Leita í fréttum mbl.is

Stóryrðaframkvæmdir

 
a century of war crime

 

Mikið er það undarleg árátta hjá sumu ungu fólki að nota stór orð. Þá meina ég megastór og vandmeðfarin orð. Þegar ég skoða aðgerðir fólks sem stendur að og á bak við Saving Iceland, rekst ég á slagorð hjá þeim eins og Þjóðarmorð og War Crimes, sem notuð eru til að mótmála iðnaðarframkvæmdum á Íslandi. Hér eru myndir af nokkrum æstum ungmennum sem hlekkja sig við vinnuvélar og klifra upp á krana og borvélar með borða sem á stendur Aluminium = Cultural Genocide og A Century Of Warcrimes Is Not Sustainable.  Hvað koma þessi slagorð Íslandi við? 

Svona stóryrðaframkvæmdir segir mér að þetta fólk sé ef til vill siðferðislega brenglað. Þjóðarmorð eru t.d. framin í Súdan, en ekki sé ég þessi ungmenni þar. Það er hins vegar auðvelt að kaupa sér miða frá London eða Amsterdam til að öskra eitthvað úti í náttúrunni á Íslandi. Green Front (Groen Front), Eearth First og aðrar erlendar hreyfingar sem hafa fengið Ísland á heilann, eru fámennur hópur öfgakennds fólks, sem fyrir utan baráttu fyrir náttúru styður gjarnan verstu öfgarnar í löndum þar sem stríðsástand er. Fólk sem styður málstað Hamas, Hizbollah og skilur Al Quaida, talar oft líka mikinn um lýðræðið, frelsið og Móður jörð.

 

Ljóska ein í Reykjavík, sem líka er norn að atvinnu samkvæmt símaskránni, er mikilvæg persóna í Saving Iceland. Hún lifir á því að spá í bolla og þvíumlíkt í búð sinni vestur í bæ. Hún greinir frá öllu sem gerist í lífi sínu, sem er ein stór Sápuópera. Við fáum öll að vitað að hún: er að fara til Palestínu í september. Vííí!  Já, hún vælir af gleði því hún er að fara á kústskaftinu til Palestínu. Hún lendir ef allt gengur að óskum þann 28. ágúst í Tel Aviv (sem reyndar er í Ísrael).

Það er líka einkennilegt að sjá norn í Reykjavík berjast fyrir einn Afríkumann sem hefur verið margsaga um bakgrunn sinn (hann Ramses), þegar hundruð þúsunda þeirra eru myrtar í nafni Allah, sem er, svo ég noti orð nornarinnar, Gvöð, sem einnig er ákallaður í Palestínu þegar saklausir Ísraelsmenn er drepnir í nafni friðar og skilnings. Í Palestínu ætlar nornin að fremja seið sinn og Sápuóperu í september. Það verður örugglega saga til næsta bæjar.

En taka ber fram að nornin hefur mottó: Að gefnu tilefni skal takið fram, að það er einlæg sannfæring höfundar að góð saga sé ekki verri þótt hún sé login.

Við bíðum og sjáum hverju hún lýgur að okkur frá Palestínu.

dancing-witch

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Bergz

....stundum er bara of gaman að skrifunum hjá þér!

Snorri Bergz, 24.7.2008 kl. 10:56

2 identicon

Veit þessi norn ekki að nornir eru bannaðar skv. Íslam og eru í andstöðu við Íslam skv. Kóraninum??  Hún fær ekki blíðar móttökur í Palestínu.

Kristinn Heimisson (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 16:49

3 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Á hvaða nornaveiðum ert þú?

Anna Karlsdóttir, 24.7.2008 kl. 16:58

4 Smámynd: Rauða Ljónið

Frá minni hendi snýst málið um sannleikan án þess að taka afstöðu með eða á móti til þess verða menn meta gögn frá báðum eins verða menn að skoða í samhengi á öðrum kostum til að ná heildarsýn.

Samtök eins Saving Iceland  segja að við starfsmenn í áliðnaði séum glæpamenn ásaka okkur með slagorð hjá þeim eins og Þjóðarmorð   War Crimes, sem notuð eru til að ná árangri á málstað sínum, það lýsir aðeins myrkrum hugar heimi meðlima Saving Iceland.

 Við starfsmenn í álgeiranum höfum ekki stuðlað á þjóðarmorðum þetta er eitt af þeim glæpum sem Íslenskir starfsmenn eru ásakaðir um ásamt öðrum glæpum, þetta sýnir að sannleiksást Savin Iceland eða hitt  þá heldur.

Íslenskir starfsmenn í áliðnaði er líka fólk við höfum tilfílingur.

Ég hef aldrei geta sætt mig við helförina ég hef aldrei geta skilið að fólk stóð hjá og horfði á, í mörg ár reyndi ég að gera mér í hugalund hvernig gyðingum leið þegar ofsóknirnar stóðu sem hæst, nú skil ég það, þeir hafa kennt mér það.

Þeir sem réðust á starfsmenn í áliðnað kenndu okkur það, og þá hér í Hafnarfirði og svo annarstaðar með aðstoð fréttamanna á sínum tíma á meðan lætin voru sem hæst og við vildum leiðrétt málin þá hlustuðu fréttamenn ekki á okkur hvorki símleiðis né bréfleiðis það þótti fínt að hafa þennan málflutning.

Ég vandið ykkar mál, hugsið ykkur um sem eruð á móti stóriðju áður en þið talið. 

 Við viljum ekki þennan rasisma og nasisma lengur burt með þann boðskap.

Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 24.7.2008 kl. 19:43

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það geta engir mótmælendur sem vilja láta taka sig alvarlega, sem slíka, látið hjá líða að mótmæla ástandinu í  Palestínu enda er það ekki svo gott.  Ég er farinn að gerast full latur í seinni tíð en þykir gott að vita til þess að það er til fólk sem lætur sig hafa það að norpa í hvernig veðri sem er og mótmæla hörmungum heimsins.

Sigurður Þórðarson, 25.7.2008 kl. 00:40

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sigurjón: Er einhver að ráðast á ykkur tilfinnngaverurnar, sem starfið á gólfi álveranna? Hvernig ætlar þú að þurrka út þessa gagnrýni? Banna hana eins og Kaþólikkar vilja banna gagnrýni á oblátukexið sitt? Er þetta orðið að trúarbrögðum?

Saving Iceland er kjánalegt af þeim orsökum að þetta fólk er ekk að berjast á málefnaklegum grundvelli eða með rökum. Þetta eru bara ógrunduð slagorð og hasar fyrir efnabörn, sem eru leið á eigin fásinni.

Það skal þó ent á að það er verið að gera áliðnað að megin tekjulind þessarar þjóðar og fjölbreytileikinn látinn líða hjá garði fyrir þá alfa og omega lausn, sem á sér mörg sorgleg fordæmin  hér.

Álverð stýrist algerlega af stríðsrekstri og það er ekki gott próspekt að reiða sig á blóð manna sér til viðurværis. Saga álrisanna er einnig slík að taka má göfgi þeirra með klípu af salti. Þegar þeir komast í þá aðstöðu að dóminera útflutningsiðnaðinn, þá eru þeir líka í aðstöðu til að kúga út lægra orkuverð með að hóta því að fara burt og skilja allt eftir í rúst. Slíkt punghald þurfum við ekki. Það eru einmitt fjöldi dæma til um slíkt hátterni hjá þeim.

Þeir fara þangað, sem þeir fá lægsta verðið og geta boðið lægstu launin. Þannig er kapítalisminn og þannig hefur amerískur iðnaður tekið sig upp með rótum og flutt til kína og skil heilu byggðarlögin þar í örbyrgð og eymd.

Skoðaðuu stærra samhengi áður en þú kemur með svona grátklökkar fórnarlambaathugasemdir.  Raunveruleikinn felst ekki í helgimyndum á borð við þá sem þú málar hér. Því er nú andskotans ver og miður.

Jón Steinar Ragnarsson, 25.7.2008 kl. 01:17

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst það ekki sniðugt minn kæri að stimpla manneskju sem menn vita alveg hver er sem lygara - jafnvel þó hún sé að fara til Palestinu. Hvað hefurðu svo fyrir þér í því að Ramses sá margsaga um bakgrunn sinn? Afhverju ertu að álasa manneskju fyrir að berjast fyrir Ramses úr því að þú gerðir það sjálfur? Ertu núna á móti Rames? 

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.7.2008 kl. 02:26

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þakka ykkur fyrir innlitið ágæta fólk.

Sigurður Þórðarson, hvað með að drífa þig til Tel Aviv líka. Ef þú nennir ekki til Palestínu, er ströndin í Tel Aviv sprengigóð að sögn fróðra manna og ég get talað af eigin reynslu.

Sigurður Þór. Ég veit ekki betur en að Eva sjálf hafi þetta mottó : Að gefnu tilefni skal takið fram, að það er einlæg sannfæring höfundar að góð saga sé ekki verri þótt hún sé login. Hún var að minnsta kosti með þetta sem fyrirsögn á bloggi sínu þegar ég leit inn í gær. Ég hef ekki barist fyrir Paul Ramses, aðeins sagt að menn ættu ekki að afskrifa hann og gleyma honum ef frásögn hans kynni að hafa verið ónákvæm. Reyndar skrifaði ég undir áskorun en það tel ég alveg sjálfsagt, sama hvort maðurinn er flóttamaður eður ei. En ég tel Súdana sem myrtir eru í knippum í stærri hættu en einhver pólitíkus frá Kenýa, sem ekki nýtur einu sinni trausts ættingja sinna fyrir sannsögli. Borðar og slagorð Saving Iceland eiga miklu frekar við í Súdan en í Helguvík. Hvernig líður Mala? Ég á því miður ekki kött, en ég átti kött....

Palestína, Ramses og Saving Iceland. Skrítinn kokkteill. En sumir eru bara svona góðir að þeir geta ekki hætt að ljá málstaðnum lið. 

Anna, ég er hvorki á nornaveiðum eða í nornabrennu. Konan sem ég skrifa m.a. um er norn. Hún segir það sjálf. Vúdú, tarot, rúnir - you name it, she's got it eftir hádegi á Vesturgötunni. Kannski eru þetta ný vopn sem hún tekur með sér í baraáttunni fyrir Palestínumenn? Æi, nú fekk ég einhvern sting í brjóstið...

Snorri, ekki slefa á blogginu mínu.

Sigurjón og Jón Steinar, þakka fyrir langar athugasemdir ykkar. Þið hafið nú 9 daga til að halda áfram

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 25.7.2008 kl. 06:26

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir ábendinguna Vilhjálmur. Það er huggulegt til þess að vita að það eru enn til friðsælir blettir á jarðarkúlunni og það jafnvel  í Ísrael.

Sigurður Þórðarson, 25.7.2008 kl. 10:34

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Takk fyrir það.

Jón Steinar Ragnarsson, 25.7.2008 kl. 17:20

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nornin er að lofa með mottóinu góða sögmumennsku en ekki óbreytta lyganáttúru. Mali er eiturhress í að terrorisera!

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.7.2008 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband