Leita í fréttum mbl.is

Hvert fara peningarnir?

  Kors i Poulsen

 

Jřrgen Poulsen heitir mađur nokkur hér í Danmörku, sem hefur veriđ forstöđumađur Rauđa Krossins hér í landi síđustu 14 árin og reyndar gegnt ýmsum öđrum stöđum um leiđ, t.d. veriđ launađur bókagagnrýnandi fyrir DR (Danmarks /Danska Ríkisútvarpiđ). Sem slíkur hefur hann t.d. skrifađ afar lofsamlega um bók mína. Áđur var hann ţekktur sem fréttamađur Danska sjónvarpsins og kannski mest fyrir einstakan talsmáta međ ýktum kćkjum og stunum, svo ađ sá sem á fréttaflutning hans horfđi, leit mest á Poulsen og missti af óhugnađinum eđa stríđinu sem hann var ađ segja frá.

Nýlega var Poulsen kosinn á danska ţingiđ sem ţingmađur nýja flokksins Ny Alliance, sem er stjórnađ af Palestínumanni sem ćttađur er frá Sýrlandi. Poulsen sýndi ekkert fararsniđ á sér hjá Rauđa Krossinum eftir kosningarnar í nóvember og var ţví sagt upp, ţví hann gerđi ţađ ekki sjálfur.  Í Danmörku er ţađ nefnilega lenska, ađ menn geti ekki veriđ í alls kyns öđrum stöđum og krćkt sér í aukabitlinga ţegar ţeir eru komnir á hiđ háa ţing.

Poulsen fékk svo 750.000 danskar krónur, rúmar 9 milljónir íslenskar, í "brottfararlaun" hjá Rauđa Krossinum og hefur ţađ fariđ fyrir brjóstiđ á mörgum í Danaveldi. Skiljanlega, gćti mađur leyft sér ađ halda, ţó ég sé ekki ađ sjá eftir aurunum sem ég gef í bauka Rauđa Krossins.

Eins og einn fjölmiđillinn greindi frá, ţá var hćgt ađ fá ýmislegt fyrir ţessa peninga, t.d.

Hćgt ađ framfleyta 5000 flóttamönnum í Sómalíu í mánuđ

Hćgt ađ gefa 750 eyđnisjúklingum í Afríku fulla lyfjameđferđ

Hćgt ađ bjarga 3170 mjög vannćrđum börnum frá ţví ađ deyja

Og eins og gárungar Nyhedsavisens, blađs í eigu Íslendinga, skrifađi.  Hćgt var ađ kaupa 1 Audi TT Coupé međ 3,2 lítra mótor og 250 hestöflum, sem fćst ekki fyrir klink í Danmörku eins og á Íslandi.

Međan Poulsen var upptekinn í kosningarbaráttunni ţáđi hann laun hjá Rauđa Krossinum, ţótt hann gerđi ekkert fyrir stofnunina á međan. Ţá gerđi Poulsen ţađ eina rétta og afsalađi sér launum međan hann var í fríi. Jřrgen Poulsen hefur nú veriđ tekinn í ţví ađ ljúga um starfslok sín. Hann segist hafa stungiđ upp á ađ taka sér frí frá starfi sínu áđur en honum var sagt upp. Ţađ rétta er ađ honum var sagt upp áđur en hann kom međ ţá tillögu. Stađa hans er auglýst laus til umsóknar í dönsku dagblöđunum í dag.

Nú er bara ađ sjá hvort Poulsen sýni af sér góđa takta sem pólitíkus. Kannski er hann fyrst nú kominn á rétta braut í lífinu. Ég er hins vegar lítiđ gefinn fyrir fréttamenn í stjórnunarstörfum eđa á ţingi. Ţetta er ofmetinn starfshópur og hana nú.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Mér finnst ţetta ekki til hróđurs fyrir manninn. Man vel eftir honum sem fréttamanni á DR. Myndi ekki treysta honum sem stjórnmálamanni.

Anna Karlsdóttir, 9.12.2007 kl. 22:59

2 Smámynd: Viđar Eggertsson

Og varla er ţetta heldur hrós fyrir Rauđa krossinn í Danmörku. Hvernig ćtli málum sé háttađ ţar á bć hér á landi?

Viđar Eggertsson, 10.12.2007 kl. 00:04

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sćl Anna og Viđar, Jřrgen situr fastur viđ sinn keip og ćtlar ekki ađ skila aukaţóknuninni sem hann fékk.  Ţađ var ţví afar fyndiđ í gćr ađ sjá í dönsku blöđunum auglýsta lausa stöđu forstöđumann heimsóknarţjónustu Rauđa Krossins fyrir fanga. Sú stađa er ólaunuđ en mjög kröfumikil ef dćma má út frá auglýsingunni. 

Ekki ćtla ég ađ segja hvernig ţessu er hagađ heima, en ţađ hefur oft veriđ gangrýnt hér í landi hvađ yfirbyggingin sé dýr hjá hjálparstofnunum. Mig rámar líka í ađ slík umrćđa hafi fariđ fram á Íslandi. Ţađ hlýtur ađ vera svipađ á Íslandi. Menn verđa ađ fá laun, en aukabitlingar eins og sá sem Poulsen hefur fengiđ nú, eru auđvitađ alveg út í hött.

Hann skilar ţessu vonandi ef hann er ekki búinn ađ setja ţađ í fasteign.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.12.2007 kl. 07:27

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ég fór út í búđ til ađ kaupa eitthvađ viđeigandi fyrir son minn sem er međ gubbupest. Ţar sá ég ađ Poulsen líđur líka illa, búinn ađ fá taugaáfall - út af öllu ţessu umtali um aukaskildingana hans.  Ţetta stóđ í skítableđlinum Ekstra Bladet, svo ég sleppti ţví ađ kaupa og lesa um taugaáfalliđ. Ekki myndi ég fá taugaáfall ef ég fengi 9 vel fengnar milljónir.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 10.12.2007 kl. 09:12

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband