ég ekki eftir landamærastöðvum í Ísrael með hæðóttu umhverfi, og örugglega ekki á Vesturbakkanum.

Þessum athugasemdum mínum vill Gunnar ekki svara, þótt ég hafi beðið hann að svara þeim í athugasemdum á DV.

Fyndnasti maður Íslands

Mér finnst Krummi ekki standa undir nafninu fyndnasti maður Íslands, þótt hann hafi farið á kostum á skeinupappírssögunni sinni sl. haust: http://www.mbl.is/frettir/sjonvarp/thaettir/fyndnasti-maur-islands (fyndnasti maurinn??).

„Við vorum náttúrlega þarna í leyfisleysi þannig að þeir höfðu fullt leyfi til að skjóta á okkur. Á endanum hættu þeir svo og hleyptu okkur áfram. Þetta voru bara viðvörunarskot, þeir voru ekkert að reyna að drepa neinn."

Það er ekki fyndið, heldur afar sorglegt, þegar fréttamaður á íslenskum ríkisfjölmiðli heldur því fram að hann hafi farið um hættusvæði í leyfisleysi eða þegar hann heldur því fram mörgum árum síðar að Ísraelsmenn hafi skotið á sig í fullu leyfi. Sér í lagi ef þetta uppistand átti sér að öllum líkindum ekki stað í raunveruleikanum.

Nú verður Gunnar Hrafn Jónsson að leggja fram sannanir. Hann er fréttamaður og hlýtur að hafa tekið myndir af skriðdrekanum sem varð honum nær að bana, hæðunum í kring eða bara af svæðinu þar sem hann stalst yfir landamæri á átakasvæðum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband