Leita í fréttum mbl.is

Hitti Jack Black í Kew

jack-black-school-of-rock

Ég nýkominn heim úr smá bćjarferđ. Ég fór međ familíuna til Lundúna sem liggur í fjandsamlegu landi. Ég reyndi ađ búa eins nálćgt Dorrit Moussaieff og mögulegt var, en ég hafđi ţví miđur ekki tíma til ađ taka á hana hús. Mér sýndist ég sjá hana í Harrods. Viđ eru nokkur sem lániđ lék viđ ţótt engar kúlur vćru í pokanum.

Á sunnudag sigldum viđ frá Westminster til Kew. Ţar, í hinum konunglega garđi heimsveldisins, sáum viđ tré og plöntur og ađra grósku í ţungbúnu veđri.  Skyndilega var ţó eins og viđ vćrum í miđri gamanmynd. Viđ fórum inn í hús, ţar sem börnin geta leikiđ sér og frćđst um frćbbla og frumur.  Allt í einu stóđ ţarna lágvaxinn og ţéttur mađur í grćnni treyju, sem mér fannst ég kannast viđ, svo ég kunni ekki viđ annađ en ađ kinka kolli til hans og hann heilsađi á móti. Ég spurđi sjálfan mig: Er ţetta Íslendingur eđa hef ég hitt manninn í Danmörku? Séra Svavar Alfređ?? Nei of lítill.

Svo segir konan mín, sem er svo mannglögg,  ađ ţarna fćri  frćgur leikari úr Hollywood. Ég gat ekki annađ en samţykkt ţađ, en mikiđ hefur ţeim fariđ aftur síđan Poul Newman var og hét.  Ég gat ţó alls ekki komiđ fyrir mig nafninu á feita manninum, en hef nýlega  séđ kvikmyndir ţar sem hann fer á kostum sem mexíkanskur glímumađur og  ađra ţar sem mađur gerist kennari í einkasóla, en kennir börnunum mestmegnis rokk.

Ég dáđist ađ ţví hve lítiđ Bretar voru ađ abbast upp á kappann ţarna í garđinum. Ef ţetta hefđi veriđ US of A, ţá hefđi veriđ panic á svćđinu. Ég hef séđ meiri örtröđ í kringum Bubba og Bo en í kringum leikarann í Kew. Ég hef líklegast veriđ kanalegastur ţarna í Kew-garđi. Mig langađi vođa mikiđ ađ gerast papparass og taka mynd af manninum, en konan mín bannađi mér ţađ harđlega. „Hvađ myndir ţú gera ef einhver tćki mynd af ţér?", spurđi hún. „Ég er ekki stjarna", sagđi ég, og setti myndavélina í vasann. Black var ţarna međ konu sinni tveimur börnum, forljótri barnapíu og manni sem ekki leit út fyrir ađ vera bodyguard.

Á stjórnarfundi í sagnfrćđifélagi gyđinga í Danmörku í fyrradag greindi ég svo frá ţessari nálćgđ minni viđ frćga fólkiđ og frá tveggja metra háum manni sem ég sá á flugvellinum sem var í ballettpilsi. Og viti menn, ţar kunnu allir deili á ţybbna manninum. Ţetta var engin annar en Jack Black og hann er leikari, söngvari og meira ađ segja gyđingur. Ţá var ţađ á hreinu. Shalom, I like him.

Jack Black hefur reyndar átt frekar lélegt ár í ár og ţess vegna hefur hann líklega ađeins haft ráđ á ţví ađ taka fjölskylduna međ til London. Síđasta myndin hans Year One, sem kostađi 60 milljónir dala í framleiđslu, hefur ađeins halađ inn 48 milljónum. Hún mun vera afburđarléleg. Kreppan slćr víđar niđur en á Íslandi.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott er ađ ţiđ eruđ vel heimt úr hćttuför á óvinalendur.

Flott hjá ykkur ađ heimsćkja Kew. Ţar er gaman. Ţarna get ég ráfađ daglangt međ trýniđ í jörđinni ađ skođa rarítet jurtaríkisins. Og ţá er ég svo uppnuminn ađ ég yrđi einskis var ţótt ţrjátíu heimsfrćgir gyđingar gengju á höndum framhjá. Sástu gamla brauđaldintréđ hans Joseph Banks? Hann er nú soldiđ frćgur á Íslandi, a.m.k. međal nörda, ţótt löngu sé dauđur en margar af plöntunum sem hann lét koma fyrir í Kew dafna ţar enn prýđilega. Ég er svag fyrir frćgum plöntum en ţekki ekki leikarastóđiđ hvert frá öđru frekar en rollurnar í sveitinni í gamla daga.

Kristján Sveinsson (IP-tala skráđ) 1.8.2009 kl. 10:05

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ćvinlega sćll Kristján,

Íslendingar ţekkja bara eina tegund af Banks og ţeir eru allir farnir á hausinn.

Joseph heitinn, sem ég hef lesiđ nokkrar bćkur um og eftir (enda telst ég til nörda), hefđi betur látiđ okkur hafa brauđaldintré á Íslandi. Nú ţegar Spánverjar koma og taka allan fiskinn í bođi Jóku og Steina er vart neitt eftir en ađ naga brauđaldin og sleikja skósóla.

Ég veit ţú ert mjög svag fyrir alls kyns grasi, en Black Jack er nú svo sérstakur sauđur, ađ auđvelt er ađ ţekkja hann úr stórri hjörđ.  

En fjandakorniđ, ekki myndi ég missa af 30 gyđingum gangandi á höndum í Kew. Útsćđi Salómons eru oft fjölbreyttar plöntur og Rósir leynast ţar inn um steina. Ólafur forseti hefur víst náđ í eina slíka blómarós, enda veitir rekaviđardrumbi eins og honum ekki af gangandi gyđingum.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 1.8.2009 kl. 10:41

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Viđ sáum líka ađra rassa en Jacks Blakks í Kew. Hneta coco de mer (Lodoicea maldivica) varđ líka á vegi okkar:

Ţjófrć

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 1.8.2009 kl. 11:12

4 identicon

Ehem.

Mér sýnist ţetta nú vera einhvers konar blackass. Ertu viss um ađ Jack hafi tekiđ allt međ sér ţegar hann fór?

Kveđja góđ í bćinn.

K.

Kristján Sveinsson (IP-tala skráđ) 1.8.2009 kl. 15:40

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband