Leita í fréttum mbl.is

Nýja alþýðulýðveldið Skyrkastistan

 

Skyrkastistan

Ég verð ekki borgari í nýja lýðveldinu, sem menn láta sig dreyma um, vegna þess að eitthvað sem þeir áttu aldrei reyndist ekki vera til. Ég tek ekki þátt í byltingarrugli vitgrannra lýðskrumara í flálynda flokknum.  

Ég styð gamla lýðveldið, Óla forseta og lýðræðislega kosnar ríkisstjórnir. Lýðskrumararnir, sem æst hefur vitleysingana síðustu mánuðina, er óferjandi lið. Eftir að hafa velkst um í sjálfmeðaumkvun út af missinum á einhverju sem það átti aldrei, helltu þessar hetjur sér í slaginn fyrir Gaza með Imbu í fararbroddi. Nú, þegar ímynduðum stuðningi við hryðjuverkasamtök er lokið i bili, hafa menn ánetjast skrílshugsjóninni og vilja brenna, brjóta og bramla í sínu eigin landi. Byltingartískan lætur ekki að sér hæða.

Fólk heimtar nýja stjórn, nýja menn, nýjan forseta og allt nýtt. Þannig var það líka meðan allir héldu að þeir væru ríkastir, bestir, fallegastir, vinnusamastir og með stærst hlutverkið á meðal þjóðanna.  

Íslendingar eru flestir komnir úr sama sauðhúsinu og svo skyldleikaræktaðir, að einhver Óli mun ugglaust koma í Óla stað og einhver annar Geir setjast í stól Geirs, ef skyrgámalýðveldið verður stofnað á rústum þess sem æringjar eru að reyna að eyðileggja nú. Bylting breytir engu á Íslandi. Íslendingar geta ekki rekið banka, þá geta þeir heldur ekki gert byltingu.

Ólýðræðisleg hegðun fólks, sem ekkert vitrænt hefur til málanna að leggja, eftir að þjóðin vaknaði af votum peningadraumi, er landi og þjóð til háborinnar skammar. Ef þetta fólk vill ekki taka þátt í að efla land sitt, ætti það að hverfa á braut og leita á vit ævintýranna, eða ganga fyrir björg. Þá mun það fljótlega uppgötva hvers kyns Gósenland Ísland er, og það líka í Kreppu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Villi

Það er alveg ljóst að þú verður aldrei hluti af þessari þjóð. Það er of mikill partur af þér tengdur villimennsku. Er þetta gyðingum í blóð borið?, að vísu er það bara í helmingnum á þér, væntanlega efri hlutanum. En svona grínlaust, þá er ekki pláss fyrir þína líka hér á landi, við erum búinn að fá upp í kok á þínum hugsunarhætti. ( Vertu feginn að vera í Danmörku, einhversstaðar verða vondir að vera )

Lifðu ekki í friði, og megi stríð fylgja þér til æviloka.

Egill Helgi.

Egill Helgi (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 08:28

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

God morgen kære Vilhjalmur!

 Þú ferð mikinn í dag og hefur kannski farið öfugu megin framúr. Gott ráð til að forðast það er að hafa rúmmið upp við vegg, þannig að maður komist ekki úr rúminu nema á einn veg. Það geri ég, trúðu mér. 

Ég styð engin öfgasamtök úti í heimi og hvet ekki til ofbeldis hér heima en ríkisstjórnin er umboðslaus af því að hún var kosin á röngum forsendum og sló um sig með Mattadorpeningum.  Mín draumsýn er að byggt verði réttlátt og heiðarlegt Ísland. Ég var að vona að réttsýnn maður eins og þú myndir vera sammála mér í því og þykist vita að þú sért það en sért að stríða okkur og ég viðurkenni að við eigum það skilið.

Ég á mér líka þann draum að þjóðirnar fyrir botni Miðjarðarhafs muni einn dag ákveða að lifa í sátt og samlyndi. 

Kannski finnst þér ég vera alltof bjartsýnn? En trúðu mér, það gerir lífið skemmtilegra. Hvað væri annars eftir ef við ættum ekki vonina?

Eigðu góðan dag félagi.

Sigurður Þórðarson, 21.1.2009 kl. 09:00

3 identicon

Þú ert greinilega maðurinn með svörin!  Það er gott.

Heimurinn okkar er að breytast og við ætlum að ríghalda í gamlar hefðir.  Aldrei nokkurn tíman að sleppa, allt verður að vera eins, en það VERÐUR bara betra. 

Þetta reddast?

Árni Sveinn (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 09:07

4 identicon

Gallinn hér er sá að þau eru bara tvö sem stjórna, og þau vilja ekki deila leikföngunum sínum með öðrum.

 Stjórnin er í of miklum meirihluta, og sauðirnir kinka í takt við forystusauðina.  

Við þyrftum að koma á lýðræði þar sem er tryggt að stjórnarandstaða sé með 2/3 hluta alþingis.  Stjórn situr með 1/3 hluta.  Þannig getur stjórnarandstaðan hugsað fyrir stjórnarflokkana, eitthvað sem hefur sárlega vantað hingað til.

Dettur ykkur í hug að stjórnarandstaðan myndi stoppa öll mál stjórnar þannig, eða kannski bara þau mál sem er vert að skoða betur?

Eitthvað þarf að breytast, við þurfum á nýju siðferði að halda hérna.  Virkilegt aðhald við ríkjandi stjórn ætti að sjá til þess að siðferðið yrði betra.

Árni Sveinn (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 09:51

5 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

„Íslendingar eru flestir komnir úr sama sauðhúsinu og svo skyldleikaræktaðir,“

Eðlilegt að síonistinn beiti kynþáttagleraugunum á málin.

Það er einhver í fýlu í Köben.

Hjálmtýr V Heiðdal, 21.1.2009 kl. 10:04

6 identicon

Sæll Vilhjálmur...

Ef þú hefur í hyggju að flytja til Íslands þá þarftu ekki að hafa áhyggur af þvi að þú verðir einmanna með þína íhaldsömu undirlægju; meirhluti þjóðarinnar vill örugglega (óafvitandi kannski) áframhald á flályndi, lygum, þjófnaði, kjarkleysi og ræfildóm. Það mun koma skýrar fram nokkru eftir að niðurstöður næstu kosningar liggja fyrir.

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 10:15

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hvernig væri að við Íslendingar horfðum í eigin barm? Þá myndum við kannski átta okkur á því að við erum ekki flottastir og bestir.  Mig grunar að helst ástæða þess að gert er óspart grín að okkur sé sú að við þykjumst stundum vera önnur en  við erum. Gamalt íslenskt máltæki segir: "Vinur er sá er til vamms segir" Með þetta í huga vil ég þakka Vilhjálmi kærlega fyrir að gera góðlátlega grín að okkur, því þrátt fyrir allt erum við ekki svo aum að þola það ekki.

Sigurður Þórðarson, 21.1.2009 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband