Leita í fréttum mbl.is

Ave María og virđingarleysiđ

Papa 

Ave Maria macht frei?

Páfagarđur hefur látiđ ţau bođ út ganga ađ búast megi viđ páfabréfi um latínumessuna, sem nýlega var endurlífguđ međ leyfi Benedikts Páfa 16. Menn búast viđ ađ páfi tilkynni ađ messan muni ekki innihalda neitt ljótt orđbragđ um gyđinga eins og hún gerđi áđur fyrr. Messa ţessi, Missa Tridentina, sem var samţykkt áriđ 1570, nánar tiltekiđ á einu af ţremur kirkjuţingunum í Trento á Ítalíu,  hefur nýveriđ veriđ lítt notuđ á latínu nema af sóknarbörnum harđlínuklerks í Frakklandi, sem í óţökk Páfagarđs messar allt á latínu. Á 7. áratug síđustu aldar ákvađ ţáverandi páfi ađ úr messunni skyldu felld orđ um hina trúlausu, fölsku og sviksömu gyđinga, og ađ messan skyldi flutt á móđurmáli safnađanna.

Benedikt páfi, áđur Ratzinger kardináll, er nú búinn ađ leyfa messuna á latínu í söfnuđum sem eru fjölmennari en 30 sálir. En menn búast má viđ ţví ađ fúkyrđi um gyđinga verđi kveđin út úr messunni. Páfinn var sem kunnugt er međlimur í Hitler Jugend á unga aldri (sem auđvitađ kemur ţessu máli ekkert viđ, ţví ţar sungu menn ađrar messur). Ćtli honum hafi veriđ veitt syndaaflausn?

Bćnir í ţeirri messugjörđ á latínu, sem samţykkt var í Trento, og sem ćtlađar voru fyrir Föstudaginn langa, ţóttu móđgandi í garđ gyđinga. Ţar var beđiđ var fyrir skjótri kristnun ţeirra. Meira ađ segja í ţýddum útgáfum messunnar á móđurmálum káţólsku hjarđanna er enn veriđ ađ biđja um ađ gyđingar viđurkenni smiđssoninn frá Nazaret.

Hér mćtti spyrja stađarhaldara á Landakoti, hvort ţetta sé líka tilfelliđ á íslensku? - Og hvort einhver áform séu um ađ biđja fyrir múslimum líka?

Međ endurlífgun latnesku gerđar Trento messunnar eru gyđingar hrćddir um ađ aftur verđi fariđ ađ tala illa um gyđinga á latínu. Margir gyđingar kunna latínu og skilja ósómann vel og tilganginn međ honum.

Kaţólskir eru ekki einir um ţessa fyrirhyggjusemi fyrir hönd gyđinga. Mormónar tóku upp á ţví um áriđ ađ skíra öll fórnarlömb Helfararinnar til mormónsku, áratugum eftir ađ nasistar höfđu myrt ţau og skráđu ţau síđan sem mormóna í stóru ćttfrćđiforriti, sem ţeir hafa veriđ ađ dunda sér viđ ađ forrita í Salt Lake City.

Ég leyfi mér ađ biđja fyrir skjótum bata kaţólsku kirkjunnar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

vilhjalmur@mailme.dk

Bćkur

Kynning á nokkrum fćrslum, greinum og bókum PostDocs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband