Leita í fréttum mbl.is

Æ þessi Ramses......

Ramses brúkaup

 

Um daginn ritaði ég um hann Ramses eins og hundruð annarra Íslendinga sem vilja vel. Ég mælti með því að hann yrði færður til Íslands og að mál hans yrði rannsakað niður í kjölinn. Er eitthvað að því? Ég mælti með því að menn sýndu samkennd í öllum viðskiptum við fólk, ef minnsti grunur væri um að það væru í hættu.

Ég hef svo fylgst með umræðunni og nú eru svo sannarlega farnar að renna á mig tvær grímur. Getur verið að Ramses sé búinn að hafa hálfa íslensku þjóðina að fíflum? Heitir þessi maður í raun Paul Oduor Pata og er ekki í nokkurri hættu. Er hann loddari, sem svíkur fé af fólki? Er hann umboðsmaður íslenskra samtaka sem hugsanlega svíkja líka fé af fólki? Hann er að minnsta kosti búinn að viðurkenna að hann var stjórnmálamaður í heimalandi sínu. En er allt hitt lygar og svik? Er Paul Odour Pata (Ramses) bara eins og einn af þessum Afríkumönnum sem sendir þér tölvubréf með lygalega góðri sögu og reynir að hafa af þér fé? Erum við, sem viljum vel, einfeldningar sem hann hefur malað mélinu smærra í svikamyllu sinni?

Þessu halda ýmsir fram og umræðan hér, og hér hefur gefið mér ástæðu til að staldra við. Paul Odour er kannski "a very Bad Odour", eða eins og einn Íslendingur með mikla samkennd segir oft: "Það er skítafýla af þessu máli".

En þrátt fyrir nýjar upplýsingar um Paul Odour Pata (Ramses), tel ég að samkennd eigi við í máli hans, meðan málið verður rannsakað niður í kjölinn. Og ef í ljós kemur að piltur þessi er ekki allur þar sem hann er séður, ættum við að sjá til þess að hann og fjölskylda hans lendi ekki í frekari vandræðum. Konan hefur leyfi til að vera í Svíþjóð. Svo að fjölskyldan sundrist ekki, væri vitaskuld nærtækast að athuga hvort Paul Odour Pata (Ramses) sé ekki velkominn þar líka.

Menn verða að viðurkenna eitt. Það er dálítill stjórnmálamannabragur yfir Ramses á myndinni hér að ofan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Einn besti bloggvinur minn, hann Sæmundur Bjarnason, skrifar um þetta mál og líkir því við Lúkasarmálið í fyrra. Ég held barasta að Sæmundur hafi aldrei þessu vant rétt fyrir sér. Það eru greinilega Lúkasarheilkenni.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.7.2008 kl. 10:57

2 identicon

Hefur aðkoma Ramses að póltík verið eitthvert leyndarmál? Á sama tíma og einhverjir eru að gera hann tortryggilegan með efasemdum um að hann hafi verið viðriðinn kosningabaráttu, eru aðrir sem telja glæp hans fólginn í stjórnmálaafskiptum.

Það er eitthvað undarlegt við þá kenningu að um sé að ræða ótíndan glæpamann, sem þrátt fyrir ástandið í Kenía hafi ekkert að óttast. Skylda okkar hlýtur fyrst að vera sú að tryggja öryggi þeirra sem leita til okkar og svo að skoða hvað er hæft í frásögn þeirra.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 11:08

3 identicon

Þetta mál þarf greinilega að skoða betur. BB gerir það eflaust.

Palli (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 12:57

4 identicon

Þetta eru afar áhugaverð skrif sé hér koma fram.

Hef ekki verið að fylgjast mikið með þessu og veit því ekki í hverju athugun Útlendingaeftirlitsins á málum mannsins fóst.

Það hefur þó slegið mig að allar yfilýsingar um ógn sem að honum steðja eru hafðar eftir honum sjálfum eða konunni. Það er líka sérkennilegt að hann skuli ekki hafa óskað eftir hæli í Svíþjóð þar sem konan hans hefur landvistarleyfi. Á vegum hvers eða hverra hefur hún dvalið hér?

Það ætti að vera tiltölulega auðvelt að kanna bakgrunn mannsins eftir opinberum leiðum. Eins má og á að skoða ábendinguna um brottvísun hans frá Bretlandi 2004. 

Við eigum ekki að gefa út geðþóttalandvistarleyfi með því rjúfum við friðinn. Enda eiga allir að vera jafnir fyrir lögunum.

ragnhildurkolka (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 13:41

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Segjum þá tveir Vilhjálmur Örn! Reyndar var ég búinn að benda á það á mínu bloggi að okkur skorti áreiðanlegar upplýsingar. Hins vegar er ég furðu lostinn yfir því sem þessi landi hans hefur bloggað og vísað er til víða á bloggsíðum. Ég veit ekki hvaðan á mig stendur veðrið því maður nokkur hringdi um daginn í mig og sagði svo margt svipað, jafnvel með sama orðalagi. Kannski er þetta tilviljun. En höfum við nokkra tryggingu fyrir því að sá sem þarna bloggar á ensku sé Keníubúi sem þekkir til Ramses og segir satt. Nýjustu efasemdir um Ramses hvíla flestar á þessari einu bloggfærslu.  Er hún bara umhugsunarlaus sannleikur?

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.7.2008 kl. 17:29

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður, þegar þú ert að tala um landa "Ramses", ertu þá að meina Nimo sem skrifar á Icenews? Hefur einhver annar Kenýamaður bloggað um málið? 

Á hinn bóginn, ef þessi "Nimo" er einhver íslenskur gárungur sem er að leika sér að tilfinningum manna, ætti að senda hann með hraði til Kenýa. Með svo frjótt ímyndunarafl (ef þetta er fals), ætti hann örugglega framtíð fyrir sér í öfgastjórnmálum.

En þarna í færslunum á Icenews er verið að tala um Fíladelfíu og áður hefur milljónafyrirtækið ABC barnahjálp verið nefnd til sögunnar. Er einhver sekterískur bardagi á bak við Paul Odour Pata Ramses eðahvaðhannúheitir? 

Jú, ég viðurkenni fúslega að ég hef enga tryggingu fyrir neinu, enda hef ég lagt áherslu á að mál Ramsesar beri að rannsaka betur. Það er kjarninn í mínu máli. Samkennd með fólki í hættu, og ef einhver vafi er, að rannsaka hann vel áður en er farið að stofna lífi fólks í hættu.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.7.2008 kl. 19:44

7 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Nýfæddur sonur hans er a.m.k. ekki sekur um neitt. Hann hefur nú verið sviptur föður sínum og verður líklega ásamt móður sinni sendur fljótlega úr landi.

Vitanlega á að rannsaka forsögu manna sem hér leita hælis. En meðan það hefur ekki verið gert - og ekkert komið í ljós sem rennir stoðum undir þennan söguburð um vafasama fortíð Paul Ramses - þá á hann að njóta vafans. Hann og hans litla fjölskykylda.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 10.7.2008 kl. 22:54

8 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Samkvæmt mínum heimildum frá Kenya, var maður að nafni Paul Oduor í liði Raila Amolo Odinga, það er að segja flokki hans Orange Democratic Movement (ODM). Þessi Oduor er sagður hafa verið "party leader", sem væntanlega merkir að hann var valdamikill innan flokksins.

Hvort þetta er sami maður og var á Íslandi undir nafninu Paul Ramses Oduor hef ég ekki fengið úrskurð um.

Paul Oduor er mjög algengt nafn í Kenya og til dæmis hef ég fundið 7 á netinu, en með mismunandi ættarnöfn (Omondi, Okola, Omogah, Okoth, Juma, Obara, Ogola). Líklega eru þeir allir af Luo-þjóðinni, eins og Odinga og Barack Obama.

Ég veit ekki til að neinar upplýsingar hafi komið fram þess efnis, að Paul Ramses Oduor sé í meiri lífshættu en flestir aðrir í Kenya. Það eru líka hættur í umferðinni á Íslandi. Við skulum vona að hann njóti sömu réttinda og aðrir, en ekkert framar þeim. Höfum í huga, að hann kom til landsins með farþegaflugi og að slíkur lúxus er ekki öllum flóttamönnum aðgengilegur.

Fullyrt hefur verið, að Paul Ramses Oduor hafi sætt pyntingum, en hvar eru heimildir um slíkt ? Það að Íslendskir kommúnistar fara hamförum vegna herra Oduor, er honum ekki til framdráttar.

Loftur Altice Þorsteinsson, 11.7.2008 kl. 00:28

9 Smámynd: Guðmundur Pálsson

Eins og vant er hjá þér Vilhjálmur, góður pistill. Right attitude. Okkur vantar upplýsingar. Sanngirni í framhaldinu og umfram allt - sömu reglur fyrir alla í hliðstæðum sporum.  Líst vel á tillögur þínar.

Guðmundur Pálsson, 11.7.2008 kl. 01:15

10 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hér koma fram mismunandi skoðanir og ég þakka fyrir þær um leið og ég undirstrika það sem grundvallar álit mitt í málinu. Það ber að rannsaka alla þætti og reyna að hjálpa Ramses, jafnvel þótt rétt reynist að hann sé ekki sá sem hann segir að hann sé.

Jón Frímann, ég hef ekki neitt data frekar en þú. Við erum öll frekar datada í þessu máli. Íslensk yfirvöld vita líklega mest um Paul Ramses og vonandi ekki upp á sig sökina. Ég er viss um að mál þetta er aðeins hægt að leysa með því að við fáum sannleikann á borðið og sýnum sanngirni. Yfirvöld, Paul Ramses og ef til vill ABC barnahjálp verða að leggja spilin á borðið.

Ég er sammála Lofti um eitt. Hamagangurinn í sumu fólki sem barist hefur fyrir Paul Ramses, eins og lausn þessa máls væri spurning um "knald eller fald" hjá ríkisstjórninni, gerir honum bjarnargreiða. Allir þeir sem hafa fylgt hjartagæsku sinni nota ekki þetta mál til annars en að greiða götu flóttamanns. Þetta er ekki stjórnmál, heldur mannúðarmál. Lausn þess getur svo að lokum orðið yfirvöldum lexía í hvernig á að gera hlutina rétt í stað þess að framreiða stærstu agúrkufrétt sumarsins.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.7.2008 kl. 06:50

11 identicon

Þar sem ýmislegt virðist enn á huldu með Paul Ramses, hef ég ekki viljað skrifa mig á undirskriftalistann. Annað nafn kemur nefnilega alltaf upp í hugann: man einhver eftir Kio Briggs?

Hitt er svo annað mál, að mér finnst frekar ógeðfelldur verknaður að stía í sundur fjölskyldu með þessum hætti. 

Mundi (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 09:12

12 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Það sem vakti fyrir mér þegar ég ákvað að leggja þessu máli lið, var að um mál hans yrði fjallað hérlendis þar sem fjölskylda hans er. Mér blöskraði framganga lögreglu og yfirvalds í því hvernig að þessu var staðið og finnst ekkert réttlæta að fjölskyldu hans sé sundrað.

Ég hef lesið þessa færslu á icenews frá nafnleysingjanum og get ekki tekið mark á henni nema að maðurinn komi fram undir nafni og sýni andlit sitt. Ég vona að öll spil verði lögð á borðið af heiðarleika hjá þeim sem koma að því nú þegar.

Birgitta Jónsdóttir, 11.7.2008 kl. 09:18

13 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Þvílíkar bloggfærslur sem þú vísar í! Býrð þú ekki í Danmörku, Vilhjálmur? Og þessi Loftur Altice Þorsteinsson - einhver "útlendingskeimur" er að því nafni? En þið eruð sennilega með réttar stjórnmálaskoðanir og af réttum "kynþætti" sem sagt ekki svartir!

María Kristjánsdóttir, 11.7.2008 kl. 09:51

14 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

María, Loftur er örugglega útlendingur og hefur greinilega sambönd þar líka. Ég er t.d. kominn af ýmis konar tegundum útlendinga og get rakið ættir til Portúgal sem og Póllands og lengra á góðum degi. Já og ég bý í Danmörku. Það er gott að vera hér fyrir alla útlendinga. Fáeinir eru auðvitað ekki ánægðir, en það eru venjulega þeir sömu sem hafa yfirtöku heimsins í nafni einhvers aflóga spámanns á dagsskránni. Maður verður aldrei ánægður ef maður vill stjórna öllum heiminum.

Öll erum við svo komin frá Afríku hér um árið, sum okkar bara dálítið fyrr en hin. Hér er dálítið sem skýrir uppruna minn og hér, annars er ég líka kominn af bláfátæku fólki úr myrkustu Kjós og af heiðum Skagafjarðar. Það og bláu augun nægðu þó venjulega ekki hér um árið þegar ég var oftast beðinn um að sýna vegabréfið mitt við komu til Keflavíkur,þó svo að ég segði með skýrum rómi að ég væri "Íslendingur". Síðar var ég stundum farinn að segja "Icelandic" og þá var mér bara vísað inn í landið án nokkrar flettinga og útmælinga.

María skilurðu, þetta fjallar ekki um kynþætti. Stjórnmál koma þessu heldur ekki við. Þetta fjallar að mínu mati fyrst og fremst um hvort Paul Ramses sé allur sem hann er séður og hvort hann er í hættu. Íslendingar eru upp til hópa gott fólk sem vill hjálpa Ramses og fjölskyldu hans, og vonandi hefur hann ekki misboðið trausti okkar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.7.2008 kl. 11:42

15 identicon

Hvernig ætli fólk fari almennt að því að sanna að það hafi sætt pyndingum? Skilar það inn áverkavottorði frá fangelsislækninum? Eða fær það myndatökumann til að mynda athöfnina?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 12:21

16 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ýmsa kynlega kvisti rekur á fjörur Vilhjálms, eins og til dæmis Maríu Kristjánsdóttur. Bragðskyn hennar er með slíkum ágætum, að bragð-greininar hennar á litarfari manna eru óbrigðular. Þannig finnur hún sterkan "útlendingskeim" af mér og auðvitað hefur kerlan rétt fyrir sér, eins og fyrri daginn.

Satt að segja er þetta í fyrsta skipti sem mér er send "kveðja" af þessu tagi og ég verð að játa, að mér varð dálítið hverft við. Hins vegar þekki ég vel til hugarheims kommúnista, sem meðal annars tengist því, að eins og Vilhjálmur lagði ég stund á Keflavíkurgöngur á mínum yngri árum. Ég veit því að kommúnistum er ekkert heilagt nema fýkn þeirra í völd. Þeir eru sannkölluð kamel-ljón í stjórnmálum og flökrar til dæmis ekki við að nefna sig "græna" þegar "svart og sviðið" er í raun þeirra köllun.

Nú er það skammaryrði kommúnista, að vera hvítur á hörund og María bregst vel við herkvaðningu forustunnar og sendir hvítingum tóninn. Sem betur fer, fyrir hana, lítur hún sjaldan í spegil og hinn óþægilegi sannleikur mun því seint renna upp fyrir henni.

Stór hluti þess að vera kommúnisti, snertir það sem nefnist "rétthugsun" og að "tilgangurinn helgar meðalið". Einhver leiðtogi hefur greinilega ákveðið að Paul Ramses Oduor (eða hvað hann nú annars heitir) skuli fá landvist á Íslandi. Þetta markmið skal þvingað í gegn með öllum brögðum. Þetta markmið er orðið "rétthugsun" og þeim sem dirfast að tala um lög og jafnrétti skal útskúfað. Herra Oduor hefði ekki getað valið sér verri stuðningsmenn, þótt hann hefði einhverju um ráðið.

Loftur Altice Þorsteinsson, 11.7.2008 kl. 13:05

17 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Eva spyr:

Hvernig ætli fólk fari almennt að því að sanna að það hafi sætt pyntingum ?

Hún er hér líklega, að svara minni spurningu til hennar, sem var:

Fullyrt hefur verið, að Paul Ramses Oduor hafi sætt pyntingum, en hvar eru heimildir um slíkt ?

Mín spurning stafaði af þeirri fullyrðingu hennar, að Paul Ramses Oduor hefði sætt pyntingum. Vonandi vefst ekki fyrir neinum, að skilja þessa atburðarás.

Sem svar við eigin spurningu, gefur Eva okkur tvo kosti að velja um. Báðir kostir eru jafn fráleitir, svo að líklega er Eva bara að grínast. Eru pyntingar eitthvað til að grínast með ? Mér finnst það ekki, en auðvitað hefur fólk sína hentisemi með það, eins og annað.

Án þess að ég hafi kynnt mér pyntingar sérstaklega, tel ég einsýnt að hægt er að leiða í ljós hvort fólk hefur mátt þola pyntingar. Líkamlegar pyntingar skilja venjulega eftir ummerki sem sérfræðingar geta ráðið í. Andlegar pyntingar er væntanlega erfiðara að greina.

Annars spurði ég Evu ekki um sannanir heldur hvaðan hún hefði heimildir fyrir að Paul Ramses Oduor hefði verið pyntaður. Hvorki Eva né aðrir, sem fullyrt hafa um þetta atriði, virðast geta tilgreint sínar heimildir. Hvað á maður að halda um alvarlegar fullyrðingar sem enginn vill eða getur staðfest á neinn hátt ?

Loftur Altice Þorsteinsson, 11.7.2008 kl. 16:36

18 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Einar, eins og þú skrifar á þínu eigin bloggi er kannski aldrei meiri ástæða en nú til að hjálpa manninum, þegar vinirnir láta sig hverfa og áhuginn dvínar. Að flæma mann burt úr landinu frá konu og kornabarni er illmennska.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.7.2008 kl. 19:34

19 identicon

Einar ef þú hefur skrifað undir sama plagg og ég, þá veistu væntanlega að þar kemur hvergi fram krafa um að Paul verði veitt pólitískt hæli hér. Þar er ekki einu sinni krafa um dvalarleyfi, heldur er skorað á dómsmálaráðherra og forstöðumann útlendingastofnunar að kalla hann heim og taka málið fyrir.

Það sem vakti fyrir hópnum sem stóð að þessum mótmælum var og er að koma í veg fyrir að flóttafólki sé stefnt í voða og fjölskyldum sundrað. Ef þú ert sammála því markmiði þá geturðu verið stoltur af því að hafa stutt góðan málstað og sennilega er nú skárra að finna fyrir kjánahrolli yfir að hafa tekið mann sem segist vera í lífshættu trúanlegan, en að upplifa sekt þess sem var í aðstöðu til að bjarga mannslífi en tók ekki mark á beiðni um það.

Sjálf get ég reyndar ekki trúað því að nokkur heilvita maður telji sig öruggan í landi þar borgarastyrjöld geysaði til skamms tíma og lögreglan tók hundruð manna af lífi með leynd fyrir nokkrum mánuðum.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 23:55

20 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Sæll aftur Vilhjálmur, framkoma okkar Íslendinga gagnvart td. gyðingum ætti að hafa kennt okkur eitthvað. Margir notuðu sem rök gegn gyðingum að þeir væru nú  ekki allir þar þeim væru séðir. Blogg  eftir Eirík Bergmann á Eyjunni sem heitir Múrinn og birtist í dag- tel ég fjalla um aðalatriði þessa máls.

Og hvað frændsemi líður, þá er nú ekki alltaf á hana að treysta og margir og misjafnir frændur manns og ekki alveg víst að ættfærslur séu réttar.

Annars vona ég að rigningunni sé að slota hjá ykkur!

María Kristjánsdóttir, 12.7.2008 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband