Leita í fréttum mbl.is

Flóttamađurinn og samviskan

 
Falash mura

 

Hrćđslan viđ svarta manninn er enn landlćg á Íslandi. Mál Pauls Ramses er gott dćmi um ţađ.

Ramses er vísađ af landi brott. Menn hafa ýmislegt sér til málsbóta, en ekki minnsta vott af međkennd, sem á ađ vera svo rík međal kristinna ţjóđa. Birni Bjarnasyni ţykir fólk stjórnast af tilfinningasemi í umrćđunni og telur ađ brottvísun Ramses styđjist viđ lagaleg rök og vera góđa embćttisfćrslu. Hún styđst  ađ minnsta kosti ekki viđ neina haldbćra rannsókn á högum mannsins. Tilfinningasemi er góđ, en mér finnst líka margir styđja Ramses vegna ţess eins ađ ţeir eru á móti ríkisstjórninni og nota máliđ eins og allt annađ til ađ koma Birni Bjarnasyni í bobba og ríkistjórninni burt. Hvar er ţá međkenndin međ manni sem líkast til er í lífshćttu verđi hann sendur til Kenýa?

Í ţessu máli virđist ríkja tvískinngungur á báđa bóga. Svo má ekki gleyma ABC barnahjálp, sem heyrist nefnd í sambandi viđ mál Paul Ramses. Ţađ er stofnun/bissness sem ég vildi vita meira um en ţađ sem ég les á vefsíđu stofnunarinnar.

Fyrir nokkrum árum sýndi mér kona myndir af dreng sem hún hélt sig styrkja í Úganda fyrir tilstuđlan ABC hjálpar. Ég benti konunni á ađ myndirnar frá ári til árs vćru ekki af sama drengnum og ţađ var greinilegt. Ţegar konan sá ţađ, var hún fljót ađ álykta: Svo styrki ég marga drengi í Úganda.

Mér ţykir furđu sćta ađ Utanríkisráđuneytiđ, sem styrkti verkefni ţađ sem Paul Ramses kom ađ í Kenýa međ ABC Barnahjálp, geri ekkert í ţessu máli.

Fáum Paul Ramsem aftur til Íslands međan mál hans er rannsakađ niđur í kjölinn. Ef enginn fótur er fyrir flótta Paul Ramses, getur hann fariđ heim og eflt sitt land. Ef hann er í hćttu getur hann orđiđ góđur Íslendingur međ öllu sem ţví fylgir.

Eftir stendur, ađ ţađ ţykir gott mál ađ veita kólumbískri kćrustu sonar ráđherra og snćldurugluđum skákmeistara dvalarleyfi og express ríkisfang á Íslandi. En Afríkumanni er hent út sí sona, ţótt líf hans sé í hćttu. Erfitt ađ skýra slíkt. En Björn Bjarnason gerir ţađ vonandi betur en međ ţví tuđi sem hingađ til hefur komiđ út úr honum.

- - -

Myndin efst er af gyđingastúlku sem mér ţótti passa svo vel viđ ţessa fćrslu. Ţeldökkir Íslendingar eru sjaldséđir, og greinilega ekki eins velkomnir og ţessa stúlka er í Ísrael.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Sćll Vilhjálmur

Ţađ er nokkuđ til í ţví sem ţú segir. Afhverju beitir utanríkisráđuneyti og ABC sér ekki meira. Ég fór á heimasíđu ABC og ţar er helsta umfjöllunarefni hjartnćmt brúđkaup sendifulltrúans og eins íbúa landsins - ekkert um Paul Ramses, enda samtökin svo sem ekki beint slíkur vettvangur. Ţeirra meginhlutverk er ađ skapa umkomulausum börnum athvarf. En samt...

Offorsiđ í sambandi viđ afgreiđslu ţessa máls tengist ţví ađ gegnum Dublinarsáttmálann geta íslendingar fríađ sig ábyrgđ á ákvarđanatöku um flóttamenn og sent fólk án ábyrgđar til fyrsta komulands í Evrópu. Hefurđu aldrei velt fyrir ţér afhverju hlutfall flóttamanna á Íslandi miđađ viđ innflytjendur er svona lágt?

Ég held ađ ţó ađ íslenskt samfélag breytist hratt er samt margt hér gegnsýrt af xenofóbíu - ekki síst gagnvart ţeldökku fólki.  Innan háskóla Íslands er til dćmis ótrúlegt hvađ starfsmenn af erlendu bergi brotnir ţurfa ađ ţola af umvöndunum og ignorans íslenskra kollega sinna. Bćti ţessu bara viđ afţví ađ ég hef veriđ ađ heyra hreint ótrúlegar sögur ţeirra undanfariđ. 

Anna Karlsdóttir, 6.7.2008 kl. 15:00

2 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Mér finnst ađ ABC, sem sagt er ađ hafi sönnungargögn um ţađ ađ Ramses sé á dauđalista í Keníu, ćttu ađ birta gögnin opinberlega. Eflaust vilja ţessi hjálparsamtök ekki blanda sér í deilur - en samt. Samtökin eru sögđ hafa ţessi gögn undir höndum. Hafa ţau nokkuđ birst annars? 

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 6.7.2008 kl. 18:02

3 identicon

Vissulega virđist embćttismađurinn hafa leyfi til ađ senda flóttamanninn til ţess lands sem hann hafđi viđkomu í áđur en hann lenti hér (engin bein flug frá neinu Afríkuríki til Íslands). Jafnvel ţótt ţar međ sé fjölskyldu hans tvístrađ. Pílatus ţvćr sér um hendur. Vilmundur heitinn Gylfason hitti naglann á höfuđiđ ţegar hann sagđi:

Löglegt en siđlaust.

Hefur ekkert međ tilfinningasemi ađ gera. Ţetta er móralskt gjaldţrot ráđherra og embćttismanna hans sem í skjóli laga brjótast inn um miđjar nćtur til ađ fjarlćgja óvelkominn útlendinginn. Á hvađ minna svoleiđis ađferđir?

Carlos Ferrer (IP-tala skráđ) 6.7.2008 kl. 18:16

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ţakka ykkur fyrir góđar athugasemdir, Carlos, Sigurđur og Anna. Kannski var ég of dómharđur viđ ABC barnahjálpina og ađstandendur hennar hafa vonandi eitthvađ í pokahorninu sem getur hjálpađ Paul Ramses.

Ég skammast mín fyrir ađ vera Íslendingur ţegar svona mál koma upp. Íslendingar, sem oftast eru svo rólegir og yfirvegađir, gćtu hafa hugsađ sinn gang oftar en tvisvar í tengslum viđ ţetta mál.

Asinn bendir á mínu mati til ţess ađ fólk álíti Afríkumenn og ađra ţeldökka annars flokks fólk, sem ekki megi blanda blóđi viđ Íslendinga. Af hverju annars ţessi flýtir ađ koma manninum úr landi?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 6.7.2008 kl. 19:25

5 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Ţetta mál er íslensku ţjóđarinnar til skammar.

Úrsúla Jünemann, 6.7.2008 kl. 20:23

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Úrsúla, kannski ekki allri ţjóđinni. Meirihlutinn vill hjálpa Paul Ramses. Ţetta er embćttismönnunum og embćttunum til skammar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.7.2008 kl. 08:25

7 identicon

Eg gerdi thau mistok ad hafa ekki kynnt mer malid til hlytar, thegar eg skrifadi ad embaettismenn brutust inn og handtoku Rames Odour Paul um midjar naetur, sbr. greinagerd utlendingastofnunar. Annad stendur. Bendi a storgott blogg Atla Hardarssonar i thessu sambandi.

Carlos Ferrer (IP-tala skráđ) 7.7.2008 kl. 08:57

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband