Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Uppbyggileg lesning?

1450117_10201614293631657_7998573_n

Maður verður að velta því fyrir sér, hvort Mein Kampf sé uppbyggileg lesning fyrir aldraðar götusölukonur eða aðra. Í Egyptalandi seldist þessi bók að minnsta kosti vel þegar Múslímska bræðralagið var við völd og þegar Íslendingar heimsóttu þá á friðarráðstefnur. Íslensk kona, Sigrún Amína er bóksali í Kaíró. Kannski hefur hún selt þessa bók? Á Gaza hefur Hitler-skruddan einnig verið á listum yfir mest lesnu bækurnar.  


Radioaktivit Nunaat

Radioaktivit Nunaat 

Landsþingsformaðurinn Aleqa Hammond á Grænlandi, sem er krati, stelur heldur betur senunni á Stórráðstefnunni um gæði og galla heimshitnunar (Arctic Circle), sem nú er haldin í skuldsettu Hörpunni í Reykjavík. Grænlenska útvarpið kallar tölu hennar ekkert minna en atómbombu. Aðrir stjórnmálamenn á Grænlandi saka hana um ólýðræðislega tilburði.

Hún lýsir því heldur stórmannalega yfir í Reykjavík í ræðu og í viðtali við RÚV, að þess megi vænta að Grænland sé á leiðinni að verða eitt af 6 stærstu útflutningsþjóðum á úrani. Hún valtar yfir skýrslu sem unnin var sameiginlega af Dönum og Grænlendingum og sem nýlega birtist, þar sem mælt er með varúð og samstarfi þjóðanna. Umræðunni um málið er ekki einu sinni lokið í grænlenska Landsþinginu.

Danir sjá samkvæmt gildandi samningum á milli ríkjanna um öryggismál Grænlands, en það ætlar Hammond að valta yfir (líklegast vegna þess að Gucci-kratinn Thorning-Schmidt sem stjórnar í Danmörku bauð henni ekki með á einhverja toppráðstefnu nýlega). Ef vinnsla úrans flokkast undir eitthvað, er það öryggi, og slíkt öryggi getur Grænland ekki boðið upp á. Hættunni er boðið heim með hryðjuverkaliði og ríkjum í heimsyfirráðahugleiðingum. Enga trú hef ég að Orgelið sem stýrir Grænlandi hafi nokkra burði til að valda úranvinnslu á sómasamlegan hátt. Hún hefur gerst svo fræg að hlaupa hænufull frá leigubílareikningi í Nuuk. Stællinn og reisnin á grænlenskum stjórnmálamönnum hefur ekki aukist við þetta upphlaup Hammonds, nema að síður sé.

Kratar á Grænlandi virðast vera haldnir sama krankleika og kratar á Íslandi, Þar sem menn liggja kylliflatir fyrir fyrsta gylliboðinu sem kemur frá einhverjum Kínverjum, og geta ekki ímyndað sér að aðrir en gráðugir Þjóðverjar geti byggt mikilvæga höfn í Finnafirði til að sinna siglingum um bráðið pólsvæðið í framtíðinni.

Það öryggi, sem þarf við úranframleiðslu, hefur Grænland ekki upp á að bjóða. Best væri að slíkt færi fram í samráði við "Móðurveldið" Danmörku, sem þrátt fyrir margt slæmt hefur reynst Grænlendingum vel. Ekki er einu sinnitil  kajaklið í grænlensku lögreglunni sem tilbúið er að skutla hryðjuverkamenn sem hugsanlega reyna að ná sér í illa varið úran á bar fyrir dauðadrukkna stjórnmálamenn í Nuuk. Svo hefur hún verið dæmd fyrir fjársvik .

Ef Grænlendingar halda að þeir græði fljótt og vel á samskiptum við gráðug stórfyrirtæki, og t.d. Kínverska ofurveldið sem nú er þegar farið heimta hóruhús á Grænlandi, þá skjátlast þeim. Þeir þurfa ekki annað en að líta til Afríku, þar sem allur gróði að námuvinnslu Kínverja rennur beint í vasa þeirra og íbúar landanna sem áttu öll "auðæfin" setja eftir sem þrælar með  mengun, menningarvandamál og aðrar meinsemdir.

Íslendingar eiga að mótmæla þessu upphlaupi græðgiskrataættarveldisins á Grænlandi. Ísland er orðið að smáríki í skugga atómveldisins Grænlands.


Sendiherrann viðkunnanlegi

Iftar-32 

Nýlegar lokanir á sendiráðum Bandaríkjanna í fjölda landa hafði engin áhrif á Íslandi.  Ekki er mér kunnugt um að Bandaríska sendiráðið við Laufásveg hafi verið lokað, enda lítil ástæða til þess. Íslendingar eru hættulegasti sjáfum sér og terroristar ganga lítið eftir Laufásveginum, þótt steinsteypuhindranir BNA-sendiráðsins gæti gefið aðra mynd. Nú ræður ríkjum mjög óvenjulegur bandarískur sendiherra, sem á góðviðrisdögum gerir Laufásveginn litríkari og lýsir stuðningi við það sama og flestir Íslendingar, með því að rúlla út fána samkynhneigðra.

IDAHO Flags 2
USA-Embassy Reykjavík - Glad to be gay!

 

Sendiherrann heitir Luis E. Arreaga og er fæddur og uppalinn í Guatemala á viðsjárverðum tímum, eða um það leyti sem herforingjar rændu þar völdum árið 1954 með dyggri aðstoð CIA. Luis Arreage hafði, eins og börn elítunnar í Guatemala, tök á því að fara í framhaldsnám til Bandaríkjanna og settist þar að.

Síðan að sendiherrann kom loksins til landsins, hefur hann verið mjög virkur í almannatengslum og að kynna sér land og þjóð, sem og að kynna land sitt. Hann heldur úti bloggi, sem hann kallar Ambassdor's Blog, sem ég hvet alla til að kynna sér. Áður hafa mest setið stífflibbar og merkikerti í sendiráðinu, eins og oft vill verða í diplómatíunni, en Luis er búinn að koma dálitlum Ladínó-salsaanda inn í utanríkisþjónustu. Áhugavert að lesa, og sjá hvernig hann skjallar Íslendinga upp úr skónum, ferðast um landið og kynnir sér margar hliðar þess lands sem hann gistir og þjónar landi sínu í. Hann ber mikla virðingu fyrir Íslendingum og hefur greinilega uppgötvað, að Íslendingar eru hálfgerðir Kanar og að smáhluti þessara eyjaskeggja er "Norther-Ladínó".

Meðlimir múslímasafnaðarins í Öskuhlíð, sem ýmsir bloggarar rita um sem Íslamista og öfgamenn, hafa meira að segja verið á gestalista Arreaga, svo vart getur hann verið haldinn íslamófóbíu eins og 80% Bandaríkjamanna. Arreaga hefur meira að segja farið í samkomuhús þeirra. Myndirnar eru af bloggi sendiherrans alþýðlega og sýnir efsta ljósmyndin gesti hans við iftar-máltíð í Sendiráðinu á nýafstaðinni Ramadan-föstuhátíð. Múslímar frá báðum söfnuðum Múslíma á Íslandi voru mættir. Sóttur var bandarískur imam í veisluna. Egypskur klerkur safnaðarins í Öskjuhlíðinni var líka mættur í partíið, en hann "misskildu" allir um daginn, þegar hann var að tjá sig um konur og samkynhneigða. Þarna voru einnig múslímar á Íslandi sem á fasbókum sínum hafa tjáð sig fjálglega um nauðsyn þess að útrýma Ísrael og einn sem setti "læk" á öfgaklerk í Sádi-Arabíu, sem vill útrýma öllum gyðingum.

USA ISLAND ISLAM
USA - ICELAND - ISLAM

Eitt er öruggt, Luis E. Arreaga hefur fundið sér besta stað í heimi til að vera bandarískur sendiherra frá Guatemala. Á Íslandi er hryðjuverkahættan=0. Við vonum að hann verði sem lengst á Laufásveginum og haldi fleiri veislur.

Iftar Dinner-6
Iftar Ramadan party 2012 in the USA Embassy Reykjavík, Iceland
AMB Visit to the Islamic Cultural Center-1
I bet the goofy guy on the far right is the CIA operative  Smile 
Here is Goofy- this time in the Gay Parade
Gay CIA
I bet John Kerry was talking about Manning, when he said this!

Stór-Evrópa sýnir klærnar

ESBführer
 

Evrópuþingið hefur með 677 atkvæðum samþykkt að beita Íslendinga og Færeyinga viðskiptaþvingunum vegna Makríldeilunnar. Aðeins 11 voru á móti og 7 sátu hjá á þessu háa þingi. 97% þingmanna vilja kúga Íslendinga og Færeyinga, vegna þess að makríllinn tók upp á því að flýja ESB höfin.

ESB hefur sýnt sitt rétta andlit. Þessi gjaldþrota risi, sem er að fara úr böndunum, þjösnast í dauðateygjunum á smáþjóðum.

Furðulegt er að sjá að sumir meðlimið ríkisstjórnar Íslands ætli þjóðinni enn þau örlög að verða þrælaþjóð í þessu apparati 4. Ríkisins. Fólk sem ætlar sér slíkt er ekkert annað en landráðafólk og vesalingar. Stinga ætti nokkrum sprellandi makrílum upp í görnina á þeim og senda þá með hraðpósti til Brussell og sjá hvernig þeir meika það án þess að nota íslensku þjóðina sem skeinupappír. Til vara væri hægt að kjöldraga þessa marhnúta til ósa Rínar, þar sem þeir geta farið í stórfiskaleik hjá Evrópusambandinu.

eu_evil_inside_2

Sirkus Arafat

Palestinian Circus School
 

Nú á að grafa upp einn eitraðasta karakter síðari tíma, eins og einhvern miðaldabiskup sem taka á í heilagra manna tölu. Það geislar greinilega enn af heilögum Arafat föður hryðjuverkanna. Heilagra manna söguna um Arafat á að síðan að skrá með geigerteljara, enda er þetta translatio aðeins fjölmiðlasirkus til að svala auðtrúarþorsta fylgismanna öfga. 

Al Jazeera hefur búið til enn eina fréttina fyrir vini sína, einfeldningana á Vesturlöndum. Nú er því haldið er fram, að Arafat hafi verið kálað með polonium-210 og gefið í skyn að þar hafi verið Ísraelsmenn, skúrkarnir sem sameina öfga Íslams og lágkúrulegt hatur vinstriheilagra.

Með milligöngu Al Jazeera hefur ekkja Arafats afhent af honum höfuðfat jafnt sem nærbuxur til einhverrar rannsóknarstofu í Sviss. Þar hafa menn fundið polonium-210 í síðasta hemlasporinu í nærbuxum hryðjuverkaleiðtogans. Jallah, Jallah! og allt er að verða vitlaust.

Það er stórfurðulegt með Svisslendinga. Þegar þeir eru beðnir um að finna reikninga þúsunda myrtra gyðinga í bönkum sínum, þá finna þeir ekkert, en þeim tekst að finna polonium 210 í nærbuxum morðingja frá Miðausturlöndum.

Þess ber þó að geta að svissneska rannsóknarstofan tilkynnti að Arafat hefði ekki haft nein sýnileg einkenni þess að eitrað hefði verið fyrir Arafat með 210Po

Ef poloninum-210 hefur fundist í jarteiknum af Arafati, höfuðfati og föðurlandinu hans, þá hefur einhver eiturpési verið að leika sér með undirfatnað PLO-leiðtogans eftir að hann var allur og jafnvel svo nýverið sem á síðari hluta 2011 eða í ár. 

Helmingunartími ísótópsins polonium-210 er aðeins 138,4 dagar,og ef efnið hefur fundist í jarteiknum af Arafat, fötum eða beinum, hefur því verið komið fyrir þar eftir dauða hans, eða réttara sagt mjög nýlega. Nú er því hins vegar gert skóna að Ísrael hafi verið að eitra fyrir Arafat með poloníum. Er ekki einum of langt gengið hjá Ísraelsmönnum að vera að gramsa í nærfataskúffum Arafats eftir dauða hans? Athyglisvert er, að þrátt fyrir að Al Jazeera hafi verið að bauka með óhreinu fötin hryðjuverkakeisarans i 9 mánuði, er stöðin ekkert að grein< fávísum almenningi Íslams, Íslands eða snáðunum á RÚV (sem oft nota Al Jazeera sem sína aðalheimild), að helmingunartími polonium-210 sé rúmlega 138 dagar.

Þótt Arafat sé grafinn upp úr öskuhaug sögunnar og einhver hafi verið að mata hann með geislavirkum málmi, þá mun engin leið vera fær til að finna polonium-210 í þeim leifum. Helmingunartími 210Po er 138,4 dagar. Ég endurtek fyrir auðtrúa kjána á Íslandi: 138,376 dagar.

Ég ég hræddur um að frétt Al Jazeera eigi eftir að hafa miklu lengri helmingunartíma eins og annað eitur sem sá fréttamiðill sendir frá sér.

The Radioactive Leader

Þeir sem reykja sígarettur ættu kannski að vita, að örlítið magn polonium-210 er að finna í reyk þeirra. Það er hættulegt að reykja. Hérna sést dýrlingur öfganna á leiðinni í sína hinstu för. Polonium-210 fór greinilega svo vel í hann, að hann missti ekki eitt einasta hár.

En ef einhver vill vita úr hverju hetjan hann Arafat dó, er til nóg af blóðprufum á þeim sjúkrahúsum sem fylgdust með þeim sljóleika, hristingi og eyðni sem lagðist á karlinn nokkrum árum áður en hann dó. Engin einkenni poloniumeitrunar voru sjáanleg á dauðalegu Arafats. Hann kom með hryðjuverkahýjunginn á fésinu á herspítalann í Frakklandi. Það ógeðfellt að sjá hvernig Frakkar og Svisslendingar sjá ástæðu til að styðja þennan hryðjuverkasirkus.

François Bochud, forstöðumaður rannsóknarstofu fyrir geislavirkni í Lausanne í Sviss sem rannsakaði saursletturnar og hlandið í fötum Arafats sagði Associated Press þetta: "What we can say is that we have an unexplained level of polonium, so this clearly goes toward the hypothesis of a poisoning, but our results are clearly not a proof of any poisoning."  Líkast til er hægt að segja hlutina skýrar, en ekki er þetta orðagjálfur úr skýrslu rannsóknastofunnar miklu betra. Mér sýnist á öllu að L&#39;Institut de radiophysique (IRA) í Lausanne verði að stilla tækin sín betur eða bæta skýrslugerð sína til muna. En þetta er skýrt: "However, this is not sufficient to determine the causes of death. In particular, it will be recalled that, contrary to what happened in the case of the former Russian spy Alexander Litvinenko, Mr. Arafat did not lose his hair, and some of the findings in the forensic report are inconsistent with an acute radiation syndrome."

Það er ótrúlegt hvað sumt fólk vill láta ljúga að sér. Hér er annað gott dæmi:


Davíð og Golíat

chargedaffaires

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins gerir sér sem betur fer grein fyrir því, að Þýskaland er herraþjóðin í ESB, og sendiherra Þýskalands Hermann Joseph Sausen telur sig greinilega vera í farabroddi sendiherra ESB-landa á Íslandi, þegar svarað er gagnrýni á uppivöðsluhátt ESB á Íslandi. Myndin hér er frá því er Sausen brá sér í vinsælt hlutverk sem útsendari ríkis síns í Brasilíu.

Hermann Sausen vinnur fyrir Auswärtiges Amt í Berlín, sem á sér gamla sögu og alls ekki fallega. Í Síðari heimsstyrjöld voru flestir þýskir diplómatar tengdir einhverjum glæp. En ráðuneytið hefur reynt að þvo hendur sínar með "dýrlingi" sínum honum Georg Ferdinand Duckwitz, sem hefur nú verið veginn og léttvægur fundinn í grein minni í tímaritinu RAMBAM 15: 2006 (ensk samantekt aftast).

Das Amt

Fyrir tveimur árum síðan kom út mikilvæg bók í Þýskalandi. Hún ber heitið, DAS AMT, sem lýsir þessu apparati sem Sausen vinnur hjá ágætlega fyrir og eftir Síðari heimsstyrjöld. Fjórir höfundar bókarinnar hafa meira að segja sýnt að helgi Duckwitz, hins eina "góða, þýska diplómats" var svo sem svo. Hann var rotinn karl niður í rætur, nasisti og síðar þýskur imperíalisti og hrappur sem bjargaði fleiri gömlum nasistum en gyðingum, sem hann sagðist hafa bjargað í Danmörku.

Það grátbroslega er, að lítið hefur breyst. Yfirgangsstefna þýskrar diplómatíu er söm við sig. Við sjáum hvernig Þjóðverjar hóta Grikkjum, en það ekki í fyrsta skipti. Þýskir diplómatar og stjórnmálamenn segja Grikki lata. Það eru þeir ekki  Væri það ekki fyrir þann grikk, að þeir létu til leiðast að ganga í ESB og taka upp Evru eins og íslenskir kjánar vilja nú ólmir gera, hefði ekki farið sem fór á Grikklandi. Þegar ég heyri svo Stórþjóðaverja tala niðrandi um Grikki og kalla þá lata, minni ég þá vinsamlegast á þann óskunda sem Þjóðverjar unnu í Grikklandi á 5. áratug síðustu aldar. Hafa Þjóðverjar ekki gert nóg af sér í Grikklandi?

Ef menn hafa tautóníska burði til að lesa bókina Das Amt, mæli ég með því að þeir geri það. Það tekur um 10 vikur með þolinmæði því bókin er um 1000 síður, en í henni geta menn fræðst um stofnun með gamla hefð, sem ekki er endilega nein þýsk hefð. Þýsk utanríkisþjónusta er ekki til fyrir hinn venjulega þjóðverja. Þjóðverjar hafa gert upp við ömurlega sögu sína og yfirgang, en það hefur hin hrokafulla og tvískinnungslega utanríkisþjónusta landsins ekki, en hún er fyrst og fremst til að sjá þýsku Wirtschaft og iðnaði fyrir ódýrasta hráefninu, hvað sem það kostar.

Ef menn lesa bókina Das Amt, skilja þeir af hverju sendisveinar eins og Hermann Sausen eru að ybba kjaft á Íslandi. Nýjar handbækur hans í diplómatíunni kenna honum reyndar betri mannasiði en hann hefur sýnt á Íslandi.

Íslendingum ber ekki að taka við skipunum frá þýskum sendisveini, sem ber að hundskast til síns heima ef honum líkar ekki frjáls umræða á Íslandi, sem er enn frjálst land.


She's my China girl

Djúpsteiktar3
 

"Last week she was Miss EU"


Jónas er engum líkur, eða hvað?

nasiJonas 

Margir hafa þurft að þola það síðustu  9 mánuðina að vera líkt við hinn geðveika, norska fjöldamorðingja Breivik, sem í dag var leiddur fyrir rétt. Þetta er orðin dægradvöl sumra manna, sem telja að siðferðið á vinstri vængnum sé betra en á þeim hægri. Nú er ekki nóg fyrir suma vinstri menn, jafnvel þá sem stutt hafa Polpot og aðra þjóðarmorðingja, að nota verstu skammaryrðin frá Kreml. Andstæðingurinn er eins og Anders Behring Breivik, ef maður vill sverta pólitíska andstæðinga sína sem mest.

kveðja Breiviks
Danskir dátar úr Modstandsbevægelsen heilsa á rússneskan hershöfðingja á Kastrup eftir síðari heimsstyrjöld

 

Veruleikaflóttinn er svo svakalegur, að kveðja sú sem Breivik hefur haft í frammi í réttarsal er sögð vera kveðja hægrimanna. Googlið myndir með textanum "Neo Nazi salute". Er fjölmiðlafólk í afneitun eða er komin ný kynslóð fávita í þessa stétt? Steyttur hnefi er ekki meira hægrisinnaður en Mörður Árnason í Maóskóm.

10000kallinn

Sá einasti sem mér finnst líkur Breivik á Íslandi er hins vegar blessað þjóðskáldið, Jónas Hallgrímsson. Sannast það að Íslendingar eiga ættir sínar að rekja til Noregs. Jónas er að verða að 10.000 kalli. Það verður líklega síðasti seðillinn áður en við fáum blíða ásjónu Jóhönnu Sigurðardóttur og Össurar Skarphéðinssonar á evruseðlana. Ljótt er til þess að hugsa, að verðmætasti seðillinn á Íslandi, áður en þjóðin verður prettuð inn í ESB, muni minna umheiminn á versta fjöldamorðingja Norðurlandanna, eða var sá versti ekki annars Dani?  


Flogið hátt, lotið lágt

Loftur Billjónair og vopnasali
 

Eins og hefur örugglega farið fram hjá flestum í ólifnaðinum nú yfir dauðahátíð kristinna manna, var Rússinn Viktor But (Bout) dæmdur í 25 ára fangelsi í Bandaríkjunum um daginn. But, sem er rússnesku útrásarvíkungur árgerð 1967, en betur þekktur sem „Kaupmaður Dauðans", fékk þennan harða dóm fyrir vopnasölu. Saksóknarinn vildi gefa honum 40 ár.   

Mér sýnist að það sem Viktor But hefur sér til saka unnið, sé afar svipað því sem Íslendingur nokkur, Loftur Jóhannesson, hafði lífsviðurværi af hér um árið. Ég rakst á hann við tilviljun í leit á tímarít.is,sama dag og dómur féll í máli Rússans But, þegar ég var að skrifa um greinina um Iceland Food Center í London sjá hér.

Myndin hér að ofan er úr einni af veislum íslendingafélagsins í London, n.t.t árið 1963. Veislurnar voru gjarna haldnar á dýrasta hótelinu í London, Dorchester. Minna mátti það auðvitað ekki vera. Sjármörinn Loftur Jóhannesson, sem síðar gerðist kaupmaður dauðans, sést hér á tali við dömu sem virðist éta hann eins og forrétt með augunum.

Flugkappi og vopnasali
Loftur vopnasali

Loftur fór á 7. áratugnum út í "íslenskt útrásarævintýri". Hann kom að mörgum fyrirtækjum sem fóru á hausinn, en auðgaðist að lokum á skítabisness á kanti laga og mannlegrar virðingar.

Sunday Times birti árið 1994 grein með upplýsingum um Loft Jóhannesson. Greinin var kölluð "British companies funded Stasi ": Loftur Johannesson, a businessman who lives in Victoria, central London, allegedly used the London firm to organise the shipment of 12 Soviet-made T-72 tanks to Saddam Hussein&#39;s army in Iraq. The British-based arms dealer used IMES, a Stasi arms company, to help facilitate the $26m deal in January 1987.

Þessi íslenski flugkappi dauðans þénaði einnig feitt á stríðinu í Biafra og fyrirtæki hans flaug með vopn til Gaddafís. Spiegel, Vikublaðið Pressan og Mogginn birtu um 1992 1994 og 2000 greinar um vafasöm viðskipti þessa íslenska ævintýramanns. Þessi íslenski captain from hell, les: íslenski athafnamaður á erlendri grund) var líklega haldinn sama brestinum og bankadrengirnir sem settu Ísland á hausinn. Hann stundaði áhættu og var heltekinn af græðgi. Bankadrengirnir gerðu það með fé saklaus fólks, Loftur með peninga fjöldamorðingja.  

Fer leynt - kannski dauður?

Fyrri kona Lofts, Irmgard Toft, dóttir Tofts kaupmanns í Reykjavík sagði frá aröbum á miður huggulegan, en hreinskilinn hátt, á sínum tíma. Í dag væri ekki hægt að skrifa þetta um araba á Íslandi. Irmy Toft skrifaði einnig á sínum tíma um ballett í Moggann. 

En eins og menn vita skipta flugmenn út konum eins og þeir skipta um flugvélar. Önnur kona Lofts flugkappa er franska aðalsdaman Sophie Dumas Jóhannesson (f. 1947). Hún gerðist íslenskur ríkisborgari, en er líka í vopnabransanum. Léttum vopnum þó, en hún var  var af einhverjum ástæðum í nefnd skylmingasambands Íslands sem sótti fundi Heimssambands skylmingamanna árin 2004 og 2008 í París. Sjá hér. Ætli vopnapeningar hafi farið til Skylmingasambands Íslands? Það væri nú aldeilis En Garde.

Spurningin er, hvort Loftur Jónsson hryðjuverkaflugmaður sé enn með viðskipti á Íslandi, kominn á tíræðisaldurinn? Fraktflug, fyrirtæki sem hann var skráður fyrir árið 2000 er enn hægt að finna á ja.is, en ef til vill er það ekki sami bisnessinn og hann var með. Hann situr situr líklega sem aflóga gamalmenni við sundlaugina í Maryland eða í höll í Frakklandi og lætur nudda úr sér gigtina með fyrir morðfé. Hann hefur á 21. öldinni verið örlátur á smáaura í kosningarsjóði Repúblíkana frá heimili sínu í við hina fallegu vík Shaw Bay (Bruffs Island Road) í Easton í Marylandfylki í BNA.

En hefði ekki átt að sækja svona íslenskan siðleysingja til saka, sem flaug um heiminn með vopn fyrir annan hvern einræðisherra arabaheimsins? Að sjálfsögðu!

Sjá einnig hér, hér og hér


Hvað hefur Össur nú gert af sér ?

KGB shake
 

Pútín keisari sendi um daginn yfirmann "þjóðaröryggisráðs Rússlands" til Íslands. Þá er nú örugglega eitthvað mikið að.

Nikolay Platonovich Patrushev er nefnilega yfirmaður

Ruskisnuski

sem Utanríkisráðuneytið þýðir Þjóðaröryggisráð Rússlands. Greinilegt er því að íslenska Utanríkisráðuneytinu vantar góða þýðendur og hefur líklega ekki neina rússneska agenta fyrir utan formann utanríkismálanefndar, sem er að sögn allvel mellufær í rússnesku. Ég er viss um að Árni Þór Sigurðsson, sem hlýtur að hafa setið fundinn með Patruschev, myndi þýða starfsheiti Patrushevs: Formaður Andhryðjuverkanefndar Rússneska Ríkjasambandsins.

patrushev KGB
KGB FSB SOB PhD

Svo er utanríkisráðuneytið heldur ekki að nefna, að þessi Patruchev er fyrrverandi foringi FSB sem er arftaki KGB. Þessi maður sér líka um samböndin við helstu hryðjuverkamenn heimsins. Margir Rússar, sem ekki kjósa litlu gulu Pútuna, telja hann ótíndan glæpamann og hér má sjá hvers konar kall þetta er, sokkinn í svínarí og sora og búinn að koma börnum sínum fyrir í bestu stöðunum í rússneska þjóðfélaginu.

Ahmadinejad-with-Nikolai-Patrushev

Þegar Rússar berjast gegn einum hryðjuverkahópi í leppríkjum sínum, styðja þeir að minnsta kosti þrjú hryðjuverkasamtök annars staðar í heiminum. Patruschev, sem er sjómannsson frá Leníngrad sem snemma lærði að búa til skipavélar áður en hann gerðist KGB-liði, er maðurinn sem ver kjarnorku"tilraunir" Írans og hann mælir með fjöldamorðunum á Sýrlandi, þangað til að Sýrlendingar eru búnir að borga fyrir vopnin sem þeir keyptu í Rússíá.

Pútan og Patrú

Gæti verið að Rússar hafi áhyggjur af því að Össur sé að stíga í vænginn við Kínverja? Kínverjar og Rússar ætla sér, eins og kunnugt má vera, að hrifsa til sín auðæfi öll norður af Íslandi, jafnóðum og að þeir bræða ísinn með óhóflegri mengun. Grænland er að verða leppríki Kína, og ekki þarf annað en tvær lauslátar grænlenskar fyllibyttur í Nuuk til að Grænland verði falboðið fyrir árlegar byrgðir af vodka. Þá verða Kínverjar nágrannaþjóð okkar. Rússar hafa vitaskuld áhyggjur af því, því þeim hefur alltaf verið lofað að verða Disneylandið okkar. Sjá hér.

Mig grunar þó helst, að Petruchev sé að leita sér hugmynda til betra samstarfs við hryðjuverkasamtök. Í Moskvu vita menn, að Össur hefur góða reynslu á því sviði. Honum hefur t.d. tekist að beisla verstu öflin í VG og svo er hann svili Ingibjargar Sýrlandsfara, sem heillaði Assad upp úr skónum.

Össur Ingibjargarsvili

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband