Leita í fréttum mbl.is

Veruleikaflóttinn í Danmörku

support-denmark-stamp
 

Enn og aftur er ráðist á frændur okkar Dani. Þeir Danir, sem ekki telja að á þá sé ráðist persónulega, þegar sprengt er við sendiráð lands þeirra þeirra, eru haldnir veruleikaflótta á mjög háu stigi. Gjörvallur heimur múslíma, þ.e.a.s. öfgamenn í þeim hópi (sem vissulega eru margir), hafa fyrir löngu lýst yfir stríði á hendur öllum Dönum, sem og öðrum sem ryðja þarf úr vegi og myrða svo þeir geti stofnað alheimsríki sitt, sem stýra ber með því versta úr Kóraninum.

Veruleikaflótti er þegar sendiherra Pakistans í Danmörku kennir Múhameðsteikningum um það sem gerðist í fyrradag í Islamebad. Hörð mótmæli ber að senda slíkum manni.  Af hverju safnast alltaf svo mörg fífl  saman í utanríkisþjónustur?

Rassasleikjuflokkur öfgaaflanna, Radikale Venstre, sem í Síðari heimsstyrjöld hafði nána samvinnu við nasistasetuliðið í Danmörku, telur að utanríkisstefna Dana sé ástæðan fyrir hryðjuverkunum í Islamebad. Það er líka veruleikaflótti.

Forsætisráðherra Dana, Anders Fogh Rasmussen segir hins vegar formann Radikale Venstre ganga erinda hryðjuverkamanna. Formaður krata og Danski Þjóðarflokkurinn eru á sama máli. Naser Khader frá Ny Alliance, sem er orðin heldur tóm tunna upp á síðkastið vegna flótta "meðlima", segir að meðreiðarsveinar öfgastefnunnar í Radikale Venstre hafi "vanmetið hina íslamístísku andstæðinga" og mælir með því að Múhameðsteikningarnar verði  birtar aftur í dönskum dagblöðum, ef þær hafa valdið sprengingunni í Islamebad.

Kannski verður einfaldlega að fara að setja Íslam í bað. Almennilegt bað með grænsápu og kláðadufti fyrir Talebananana, sem eru óætir andskotar og hvergi í húsum hæfir enda ekki komnir af hellisbúastiginu. Önnur trúarbrögð hafa farið í gegnum siðaskipti. Öfgarnar út úr Íslam og þá kemur fjallið til Múhameðs. Eitthvað verður einfaldlega að gerast. Hellisbúar og morðsveitir sem dýrka mannfyrirlitningu eiga ekki að geta sett lýðræðisríkjum afarkosti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir færsluna Vilhjálmur, hún er fín  og aðrar færslur hjá þér undanfarið.

 Skúli

Sk. Sk (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 10:22

2 identicon

Sæll ævinlega. 

Já, þetta er vargöld. Óhæfuverk í Islamabad og Islam i bad. Bara að þetta væri svona einfalt. En ég tek undir það með þér, að ég vildi óska að Islam eignaðist nú sinn Lúter. Ekki að það væri nein trygging fyrir friði, það hefur ekki reynst svo í kristni, en öflugt mótvægi þarf gegn öfgamönnum Islan sem víða ærast og djöflast í nafni trúar sinnar og beita hana (trúar)brögðum sem sæma henni engan veginn.

Vandinn liggur áreiðanlega mun víðar en í trúarbrögðum þeirra sem aðhyllast Islam. En hann er vissulega þar einnig. Það hefur verið reynt að fara hernaðarleiðina gegn öfgamönnum í Afganistan. Með nauðalitlum árangri sýnist manni.

Er Islam meginvandinn? Ef svo er, væri það þá lausn að ríkisstjórnir innrásarríkjanna í Írak og Afganistan skilgreindu Islam sem djöfullega villu og uppsprettu glæpa og illsku og settu hernaðinum  það meginmarkmið að uppræta þessi trúarbrögð? Ég held varla. Væri þetta framkvæmanlegt? Ekki veit ég það. Væri hægt að réttlæta slíkt markmið? Ekki sé ég neina leið til þess þó margt sé með ógeðfelldum brag í boðun ýmissa kennimanna Islam um þessar mundir.

Ég held að Marx hafi haft rétt fyrir sér þegar hann skrifaði að það væru alltaf efnahagslegar forsendur fyrir stríðum. (En það eru vitaskuld ekki einu ástæðurnar.) Efnaleg misskipting í þeim löndum þar sem Islam er útbreitt er mikil, bæði meðal þjóðanna og meðal ríkjanna. Hvorttveggja reynist þeim erfitt og skapar miklar viðsjár. Hin ríku ríki eiga sér öfluga bandamenn sem tryggja hag og stöðu elítunnar sem stjórnar. Hinir fátækari berjast gegn þessum bandalögum og sjá í þeim fjandann sjálfan. Skrattinn hefur verið málaður á vegginn mjög víða og af mörgum. En ég vona eins og þú að einhvern daginn verði grænsápan tekin fram og skrúbburinn og  byrjað að skúra hann burt.

Pólitískt ofbeldi, fólskuverk glæpi er því miður víða að finna og slík verk eru framin af fólki með ýmsar og ólíkar trúarskoðanir. Við mættum muna átökin á Írlandi og hryðjuverk IRA, sem stundum beindust að fólki sem ekkert kom þessu við. Sprengingar þessara samtaka á opinberum stöðum í London eru dæmi um þetta. Og ekki voru Írarnir múslimmenn.

 Skrúbbum.

Kristján Sveinsson (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 11:00

3 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Ég hef verið að reyna að átta mig á því hvers vegna hinar margfrægu teikningar af Múhammeð voru gerðar - og birtar. Einhverjir töldu að hér væri um mikilvæg barátta fyrir tjáningafrelsi að ræða. Eru það skoðanabræður Mogens Camre sem eru frumkvöðlar að þessum myndum?

Er orðanotkun þín að breyttast Vilhjálmur?: Rassasleikjuflokkur-mörg fífl-óætir andskotar-ekki komnir af hellisbúastiginu. Ertu að tala um manneskjur? Eru þetta pólitískar skilgreiningar hjá þér?

Hjálmtýr V Heiðdal, 5.6.2008 kl. 12:11

4 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Öll trúarbrögð eru afsprengi djöfulsins.

Haraldur Davíðsson, 5.6.2008 kl. 12:15

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er ég algerlega dús við þig Vilhjálmur.  Hin Pólitíska rétthugsunarhræsni er að ganga af vestrænum gildu dauðum.  Málið er nú að láta kúga sig til skoðanna fyrir ofbeldi ólæsra órangúta, sem hafa nánast útrýmt málfrelsi á meðal evrópuþjóða og lagasetningar meina mönnum að segja hug sinn um yfirganginn og ofbeldið. Bardot er síðasta fórnarlamb þessa rétthugsunarfasisma. Fasismi, sem meinar fólki með lögum frá að tjá skoðanir sínar en verðlaunar fólk. Þér ber að segja það sem viðtekið er en ekki það sem þú meinar.

Fólk þorir nú ekki að tjá sig um þessa hluti og ef það gerir það, er það kært, sakað um rasisma eða málfrelsi og ritfrelsi tekið af þeim með valdi undir þeim formerkjum að það sé að egna til haturs fyrir það eitt að tjá sig um ómannlegan hatursáróður múslima. Það er sannarlega búið að snúa faðirvorinu upp á fjandann hérna. Það er löngu komið nóg af þessu og fólk verður að fara að rísa gegn þessu.

Múhameð var sadist, morðingi og barnaníðingur og það eru engin heimatilbúin blótsyrði mín. Hann fékk vitranir eftir hvert ódæði sitt um að guð hafi réttlætt verkin, svo súrurnar eru uppfullar af slíkri tækifærismennsku.  Fyrirmyndin í honum er ástæða þessarar geðveiki.

Það er rétt að alhæfa ekki um músllima og stjórnsýsla og lögjafi verða að fara að gera greinarmun á alþýðu manna af þeirri trú og ofgamönnum, múllum og immömum. Það eru þeir, sem menn eru að andmæla og hatursáróðri þeirra. Hatursáróðurinn er ekki úr okkar átt.  Það er ótti, sem er orðinn svo altækur að fólk er hætt að þora að segja hug sinn. 

Þessir menn heimta heimsyfiráð og segjast framverðir menningarbóta, þegar sagan segir ð hvar sem þeir hafa komist til valda hafa þeir sent þjóðirnar aftur til bronzaldar og steypt þeim í harðindi og sult. Það er ekki hægt aðfinna eitt dæmi um hið gagnstæða. Hér verður ekki lifað á fornri frægð.

Hér er athyglisverð lesning um eðalmennið Múhameð.

Jón Steinar Ragnarsson, 5.6.2008 kl. 14:06

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Jón Steinar, skammastustu þín. Nú verður lokað á þig eins og Skúla Skúl.

Já Hjálmtýr, rassasleikjuflokkur er gott pólitískt heiti fyrir Radikale Venstre. Flokkur sem stuðlaði að samvinnu við nasista er rassasleikjuflokkur. Hellisbúastig er einnig ágætt orð. Talibanar sækja gjarnan í slík heimkynni.

Jón Steinar, Bardot er fyrst verulega sexy nú. Nú hefur hún eitthvað bitastætt fram að færa. Brjóstin eru kannski slöpp en hún er algjör Bomba.

Haraldur, djöfullinn hefur greinilega haft mikið að gera.

Kristján ég er sammála þér um að Marx bræður höfðu alltaf rétt fyrir sér.  En ekki var bin Laden fátækur eða hans verstu böðlar. Þeir sem verða fyrir barðinu á kykvendinu eru hins vegar fátækir. IRA sóttist ekki eftir heimsyfirráðum, þótt þeir og fjölskyldur þeirra hefðu ekki meira en kartöflur og lítinn olíupott til að framfleyta sér á. ÍRAN situr hins vegar á einum stærsta olíupotti jarðar en getur samt ekki framfleytt sínu fólki og þarf að hengja það í krönum á götuhornum ef það beygir sig ekki í svaðið. Það er hægt að gera margt við mannfólkið þegar það er fátækt, t.d. að beina hatri þeirra gegn þeim sem gætu gert  hag þeirra betri, en það er sú aðferð sem Íslamskir öfgamenn nota helst, því þeir vita að ef hagur fólksins batnar, hverfur Íslam í þeirri mynd sem þér vilja helst hafa trúna í.

Hjálmtýr, Mogens Camre, situr einn á sínum kamri í dönskum stjórnmálum og hefur engan með sér. Hann er ekki í neinum flokki. Bróðir hans, kvikmyndagerðarmaðurinn, hlýtur að vera góðvinur þinn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.6.2008 kl. 15:13

7 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Halló halló!!

ER hér kominn nýr baráttumaður fyrir málfrelsi??

Gott að vita það.

Mun auðvitað beita sér fyrir því, að öll lög sem banna hugsunar og málfrelsi verði afnumin á Vesturlöndum.

---Líka lög sem banna að menn efist um ,,sögulegar staðreyndir um Helförina

he he,

Íhaldið

Bjarni Kjartansson, 5.6.2008 kl. 15:15

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Bjarni Kjartansson, eða hvað sem þú heitir nú cybergeðklofinn þinn:

Málfrelsi á ekkert skylt við "frelsið" til að falsa söguna vegna haturs og öfundar eins og þú heldur fram þegar þú kemur í heimsókn hér. Hættu svo að taka íhaldið í gíslingu geðveilu þinnar og flýttu þér í apótek og fáðu þér nýjan skammt af hverju sem er. Allt hlýtur að bæta þinn hag. Vona svo að herra þínum batni og þú gangir aftur í einn ham og það sæmilega skynsamlegan.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.6.2008 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bækur

Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband