Leita í fréttum mbl.is

Hekluţankar

HellMouth

Er nokkur gata á Íslandi sem kennd er viđ Heklu? Ekki man ég eftir neinni slíkri í Reykjavík og ég ţekki ekki svo vel til á landsbyggđinni.

Ein stórborga Evrópu getur hins vegar státađ af ţví ađ hafa hana Heklu okkar í tveimur götunöfnum. Ţađ er borgin Amsterdam, ţar sem margt forfeđra minna ól manninn.

Göturnar Hekelveld og Hekla bera báđar nafn okkar frćga eldfjalls, en á miđöldum trúđu menn ţví ađ fjalliđ vćri gátt helvítis.

Flestir íbúa Amsterdam hafa ţó ekki hugmynd um hvađ nafn götunnar Hekelveld ţýđir. Stađanafnafrćđingar telja ađ liđurinn hekel í ţessu götunafni í Amsterdam sé orđiđ á hollensku fyrir lín, og skilja ţví nafniđ sem línakur. Hekel getur ţó líka ţýtt hatur og óvild og einnig hatari (skylt orđinu ćkel á dönsku og heck á ensku).  Ţeir ţekkja vćntanlega ekki nafn Heklu eins og ţađ var skrifađ í 17. aldar ritum sem gefin voru út í Hollandi: Heckelfeldt. Ţegar á 16. öld var fariđ ađ skrifa nafn fjallsins á ónákvćmum, prentuđum kortum Heclafiel eđa Helafiel og fjörđur einn kallađur Hekelfort var settur á sum 16. aldar kort.

Vandamáliđ er hins vegar, ađ Hekelveld í Amsterdam var áđur díki, og áđur en hús voru reist út í dýjamóa á trjábolum, var ţarna vatn og örugglega lítiđ um línakra. Nú er er búiđ ađ fylla upp í díkiđ og Hekelveld er gata, ađ mestu leiti komin undir síđari tíma uppfyllingu og götuna Nieuwezijds Voorburgwal milli hins fjölfarna túristahelvítisins viđ Damrak og rómantíkurinnar viđ Singel-díki í Amsterdam.   

Hekelveld2
Hekelveld á 19. öld

Ég spurđi nýlega hollenskan stađarnafnasérfrćđing, hvar línakurinn vćri sem Hekelfeld fengi nafn sitt af. Fátt var um svör. Ţegar ég benti honum á, ađ hiđ forđum ţrönga síki nćrri Hekelveldt hafi heitiđ Kattengat (kattarrassgat), nafn sem hollenskir sjómenn gáfu einnig innhafinu Kattetgat viđ Danmörku, fór hann ađ hugsa. Tvö götunöfn úr danska ríkinu á 17. öld, og elstu heimildir um ţessi götunöfn eru líka frá ţeim tíma. Ég er enn ekki búinn ađ heyra frá honum. Kattarskammir og -rassar ţeirra voru hér áđur fyrr teng djöfulskap líkt og Hekla.

Strćtiđ Hekelveld hefur lengi veriđ ţekkt fyrir öldurhús og hórmang á síđari tímum og ţegar ég fór um ţessar slóđir síđast, sat ígulstór nakin kona í glugga einum í ţessu "íslenska" strćti, svört sem Hekluhraun. Hún vinkađi vingjarnlega til karlkyns vegfarenda. Var mér ţá ljóst hvers kyns var. Ţetta var líklega portkona Helvítis.

Hin gatan í úthverfi Amsterdam, Hekla, sjá hér er frekar ný, og eiginlega bara lítill botnlangi međ hringlaga bílastćđi í hinu svo kallađa alpahverfi í vesturhluta Amsterdam, ţar sem allar götur heita í höfuđiđ á fjöllum í ölpunum, nema gatan Hekla, sem gengur út úr Matterhorngötu.

Danir hafa auđvitađ nokkrar Heklugötur. Ţeir hafa vitanlega lík varđveitt Heklu í orđatiltćkinu „gĺ du ad Heckenfeldt til" en líklega hefur danskan fengiđ ţetta úr ţýsku eđa frá Hollendingum, ef dćma má hvađ Jacob Grimm skrifađi um helvíti.

Heckenfeld eđa Hekelveld, var auđvitađ hinn versti stađur, gáttir helvítis og hvađeina, og ţađ ţykir ekki fínt ađ óska mönnum "ađ Heckenfeldt til" í Danaveldi.

blefkenius 1706 little

Hér er mynd af Heklu í hollenskri útgáfu (frá 1706) af riti ţýska lygamarđarins Didthmars Blefkeníusar (Blefken), frá 1609. Ţađ rit taka menn enn nćrri sér á Íslandi enda allt í ţví lygar og uppspuni. Á myndinni af Heklu í bók ţessari eru menn bókstaflega ađ fara til helvítis. Arngrímur lćrđi vitnađi líka í hollenska gerđ Heklunafnsins, Heckelfeldt í riti sínu gegn Blefkenslygum Brevis Commentarius de Islandia.

Hér til vinstri, getiđ svo ţiđ lesiđ grein mína, Ved Helvedes Port, sem birtist fyrir mörgum árum í einu mest lesna tímariti í Danmörku. Greinin fjallar um Heklu og fornleifarannsóknir mínar í skugga hennar. Meira um ţćr síđar. Sjá einnig hér.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Kjerúlf

Kvitt fyrir innlit

Lilja Kjerúlf, 11.2.2009 kl. 22:56

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Grein Árna Hjartarsonar um Heklu í Sögu (2007), ţar sem hann fer í saumana á niđurstöđu minni um ađ menn hafi lesiđ of mikiđ um Heklu úr rituđum heimildum, og er Árni greinilega sammála mér http://www.isor.is/~ah/hekla/Brendan.pdf

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.3.2009 kl. 08:07

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband